Morgunblaðið - 09.07.2019, Qupperneq 32
Skuggamyndir frá Býsans leika á
Múlanum á Björtuloftum Hörpu
annað kvöld, miðvikudag, kl. 21.
Hljómsveitina skipa Haukur Grön-
dal á klarínett, Ásgeir Ásgeirsson á
strengjahljóðfæri, Þorgrímur Jóns-
son á bassa og Erik Qvick á slag-
verk. Tónleikarnir eru liður í undir-
búningi fyrir tónleikaferð þeirra til
Makedóníu þar sem þeir koma fram
á tveimur tónlistarhátíðum.
Skuggamyndir frá
Býsans á Múlanum
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Brandur Olsen reyndist hetja FH-
inga þegar hann skoraði sigurmark
liðsins gegn Víkingum í tólftu um-
ferð úrvalsdeildar karla í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, á
Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í gær. FH
fer með sigrinum upp í sjötta sæti
deildarinnar í 16 stig en Víkingar
eru komnir í ellefta sætið og
eru með 11 stig. »27
FH sendi Víkinga í fall-
sæti á Kaplakrikavelli
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Knattspyrnumaðurinn Viðar Örn
Kjartansson veit ekki hvað tekur
við eftir næsta leik hans með
Hammarby í Svíþjóð sem vænt-
anlega verður sá síðasti með
Stokkhólmsliðinu þar sem hann
er í láni. Hann á þrjú ár eftir af
samningi sínum við Rostov í
Rússlandi en á ekki von á að spila
þar aftur. „Ég tel mig
vera í góðri stöðu
núna, það er frekar
mikill áhugi og
möguleikar á borð-
inu en það er ekki
undir mér komið
hvernig það fer,“
segir Viðar. »24
Veit ekki hvað tekur
við eftir næsta leik
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Einar Ásgeirsson er ekki unglamb í
árum en engu að síður léttur á fæti,
þó áttræður sé, fer á fótboltaleiki
og myndar í gríð og erg, bæði fyrir
netmiðilinn fotbolti.net og knatt-
spyrnudeild Fylkis í Árbænum.
„Ætli ég sé ekki elsti fótbolta-
ljósmyndari landsins,“ segir hann.
Félagsmál hafa lengi verið Einari
hugleikin. Hann var í stjórn knatt-
spyrnudeildar Fylkis, reif ásamt
Guðmundi Bjarnasyni og Sveinbirni
Sveinbjörnssyni upp getraunasölu
deildarinnar snemma á níunda ára-
tugnum, var vallarstjóri hjá Árbæ-
ingum í um sjö ár og er í sögunefnd
Fylkis. „Við búum reyndar ekki
lengur í Árbænum vegna þess að
eldri Árbæingar eiga þar ekki í
nein hús að venda og því flytja þeir
í Grafarvoginn,“ segir gallharði
Fylkismaðurinn.
Hann hefur lengi tekið myndir
fyrir félagið og segir að sú iðja hafi
leitt til myndatöku fyrir vefmiðilinn
fyrir nokkrum árum. „Ég fór að
senda Hafliða Breiðfjörð, eiganda
fotbolti.net., myndir og þetta vatt
upp á sig. Ég sendi honum til dæm-
is 95 myndir eftir einn leik ekki alls
fyrir löngu.“
Einráður sjálfboðaliði
Einar áréttar að hann sé sjálf-
boðaliði og myndi leiki að eigin vali.
„Ég er einráður en þekki marga
stráka í boltanum og þeir hafa
mjög gaman af að láta mynda sig.
Svo skemmir ekki fyrir að ég kemst
frítt inn á alla leiki.“ Hann segist
samt ekki geta fylgst með gangi
mála eins og venjulegir áhorfendur.
„Ég horfi bara á leikina í gegnum
linsugatið og það er allt öðruvísi en
að fylgjast með á hliðarlínunni. Ég
sé ekki aðdraganda að marki vegna
þess að ég fylgi alltaf boltanum.“
Eitt sinn fór Einar til Noregs að
sækja skip og hann notaði tækifær-
ið og lét gamlan draum rætast. „Ég
keypti mér vandaða myndavél í frí-
höfninni en henni var stolið ytra
skömmu síðar og þá varð ég svo
reiður að ég ákvað að stunda ekki í
frekari ljósmyndun. Mörgum ára-
tugum seinna féll ég fyrir stafrænni
myndavél og hef verið að þessu síð-
an.“
Einar segist að mestu hafa lært
að taka myndir með því að prófa
sig áfram og æfingin skapi meist-
arann. „Það er lítið um námskeið í
þessu en ég hef þó farið á tvö. Ann-
ars fikra ég mig bara áfram. Ég
lenti til dæmis í vandræðum með
litasamsetninguna um daginn en
hún er komin í lag.“
Einar var til sjós í 28 ár og vann
sem rannsóknarmaður hjá Hafró í
13 ár áður en hann fór á eftirlaun.
„Ég hætti að vinna fyrir tíu árum
og á meðan ég bíð eftir eilífðinni
verð ég að gera eitthvað. Það gefur
lífinu gildi að hafa eitthvað fyrir
stafni.“
Morgunblaðið/RAX
Á Fylkisvelli Einar Ásgeirsson myndar fyrst og fremst leikmenn Fylkis og er á heimavelli í Árbænum.
Aldurinn engin hindr-
un á fótboltavellinum
Einar Ásgeirsson er öflugur, áttræður ljósmyndari
Dýrabær Smáralind, Kringlunni,
Reykjanesbæ og Akranesi
Byko Selfossi | Fiskó Garðabæ
Heimkaup | Hundaheppni
Sími 511 2022 | dyrabaer.is
NÁTTÚRULEG
INNIHALDSEFNI
– fyrir dýrin þín
Bragðgott, hollt
og næringarríkt