Morgunblaðið - 09.07.2019, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019
✝ Ragnar Niku-lás fæddist á
Lækjarbakka í
Hveragerði 21.
apríl 1940. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suður-
lands 27. júní
2019.
Foreldrar hans
voru Lauritz
Christiansen, f. 19.
júlí 1906, d. 3.
ágúst 1973, og Þóra Nikulás-
dóttir, f. 9. mars 1908, d. 11.
desember 1982.
Ragnar Nikulás átti tvo
bræður; Hans, f. 14. nóvember
1937, d. 5. júlí 2007. Kona hans
var Dóra Snorradóttir, f. 31.
mars 1941, d. 16. maí 2000, og
Ingvar, f. 18. september 1944,
d. 4. nóvember 2007. Kona
1970. 4) Fanney Elísabet, f. 29.
nóvember 1978, sambýlis-
maður hennar er Baldvin
Freyr Þorsteinsson, f. 6. októ-
ber 1984. Fanney og Baldvin
eiga eina dóttur, Iðunni Sig-
urborgu, f. 25. júlí 2016, en
fyrir átti Baldvin Freyr dæt-
urnar Heklu Berglindi, f. 5.
september 2007, og Kötlu
Bryndísi, f. 5. september 2007.
Ragnar Nikulás var garð-
yrkjufræðingur að mennt,
lærði við Garðyrkjuskóla rík-
isins á Reykjum í Ölfusi. Hann
starfaði við garðyrkju alla sína
ævi, bæði sjálfstætt og seinna
við Garðyrkjuskóla ríkisins á
Reykjum í Ölfusi.
Ragnar Nikulás var Hver-
gerðingur í húð og hár bjó þar
allt sitt æviskeið.
Útför Ragnars Nikulásar fór
fram frá Hveragerðiskirkju, 8.
júlí 2019.
Vegna mistaka við vinnslu
blaðsins birtust greinar um
Ragnar Nikulás ekki á útfar-
ardegi. Eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar.
hans var Gíslína
Björnsdóttir, f. 13.
maí 1940, d. 20.
febrúar 2017.
Hinn 23. sept-
ember 1962
kvæntist Ragnar
Nikulás eftirlif-
andi eiginkonu
sinni Ástu Borg
Jóhannsdóttur, f.
5. júlí 1940. For-
eldrar hennar
voru Jóhann Jónsson, f. 27.
september 1918, d. 1. apríl
1994, og Anna Birna Björns-
dóttir, f. 28. september 1921,
d. 30. janúar 1998.
Börn Ragnars Nikulásar og
Ástu Borgar eru: 1) Anna
Birna, f. 16. maí 1962. 2) Lárus
Þór, f. 18. apríl 1964. 3) Jó-
hann Guðni, f. 3. september
Elsku Raggi mágur, mig lang-
ar með nokkrum orðum að minn-
ast þín.
Þú varst alltaf til staðar í lífi
mínu, sem lítil skotta kom ég oft
til ykkar Ástu systur og þá var
nú gaman. Heimilið ykkar var
alltaf opið fyrir mig og garðurinn
ykkar eitt ævintýri fyrir stelpu
úr sjávarplássi þar sem var ekki
eitt einasta tré, nema kannski
eitt og eitt á stangli.
Við áttum okkar rökræður og
það var oftast glatt á hjalla . En
þegar unga daman vildi ekki fara
að sofa á kvöldin þá varðstu pínu
pirraður en skeyttir ekki skapi á
mér heldur fórum við í keppni
um hvert okkar vaknaði fyrst á
morgnanna og oftast átti ég vinn-
inginn, eða það hélt ég lengi vel.
Þú leyfðir mér að vinna , en það
sem ég vissi ekki þá var að þú
varst búin að fara út eldsnemma
og huga að blómunum þínum sem
þú ræktaðir af svo mikilli natni,
það allt blómstraði í höndunum
þínum.
