Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 30

Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 30
30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn í sumar 70 ára Sigurður er Siglfirðingur. Þar býr hann og hefur gert síð- an hann útskrifaðist 1974 úr Tækniskóla Ís- lands sem byggingar- tæknifræðingur. Nú er hann verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins. Börn: Ari Sigurðsson, f. 1971, Hlöðver Sigurðsson, f. 1973, og Þorsteinn Freyr, f. 1984. Fósturdóttir Sigurðar er Björg Sig- rún Baldvinsdóttir, f. 1962. Eiginkona: Sigurleif Brynja Þorsteins- dóttir þroskaþjálfi, f. 1948 í Reykjavík. Foreldrar: Hlöðver Sigurðsson skóla- stjóri, f. 1906, d. 1982, frá Reyðará í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu, og Katrín Guð- rún Pálsdóttir hjúkrunarkona, f. 1907, d. 1982, frá Litlu-Heiði í Mýrdal í Vestur- Skaftafellssýslu. Sigurður Hlöðvesson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur illa sinnt því að taka smá- atriðin með í reikninginn og situr nú uppi með afleiðingarnar; margt smátt gerir eitt stórt. 20. apríl - 20. maí  Naut Snúðu ekki baki við gömlum vini, sem leitar til þín og þarfnast hjálpar þinnar. Láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Sumum finnst þú hinn besti ráð- gjafi. Leyfðu öðrum að njóta sín, þú þarft ekki að ráða öllu. Reyndu að miðla málum á fordómalausan hátt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það verða báðir aðilar í sambandi að leggja sitt af mörkum ef sambandið á að blómstra. Kafaðu djúpt og reyndu að komast til botns í því sem veldur þér áhyggjum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Auðvitað hefur þú fullan rétt á þínum skoðunum eins og hinir. Einhver vill nálgast þig en þú ert ekki viss. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ný kynni færa þér ferskar hug- myndir og breytingar á reglubundinni rút- ínu gera daginn eftirminnilegan. Þú rennir blint í sjóinn í ákveðnu máli. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sýndu öðrum samstarfsvilja. Athug- aðu hvar þú getur orðið að liði. Þolinmæði þrautir vinnur allar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt í vandræðum með eitt- hvað sem þú fórst létt með hér áður fyrr. Fólk talar ekki af heilindum og það skapar óvissu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver óróleiki ríkir á vinnu- stað þínum og þér finnst erfitt að átta þig á stöðu mála. Finndu þér tómstundagaman sem þú getur hellt þér út í. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gættu þess að enginn notfæri sér góðmennsku þína. Reyndu að sýna þol- inmæði þegar þú hittir manneskju sem er greinilega í uppnámi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Alveg upp úr þurru færð þú óvenjulega hugmynd um hvernig þú getir skemmt þér. Náðu valdi á lífi þínu í dag með afdráttarlausri yfirlýsingu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert mjög sjálfstæð/ur í dag. Vertu samt ekki afundin/n þótt aðrir reyni að leiðbeina þér. Ástamálin blómstra og þú svífur um. sat í stjórn þess um árabil, en félagið stóð meðal annars að útgáfu útgerðar- og siglingasögu Borgfirð- inga árið 2011, Víst þeir sóttu sjóinn, og stuðlaði að varðveislu eina hússins sem byggt hefur verið í tengslum við útgerð í Borgarnesi, Grímshússins í Sveinn hefur ávallt verið mjög virkur í félagsstarfi, meðal annars í Lionshreyfingunni frá 1968, Ung- mennafélaginu Skallagrími og í Fé- lagi eldri borgara í Borgarnesi frá því hann hafði aldur til. Hann er einn af stofnendum Grímshúsfélagsins og S veinn Gunnar Hálfdán- arson er fæddur 23. júlí árið 1939 í Þórshamri á Vesturgötu 78 á Akra- nesi. Hann gekk í barna- skóla á Akranesi og lauk skyldunámi frá Gagnfræðaskóla Akraness. Svo lærði hann prentiðn í Steindórs- prenti og lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík. Sveinn starfaði við prentiðn frá árinu 1955 til 1983. Lengst af rak hann eigin prent- smiðju, Prentborg í Borgarnesi, eða frá árinu 1967. Hann var inn- heimtustjóri Kaupfélags Borgfirð- inga 1983-2001 og formaður og fram- kvæmdastjóri Verkalýðsfélags Borgarness, síðar Stéttarfélags Vesturlands, á árunum 2001-2008. Sveinn endaði starfsferil sinn í Stéttarfélagi Vesturlands. „Ég ætl- aði reyndar aldrei að skipta mér af verkalýðsmálum þar sem ég taldi mig hafa fengið nóg af þeim í æsku,“ segir Sveinn, en Hálfdán faðir hans var formaður Verkalýðsfélags Akra- ness í 26 ár. Hálfdán sat einnig í bæj- arstjórn á Akranesi fyrir Alþýðu- flokkinn um áratugaskeið. „Ég hef hins vegar greinilega ekki fengið nóg af pólitíkinni þó svo að pabbi hafi átt sæti í bæjarstjórn í 32 ár, því ég ætl- aði mér að verða þingmaður árið 1978. En kjósendur vildu mig ekki, en sátu þó uppi með mig sem vara- þingmann í eitt kjörtímabil,“ segir Sveinn. Foreldrar Sveins fluttu á Akranes vestan af fjörðum í upphafi búskapar síns en samgangur við ættingja fyrir vestan var ætíð mikill, ekki hvað síst við hina rómuðu Gromsara. „Ég hef því ávallt haft miklar taugar vestur þó ég hafi aldrei búið þar. Ég er líka mikill Skagamaður og Borgnesingur. Má eiginlega segja að ég líti á mig sem vestfirskan Skaga-Borgnesing,“ segir Sveinn. Hann ólst upp á Akra- nesi með foreldrum sínum og systk- inum þremur, lengst af á Sunnubraut 14. Sveinn kvæntist Ásu Baldurs- dóttur í október árið 1960 og hóf bú- skap með henni á Akranesi. Þau bjuggu þar í fjögur ár og svo tvö ár í Reykjavík. Síðan fluttu þau í Borg- arnes 1967 og hafa búið þar allar göt- ur síðan. Brákarey. Á landsvísu var Sveinn einn af þremur yfirskoðunarmönnum ríkisins og átti sæti í undirbúnings- nefndum í tengslum við sameiningu sveitarfélaga. Sveinn lítur sáttur um öxl á tíma- mótum. „Ég hef átt mjög gott líf. Ég á góða konu og börn sem hefur öllum vegnað vel og það veitir mér mikla ánægju að sjá þau og fjölskyldur þeirra vaxa og dafna. Þá hef ég verið ánægður í þeim störfum sem ég hef sinnt. Ég hef líka verið heppinn og sloppið lifandi frá slysi þegar krana- bóma féll á mig árið 1969 og frá krabbameini árið 2016. Ég hef svo sannarlega margt til að vera þakk- látur fyrir í lífinu,“ segir hann. Fjölskylda Eiginkona Sveins er Ása Bald- ursdóttir, f. 14. september 1941. Hún er fyrrverandi móttökustjóri á Heilsugæslunni í Borgarnesi. For- eldrar hennar voru hjónin Baldur Bjarnason bifreiðarstjóri, f. 1915, d. 2007, og Hólmfríður Sigurðardóttir verslunarkona, f. 1916, d. 2012. Þau bjuggu í Borgarnesi. Börn Sveins eru 1) Guðrún Agnes Sveinsdóttir, gjaldkeri Skagans 3X, Sveinn Gunnar Hálfdánarson, fv. prentsmiðjustjóri, innheimtustjóri og formaður – 80 ára Við útskrift Afmælisbarnið ásamt börnum sínum og eiginkonu í útskriftarveislu Kristínar barnabarns og Bergþórs stjúpbarnabarns, á heimili Hálfdánar. Frá vinstri: Sveinn, Guðrún Agnes, Hólmfríður, Hálfdán og Ása. Vestfirskur Skaga-Borgnesingur Hjónin Sveinn og Ása giftust 1960 og fluttu í Borgarnes 1967. 40 ára Þorgerður er fædd og uppalin í Reykjavík og býr þar nú. Hún er stúdent úr Verzlunarskólanum og viðskiptafræðingur frá HR. Þaðan hefur hún einnig meistaragráðu í verkefnastjórnun. Þorgerður starfar hjá Stefni og er framkvæmdastjóri fast- eignaþróunarfélagsins Landeyjar. Börn: Gerður Gígja Óttarsdóttir, f. 2009, Hjördís Lóa Óttarsdóttir, f. 2012, og Einar Helgi Óttarsson, f. 2015. Eiginmaður: Óttar Örn Helgason, hag- fræðingur hjá Fossum mörkuðum, f. 1978 í Reykjavík. Foreldrar: Hjónin Gerður Pálsdóttir kennari, f. 1946, og Einar Ragnarsson tannlæknir, f. 1944, d. 2015. Búsett í Reykjavík. Þorgerður Arna Einarsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.