Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 34
Í SMÁRANUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Breiðablik og Grindavík þurfa að bíða lengur eftir næsta sigri í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu en liðin gerðu markalaust jafntefli á Kópavogsvellinum í gærkvöldi í 13. umferð deildarinnar. Síðasti sigur Blika í deildinni kom 22. júní en liðinu hefur ekki tekist að vinna síðustu þrjá leiki sína á Ís- landsmótinu. Fara þarf mun lengra aftur til að finna sigur hjá Grindvík- ingum í deildinni. Þeir unnu síðast gegn Fylki í 5. umferð hinn 20. maí. Grindvíkingar hafa hins vegar ekki tapað nema þremur leikjum en jafntefli eru orðin átta talsins. KR er í toppsæti deildarinnar með 30 stig en Breiðablik er með 23 stig. KR lék gegn Stjörnunni á sunnudag og gerði jafntefli. Blikar vissu því í gær að sigur gegn Grindavík þýddi að liðið minnkaði forskot KR niður í fimm stig. Blikar voru mun meira með bolt- ann í fyrri hálfleik og sóttu nokkuð. Þeir voru þó ekki nægilega beittir til að opna vörn Grindvíkinga að ráði en Grindvíkingar hafa verið sérlega seigir að verja mark sitt í sumar. Þegar ekki gekk að ná for- ystunni í leiknum mátti greina pirr- ing hjá leikmönnum Breiðabliks. Ef til vill er það einnig uppsafnað þar sem liðið tapaði leikjunum tveimur þar á undan gegn KR og HK. Stangarskot Mikkelsen Segja má að markvörðurinn Vladan Djogatovic hafi bjargað stigi fyrir Grindavík þegar hann varði meistaralega frá Thomas Mikkelsen á 35. mínútu. Höskuldur Gunn- laugsson renndi fyrir markið. Mikk- elsen sneri baki í markið en var fljótur að snúa sér og skjóta í hægra hornið frá sér séð. Djogato- vic brást hratt við og varði boltann í stöngina. Mikkelsen skoraði hins vegar í síðari hálfleik en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Grindvíkingar gefa ekki mörg færi á sér en strax á 8. mínútu skapaðist óvænt dauðafæri fyrir Kolbein Þórðarson. Miðvörðurinn Josip Zeba var þá með boltann í vörninni en missti jafnvægið og datt. Kolbeinn fékk boltann því á silfurfati og komst einn gegn mark- verði en Elíasi Tamburini tókst að renna sér fyrir hann og bjarga mál- unum á síðustu stundu. Frábær varnarleikur. Þ.e.a.s hjá Elíasi en ekki Zeba. Þegar upp var staðið voru Grind- víkingar ánægðir með stigið enda var af þeim dregið undir lok leiks- ins. Blikar settu kraft í sinn leik síðasta korterið og fengu fjöldann allan af hornspyrnum en Grindvík- ingar náðu að verjast þeim. Grindvíkingar eru þó meðvitaðir um að snúið gæti reynst að halda sæti sínu í deildinni ef liðið nær yfirleitt í eitt stig en ekki þrjú. Áttunda jafn- teflið hjá Grindavík  Breiðablik sjö stigum á eftir KR eftir jafntefli gegn Grindavík í Smáranum Morgunblaðið/Hari Tækling Gunnar Þor- steinsson, fyrirliði Grindavíkur, tæklar Guðjón Pétur Lýðsson úr Breiðabliki í gær. Í KÓRNUM Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is HK vann sinn þriðja deildarleik í röð þegar liðið fékk FH í heimsókn í 13. umferð úrvalsdeildar karla í knatt- spyrnu í Kópavogi í gærkvöldi en leiknum lauk með þægilegum sigri HK, 2:0. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik en það fyrra skoraði Emil Atlason af stuttu færi úr markteignum með skalla eftir frábæran undirbúning Harðar Árnasonar og Mána Aust- manns Hilmarssonar. Atli Arnarson skoraði annað markið úr vítaspyrnu sem Valgeir Valgeirsson fiskaði undir lok fyrri hálfleiks. Valgeir niðurlægði nokkra leikmenn FH í aðdraganda marksins er hann labbaði framhjá hverjum Hafnfirðingnum á fætur öðrum áður en Guðmann Þórisson tók hann niður í teignum og víta- spyrna réttilega dæmd. Strax frá fyrstu mínútu í gær var ljóst að HK-ingar myndu ekki tapa. Liðið var afar skipulagt og varnar- leikur liðsins var upp á 10,5. HK- ingar vörðust í 4-4-2 leikkerfinu djúpt inni á eigin vallarhelmingi og Hafn- firðingar áttu engin svör. Sókn- arleikur liðsins var svo vel útfærður en þrátt fyrir að HK hafi varist vel á eigin vallarhelmingi gat liðið einnig haldið vel í boltann þegar á reyndi og fyrsta markið kom einmitt