Gróðurhúsin þín voru eins og
völundarhús með nellikkum, am-
aryllis, orkídeum og ýmsum öðr-
um blómum. Þú varst fyrstur að
sýna mér orkídeur og þetta voru
fegurstu blóm sem ég hafði séð.
Þú varst fremstur í þínu fagi að
rækta ný blóm og prófaðir allt
mögulegt. Þegar ég gifti mig þá
bað ég þig um að gera brúðar-
vöndinn, hann var fallegur og lit-
skrúðugur með freysliljum og
brúðarslöri.
Eitt árið varst að reyna að
rækta maís, en merkilegt að þeg-
ar maísstönglarnir voru rétt
sprottnir þá hurfu þeir, en við
Lalli sonur þinn elduðum þá þeg-
ar við héldum að þú sæir ekki til,
þetta voru mín fyrstu kynni af
maísstönglum. Við tókum þá og
borðuðum en ekki vorum við
skömmuð, nei, heldur var okkur
sagt að þú skildir ekki hvað maís-
stönglarnir hyrfu hratt og ég satt
að segja skammaðist mín lengi
vel. Ég hætti að elda þá þarna og
viti menn, uppskeran var ágæt
eftir það.
Þú ræktaðir bragðbestu gul-
rætur í heimi og varst vakinn og
sofinn yfir ræktuninni.
Þegar ég eltist og ferðum fór
að fækka til ykkar yfir sumartím-
ann en við hittumst oft því það
var svo gott að koma til ykkar
Ástu. Stundum fórum við í bíltúr,
þá þekktir þú hverja einustu
þúfu og hvern hól. Þú varst svo
fróður um sögu okkar Íslendinga
og einnig um gróður og stað-
hætti. En þú skildir nú ekki
flökkueðlið í mér, síðar kom í ljós
að Fanney dóttir þín var með
sömu gen. Þér fannst við alltaf á
ferð og flugi.
Þú varst heimakær, þú fluttir
ekki oft um dagana og varst í
raun alltaf á sama blettinum, þú
undir hag þínum vel í Hveragerði
og varst stoltur af þínum
heimabæ. Þú varst víðlesinn og
það var keppni hjá smáa fólkinu í
fjölskyldunni að vera með þér í
liði í spurningarkeppnum því það
var viss passi að þá var maður í
vinningsliðinu.
Elsku Raggi minn, þú varst
rólyndur og göfuglyndur. Ég
þakka þér samfylgdina, hún var
góð og aldrei dró í brýnu.
Farðu í friði, ég veit að sum-
arlandið tekur vel á móti þér og
okkar fólk mun umvefja þig kær-
leika.
Elsku Ásta systir, Fanney,
Baddi, Iðunn, Lalli, Jói og Anna
Birna, ég votta ykkur innilega
mína dýpstu samúð.
Þín mágkona,
Þórný Jóhannsdóttir.
Elskulegur mágur minn,
Ragnar Nikulás Christiansen,
kvaddi þetta líf í lok júní sl. og
verður borinn til grafar í dag, 8.
júlí 2019.
Þakka þér elsku Raggi minn
fyrir samferðina, velviljann og
vináttuna sem þú sýndir mér
ávallt.
Segja má að ég hafi fylgt með
þegar þú kvæntist Ástu systur
minni. Ég var mjög oft hjá ykkur
og fékk að njóta mín sem aldrei
fyrr. Ég elskaði að vera í návist
ykkar, alltaf eitthvað nýtt og
spennandi sem ég gat tileinkað
mér eða hjálpað ykkur Ástu með.
Ég var barnapía hjá ykkur á
sumrin og síðar í skóla í Hvera-
gerði og Selfossi.
Ég er þér þakklát fyrir
margra hluta sakir.
Þegar þú fluttir mig fram og
til baka á gamla Willys-jeppan-
um þínum með speglaskattholið
sem ég gat ekki verið án þau
misserin. Á hverju sumri í meira
en fjögur ár.
