Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 33

Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 33
LUDOGORETS Teodor Borisov borisov89@gmail.com Síðasta áratuginn hefur lið Ludo- gorets verið andlit búlgarskrar knattspyrnu. Eftir að liðið vann sér sæti í A-deildinni í fyrsta skipti hef- ur það unnið meistaratitilinn átta ár í röð og á góða möguleika á að slá met CSKA sem varð níu sinnum meistari á árunum 1954 til 1962. Um leið hafa „Ernirnir“ tvisvar komist í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og þrisvar í riðlakeppni Evr- ópudeildar UEFA og eiga að baki minnisstæða leiki gegn liðum eins og Real Madrid, Arsenal, Liverpool, PSG, Lazio, AC Milan, Rauðu stjörnunni, Partizan, Hoffenheim, Istanbul Basaksehir o.fl. Ludogorets er gott dæmi um vel heppnað viðskiptamódel. Félagið á nýtískulegu íþróttamiðstöðina „Arn- arhreiðrið“, leitar markvisst að leik- mönnum í Suður-Ameríku og er með trausta fjármálastjórn. Erfiðir tólf mánuðir Síðustu tólf mánuðir hafa þó verið erfiðasti kaflinn í seinni tíma sögu félagsins. Ludogorets hefur tvisvar verið slegið út í undankeppni Meist- aradeildarinnar af ungverskum meisturum (MOL Vidi í fyrra og Ferencváros í sumar) og tryggði sér ekki meistaratitilinn fyrr en í síðustu umferðinni í vor. Svo tæpt hefur það ekki staðið frá árinu 2013. Ludogorets hóf þetta sigurtímabil með Paulo Autuori sem þjálfara en hann er einn virtasti brasilíski þjálf- arinn á þessari öld og vann heims- meistarakeppni félagsliða 2005 með Sao Paulo. Antoni Zdravkov, fyrr- verandi þjálfari 21-árs landsliðs Búlgaríu, og Stoycho Stoev komu næstir. Sá síðarnefndi þjálfaði liðið þegar það komst í 16-liða úrslit Evr- ópudeildarinnar árið 2014. Nú er staðan erfiðari fyrir lið Ludogorets og aðalástæðan er leik- mannahópurinn í dag. Flestir lykil- menn liðsins eru orðnir of gamlir og hafa ekki lengur sama metnað og áð- ur fyrir því að ná langt á þessu sviði. Rúmenski miðvörðurinn Cosmin Moti, sem fór í markið og varði tvær vítaspyrnur í sögulegum umspilsleik fyrir Meistaradeildina gegn Steaua og fékk nafn sitt á eina af stúkunum á leikvangi Ludogorets, er 34 ára gamall og spilar ekki gegn Val í Reykjavík þar sem hann fékk rauða spjaldið gegn Ferencváros. Hann og hinn miðvörðurinn, Georgi Terziev, eru of hægir og það hentar öllum lið- um sem eru með fljótan framherja að spila gegn þeim. Í útistöðum við þjálfarann Fyrirliðinn Svetoslav Dyakov (35 ára) og hinn brasilíski landsliðs- maður Búlgaríu, Marcelinho (34), mega muna fífil sinn fegri og það er áhætta að vera lengur með þá í byrj- unarliðinu. Marcelinho hefur átt í útistöðum við Stoycho Stoev þjálfara og hefur ítrekað lýst yfir óánægju með að vera tekinn af velli, þannig að ég býst ekki við því að hann spili gegn Val. Anciet Abel frá Madagaskar og Claudiu Keseru frá Rúmeníu spila vel fyrir sín landslið, Anciet sló í gegn með liði Madagaskar í Afr- íkukeppninni í sumar, en óvíst er hvort þeir séu í leikformi núna. Eins og sést á þessu er of mikið af gömlum leikmönnum með takmark- aðan metnað í liði Ludogorets og það vantar ferska leikmenn. Úr akadem- íu Ludogorets koma ekki nægilega góðir leikmenn fyrir aðallið félags- ins. Aðstaðan er fyrir hendi en það vantar gæðin og þess vegna hefur félagið tekið upp nýja stefnu í leik- mannakaupum. Í sumar hefur Ludogorets keypt nýja leikmenn með góðar ferilskrár fyrir 3,15 milljónir evra. Sem stend- ur er vinstri kantmaðurinn Mavis Tchibota bestur af nýju mönnunum og allir reikna með miklu af Jorg- inho sem lék mjög vel með CSKA Sofia á síðasta tímabili. Leikstíllinn er breyttur Eftir að liðið var slegið út í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar