Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Síðustu ár hafa erlendir fjárfestar
keypt jarðir við Búðardalsá á Vest-
urlandi og við Kelduá á Austurlandi.
Staðsetningin er hér sýnd á korti.
Annars vegar hefur svissneski
fjárfestirinn David Jakob Blumer
keypt tvær jarðir á Austfjörðum.
Hann er svissneskur ríkisborgari og
yfirmaður hjá BlackRock, einu
stærsta fjárfestingarfélagi heims,
sem nýverið fjárfesti í Marel.
Blumer er menntaður í hagfræði
frá Zürich-háskóla en hann starfaði
m.a. lengi hjá Credit Suisse.
Jarðirnar tvær eru nú skráðar á
félag hans, Aldgate eignir ehf., sem
stofnað var síðla árs 2017. Sam-
kvæmt kaupsamningi keypti Blumer
jörðina Arnaldsstaði í Fljótsdals-
hreppi í eigin nafni 28. september
2017. Kaupverðið var 16 milljónir
króna. Fram kemur í yfirliti
fasteignaskrár að til jarðarinnar
heyra 11,6 hektarar af ræktuðu
landi, lítið hesthús og 149 fermetra
einbýlishús. Jörðin er flokkuð sem
eyðijörð með sumarbúsetu. Hún er
nú skráð í eigu Aldgate eigna.
Þá keypti sama félag jörðina Eyri
27. október 2018. Ekki er getið um
kaupverðið í afsali eignarinnar en
brunabótamat sagt 32,6 milljónir.
Fram kemur í fasteignaskrá að á
jörðinni er 200 fermetra fjárhús, 50
fermetra véla- og verkfærageymsla,
160 fermetra íbúðarhúsnæði, 100 fer-
metra hlaða 26,9 hektarar af rækt-
uðu landi. Samanlagt eru því 38,5 ha
af ræktuðu landi á jörðunum tveim-
ur.
Eitt fallegasta bæjarstæðið
Þess má geta að rætt var við Jón
Úlfarsson, þáverandi ábúanda á
Eyri, í Morgunblaðinu í árslok 2007.
Sagði í inngangi fréttarinnar að á
Eyri við Fáskrúðsfjörð væri líklega
eitt fallegasta bæjarstæði landsins.
Þriggja hektara spilda til handa dótt-
ur seljanda er undanþegin kaup-
unum. Þá má seljandi dvelja eins
lengi á jörðinni og hann kýs án ann-
ars endurgjalds en sem svarar
rekstrarkostnaði húss.
Aldgate eignir hafa ekki birt árs-
reikning vegna ársins 2018. Í árs-
reikningi 2017 segir að tilgangur fé-
lagsins sé „umsjón og rekstur
fasteigna, fjárfestingar í fasteignum
og öðrum verðmætum, skógrækt,
uppbygging frístundabyggðar og
tengd starfsemi“.
Arnaldsstaðir eru við Kelduá. At-
hugun á eignarhaldi á nærliggjandi
bæjum í Suðurdal – Bringubakka,
Fremri-Víðivöllum, Klúku, Sturlu-
flöt, Víðivallagerði, Ytri-Víðivöllum
og Þorgerðarstöðum – bendir til að
þær séu í eigu innlendra aðila.
Með kaupum Blumers fjölgar
jörðum á Austurlandi sem eru í er-
lendri eigu. Eins og rakið var í
Morgunblaðinu á laugardaginn var
er á fjórða tug jarða á Austurlandi
sagður í eigu breska auðmannsins
James Arthur Ratcliffe. Jarðirnar
eru við Þistilfjörð, Bakkafjörð,
Vopnafjörð og Seyðisfjörð. Þá hafa
erlendir fjárfestar keypt Heyklif en
framkvæmdastjóri fyrirtækis í
Mónakó er í forsvari fyrirhugaðs
hótelreksturs við Stöðvarfjörð.
Hafa erlendir fjárfestar því komið
sér fyrir við flesta firði Austurlands.
Skráð í kantónunni Zug
Hins vegar hafa svissneskir fjár-
festar eignast þrjár jarðir við Búð-
ardalsá á Skarðsströnd; Hvalgrafir,
Hvarfsdal og Tinda. Eignarhaldið er
skráð í gegnum íslenska félagið Búð
ehf. sem er aftur í eigu svissneska fé-
lagsins Búðardalsá AG (hér skrifað
með íslenskum stöfum) sem er skráð
í kantónunni Zug í Sviss.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá kant-
ónunnar var félagið stofnað í nóv-
ember 2016. Félögin Budardalsa SA
og Budardalsa Ltd. eru tilgreind í
sama skráningarskjali. Þrír eru
skráðir í stjórn; Balthasar J. Meier,
André R. Bartlome og Peter B. Arn-
old. Meier og Arnold eru skráðir í
Sviss en Bartlome í Hong Kong.
Ekki virðist getið um eigendur.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru eigendurnir Svisslendingar sem
hafa stundað veiði á Íslandi í áratugi.
Þeir séu nú fullorðnir menn. Eftir
kaupin á Búð ehf. og umræddum
jörðum hafi þeir gert upp íbúðarhús
á Hvalgröfum og stækkað það. Fjár-
festarnir noti það sem veiðihús í þær
fáu vikur sem þeir dvelji á Íslandi við
veiðar ár hvert.
Veitt á tvær stangir í ánni
Á jörðinni Hvalgröfum eru 17,8
hektarar af ræktuðu landi og rúm-
lega 90 fermetra einbýlishús.