Þegar þú bjargaðir lífi mínu,
að ég taldi. Ég var með hettusótt
og bar mig afar illa. Nú, þá fékk
ég frá þér þetta líka magnaða
fræðsluerindi um bólusetningar
frá byrjun og lífslíkur í prósent-
um á heimsvísu. Ég róaðist lítið
eitt og gat hlegið að viðbrögðum
þínum.
Takk fyrir alla aðstoðina við
nám, sama hvar bar niður: Sesar
eða Steinn Steinar. Dýralíf syðst
eða nyrst á hnettinum o.fl.
Þú varst svo fróður. Man vel
eftir eðlis- og efnafræðinni sem
ég átti að læra, tilneydd. Smá út-
skýringar frá þér og ég gat
höndlað mólikúl og alls konar
mælieiningar á byrjunarstigi.
Alltaf var stutt í húmorinn
þegar við hittumst.
Oft var ég hissa á því hvað þú
vissir margt og gast gert margt.
Ég bókstaflega missti brosandi
andlit mitt, þegar ég mætti eitt
sinn á ball með rock & roll-hljóm-
sveit og Ragnar Nikulás mágur
minn var að spila á trommurnar.
Enn er það ráðgáta hvar og hve-
nær þú hafðir æft þig á trommur.
Mér fannst þú skemmtilegur.
Eins ólík og við vorum, þá
varstu einn af mínum bestu vin-
um alla tíð.
Ég kveð þig með söknuði og
sendi Ástu systur minni, Önnu
Birnu, Lárusi, Jóhanni, Fann-
eyju og fjölskyldu innilegar sam-
úðarkveðjur.
Megi minningarnar um Ragga
ylja okkur og hugga á sorgar- og
saknaðarstundum.
Hvíl þú í friði elsku vinur.
Unnur Jóhannsdóttir.
Ragnar Nikulás
Christiansen
Okkar hjartfólgni faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
DAGFINNUR STEFÁNSSON
flugstjóri,
sem lést sunnudaginn 16. júní, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 10. júlí og hefst athöfnin klukkan 15.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík.
Inga Björk Dagfinnsdóttir
Stefán Dagfinnsson
Leifur Björn Dagfinnsson Hlín Bjarnadóttir
Íris Stefánsdóttir Kjartan Freyr Jónsson
Áslaug Stefánsdóttir
barnabörn og langafabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN RÓSA EINARSDÓTTIR,
Melteigi 19, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 2. júlí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 17. júlí
klukkan 13.
Gestína Sigurðardóttir
Kristín Rósa Sigurðardóttir Þórður K. Magnússon
Bjarni Sigurðsson Guðríður Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR KRISTJÓNSSON
skipstjóri,
sem lést fimmtudaginn 4. júlí á
dvalarheimilinu Jaðri í Snæfellsbæ, verður
jarðsunginn á Ingjaldshóli, Hellissandi,
föstudaginn 12. júlí klukkan 14.
Kristín M. Sigurðardóttir Svanbjörn Stefánsson
Sigurður V. Sigurðsson Kristín Björk Marísdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARGRÉT HANNESDÓTTIR,
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu Nesvöllum laugardaginn
6. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 12. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu á Nesvöllum fyrir
einstaka umönnun.
Þórir Valgeir Baldursson Guðrún Pálsdóttir
María Baldursdóttir
Júlíus Baldursson Hólmfríður Amalía Gísladóttir
Baldur Baldursson
Ómar Baldursson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.
✝ Einar GeirÞorsteinsson
fæddist 7. ágúst
1930 á Vatnsleysu
í Biskupstungum.
Hann lést 27. júní
2019.
Foreldrar Ein-
ars Geirs voru
Ágústa Jónsdóttir
húsmóðir, f. 28.
ágúst 1900, d. 25.
september 1986,
og Þorsteinn Sigurðsson
bóndi, f. 2. desember 1893, d.
