Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 14
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Tryggingamiðstöðin hf. (TM) á nú í
viðræðum við Klakka ehf. um kaup á
öllum eignarhlutum í dótturfélagi
þess síðarnefnda, fjármögnunarfyr-
irtækinu Lykli hf. Þetta kom fram í
tilkynningu sem TM sendi frá sér til
kauphallar á sunnudag.
Gangi samningar eftir mun TM
greiða 9,25 milljarða króna fyrir
eignarhlutinn auk alls hagnaðar
Lykils eftir skatta á árinu 2019.
Hagnaður Lykils eftir skatta í fyrra
var rúmlega 1,2 milljarðar króna. Ef
hagnaður ársins verður í líkingu við
það má ráðgera að endanlegt kaup-
verð verði í um 10,5 milljarðar króna.
Fyrirhuguð kaup eru þó háð áreið-
anleikakönnun og samþykki hlut-
hafafundar TM. Þá verður Fjár-
málaeftirlitið að leggja blessun sína
yfir að TM megi fara með virkan
eignarhlut í Lykli og þannig sam-
þykkja hið nýja eignarhald. Vonir
beggja aðila standa til að viðræður
taki um tvo mánuði.
Féllu frá kaupunum í fyrra
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem TM
gerir tilraun til að kaupa Lykil. Nú
er liðið um ár frá því að framan-
greind fyrirtæki hófu fyrst viðræður
um kaup TM á öllu hlutafé Lykils.
TM ákvað þó að falla frá kaupunum
ríflega mánuði eftir að viðræður hóf-
ust og gerðu fyrirtækin með sér
samkomulag þar sem kveðið var á
um að ekkert yrði af kaupunum að
svo stöddu.
Þegar verið var að leita að kaup-
anda í fyrra naut Lykill aðstoðar
Beringer Finance ehf., sem sá um að
annast söluferlið fyrir hönd seljanda.
Fjárfestum stóð til boða að skila inn
óskuldbindandi tilboðum í allt
hlutafé félagsins, en í útboðsferlinu
var leitað til innlendra og erlendra
fjárfesta. Forsvarsmenn Klakka ehf.
ákváðu í kjölfarið að ganga til við-
ræðna við TM.
Þrátt fyrir að samningar hafi ekki
náðst á þeim tíma virðast báðir að-
ilar nú vonast til að hægt sé að ljúka
verkinu í annarri tilraun.
Mikill vöxtur síðustu ár
Lykill fjármögnun er fjármála-
fyrirtæki sem býður fjármögnunar-
leiðir við kaup og rekstur fasteigna
og lausafjármuna. Þjónustan stend-
ur einstaklingum, fyrirtækjum og
öðrum rekstraraðilum til boða.
Samanlögð heildarafkoma Lykils
síðustu tvö ár nemur tæplega 3,3
milljörðum króna. Þar af eru tæp-
lega 2,6 milljarðar tilkomnir vegna
hreinna vaxtatekna. Mikill vöxtur
hefur verið í vaxtatekjum félagsins
síðustu ár, en frá árinu 2015 hafa
þær aukist um tæpan milljarð króna,
úr 1,4 milljörðum króna í tæplega 2,4
milljarða króna í fyrra.
Eiginfjárhlutfall Lykils á árinu
2018 var 33,3%, en alls námu eignir
félagsins í fyrra nær 38 milljörðum
króna. Eigið fé Lykils var því um
12,6 milljarðar króna.
Sé miðað við að endanlegt kaup-
verð Lykils nemi um 10,5 milljörðum
króna er P/B hlutfall (margfeldi eig-
in fjár) félagsins 0,83.
Forvitnilegt verður að fylgjast
með hvort fyrirtækin nái saman í
annarri tilraun, en líkt og fyrr segir
er niðurstöðu að vænta á næstu átta
vikum.
Gera aðra kauptilraun
Morgunblaðið/Hari
TM Tryggingamiðstöðin hefur nú hafið viðræður um kaup á Lykli hf.
Tryggingamiðstöðin reynir nú að kaupa Lykil hf. í annað sinn Mikill hagn-
aður af rekstri Lykils síðustu ár Endanlegt kaupverð nemi um 10,5 milljörðum
Lykilstærðir TM
» Eigið fé TM í lok fyrsta árs-
fjórðungs 2019 nam tæpum 13
milljörðum króna.
» Skuldir félagsins námu 27,4
milljörðum í lok fjórðungsins.
» Markaðsvirði TM í Kauphöll
nam 22,2 milljörðum króna í
lok dags í gær.
