Morgunblaðið - 23.07.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið K371 sófi Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir 3ja sæta 2ja sæta og stólar Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Erum á facebook Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sumarið er gjarnan tími framkvæmda utandyra í borgarlandinu og þá er góðviðri nýtt til þess að lagfæra ýmislegt og viðhalda öðru, til dæmis malbika götur og sinna gróðri. Af og til reynir á þolinmæði ökumanna sem eiga leið um fram- kvæmdasvæði borgarinnar. Það átti við ofarlega á Laugavegi í gær þar sem tvær flugur voru slegnar í einu höggi og unnið að því að hengja upp skilti á hús og gangstéttarhellur lagðar. Lokað vegna lagfæringa á Laugavegi Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Tími viðhalds og viðgerða utandyra stendur sem hæst Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við útilokum það ekki en höfum að sama skapi ekki skoðað kostinn sér- staklega,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Vísar hún í máli sínu til umfjöllunar Morgunblaðsins síðustu daga þar sem fjallað hefur verið um hugsanlega sameiningu Arion banka og Íslandsbanka. Að hennar sögn eru vangaveltur um sameiningu íslensku viðskiptabank- anna ekki nýjar af nálinni „Þetta eru hugmyndir sem komið hafa upp og eru því ekki nýtilkomnar. Það hefur verið bent á að hægt sé að ná fram aukinni hagræðingu í banka- kerfinu með sameiningum,“ segir Katrín. Eins og fram kom í umfjöllun Morgunblaðsins telja sérfræðingar að hægt sé að auka verðmæti eignarhluta ríkis- ins í ríkisbönkun- um með samein- ingu framangreindra banka. Þannig ætti ríkið um 40% hlut í banka skráðum á mark- að í Svíþjóð og á Íslandi. Þá myndi ríkið jafnframt eftirláta einkaaðilum að straumlínu- laga bankann ásamt því að veita öfl- ugt aðhald. Katrín segir að það geti reynst erfitt að sameina banka sem annars vegar er í eigu íslenska ríkisins og hins vegar í eigu einkafjárfesta. „Það þyrfti að greina slíkt mjög vandlega enda getur það verið afar vandasamt fyrir ríkið að vera með- eigandi í áhættusömum fjármála- rekstri. Þess utan eykur það mjög á flækjustigið að vera með bæði einkaaðila og ríkið í rekstri á einum og sama bankanum,“ segir Katrín. Draga verði úr eignarhaldi Að sögn Katrínar kann hugsanleg sameining Íslandsbanka og Arion banka að stangast á við samkeppn- issjónarmið. Þá sé mikilvægt að hagsmunir landsmanna séu hafðir að leiðarljósti þegar teknar eru ákvarðanir með eignarhluti ríkisins í bönkunum. Þar komi t.d. til greina að heimila bönkunum að vinna sam- an að innviðaþróun að undangengnu samþykki Samkeppniseftirlitsins. „Ríkisstjórnin er sammála um að draga verði úr eignarhaldi á bönk- unum. Að okkar mati er mikilvæg- ast að tryggja að kostnaður og áhætta almennings verði lágmörk- uð,“ segir Katrín. Mikið hefur verið rætt og ritað um áhrif fjártækni á íslenska við- skiptabanka undanfarin misseri. Þá hafa sérfræðingar jafnframt varað við því að verðmæti eignarhluta rík- isins í bönkunum geti dregist veru- lega saman af þeim sökum. Spurð hvort hún telji ástæðu til að hafa áhyggjur af þróuninni kveður Katr- ín nei við. Hún tekur þó fram að áhætta felist í bankarekstri. „Þetta er ákveðin áhætta fyrir ríkið þó að ekkert bendi til þess núna að eignarhlutur ríkisins í bönkunum rýrni. Það er samt ekki