11. október 1974. Systkini
Einars Geirs voru: 1) Ingi-
gerður, f. 1923, látin 2) Sig-
urður, f. 1924. 3) Steingerður,
f. 1926. 4) Kolbeinn, f. 1932,
látinn. 5) Þorsteinn Þór, f.
1933, látinn. 6) Bragi, f. 1935,
látinn. 7) Sigríður, f. 1938,
látin. 8) Viðar, f. 1945.
Eiginkona Einars Geirs er
Ingveldur Björg Stef-
ánsdóttir, f. 2. apríl 1936.
Börn Einars Geirs og Ingveld-
ar eru: 1) Stefán Árni, f. 1960.
Eiginkona hans er Sigurrós
Ragnarsdóttir. 2) Þorsteinn, f.
1962. Eiginkona hans er Ásta
Sigrún Helgadóttir. 3) Guðni
Geir, f. 1968. Eiginkona hans
er Andrea Gerður Dofradótt-
ir. 4) Áslaug, f. 1975. Eig-
inmaður hennar er Einar Örn
Ólafsson. Barnabörn Einars
Geirs og Ingveldar eru 12 og
barnabarnabörnin fimm.
Einar Geir ólst upp á
Vatnsleysu í Bisk-
upstungum. Hann
flutti síðar til
Reykjavíkur og
síðar í Garðabæ.
Einar Geir starf-
aði sem gjaldkeri
hjá Landsbanka
Íslands og síðar
sem gjaldkeri og
bókari hjá Egg-
erti Kristjánssyni
& Co. Einar Geir
var framkvæmdastjóri sam-
vinnufélagsins Hreyfils 1971
til 1989. Þá starfaði hann í
heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytinu 1989 til 1990.
Einar Geir starfaði sem
starfsmannastjóri Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík frá 1991 og
þar til hann lét af störfum
sökum aldurs á árinu 1999.
Einar Geir var formaður Ung-
mennafélags Biskupstungna
um árabil. Hann var formaður
Karlakórsins Fóstbræðra 1969
til 1974 og formaður Kötlu,
sambands sunnlenskra karla-
kóra, 1977 til 1981. Einar
Geir var bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins í Garðabæ
1978 til 1990 og formaður
Framsóknarfélags Garða-
bæjar 1988 til 1991. Einar
Geir sat í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins í fimm ár.
Útför Einars Geirs fer fram
frá Vídalínskirkju í dag, 9.
júlí 2019, og hefst athöfnin kl.
13.
Í dag kveð ég í hinsta sinn
tengdaföður minn, Einar Geir
Þorsteinsson. Ég minnist hans
með mikilli hlýju og er lánsöm að
hafa verið samferða honum í lífinu
í næstum aldarfjóðung. Ég dró
sannarlega stóra vinninginn í
tendapabbalottóinu.
Einar Geir var sannkallaður
mannkostamaður. Hann var ein-
staklega hlýr og kærleiksríkur,
sýndi fjölskyldu sinni og afkom-
endum einlægan áhuga og studdi
fólkið sitt og hvatti til dáða í hví-
vetna. Hann var líka sérdeilis
barngóður og natinn og þolinmóð-
ur afi. Einhvern veginn voru litlu
barnabörnin alltaf komin í fangið
á honum í kaffiboðum og á öðrum
samverustundum, því afi var sá
sem gaf sér tíma til að rugga,
raula, telja fingur og skoða dót og
hluti með litlu manneskjunum.
Einar var afskaplega fé-
lagslyndur og áhugasamur um sitt
samfélag. Lengi vel tók hann virk-
an þátt í stjórnmálum en einnig
var hann virkur í öðru félagsstarfi
og söng með Fóstbræðrum um
áratugaskeið. Hann naut sín vel á
mannamótum og réttirnar í Tung-
unum, heimahögunum góðu, voru
ómissandi hluti tilverunnar, þar
sem stórfjölskyldan, sveitungar
og vinir hittust og sungið var und-
ir hans stjórn. Hann unni sveitinni
sinni og hvergi þótti honum betra
að vera en í sumarhúsinu sínu í
sælureit stórfjölskyldunnar í
Biskupstungum, helst með sem
flesta afkomendur og frændgarð-
inn á svæðinu. Veðrið var alltaf
gott í Tungunum!