er markmið þess að komast í riðla- keppni Evrópudeildarinnar. Ludo- gorets er með nægilega sterkt lið til að ná þangað en í mínum augum er þetta ekki lengur „gamla Ludo- gorets“ með leikmenn sem mættu óhræddir til leiks á Santiago Berna- béu, Olimpico eða Parc des Princes. Ludogorets leikur 4-2-3-1 á þessu tímabili eins og áður en leik- stíllinn er samt breyttur. Fyrir síð- asta tímabil byggðist leikur liðsins á því að halda boltanum en síðasta vetur voru þeir orðnir of fyrirsjáan- legir fyrir andstæðinga sína og þess vegna munu þeir freista þess að beita skyndisóknum í stærstu leikj- unum. Helsta vandamál Ludogorets er að liðið lendir yfirleitt í vandræðum gegn líkamlega sterkum andstæð- ingum. Ég er viss um að leikmenn Ludogorets munu ekki vanmeta lið Vals en ef Valsmenn geta staðið af sér þá kafla í leikjunum þar sem Ludogorets er með yfirhöndina eiga þeir möguleika á góðum úrslit- um.  Fyrri leikur Vals og Ludogo- rets fer fram á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í tveimur leikjum mætir FC Köben- havn frá Danmörku eða The New Saints frá Wales í 3. umferð.  Teodor Borisov er íþrótta- fréttamaður hjá búlgarska íþrótta- dagblaðinu Meridian Match. Ernirnir hafa misst flugið  Ludogorets Razgrad sem mætir Val á Hlíðarenda á fimmtudagskvöldið hefur verið andlit búlgarskrar knattspyrnu í áratug en nú eru blikur á lofti Ljósmynd/Ludogorets.com Ludogorets Byrjunarlið búlgörsku meistaranna sem töpuðu óvænt fyrir Ferencváros frá Ungverjalandi á heimavelli, 2:3, í fyrstu umferðinni. ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Það fór allt á hliðina í hand- boltasamfélaginu á dögunum þegar þeir Haukur Þrastarson og Teitur Örn Einarsson gáfu ekki kost á sér í U21 árs lands- liðið sem nú tekur þátt í loka- móti HM á Spáni. Haukur og Teitur hefðu báðir styrkt liðið gríðarlega, á því leikur enginn vafi, en að sama skapi fannst mér viðbrögðin vera algjörlega út úr kortinu. Haukur er 18 ára gamall og gjaldgengur í U19 ára landsliðið. Gæinn hefur borið uppi þetta Selfosslið, ásamt Elvari Erni, undanfarin ár, og hann var lyk- ilmaður í bæði vörn og sókn í vetur þegar liðið varð Íslands- meistari. Þá hefur hann einnig verið að spila og æfa með A- landsliðinu og því óhætt að segja að það sé búið að vera ágætis álag á barninu. Teitur gaf það út að félagslið hans Kristianstad hefði ekki samþykkt að hann færi í verk- efnið. Gott og vel, það er þá bara þannig. Mér finnst aðallega hart vegið að Hauki í um- ræðunni því Teitur sýndi svo sem ekki mikið með landsliðinu á síðustu leiktíð. Þá er meiðsla- saga í fjölskyldunni hjá Hauki og algjör óþarfi að vera að taka ein- hverja áhættu með einn efnileg- asta handboltaleikmann heims. Þá heyrir það nánast til al- gjörra undantekninga að leik- menn annarra landsliða á mótinu hafi spilað A-landsleik á árinu eins og bent hefur verið á. Ef leikmaður segist þurfa hvíld, þá þarf hann á hvíld að halda, því það leikur sér enginn að því að missa af landsliðsverkefni. Of mikið af hæfileikaríkasta íþróttafólki Íslendinga hafa orð- ið álagi að bráð og það er í raun nóg að fylgjast með Guðmundi Benediktssyni ganga til þess að átta sig á alvarleika málsins. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is HANDBOLTI HM U21 karla Leikið á Spáni: A-riðill: Japan – Bandaríkin .............................. 21:20 Serbía – Túnis....................................... 23:29 Slóvenía – Spánn .................................. 22:21  Lokastaðan: Slóvenía 10, Spánn 8, Túnis 6 Serbía 4, Japan 2, Bandaríkin 0. B-riðill: Suður-Kórea – Ástralía........................ 38:20 Svíþjóð – Nígería.................................. 