Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Enn er hægt að gera góð kaup Str. 36-56 Útsalan í fullum gangi Í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30 verður á sjónvarpsstöðinni N4 sýndur fyrsti þátturinn af fjórum sem ber yfir- skriftina Garðarölt í blómabænum Hveragerði. Þar heimsækir Karl Eskil Pálsson fólk sem á fallega garða við hús sín, en sterk hefð er fyrir slíku meðal Hvergerðinga. Í hverjum þætti verða tveir garðar heimsóttir, í kvöld meðal annars sér- staklega fallegur yndisreitur þeirra Áslaugar Einarsdóttur og Péturs Reynissonar sem búa við götuna Lyngheiði. Af nægu er að taka í næstu þáttum en þeir verða jafnan á þriðjudagskvöldum næstu vikur, og svo endursýndir reglulega og að- gengilegir á netinu. Hveragerði á N4 Garðarnir í blómabænum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Upptökur Karl Eskil Pálsson og Bryndís Eir Þorsteinsdóttir, formað- ur umhverfisnefndar Hveragerðis. Kolbeinn Óttars- son Proppé, sagnfræðingur og alþingismaður, ræðir sögu hátíða á Þingvöllum í síðustu fimmtu- dagsgöngu þessa sumars, en hún er nú í vikunni; 25. júlí. Lagt verður af stað frá Hakinu kl. 20. Sjálfur skrifaði Kol- beinn rit um hátíðahöld og Þingvelli þar sem hann kafaði í sögu þeirra hátíða sem þar hafa verið haldnar, hver með sínum áherslum. Einnig greindi hann orðfæri höfðingjanna sem á Þingvöllum töluðu á þessum hátíðarstundum. Þingvellir á fimmtudag Kolbeinn talar Kolbeinn Óttars- son Proppé Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Dynkur í Þjórsá er einnsvipsterkasti foss lands-ins. Hann hafa fæstir séðnema á ljósmyndum. Torfært er að náttúruvættinu sem er inni á reginfjöllum, á stað sem sárafáir koma á. Alls er fossinn 38 metra hár þar sem hann breiðir úr sér á klöppunum og fellur síðan fram í þröngu gili. Tilkomumikið er að standa á barmi þess og virða fossinn fyrir sér; þar sem ljósbrúnt jökulvatnið veltist fram stalla og niður í djúpið. Grófur jeppavegur Um það bil 40 kílómetrar eru frá Sultartangavirkjun að Dynk. Er þá beygt til vinstri við skilti sem er merkt Gnúpverjaafréttur sem er rétt áður en komið er að brúnni fyr- ir framan stöðvarhús aflstöðv- arinnar. Þar tekur við grófur jeppa- vegur; fyrst um þokkaleg gróið land sem verður hrjóstrugra eftir því sem ofar dregur. Örnefni á þessum slóðum vitna mörg um að þetta er upprekstrar- land bænda í gamla Gnúpverja- hreppnum. Kóngsás er einn þessara staða – há bunga sem víðsýnt er frá. Í orðsins hljóðan liggur að þangað fór fjallkóngurinn jafnan til að hafa góða yfirsýn þegar hann skipaði smalamönnum til leita, hverjum á sitt svæðið. Raunar er eftirtektar- vert í sveitum á Suðurlandi, og raunar víðar á landinu, hve mjög menning þar mótast oft af fjall- ferðum og návígi við öræfin. Þau eru fólkinu helgur staður. Búðarhálsfoss úr austri Ekið er um hryggi og yfir ár og gil á afréttinum, uns komið er að látlausu máluðu skilti með klunna- legum störfum þar sem stendur Dynkur. Krókavegur tekur þá við uns komið er á bílastæði svo ekki verður lengra ekið. Þá er ekki annað í stöðunni en binda á sig göngu- skóna og ganga að fossinum um það tveggja kílómetra leið, fyrst um malarkamba en svo grónar grundir fram að Þjórsá og að gilbrún. Þar blasir dýrðin við; Dynkur, sem af austurbakka Þjórsár heitir Búð- arhálsfoss. Ofan og neðan við Dynk eru tveir aðrir fossar í Þjórsá, Gljúfur- leitarfoss neðar og Kjálkaversfoss nokkru innar í landinu. Svæði þetta var fyrr á árum talsvert í um- ræðunni. Laust eftir næstliðin alda- mót hafði Landsvirkjun uppi ráða- gerðir um svonefnda Norðlingaöldu- veitu. Þar var gert ráð fyrir stíflu og vatnsmiðlun í Þjórsárverum, en þá hefði vatn að mestu verið tekið af Þjórsá og fossarnir þá orðið berar klappirnar. Raunar var vatnsrennsli Þjórsár á þessum stað minnkað verulega með Kvíslaveitu sem var útbúin fyrir um 35 árum. Með henni er austustu upptakakvíslum Þjórsár veitt til vatnsmiðlunar virkjana á Tungnár- og Þjórsársvæðinu; það eru 40% af náttúrulegu rennsli ár- innar. Fossarnir hafa því misst tals- verðan mátt frá því sem áður var. Einn í heiminum Hvergi var fólk að sjá í ferð blaðamanns – og förunautar hans – í leiðangrinum um Gnúpverjaafrétt síðastliðinn laugardag. Umhverfið var líkt því sem gerðist í barnabók- inni frægu; Palli var einn í heim- inum. Slíkt var þó ágæt tilbreyting frá kraðaki því sem er niðri í byggð og á fjölförnum ferðamannastöðum. Útkoman úr ferðinni var svo fínar myndir og góðar minningar; það er alltaf gaman að koma á áhugaverða staði sem setja sterkan svip á land- ið. Þorsti Á stífri göngu á heitum degi er kærkomið að finna fallegan fjallalæk og ausa vatni í lófa sér og svala þurrum líkamanum, eins og blaðamaður gerði. Dagsferð að fossinum Dynk Fossinn fagri! Dynkur í Þjórsá er á reginfjöllum og þangað fara því fáir þó að staðurinn sé vel þekktur af myndum. Er 38 metra hár en verulega vatnsminni nú en var fyrr á árum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dynkur Alls er fossinn 38 metra hár þar sem hann breiðir úr sér á klöppunum og fellur fram í þröngu gili. Jurt Holtasóley, þjóðarblómið sjálft, dafnar á bökkum Þjórsár við fossinn. Dynkur í Þjórsá (Búðarhálsfoss) Kortagrunnur: OpenStreetMap Sultar- tangalón Þjórsá BÚ ÐA RH ÁL S FOSSHEIÐI Sultartanga- virkjun Dynkur Gljúfurleit Morgunblaðið/Sigurður Bogi Merking Þetta mjög svo látlausa skilti vísar að stórbrotnum stað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.