Það lék allt í höndunum á Ein-
ari. Það var alveg sama hvað var,
viðhald, smíðar, gróðurrækt eða
annað. Garðurinn þeirra Ingu, all-
ar fallegu plönturnar sem þau
hafa ræktað í stofunni sinni og
margar sem hafa ratað í stofuna
mína bera vitni um natni þeirra
hjóna og umhyggjusemi gagnvart
umhverfi sínu. Enginn gerði betri
kalkún en þau Einar og Inga, sem
afkomendur þeirra fengu að njóta
hver einustu jól og fordrykkurinn
hans Einars var sá albesti, líka
kaffið sem hann lagaði.
Það sem mér þótti um margt
einstakt og sérstaklega aðdáunar-
vert í lífi Ingu og Einars var
þeirra fallega hjónaband. Hlýjan,
virðingin, traustið og samheldnin
sem einkenndi svo sterkt þeirra
samband er okkur góð fyrirmynd.
Þau lögðu sig fram um að njóta
saman þess sem lífið hafði upp á
að bjóða og voru þakklát fyrir þá
gæfu sem þeim hafði hlotnast.
Elsku Inga, Stefán, Steini,
Guðni minn, Ása og fjölskyldur.
Megi hugljúfar minningar um ein-
stakan eiginmann, föður, tengda-
föður, afa og langafa ylja okkur í
sorginni.
Andrea Gerður Dofradóttir.
Í dag er borinn til grafar ást-
kær tengdafaðir minn Einar Geir
Þorsteinsson. Hann átti góða og
farsæla ævi. Ég kynntist honum
árið 1985 er ég kynntist syni hans
Þorsteini Einarssyni. Einar Geir
átti viðburðaríka og góða ævi og
var umkringdur fjölskyldu og vin-
um sem elskuðu hann og dáðu.
Hann fæddist á bænum Vatns-
leysu í Biskupstungum 7. ágúst
1930 og var því á 89. aldursári.
Foreldrar hans voru Ágústa Jóns-
dóttir húsmóðir og Þorsteinn Sig-
urðsson, bóndi á Vatnsleysu. Þor-
steinn var höfðingi mikill en mér
hafa alltaf fundist mikil líkindi
með þeim feðgum af þeim sögu-
sögnum og myndum sem ég hef
séð. Einar var einn af níu systk-
inum en af þeim eru þrjú á lífi í
dag. Minning mín um hann er
mjög falleg og góð. Í hjarta mínu
er mikið þakklæti fyrir að hafa
kynnst þessum mikla sómamanni.
Hann var einn að þeim sem voru
alltaf að og féll sjaldan verk úr
hendi hvort sem það var á heimili
sínu á Móaflöt í Garðabæ eða í
sumarbústaðnum Kjarri í Bisk-
upstungnum. Hann tók mér strax
afskaplega vel og fann ég strax að
um góðan og gegnheilan mann var
að ræða. Hann reyndist mér og
mínum alltaf vel í gegnum tíðina
og var alltaf til staðar. Þegar son-
ur fæddist árið 1990 blasti það við
að hann væri skírður í höfuðið á
honum enda um alnafna að ræða.
Einar Geir var mikið glæsimenni,
glaðvær, mikill söngmaður og
barngóður með eindæmum. Hann
var Tungnamaður í húð og hár og
undi sínum hag vel í sumarbú-
staðnum Kjarri í landi Vatnsleysu.
Þar elskaði hann að vera og dunda
sér við hitt og þetta. Einnig var
hann alltaf mættur í réttir
Einar Geir
Þorsteinsson