41:25 Frakkland – Egyptaland ..................... 32:37  Lokastaðan: Egyptaland 10, Svíþjóð 8, Frakkland 6, Suður-Kórea 4, Nígería 2, Ástralía 0. C-riðill: Barein – Kósóvó................................... 29:29  Halldór J. Sigfússon þjálfar Barein. Portúgal – Króatía................................ 30:32 Ungverjaland – Brasilía....................... 25:31  Lokastaðan: Króatía 10, Brasilía 8, Portúgal 6, Ungverjaland 4, Barein 1, Kó- sóvó 1. D-riðill: Noregur – Argentína ........................... 31:21 Danmörk – Síle ..................................... 48:24 Þýskaland – Ísland............................... 26:17  Lokastaðan: Danmörk 8, Þýskaland 8, Noregur 6, Ísland 6, Síle 2, Argentína 0. 16-liða úrslit á morgun: Egyptaland – Serbía Noregur – Brasilía Frakkland – Spánn Danmörk – Ungverjaland Slóvenía – Suður-Kórea Portúgal – Þýskaland Túnis – Svíþjóð Króatía – Ísland  Átta liða úrslitin verða leikin á fimmtu- dag, undanúrslit á laugardag og leikir um sæti eitt til átta fara fram á sunnudag. Lið- in sem falla út í 16-liða úrslitum hafa þá lok- ið keppni. Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar U17 ára karla í Bakú: Frakkland – Ísland............................... 31:37 Arsenal hefur komist að sam- komulagi við Real Madríd um að fá Dani Ceballos að láni út komandi tímabil. Ceballos hefur leikið 56 leiki með Real Madríd og sex leiki fyrir landslið Spánverja. Í Ceballos er honum ætlað að fylla í það skarð sem Aaron Ramsey skilur eftir sig en hann gekk í raðir Juven- tus. Ceballos varð Evrópumeistari með U21 árs landsliði Spánverja í sumar. Arsenal er einnig að ganga frá kaupum á hinum 18 ára gamla William Saliba frá Saint-Etienne í Frakklandi. johanningi@mbl.is Lánaður frá Real Madrid til Arsenal AFP Meistari Dani Ceballos með sig- urlaunin á EM U21 árs liða. Þrír grískir bræður, Giannis, Than- asis og Kostas Antetokounmpo, munu að líkindum allir leika í NBA- deildinni í körfuknattleik næsta vet- ur. Giannis er stjarna í deildinni eftir frammistöðu sína með Milwaukee á undanförnum árum. Bræður hans hafa nú báðir skipt um lið. Thanasis, sem er landsliðsmaður og hefur ver- ið hjá stórliðinu Panathinaikos, verður samherji Giannis hjá Milwau- kee. Þá hefur LA Lakers tryggt sér krafta Kostas, þess yngsta, en hann kom lítillega við sögu hjá Dallas síð- asta vetur. Þrír grískir bræð- ur í NBA-deildinni AFP Stjarna Giannis Antetokounmpo fór á kostum í NBA síðasta vetur. Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri hafnaði í fjórða sæti D-riðils á HM á Spáni. Ísland þurfti að sætta sig við 26:17-tap fyrir Þýskalandi í lokaleik sínum í riðlinum í gær. Þýskaland var með 14:8-forskot í hálfleik og bætti jafnt og þétt við það í seinni hálfleik og vann örugg- an sigur. Darri Aronsson skoraði fjögur mörk fyrir íslenska liðið og Elliði Snær Viðarsson gerði þrjú mörk. Andri Sigmarsson Scheving varði 14 skot í markinu. Ísland hafði betur gegn Argent- ínu, Síle og Danmörku í riðlinum, en tapaði fyrir Noregi og Þýska- landi. Danmörk hafnaði í efsta sæti riðilsins með átta stig, eins og Þýskaland sem var í öðru sæti. Noregur og Ísland komu þar á eft- ir með sex stig. Króatía vann alla fimm leiki sína í C-riðli og gulltryggði sér efsta sætið með 32:30-sigri á Portúgal í gær. Leikur Íslands og Króatíu fer fram á morgun kl. 19 að íslenskum tíma eða kl. 21 að staðartíma. Besti árangur Króatíu á mótinu er fjórða sæti en Ísland á best þriðja sætið frá því í Egyptalandi 1993. Ljósmynd/IHF Þrjú Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir íslenska liðið Tap fyrir Þýskalandi  Ísland mætir Króatíu í 16-liða úrslitum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.