Á jörðinni Hvarfsdal er aðeins
skráð lax/silungsveiði í fast-
eignaskrá. Jörðin er skráð eyðijörð í
afrétt.
Á jörðinni Tindum eru skráðir 14,4
hektarar af ræktuðu landi og lax/
silungsveiði. Jörðin er skráð eyðijörð
í fasteignaskrá.
Tvær stangir eru í Búðardalsá og
skiptist atkvæðisréttur í veiðifélagi
árinnar jafnt milli Svisslendinganna
og íslenskra landeigenda.
Fram kom í Bændablaðinu í haust
að Svisslendingar leigi líka Dunká og
Álftá á sömu slóðum. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru fjár-
festarnir við Búðardalsá ekki tengdir
þeirri leigu. Þeir munu hafa skoðað
leigu í Krossá en horfið frá því. Þá
sagði í frétt Bændablaðsins að er-
lendur veiðimaður væri kominn með
Hítará en það var ekki útskýrt nán-
ar.
Milljarða uppbygging áformuð
Fleiri jarðir á Austurlandi gætu
skipt um hendur á næstunni.
Fram kom í Morgunblaðinu á
föstudaginn var að jörðin Heiði í
Skaftárhreppi væri til sölu. Á jörð-
inni er náttúruperlan Fjaðrárgljúfur.
Þá má nefna að Áslaug Magnús-
dóttir, athafnamaður í New York, og
meðfjárfestar keyptu Össurardal ár-
ið 2016 með uppbyggingu ferðaþjón-
ustu í huga. Hann er rétt norðan við
Höfn í Hornafirði. Umrætt svæði er
milli Eystrahorns og Vestrahorns og
austur af Jökulsárlóni.
Svisslendingar kaupa jarðir
Fjármálamaður frá Sviss keypti Arnaldsstaði í Fljótsdalshreppi og jörðina Eyri við Fáskrúðsfjörð
Hópur fjárfesta frá Sviss keypti þrjár jarðir við Búðardalsá í Dalabyggð Veiðiréttindi innifalin
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Fram kom í Morgunblaðinu sl.
laugardag að John Harald Örneber
ætti félagið Varpland. Stuðst var
við skráningu hjá Creditinfo.
Þetta reyndist ekki rétt.
Þannig hafði fulltrúi nýrra eig-
enda félagsins samband og benti á
að Varpland hf. væri nú í eigu Kjal-
ar fjárfestingarfélags ehf. og Axi-
om ehf., sem væru alfarið í eigu ís-
lenskra aðila. Eignarhaldið hefði
breyst síðastliðið haust.
Samkvæmt Creditinfo eiga Guð-
mundur Ingi Jónsson og Þorlákur
Traustason báðir 50% hlut í Kili
fjárfestingarfélagi. Axiom ehf. er
hins vegar skráð í eigu Guðmundar
Halldórs Jónssonar.
Félagið Varpland átti jarðirnar
Tungu, Neðri-Bakka, Brekku og
Kirkjuból sunnan Ísafjarðardjúps
en þeim fylgdu veiðiréttindi í
Langadalsá og Hvannadalsá. Örne-
berg keypti þær af Landsbank-
anum, alls 17 þúsund hektara.
Þess má geta að Guðmundur Hall-
dór er barnabarn stofnanda BYKO,
Guðmundar Halldórs Jónssonar.
Samkvæmt ársreikningi Kjalar
fjárfestingarfélags 2017 jókst
hagnaður ársins úr 182 milljónum
árið 2016 í 1.634 milljónir árið
2017. Félagið átti 100% hlut í Ís-
lenskri orkuvirkjun ehf., MBE 2
ehf. og Miðbæjareignum ehf. og
99,98% hlut í EU Fund slhf. (heitir
nú Gagnavarslan ehf.) Þá átti fé-
lagið 50% hlut í ÍslandsApóteki,
ásamt hlut í félögunum Solid
Clouds ehf. og Posa ehf.
Eignarhaldið breyttist
JARÐIR VIÐ HVANNADALSÁ OG LANGADALSÁ
Ísafjarðardjúp
Tunga
Neðri-Bakki
Brekka
Kirkjuból
Jarðirnar Tunga,
Neðri-Bakki,
Brekka og Kirkju-
ból eru í eigu
Varplands hf.
Jarðir í Langadal
Ljósmynd/Albert Kemp
Náttúra Fáskrúðsfjörður undir regnboga. Jörðin Eyri er við fjörðinn.
Fáskrúðsfjörður
Reyðarfjörður
Eyri
Fáskrúðs-
fjörður
Stöðvarfjörður
Ke
ld
uá
Arnaldsstaðir
Jö
ku
lsá
í
Flj
óts
da
l
Eignarhald jarða í Dalabyggð og á Austurlandi
Jarðir á Skarðsströnd í Dalabyggð
Jarðir í Fljótsdal og við Fáskrúðsfjörð
S
K
A
R
Ð
S
-
S
T
R
Ö
N
D
Tindar
Breiðafjörður
Geirmundarvogur Hvarfsdalur
Búðardalsá
Hvarfs-
dalsá
Hvalgrafi r
Búð ehf.
Budardalsa AG
Skráð í Zug í Sviss, eigendur
virðast ekki vera skráðir
Hvarfsdalur Tindar Hvalgrafi r
Aldgate eignir ehf.
David Jakob
Blumer
Arnaldsstaðir Eyri