að ástæðulausu sem við teljum skynsamlegt fyrir ríkið að vera ekki eins umsvifamikið á bankamarkaði og raun ber vitni,“ segir Katrín. Málið ekki verið kannað  Forsætisráðherra segir ekki útilokað að bankar verði sameinaðir  Enn sem komið er hafi sameining Arion banka og Íslandsbanka þó ekki verið skoðuð Katrín Jakobsdóttir Slökkt hefur verið á einum af þrem- ur kerskálum álversins í Straumsvík vegna óróleika í kerjum. Mbl.is greindi frá þessu í gær. Bjarni Már Gylfason, upplýsinga- fulltrúi Rio Tinto á Íslandi, sagði í samtali við mbl.is að ákvörðunin hefði verið tekin til að tryggja öryggi starfsfólks. Segir hann að mikill óró- leiki hafi verið í rekstrinum að und- anförnu sem rekja megi til þess að álverið hafi verið að fá óvenjulegt súrál frá nýjum birgjum. „Okkar rekstur er ekkert vanur að fá þetta efni,“ sagði Bjarni við mbl.is. Hann kveður of snemmt að segja til um fjárhagslegt tjón vegna ákvörðunar- innar en augljóslega sé ekki verið að framleiða í skálanum sem nú er úti. Framleiðslugeta álversins í Straumsvík er um 212 þúsund tonn á ári. Slökkt var á kerskálanum í tveim- ur skrefum, fyrst í fyrradag og svo aftur í fyrrinótt. Alls eru 160 ker í hverjum kerskála í álverinu. Ljósbogi talinn hafa myndast Samkvæmt heimildum mbl.is myndaðist svokallaður ljósbogi í ker- skálanum. Á Vísindavefnum segir að ljósbogi myndist þegar rafstraumur fer um gas og hitar það gífurlega. Al- gengt er að hitastig í þessum að- stæðum sé á milli 20.000 og 30.000 °C. Bjarni Már Gylfason sagðist í samtali við blaðamann mbl.is ekki geta tjáð sig um málið. freyr@mbl.is Slökkt á kerskála í álverinu í Straumsvík vegna óróleika  Ákvörðunin tekin til að tryggja öryggi starfsfólks Morgunblaðið/Ómar Óróleiki Nú er aðeins kveikt á tveimur kerskálum í álverinu. Björgunarsveitir voru í gærkvöldi að aðstoða mann sem lent hafði í sjálfheldu í Goða- hrauni á Fimm- vörðuhálsi. Fé- lagi mannsins tilkynnti atvikið klukkan 18, en maðurinn hafði verið að klifra þegar hann rann niður á syllu og festi fótinn á milli steina. Voru fimm hópar björgunar- sveitarfólks sendir af stað. Komu hinir fyrstu þeirra á staðinn upp úr kl. 20 og hófust þegar handa um björgun við frekar erfiðar aðstæð- ur. Þegar Morgunblaðið fór í prent- un í gærkvöldi var enn unnið að því að losa manninn sem ekki var tal- inn slasaður þrátt fyrir óhappið. Þriðja útkallið Þetta var þriðja útkall björgunar- sveita á Fimmvörðuháls á fimm dögum. Fastur á Fimm- vörðuhálsi Björgun Fjöldi manns aðstoðaði.  5 björgunarsveitir sendar á staðinn Skartgripasalar hafa lýst yfir áhuga á að smíða skartgripi úr tönnum og beinum grindhvalanna sem strönduðu á Löngufjörum á Snæfellsnesi. Að sögn Þorgríms Leifssonar, annars af landeig- endum Litla-Hrauns, hafa nokkrir skartgripasalar á höfuðborgar- svæðinu haft samband við hann. „Fleiri en einn skartgripasali vilja hengja þetta á brjóstið á fallegum konum og körlum,“ segir Þor- grímur. Tennurnar og beinin verða tekin þegar hræin rotna og er Þorgrímur þegar búinn að merkja staðinn. Ef þörf krefur verða þau hífð upp úr sandinum í Gömlueyri með traktor. Tennur hvalanna á Löngufjörum eru um fimm sentimetra langar. Í dag fara tveir sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun á staðinn og skoða hvalina. Vilja gera skart úr hvaltönnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.