eftir gott spil frá aftasta varnarmanni. Frammistaða Hafnfirðinga var hreinasta hörmung í leiknum. Davíð Þór Viðarsson var á hælunum og gat varla tekið á móti bolta allan leikinn. Björn Daníel Sverrisson komst ekki úr fyrsta gírnum og í hvert skipti sem hann fékk boltann í álitlegum sókn- um FH-inga hægði hann á spilinu og sendi boltann til baka. Halldór Orri Björnsson hitti varla samherja allan leikinn og úrræðaleysi liðsins var al- gjört. Það var hreinlega eins og leik- menn liðsins nenntu ekki að spila leikinn, svo slakir voru þeir. Seiglan í HK-ingum hefur komið mörgum á óvart en staðreyndin er sú að liðið þekkir sína styrkleika. Ef maður ber saman fyrri leik liðanna í Hafnarfirði er alveg ljóst að Brynjar Björn Gunnarsson hefur gert hálf- gert kraftaverk með Kópavogsliðið. Í Hafnarfirðinum hljóta menn að hafa áhyggjur. Hópurinn hjá FH í gær var eins þunnskipaður og þeir ger- ast. Þegar þú ert 2:0-undir og þarft mark þá eru Brynjar Ásgeir Guð- mundsson og Kristinn Steindórsson ekki beint mennirnir sem þú vilt setja inn á. HK lét FH-inga líta illa út  Þriðji deildarsigur HK-inga í röð  Vandræði Hafnfirðinga halda áfram Morgunblaðið/Hari Skalli Emil Atlason skallar frá marki HK. Hann skoraði fyrra mark liðsins í 2:0-sigri á FH í Kórnum. 34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Pepsi Max-deild karla HK – FH ................................................... 2:0 Breiðablik – Grindavík............................. 0:0 Staðan: KR 13 9 3 1 25:13 30 Breiðablik 13 7 2 4 23:15 23 ÍA 13 6 4 3 19:14 22 Stjarnan 13 5 5 3 21:18 20 Fylkir 13 5 4 4 22:21 19 FH 13 5 4 4 18:20 19 Valur 13 5 2 6 23:20 17 HK 13 5 2 6 17:16 17 Grindavík 13 2 8 3 8:10 14 Víkingur R. 13 2 7 4 18:21 13 KA 13 4 1 8 18:22 13 ÍBV 13 1 2 10 10:32 5 Svíþjóð Hammarby – Elfsborg ............................ 5:2  Aron Jóhannsson kom inn á sem vara- maður á 73. mínútu hjá Hammarby. Staðan: Malmö 17 10 6 1 29:12 36 AIK 17 10 4 3 22:11 34 Djurgården 16 9 5 2 26:12 32 Häcken 16 9 3 4 24:12 30 Gautaborg 16 8 5 3 24:14 29 Hammarby 16 8 4 4 34:24 28 Norrköping 17 7 6 4 26:19 27 Östersund 16 4 7 5 16:23 19 Sirius 16 5 3 8 19:24 18 Elfsborg 16 4 6 6 20:28 18 Örebro 16 5 2 9 20:26 17 Helsingborg 16 4 5 7 15:22 17 Kalmar 16 2 7 7 11:19 13 Sundsvall 17 2 5 10 18:26 11 Eskilstuna 16 2 5 9 13:26 11 Falkenberg 16 2 5 9 14:33 11 Eskilstuna – Linköping........................... 2:0  Anna Rakel Pétursdóttir var allan tím- ann á varamannabekk Linköping.  Staðan: Gautaborg 18, Rosengård 17, Örebro 16, Kristianstad 14, Linköping 14, Vittsjö 14, Piteå 14, Djurgården 9, Eskils- tuna 8, Växjö 5, Limhamn Bunkeflo 4, Kungsbacka 1. Pólland Wisla Plock – Górnik Zabrze ................. 1:1  Adam Örn Arnarson var ekki í leik- mannahópi Górnik. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Keflavík................ 18 Würth-völlur: Fylkir – Þór/KA................ 18 Víkingsv.: HK/Víkingur – Stjarnan.... 19.15 Origo-völlur: Valur – KR ..................... 19.15 Kópavogsv.: Breiðablik – Selfoss........ 19.15 Í KVÖLD! 1:0 Emil Atlason 31. 2:0 Atli Arnarson 45. (víti) I Gul spjöldBjörn Berg Bryde (HK). Hall- dór Orri Björnsson, Cédric D’Ulivo, Pétur Viðarsson (FH) Dómari: Þorvaldur Árnason, 6. Áhorfendur: 870. MM Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK) HK – FH 2:0 M Hörður Árnason (HK) Birkir Valur Jónsson (HK) Máni Austmann (HK) Emil Atlason (HK) Atli Arnarson (HK) Björn Berg Bryde (HK) Valgeir Valgeirsson (HK) Steven Lennon (FH) Brandur Olsen (FH) I Gul spjöldHöskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki). Vladimir Tufegdzic, Marinó Axel Helgason, Vladan Djo- gatovic, Diego Diz (Grindavík) I Rauð spjöldEngin. Dómari: Jóhann Ingi Jónsson, 6. Áhorfendur: 1.128. BREIÐABLIK – GRINDAVÍK 0:0 MM Enginn M Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Thomas Mikkelsen (Breiðabliki) Vladan Djogatovic (Grindavík) Marinó Axel Helgason (Grindavík) Elías Tamburini (Grindavík) Gunnar Þorsteinsson (Grindavík)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.