Morgunblaðið - 23.07.2019, Page 27

Morgunblaðið - 23.07.2019, Page 27
Hafnarfjörður verður öðruvísi án hennar Þóru Antons. Guðmundur Árni Stefánsson. Mig langar að minnast elsku vinkonu minnar, Þóru Valgerð- ar, og rifja upp með nokkrum orðum aðdraganda að okkar kynnum. Kynni okkar Þóru hófust árið 1971 þegar hún hafði misst eig- inmann sinn Ólaf Þórarinsson snögglega. Þá vorum við hjónin nýflutt í okkar fyrstu íbúð að Öldugötu 42 í Hafnarfirði með frumburð okkar þriggja ára. Þarna hafði myndast alveg sér- stakt samfélag fólks á öllum aldri sem bjó við Öldugötu 42 og 44. Þóra bjó í 44 og vorum við báðar með yngstu eigendum þarna. Einhverra hluta vegna fékk ég ekki frið í sálinni fyrr en ég tók í mig kjark til að banka upp á hjá Þóru og votta henni samúð mína. Þóra sagðist hafa átt von á komu minni og upp frá því urðum við miklar vinkonur þrátt fyrir 11 ára aldursmun og við héldum góðu sambandi eftir að við Geiri fluttum af Öldugöt- unni eftir átta ára búsetu og Þóra stuttu síðar með Friðþjófi, seinni eiginmanni sínum. Fyrir nokkrum árum ákváðum við að hætta að gefa hvor annarri afmælisgjafir og fórum frekar saman út að borða, helst á veitingastöðum þar sem aðstaða var góð til að rabba um allt milli himins og jarðar og gefa sér góðan tíma saman. Tví- setnir veitingastaðir voru okkur því ekki að skapi. Einnig höfð- um við það prinsipp að fara aldrei úr landi eða í lengri frí nema láta hvor aðra vita. Andleg málefni voru okkur mjög hugleikin og við sóttum marga miðilsfundi saman. Fyrsti fundurinn sem við fórum á var hjá indverskum miðli sem var staddur hérlendis tímabundið. Við höfðum pantað tíma með löngum fyrirvara. Deginum áður en að tímanum kom, andaðist Steinunn dóttir Þóru úr illvígum sjúkdómi sem hún hafði verið að berjast við um langt skeið. Þóra tók ekki annað í mál en að við færum til miðilsins. Á þessum fundi fékk Þóra mörg svör og var glöð að hafa ekki hætt við að fara á fundinn. Næstu áratugi brölluðum við margt skemmti- legt saman og áttum fjölmargar ánægjulegar samverustundir. Má þar nefna mánaðarlegar ferðir okkar í nudd og slökun til Grindavíkur og var allur dag- urinn tekinn í það. Síðastliðin ár var Þóra búin að vera mikið veik og vissi í hvað stefndi. Við töluðum alltaf opinskátt um hennar veikindi og hún hélt áfram að lifa lífinu lif- andi og tók ekki annað í mál. Við vorum báðar hreinskiptnar hvor við aðra fram á síðasta dag. Hún var glæsileg kona í alla staði og betri vinkonu hefði ég ekki getað óskað mér. Vin- áttan gaf okkur báðum mjög mikið og ég á eftir að sakna elsku Þóru vinkonu minnar mik- ið. Þóra átti gott líf með Frið- þjófi eiginmanni sínum og var ánægð með það sem þau höfðu upplifað saman. Hennar tími var hins vegar kominn og hún var reiðubúin til að fara yfir í Sum- arlandið að hitta látna ættingja sína sem voru henni mjög kærir. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Elsku Friðþjófur, Óli Þór og fjölskyldur. Mínar dýpstu sam- úðarkveðjur til ykkar og megi guð vera með ykkur í sorginni. Hvíl í friði, elsku Þóra mín. Þín vinkona, Vala. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Þóra Antonsdóttir var yngst systkinanna á Höfða, eldri voru Guðrún og Friðrik. Nú eru þau öll gengin, heimilisfólkið sem var mér ungum dreng í sveit svo náið. Foreldrar þeirra voru Steinunn Guðmundsdóttir og Anton Jónsson og þar var einnig Bríet Guðmundsdóttir. Mann- margt var á Höfða á sumrin og lífið var endalaust samspil við náttúruna, heyskap, skepnur og silung. Tilveran var ríkulega krydduð með sögum og kátínu. Þóra var létt í lund en alls ekki skaplaus. Uppátæki ungdómsins voru stundum kostuleg einkum ef fullorðnir brugðu sér af bæ. Úr þessu umhverfi flutti Þóra og stofnaði heimili í Hafnarfirði með manni sínum Ólafi Þórar- inssyni. Ungum þótti mér gott að líta í kaffi til þeirra Óla og Þóru. Það var mikið áfall er Ólafur féll skyndilega frá og Þóra mætti fleiri áföllum en brotnaði ekki. Seinni maður Þóru er ljúfmennið Friðþjófur Sigurðsson. Hann var hennar stoð og stytta og hún hans. Síð- ustu ár hrjáðu langvinn veikindi Þóru en hún stóð ætíð keik, flott klædd og brosandi við öll tilefni. Allt til síðasta dags. Aðstand- endum Þóru vottum við Sigrún dýpstu samúð. Vertu nú sæl og ljósinu falin. Jón Ólafsson. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 ✝ Hans Jón Þor-valdsson fædd- ist á Siglufirði 30. ágúst 1933. Hansi lést á sjúkradeild Heilbrigðisstofn- unar Norðurlands á Siglufirði 13. júlí 2019. Foreldrar hans voru Þorvaldur Þorleifsson skip- stjóri frá Grund á Siglufirði og Líney Elíasdóttir húsfreyja frá Krosseyri við Arn- arfjörð og var Hans elstur þriggja barna þeirra. Hin eru Guðný Soffía, f. 1934, d. 2004, og Elías Ævar, f. 1948. Hansi, eins og hann var yfir- leitt alltaf kallaður, vann mikið á sjó, bæði á togurum og á línu- Hjördís Aðalsteinsdóttir, d. 31. október 2000. Þau gengu í hjónaband 3. maí 1975. Synir þeirra eru tveir, Heimir Gunn- ar, f. 17. febrúar 1975, og Valur Freyr, f. 16. júlí 1979. Hjördís átti með fyrri eiginmanni sínum, Arnari Ólafssyni, þau Bergþóru, f. 8. febrúar 1962, Aðalstein Þór, f, 7. júlí 1963, og Örnu, f. 5. október 1967, og með Karli Har- aldi Bjarnasyni soninn Bjarna Bjarkan, f. 20. mars 1971. Hansi var af þeirri kynslóð þar sem mestur tími fór í vinnu og færri stundir voru til tóm- stundastarfa. Þó lék hann á harmonikku, einkum á sínum yngri árum, en fyrir kom að hann gripi í hana, þá einkum á tyllidögum. Kenndi meira að segja bróður sínum honum Elíasi að spila, gaf honum líka fyrstu harmonikkuna. Afkomendur hans eru 55 tals- ins. Útför Hansa fór fram frá Siglufjarðarkirkju hinn 20. júlí 2019. og netabátum. Þá vann hann á árum áður í sementsverk- smiðjunni á Akra- nesi um tíma og á Keflavíkurflugvelli. Hansi bjó næstum alla sína ævi á Siglufirði með við- komu á Ólafsfirði um tíma. Fyrri eiginkona Hansa var Erna Jakobína Gestsdóttir. Þau gengu í hjónaband 30. ágúst 1957. Synir þeirra eru Þorvald- ur Stefán, f. 10. maí 1957, Gest- ur, f. 3. ágúst 1958, og Gunnar, f. 17. febrúar 1960, en hann lést af slysförum 16. júní 1966. Hansi og Erna skildu. Seinni eiginkona hans var Kallið er komið, það er komið að leiðarlokum. Afi minn hann Hans Jón Þorvaldsson hefur kvatt þessa jarðvist. Ég er nokkuð viss um að hann hafi kvatt okkur viss í sinni sök, þótt erfitt sé fyrir okkur sem horfum á eftir honum að kveðja. Allt á sér upphaf og endi, þó svo í minningum úr bernsku hafi Hansi afi alltaf verið eins, með skegg, gleraugu og í köflóttri skyrtu. Það fór ekki mikið fyrir honum og vildi hann ekki láta mikið fyrir sér hafa. Hann var rólegur maður að eðlisfari, spak- ur, flinkur í höndunum og fróð- ur. Nýtti sér nýjustu tækni og fylgdist því vel með hvað var að gerast í heiminum. Ég fékk nafnið Jón í vöggu- gjöf í höfuðið á afa, þrátt fyrir að hann hafi ekki notað það mik- ið þá ber ég það með stolti, er ég þess einnig fullviss að ég hafi erft fleira frá honum því þrjósk- ur var hann líka. Þegar ég lít um öxl og rifja upp minningarnar um afa eru mér kærastar samverustundirn- ar sem við áttum þegar afi og Hjördís amma bjuggu rétt hjá okkur á Hverfisgötunni á Siglu- firði, en samgangur var þá mik- ill. Eftir að Hjördís amma dó minnkaði samgangurinn og ég flutti burt og fór í nám. Ég hugsa oft að ég hefði átt að vera duglegri að rækta sambandið en er þó þakklátur fyrir þær minn- ingar sem ég á, þær ylja. Hvíldu í friði elsku afi minn, núna eruð þið Hjördís amma sameinuð á ný. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. (Höf. ók.) Elsku pabbi minn, Þorvaldur, Heimir og Valur, ég sendi ykkur og fjölskyldum mínar innilegu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Þinn sonarsonur, Jón Örvar Gestsson. Elsku Hansi minn. Nú þegar þú hefur fengið hvíldina yljum við okkur við allar minningarnar sem við eigum um þig og allan þann kærleik sem þú gafst okk- ur. Þú varst einn af föstu punkt- unum í tilverunni staðfastur og trúr þínu spurðir alltaf frétta af þínu fólki og fórst ekkert leynt með stolt þitt á strákunum þín- um. Þú skilaðir þínu lífsverki vel og getur gengið stoltur frá borði. Minning í kertaljósi. Er þér til heiðurs kveiki ég á kerti með kærleika ég man hin liðnu ár og finn að oft þinn hugur hjartað snerti þá hrynja niður kinnar gleðitár. Ég stari inn í ljóssins blíða loga, sem lýsir mína sál og hjarta mitt þar sé ég mynd af þér í björtum boga og brosið færist yfir andlit þitt. Ég skynja yl og mátt frá mínum stjaka því myndin þín í kertaljósi er. Á meðan einhver von hér fær að vaka þá verður ekki hægt að gleyma þér. (Kristján Hreinsson) Sjáumst seinna elsku Hansi minn. kveðja Valdís. Hans Jón Þorvaldsson Haustið 1967 var verið að stækka Félagsheimilið og vann Heimir það verk með sínum mönnum, en hann rak trésmíða- verkstæði sem nefndist Kvistur. Í desember kviknaði í húsinu í miðri kvikmyndasýningu. Varð uppi fótur og fit og tókst að bjarga ýmsu og slökkva eldinn eftir að miklar skemmdir höfðu orðið. Það kom í hlut Heimis að stýra uppbyggingunni eftir brun- ann, annast samskipti við opin- bera aðila svo sem Félags- heimilasjóð og fleiri og fjármagna verkið. Gekk hann fram í því eins og öðru með festu og kappi. Áður en til þessa kom hafði verið ákveðið að æfa og sýna leik- ritið Mann og konu í leikstjórn Kristjáns Jónssonar. Þrátt fyrir þetta áfall var ákveðið að leik- félagið héldi sínu striki og var æft um veturinn ásamt því að leik- félagar lögðu nótt við dag við sjálfboðastarf við endurbygg- inguna. Þetta tókst, þó stundum væri lítið sofið, og var vígsla á endurbyggðu félagsheimili og frumsýning á Manni og konu í aprílmánuði 1968, en þar lék Heimir aðalhlutverkið, séra Sig- valda, eins og áður er getið. Það þótti rösklega að verið. Rósa var einnig mjög virk í fé- lagsstarfi og stóð ávallt fast við bakið á Heimi í störfum hans. Eins og oft var hún konan á bak við tjöldin og bar ekki framlag sitt á torg. Á síðari stigum end- urbyggingarinnar mæddi mikið á konunum að skipuleggja, mála, sauma og setja upp gluggatjöld. Þar reyndist Rósa betri en engin, en hún var einstaklega traustur vinur og vönduð manneskja. Í stuttri grein verða ekki tí- undaðar allar þær skemmtilegu stundir sem við áttum saman. Samvera okkar og samstarf við þau Rósu og Heimi og minningin um þau er okkur afar dýrmæt og þess vegna ákváðum við að senda þessa kveðju. Afkomendum þeirra færum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Greta Jónsdóttir og Pétur Bjarnason, Þórunn Helga Sveinbjörnsdóttir og Hannes Friðriksson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR GÍSLASON, áður Ljósheimum 20, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum sunnudaginn 7. júli. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ingibjörg Friðriksdóttir Andri M. Guðmundsson Bibbi Brannäs María Guðmundsdóttir David Heckadon Jóhannes W. Guðmundsson Ásta K. Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Af heilum hug þökkum við öllum þeim sem hafa sýnt okkur hlýju og vinarhug við fráfall okkar ástkæra ÁRNA SVERRIS ERLINGSSONAR húsasmíðameistara og kennara. Megi góðar vættir fylgja ykkur. Sigríður Sæland Hulda, Rannveig og fjölskyldur Ég var svo hepp- in að kynnast Þor- geiri stuttu eftir komu mína til landsins. Ég sé fyr- ir hugskotssjónum mér hvernig hann virti mig fyrir sér fullur forvitni, eins og hann horfði í raun á allt og alla, jafnt mann- eskjur sem sköpunarverkið. Ég vissi að hann var að vega mig og meta, en ekki til þess að dæma heldur til þess að komast að því hvað í mér bjó. Þetta gerði hann við alla; hann leitaði að þeim eiginleikum sem gera hverja einustu mannveru að einstöku og óendurtakanlegu kraftaverki. Hann skildi mikilvægi þess að Þorgeir Þorgeirsson ✝ Þorgeir Þor-geirsson fædd- ist 1. ágúst 1933. Hann lést 20. júní 2019. Þorgeir var jarð- settur 12. júlí 2019. þegja, því hvernig er hægt að hlusta á einhvern annan án þess að þagga niður í sjálfum sér? Þögnin er list – tákn þess að verið sé að skapa rými innra með sér til að meðtaka það sem frá hinum kemur; tákn um athygli og skilning. Og Þor- geir var sannur listamaður sem gaf auðmjúklega til kynna að hann gæti lært margt af lífs- reynslu annarra, þó að raunin væri sú að hann hafði miklu meira að kenna öðrum. Og mikilvægi þess sem sagt er felst ekki í fjölda orðanna; hjá Þorgeiri voru setningarnar stuttar, athugasemdir þar sem hann lét í ljósi skoðanir sínar, oft af ríkri kímni sem sýndi hvað hann tók lífið alvarlega. Hann sagði fáein innihaldsrík orð og þá skildu menn að „það er nefnilega það“, eins og hann komst sjálfur svo oft að orði, en ég man einnig hversu oft við skellihlógum saman þegar við leyfðum okkur að gera grín að raunveruleikanum. Þorgeiri var ekkert óviðkom- andi en hann skoðaði raunveru- leikann einnig með augum vís- indamannsins, sem hann og var. Hann sýndi mikinn áhuga á minni menningu og sparaði þá ekki orðin til að spyrja en um leið hjálpaði hann mér á ómet- anlegan hátt að nálgast íslenska menningu í öllum sínum mynd- um, ekki síst tungumálið. Ég vissi að ég gat alltaf leitað til hans og fengið faglega hjálp og stuðning. Meðal margs annars fór hann yfir ritgerðir og þýð- ingar en hann var alltaf svo til- tækur og áhugasamur að ég hafði á tilfinningunni að ég væri að gera honum greiða en ekki öfugt. Í áranna rás hefur einnig þróast vináttusamband milli móður minnar og eiginmanns annars vegar og Þorgeirs og Kristjönu, eiginkonu hans, hins vegar og hjá þeim fyrrnefndu hefur það vakið sömu tilfinn- ingar og ég lýsti hvað sjálfa mig varðar hér að ofan. Við vorum alltaf velkomin til þeirra og vor- um svo heppin að fá þau í heim- sókn til okkar á Ítalíu. Sam- verustundirnar voru fjölmargar og ógleymanlegar. Við erum öll þakklát fyrir að hafa mátt verða samferða Þor- geiri í þessari tilveru, samferða manni sem með opinn huga velti fyrir sér leyndardómum lífsins. Hvíli hann í friði. Elena, Franca og Luca. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.