Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 3. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 171. tölublað 107. árgangur
VILJA HAFA
DÝRMÆTIÐ Í
KIRKJUNUM
LEITUÐU
UPPRUNANS
Á NETINU
BANKAR 2 ÆTTERNI 12KIRKJUGRIPIR 6
Fjöldi landsela lá á Löngufjörum á sunnanverðu Snæfellsnesi
á laugardaginn var og sólaði sig í sumarblíðunni. Að sögn
Ragnars Axelssonar ljósmyndara, sem flaug þar yfir og tók
myndina, sýnir hún aðeins brot af selamergðinni sem þar var.
Selirnir höfðu markað slóðir í hvítan fjörusandinn þar sem
þeir höfðu mjakað sér til sjávar eða aftur á land og stjakað sér
áfram á hreifunum.
Landselastofninn hefur veikst talsvert samkvæmt talning-
um og nú er svo komið fyrir honum að Hafrannsóknastofnun
hefur lagt til að sett verði bann við beinum veiðum á tegund-
inni. Einnig verði leitað leiða til að draga úr meðafla landsels
við netaveiðar. Landselir hafa verið taldir reglulega frá árinu
1980. Stofninn er nú metinn vera 72% minni en 1980 en 23%
stærri en 2016. Samkvæmt mati eru nú 9.400 dýr í stofninum
en lágmarksstærð hans á að vera 12.000 selir.
Landselir sóla sig á Löngufjörum
Morgunblaðið/RAX
Guðni Einarsson
Jón Birgir Eiríksson
Ekki er tilefni til að efna til at-
kvæðagreiðslu meðal flokksmanna
Sjálfstæðisflokks vegna þriðja
orkupakkans miðað við inntak máls-
ins og eðli þess, að mati Birgis Ár-
mannssonar, þingflokksformanns
Sjálfstæðisflokks. Aðspurður segir
hann engin fordæmi fyrir því að
heimildinni hafi verið beitt og að
hún hafi nýlega komið inn í skipu-
lagsreglur flokksins. Hann kveðst
ekki vita til þess að undirskrifta-
söfnun sé hafin.
Brýnt að ræða við flokksmenn
Birgir vísar til þess að þriðji
orkupakkinn feli ekki með neinum
hætti í sér þær stórfelldu breyting-
ar sem stundum séu látnar í veðri
vaka. „Þetta mál hefur að mínu
mati fengið mun meiri umfjöllun og
gagnrýni en innhald þess gefur til-
efni til. Það er út af fyrir sig staða
sem þarf með einhverjum hætti að
bregðast við, en gefur að mínu mati
ekki tilefni til almennrar atkvæða-
greiðslu,“ segir
Birgir sem á von
á því að fundar-
höld verði vegna
málsins og stöð-
unnar í stjórmál-
um almennt á
næstu vikum.
„Þingflokkurinn
hefur rætt það,
vegna þessara
skiptu skoðana
innan flokksins, að það sé brýnt að
nota sumarið til að eiga samtöl við
flokksmenn með einum eða öðrum
hætti og ræða þetta mál, koma sjón-
armiðum á framfæri og hlusta á at-
hugasemdir,“ segir Birgir.
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins, kvaðst í
samtali við blaðið hafa orðið var við
efasemdir um orkupakkann, m.a. í
þingflokki sjálfstæðismanna. Birgir
segir að það verði að koma í ljós
hvort einhverjir þingmenn greiði
atkvæði öðruvísi en aðrir í þing-
flokknum. „Ég veit það eitt að þeg-
ar ákvarðanir voru teknar í þessum
efnum innan þingflokksins, þá var
það gert án andmæla og ég tel enga
ástæðu til að ætla annað en að sú
samstaða sem verið hefur í þing-
flokknum haldist,“ segir Birgir.
Viðmælendur blaðsins úr hópi
andstæðinga þriðja orkupakkans
innan flokksins vilja sumir flýta
flokksráðsfundi sem halda á í sept-
ember nk. og halda hann áður en
þing kemur saman og ræðir orku-
pakkann. Birgir segir það ekki
raunhæfan kost. „Flokksráðsfundur
er haldinn af öðru tilefni og til þess
að fjalla almennt um stefnumörkun
flokksins, en ekki til að taka afstöðu
til einstakra mála. Það er nokkuð
umhendis að færa jafn stóran og
viðamikinn fund til,“ segir hann og
vísar til þess sem fyrr kom fram, að
annar vettvangur verði notaður til
þess að ræða málin.
Matthildur Skúladóttir, stjórnar-
maður í Verði - fulltrúaráði sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík, segir
andstæðinga orkupakkans svekkta
yfir því hvernig komið er og margir
séu óánægðir með ríkisstjórnina.
Ekki tilefni til
atkvæðagreiðslu
Býst við fundarhöldum um orkupakkann á næstu vikum
Birgir
Ármannsson
MOrkupakkinn veldur ólgu »16
Svissneskir fjárfestar hafa á síðustu
árum keypt þrjár jarðir við Búðar-
dalsá á Skarðsströnd. Með kaup-
unum deila þeir jöfnum atkvæðis-
rétti í ánni með íslenskum land-
eigendum á svæðinu. Samkvæmt
heimildum blaðsins dvelja fjárfest-
arnir nokkrar vikur á svæðinu á ári.
Þeir hafi stundað veiðar á Íslandi í
áratugi. Veiðin sé þeirra ástríða.
Jafnframt hefur svissneski fjár-
festirinn Jakob David Blumer keypt
tvær jarðir á Austurlandi. Önnur er
við Fáskrúðsfjörð en hin er við
Kelduá inn til landsins. Með kaup-
unum eiga erlendir fjárfestar jarðir
við flesta firði á Austfjörðum.
Íslendingar keyptu jarðirnar
Hins vegar keyptu íslenskir fjár-
festar fjórar jarðir við Langadalsá
og Hvannadalsá á Vestfjörðum, sem
verið höfðu í eigu Johns Örnebergs.
Kaupendurnir voru annars vegar
félag Guðmundar Inga Jónssonar og
Þorláks Traustasonar og hins vegar
félag Guðmundar Halldórs Jóns-
sonar, barnabarns stofnanda Byko.
Seljandinn, Örneberg, tengist
timburiðnaði. baldura@mbl.is »10
Morgunblaðið/Einar Falur
Veitt við Langadalsá Íslenskir fjárfestar keyptu jarðir við ána.
Keyptu veiðijarðir
við Búðardalsá
Svissneskir fjárfestar sækja í veiðiskap
ÚTILOKAR
EKKI SAM-
EININGU