Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 31

Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 „ÞAÐ VORU 81 MEÐ EN 78 Á MÓTI Í ÞAÐ SKIPTIÐ. HVERSU OFT GETUR HANN KRAFIST ENDURTALNINGAR?” „NIÐRI … FJÓRTÁN STAFIR … BYRJAR Á „I”.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eyða hátíðardögum saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ ER EKKI OFT SEM MAÐUR SÉR BÝFLUGUR Í PEYSU ÉG FANGAÐI ÞENNAN FLUGUMANN! ÉG SKAL FÁ HANN TIL AÐ KJAFTA FRÁ ÖLLU! MUNDU AÐ ÞÚ VEIÐIR FLEIRI FLUGUR MEÐ HUNANGI EN EDIKI! HVÍ AÐ NOTA EDIK? f. 23. janúar 1960. Maki hennar er Ingólfur Árnason, framkvæmda- stjóri Skagans 3X. Þau búa á Akra- nesi. 2) Hálfdán Sveinsson, hót- elstjóri á Hótel Siglunesi, f. 26. september 1960. Maki hans er Mar- grét Jónsdóttir Njarðvík, eigandi ferðaskrifstofunnar Mundo. 3) Hólm- fríður Sveinsdóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytinu, f. 18. júní 1967. Maki hennar er Hrafnkell Ásólfur Proppé, svæðis- skipulagsstjóri höfuðborgarsvæð- isins. Barnabörn og barnabarnabörn Sveins „bein og óbein“ eru 18. Systkini Sveins voru Hilmar Snær framhaldsskólakennari, f. 1934, d. 2015, Rannveig Edda móttökustjóri, f. 1936, d. 2009, og Helgi Víðir svæð- isstjóri, f. 1944, d. 2008. Foreldrar Sveins voru hjónin Hálf- dán Sveinsson, kennari og formaður Verkalýðsfélags Akraness, f. 1907, d. 1970, og Dóróthea Erlendsdóttir, verslunarmaður og húsfreyja, f. 1910, d. 1983. Þau bjuggu á Akranesi. Sveinn Gunnar Hálfdánarson Árni Þórðarson bóndi á Króki í Norðurárdal Halldóra Benja- mínsdóttir húsfreyja á Króki í Norðurárdal Sveinn Árnason bóndi og verkamaður á Hvilft í Önundarfi rði Friðfi nna Rannveig Hálfdánardóttir húsfreyja á Hvilft í Önundarfi rði Hálfdán Sveinsson kennari, bæjarfulltrúi og formaður Verkalýðsfélags Akraness Hálfdán Örnólfsson útvegsbóndi í Bolungarvík Guðrún Halldóra Níelsdóttir húsfreyja í Bolungarvík Kristín Hálf- dánardóttir, fyrrverandi bæjarfull- trúi í Ísa- fjarðarbæ Hafdís Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Vestfjarðastofu og bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ Örnólfur Níels Hálfdánarson, kaupmaður og fi sk- verkandi á Ísafi rði Mikkelína Sveinsdótt- ir Gröndal húsmóðir í Reykjavík Svava Sveinsdóttir húsfreyja í Reykjavík Hálfdán Ingólfur Örnólfsson, sjómaður, síðast bús. í Hafnarfi rði Benedikt Gröndal formaður Alþýðufl okksins bús. í Rvík Sr. Halldór Gröndal sóknarprestur í Rvík Gylfi Gröndal rithöfundur bús. í Rvík Jón Hákon Magnús- son fjölmiðlamaður Kristján Bjarnason bóndi í Gerði í Selvogssókn Rannveig Erlendsdóttir húsfreyja í Gerði í Selvogssókn Erlendur Kristjánsson húsamálari á Ísafi rði Helga Daníelsdóttir húsfreyja og verkakona í Hnífsdal og á Ísafi rði Daníel Jónsson bóndi í Kjós, Staðarsókn í Grunnavík Dóróthea Vagnsdóttir húsfreyja í Kjós, Staðarsókn í Grunnavík Úr frændgarði Sveins Gunnars Hálfdánarsonar Dóróthea Erlendsdóttir húsfreyja og verslunar- maður á Akranesi Björn Ingólfsson segir frá því áLeir, að hann lenti á hagyrðingakvöldi á Þórshöfn á dög- unum og átti m.a. að svara því hvað hann myndi taka til bragðs ef hann mætti hvítabirni á förnum vegi. Um marga leiki er ekki að ræða í því tafli: Ég læst vera hetja og kræfur kall og kalla hann viðrini og apa, hálfvita, ræfil og rugludall, svo ræðst ég bara á hann – og tapa. Við því var að búast að nýi Herj- ólfur yrði hagyrðingum að yrkis- efni. Pétur Stefánsson yrkir: Að geti allur skollinn skeð, skeður öðru hverju. Virðist ennþá vesen með Vestmannaeyjaferju. Sigmundur Benediktsson bætti við: Vegagerðar vont er streð, vanda fáum hrindir, ætl’ ’ún hafi ekki séð áður smíðamyndir. Davíð Hjálmar í Davíðshaga yrk- ir: Slíkt afbragð var erlendur smiður og útpælda hönnunin styður hve skipið er hlýtt og skriðdrjúgt og frítt og svo hátt að það nær ekki niður. Þessi voru „verkefni dagsins“ hjá Pétri Stefánssyni á föstudag: Garður var sleginn og þvotturinn þveginn, þrifin var íbúðin hátt og lágt. og labbað frá Hlemmi um Laugaveginn og lengi um bæinn í friði og sátt. Svo kom ég heim og skrúbbaði skrokkinn, skrapp út í Bónus og verslaði inn. Seinna um daginn fór hagyrðings hnokkinn að hamast sem óður við kveðskapinn. Hér yrkir Ólafur Stefánsson gag- araljóð og kallar „mismunun“: Dansa ský um dimma nótt, dagsbrún brátt í austri hlær Búandkonur blunda rótt, bóndinn röskur túnið slær. Ármann Þorgrímsson segist orð- laus aldrei þessu vant. „Miðflokk- urinn eini flokkurinn sem bætir við sig fylgi. 4%. Set inn hugleiðingu sem er 20 ára gömul“: Sjálfir ætíð segjumst bestir sannleikann þó játa ber, Íslendingar eru flestir aulabárðar, virðist mér. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hvítabjörn, nýi Herjólfur og verkefni dagsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.