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
nú áhrif til lækkunar og þar ræð-
ur mestu 11,2% lækkun á fötum
og skóm. Verð á húsgögnum
lækkar þá um 9,2%. Talsverða at-
hygli vekur að flugfargjöld til út-
landa hækka aðeins um 6,3% en
greiningaraðilar höfðu gert ráð
fyrir talsvert meiri hækkun þess
liðar. Þannig spáði Arion banki
23,9% hækkun og Landsbankinn
spáði 26,9% hækkun. Síðarnefndi
bankinn bendir á að það hefur
reynst að jafnaði 12% ódýrara
fyrir Íslendinga að fljúga til út-
landa í júlí á þessu ári en í sama
mánuði í fyrra.
Tólf mánaða verðbólga mælist í
júlímánuði 3,1% og lækkar úr
3,3% frá því í júní. Þannig hefur
vísitala neysluverðs lækkað um
0,21% frá fyrra mánuði. Er þetta
í annað sinn á þessu ári sem
verðhjöðnun kemur fram í mæl-
ingum Hagstofunnar. Þannig
lækkaði vísitala neysluverðs einn-
ig í janúar síðastliðnum og þá um
0,4%. Kom sú lækkun til vegna
janúarútsala. Sumarútsölur hafa
Verðhjöðnun mælist í júlímánuði
Sumarútsölur
hafa talsverð áhrif
Morgunblaðið/Hari
Miðaverð Mun ódýrara er að fljúga til útlanda nú en í sama mánuði í fyrra.
● Samsett hlutfall í rekstri VÍS reyndist
94,8% í júnímánuði en fyrir ári var hlut-
fallið 97%. Samsett hlutfall er tjóna-
kostnaður, endurtryggingakostnaður og
rekstrarkostnaður af vátryggingahluta
starfseminnar sem hlutfall af iðgjöld-
um. Þetta kemur fram í tölum sem
fyrirtækið hefur sent frá sér. Þar kemur
einnig fram að ávöxtun fjárfestinga-
eigna VÍS hafi reynst 0,2% í mán-
uðinum. Það sem af er ári reynist
ávöxtunin hins vegar 8,2%.
Samsett hlutfall hjá VÍS
reyndist 94,8% í júní
23. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.93 125.53 125.23
Sterlingspund 156.66 157.42 157.04
Kanadadalur 95.71 96.27 95.99
Dönsk króna 18.789 18.899 18.844
Norsk króna 14.592 14.678 14.635
Sænsk króna 13.331 13.409 13.37
Svissn. franki 127.06 127.76 127.41
Japanskt jen 1.1601 1.1669 1.1635
SDR 172.71 173.73 173.22
Evra 140.31 141.09 140.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.938
Hrávöruverð
Gull 1437.05 ($/únsa)
Ál 1832.5 ($/tonn) LME
Hráolía 62.5 ($/fatið) Brent
Heimsmark-
aðsverð á gulli
hélt áfram að
hækka í gær og
hefur nú náð
hæsta gildi sínu í
sex ár. Þannig
hefur verð á
hverja únsu gulls
farið vel yfir
1.420 Bandaríkja-
dali. Nemur árs-
hækkunin um 16,4%.
Hafa greiningaraðilar bent á að
væntingar um vaxtalækkun Seðla-
banka Bandaríkjanna hafi þrýst
verði gulls upp að undanförnu og þá
hefur aukið spennustig í sam-
skiptum Bretlands og Bandaríkj-
anna annars vegar og Írans hins
vegar haft sitt að segja um þróun
hrávöruverðs á mörkuðum.
Gullið ekki
hærra í 6 ár
Traust Fjárfestar
leita í málminn.
Fjárfestar leita í
öryggið á óvissutímum
● Leigufélagið Heimavellir hækkaði
mest allra félaga í Kauphöll Íslands í
gær, eða um 5,08% í afar takmörk-
uðum viðskiptum upp á 15 þúsund
krónur. Gengi félagsins stendur í 1,25
kr. TM hækkaði um 1,94% í við-
skiptum upp á 215 milljónir og stend-
ur gengi félagsins í 32,77 krónum. Á
sunnudag var tilkynnt um kaup TM á
Lykli fjármögnun. Kvika banki hækk-
aði um 1,58% í 92 milljóna króna við-
skiptum og stendur gengi félagsins í
10,9 krónum á bréfið. Þá hækkaði
Marel um 1,33% í 735 millljóna króna
viðskiptum. Gengi Marels nemur nú
608 kr. á bréfið. Mest lækkuðu hluta-
bréfin í HB Granda, eða um 0,84% í
88 milljóna króna viðskiptum. Heild-
arvelta í kauphöllinni í gær nam 2
milljörðum króna.
Gengi Heimavalla hækk-
aði um 5% í Kauphöll
STUTT