Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Páll Vilhjálmsson bendir á aðhvorki „orkupakkinn“ né EES-samningurinn sem veldur honum hafi verið til umræðu fyrir þingkosningar, en almenningur hafi vaknað til vitundar um að fullveldi þjóð- arinnar í orku- málum væri í hættu:    Viðbrögð rík-isstjórn- arinnar, og sér- staklega Sjálfstæð- isflokksins, voru kolröng. Í stað þess að kannast við að EES- samningurinn var redding á sínum tíma vegna útþenslu Evrópusam- bandsins láta stjórnvöld eins og samningurinn sé meitlaður í stein og skuli gilda til eilífðarnóns. ESB er ekki lengur í útþenslu, Brexit er skýrasta dæmið. Ísland hafnaði að ganga í ESB um áramótin 2012/2013. Hvorttveggja átti að leiða til þess að stjórnmálakerfið á Íslandi tæki EES-samninginn til gagnrýnnar meðferðar. Það brást.    Orkupakkinn er þannig afleið-ing af tvennum mistökum. Í fyrsta lagi að EES-samningurinn skuli ekki vera í gagnrýnni endur- skoðun – sem myndi sjálfkrafa setja fyrirvara á innleiðingarferli laga og reglugerða ESB.    Í öðru lagi er forræði þjóð-arinnar yfir raforkumálum eitt og sér slíkt stórnál að orkupakk- ann hefði átt að ræða í þaula fyrir kosningar. Enn er orkupakkinn ekki afgreiddur frá alþingi. Enn er tími til að bæta fyrir ofan- greind mistök. En menn þurfa að sjá að sér og viðurkenna að til- gangi stjórnmála hafi ekki verið sinnt sem skyldi. Og þar ber stærsti stjórnmálaflokkurinn mesta ábyrgð. Nema hvað.“ Páll Vilhjálmsson Ráðuneytið ófært um mat á EES STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Bandaríska barnið sem grunur lék á að væri með E. coli-sýkingu reyndist ekki vera með hana. Eitt barn til viðbótar greindist með E. coli-smit á föstudaginn. Það er þriggja og hálfs árs gamalt barn sem borðað hafði ís í Efstadal II fyr- ir þremur vikum og hafði umgengist sýktan einstakling tveimur til þrem- ur vikum fyrr. Samkvæmt tilkynn- ingu frá sóttvarnalækni í gær heils- ast barninu vel og er undir eftirliti á Barnaspítala Hringsins. Í gær voru rannsökuð saursýni frá 15 einstaklingum sem borist höfðu dagana á undan en enginn greindist með E. coli-sýkingu. Frá því að E. coli-sýkingin kom upp í Efstadal hafa 22 einstaklingar greinst með sýkinguna, 20 börn og tveir fullorðn- ir. Annar fullorðni einstaklingurinn hafði borðað ís í Efstadal II 8. júlí. Að sögn sóttvarnalæknis hefur eng- inn annar greinst með E. coli-sýk- ingu eftir að fyrri aðgerðir til að rjúfa smitleiðir voru settar í gang. Seinni aðgerðin hófst 18. til 19. júlí, eftir það hafa engir einstakling- ar greinst með E. coli-sýkingu. Hinir sýktu utan einn borðuðu allir ís í Efstadal II. Bandaríska barnið ekki með E. coli  Eitt barn greindist á föstudaginn  22 sýkst frá upphafi, þar af 20 börn Morgunblaðið/Hari Efstidalur II Allt lítur út fyrir að E. coli-sýkingin sé í rénun. Smálánafyrirtækið eCommerce 2020 Aps, í eigu Kredia Group, til- kynnti í gær um nýtt skammtímalán á 53,7% vöxtum. Neytendasamtökin, sem hafa lengi barist fyrir því að böndum verði komið á ólöglega vexti eins og tíðkast hafa hjá smálánafyr- irtækjum, segja að þau telji yfirlýs- inguna jafngilda því „að fyrirtækin viðurkenni að fyrri vextir hafi verið ólöglegir“. Vextirnir eru rétt innan þeirra marka sem kveðið er á um í lögum um neytendalán, en þar segir að ár- leg hlutfallstala kostnaðar, sem er í raun eiginlegir vextir, megi aldrei vera hætti en stýrivextir að við- bættum 50 prósentustigum. Stýri- vextir eru nú 3,75% og því ljóst að þessi tala er 53,75%. Á 53,7% vöxt- um má taka 20.000 króna lán og greiða af því 729 krónur í vexti á mánuði, eða 10.740 krónur á ári. Fyrir 100.000 króna lán í mánuð væru 3.647 krónur greiddar í vexti á mánuði, eða 53.700 krónur á ári. Fyrirtækið eCommerce 2020 kynnir möguleikann engu að síður sem bætt kjör, enda hafa smá- lánafyrirtæki árum saman komist hjá lögunum með því að skrá höf- uðstöðvar sínar erlendis. Sama gild- ir um fyrirtækið eCommerce 2020, en það var stofnað árið 2016 og hefur höfuðstöðvar við Havnegade, skammt frá Nýhöfn í miðborg Kaup- mannahafnar, en móðurfélagið Kredia Group er skráð í Bretlandi. Fyrirtækið hefur ekki starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki frá íslenska Fjármálaeftirlitinu, en má starfa innan Evrópska efnahagssvæðisins á danska leyfinu. Neytendasamtökin hvetja alla sem hafa tekið lán með ólöglegum vöxtum að krefjast endurútreikn- ings lána sinna og eftir atvikum end- urgreiðslu og veita þau leiðbeiningar um það ferli á vef sínum. „Viðurkenning á ólöglegum vöxtum“  Smálánafyrirtæki boðar vexti eftir neytendalögum Lán Ófyrirleitin starfsemi smá- lánafyrirtækja er mikið rædd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.