Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 36

Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 36
VIÐTAL Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Mikil tónlistarveisla er fram undan í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þar sem vikulegir sumartónleikar eru haldnir alla þriðjudaga fram til 20. ágúst kl. 20.30. Tvennir tónleikar hafa þegar farið fram á safninu en þeir þriðju, sem bera yfirskriftina „Hrifning og höfnun“, fara fram í kvöld. „Þetta er svona tónlist sem maður yljar sér við. Í verkum Brahms, Schuberts og Schumanns finnur maður hvatann að því að vera klassískur tónlistarmaður,“ segir Hlíf Bente Sigurjónsdóttir fiðluleik- ari um þriðju tónleikana. Sumartónleikarnir eru alls sjö talsins og eru ákaflega fjölbreyttir að sögn Hlífar sem segist hafa viljað helga sumarið sögunni, en hún er listrænn stjórnandi tónleikanna og jafnframt dóttir Sigurjóns Ólafs- sonar myndhöggvara og ekkju hans Birgittu Spur. Eftirspurn eftir plássi mikil Hlíf segir að mikil eftirspurn sé eftir að fá að spila á sumartónleik- unum og viðurkennir að erfitt geti verið að velja tónlistarmenn úr þeim umsóknum sem berast enda dag- setningarnar í boði fáar. „Ég hef oft sagt að við ættum bara að hafa tónleika allt árið,“ segir Hlíf og hlær. Hún segist gleðjast yfir því hve margir séu orðnir eins konar fasta- gestir á sumartónleikunum og geri sér ferð á tónleika á hverju sumri. Hlíf viðurkennir að það geti verið erfitt að vera klassískur tónlistar- maður á Íslandi og ekki sé sjálfsagt að góð mæting sé á klassíska tónlist- arviðburði. Segir hún að einn aðal- tilgangurinn með tónleikunum sé að búa til tækifæri fyrir vel menntað tónlistarfólk til að koma fram. „Það eru bara fimmtíu prósent vinnunnar að koma fram í æfinga- herberginu. Hin fimmtíu prósentin eru á sviði og það eru bara fáir mögu- leikar til að halda tónleika á Íslandi nema þú sért tilbúinn til að gefa vinn- una þína endalaust,“ segir hún. „Nú man ég tímana tvenna og að mínu mati er klassíska tónlistin orðin að jaðargrein. Það er eiginlega komið á ábyrgð hvers og eins að ná sér í og hlýða á klassíska tónlist. Aðgengi að annarri tegund tónlistar er svo miklu auðveldara í opinberu miðlunum okkar,“ segir Hlíf. Kynntist tónlistinni í kjallara „Við þurfum að horfast í augu við að þeir sem sækja tónleika á Íslandi eru eldra fólk. Þetta er fólkið sem ólst upp við að hlusta á klassíska tón- list í útvarpinu. Við sækjum í það sem við ölumst upp við að hlusta á og ef börnin hafa ekki aðgengi að klass- ískri tónlist þá verða ekki lengur hvítir kollar sem koma eftir 30 ár.“ Hlíf spilar sjálf á fjórðu tónleik- unum í sumartónleikaröðinni sem haldnir verða þriðjudaginn 30. júlí en þar verða flutt verk eftir tónskáldið Viktor Urbancic sem sjaldan eða aldrei hafa heyrst á Íslandi. Hlíf seg- ist hafa kynnst tónlist Viktors þegar hún vann að þætti um Björn Ólafsson konsertmeistara fyrir Ríkisútvarpið í tilefni af aldarafmæli hans 2017. „Þá komst ég í kjallara útvarpsins og náði að hlusta á allt sem Björn hafði hljóðritað. Þetta var eins og að fara aftur í tímann. Flúði vegna gyðingahaturs Ég var komin þarna á fyrstu ár uppbyggingar klassískrar tónlistar hér á landi,“ segir Hlíf sem kveðst þar hafa rekist á upptökur með tón- list Viktors. Hún segir Viktor hafa verið flótta- mann í seinni heimsstyrjöldinni vegna þess að kona hans var gyð- ingur en hann flutti til Íslands 1938 og vann ómetanlegt starf í uppbygg- ingu tónlistarlífs á landinu. „Við erum stundum svo upptekin af því að vinna morgundaginn og verða fræg að við gleymum svolítið að hlúa að þeim sem voru og lögðu grunninn að því hvar við erum í dag. Þess vegna vildi ég nota tækifærið á þessum vettvangi, fyrst ég fæ að stjórna, til að koma tónlistinni hans á framfæri,“ segir Hlíf. Hún bætir við að Viktor hafi til að mynda verið fyrstur til að setja upp stór kórverk á Íslandi með evrópskri tónlist eins og eftir Bach. Að auki segir Hlíf hann hafa verið frábært tónskáld. Hún kveðst hafa heyrt upp- töku af fiðlusónötu eftir Viktor í kjallara RÚV en hafi síðar komist að því að hann hefði samið aðra sónötu árið 1934, árið eftir að Viktor og kona hans flúðu frá Þýskalandi vegna gyð- ingahaturs. Sú sónata verður frum- flutt á Íslandi hinn 30. júlí en niðjar Viktors koma sérstaklega til lands- ins frá Austurríki til að spila á tón- leikunum. Aukatónleikar hugsanlegir Hlíf segir að þegar séu miðar farn- ir að seljast á tónleikana sem bera yfirskriftina „Svipmynd af tónskáld- inu Viktor Urbancic“ og hvetur fólk sem hefur áhuga á þeim til að hringja í safnið og panta miða sem fyrst. Sér- stök kynning verður á tón- skáldinu kl. 16 hinn 28. júlí og aukatónleikum verður hugs- anlega bætt við á mánudeginum, 29. júlí. Næstu tónleikar á dagskránni bera yfirskriftina „Tónlist á stríðs- tímum“ sem Hlíf segir að hafi passað einstaklega vel á eftir fyrri tón- leikum. Þar verða flutt verk eftir Claude Debussy, Francis Poulenc og Dmitríj Shostakovitsj sem eru römmuð inn af textum og bréfum tónskáldanna auk frétta líðandi stundar. „Þetta tengist þemanu um líf fólks á stríðstímum og hvað við getum gert,“ segir Hlíf og nefnir í því sam- hengi börn á flótta. Á næstu tónleikum, hinn 13. ágúst, segir Hlíf að áhorfendur verði aftur færðir í nútímann en þar verða með- al annars flutt verk eftir Þuríði Jóns- dóttur og Ólöfu Arnalds undir yfir- skriftinni „Með sól í hjarta“. Síðustu tónleikarnir bera yfir- skriftina „Ég var sælust allra í bæn- um“ og eru eins og eins konar auka- lag segir Hlíf. Þar verða fluttar klassískar aríur og sönglög sem fjalla um gleði og sorgir ástarinnar. Hægt er að kaupa miða á tón- leikana í safninu eða símleiðis í síma 553-2906. Allar nánari upplýsingar um tónleikana má finna á vefnum lso.is. Morgunblaðið/Hari Fiðluleikari Hlíf Sigurjónsdóttir er listrænn stjórnandi Sumartónleika Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Sumartónleikar helgaðir sögunni  Fiðlusónata eftir Viktor Urbancic frá 1934 frumflutt á Íslandi á Sumartónleikum Listasafns Sig- urjóns Ólafssonar  Hlíf Sigurjónsdóttir segir mikla eftirspurn vera eftir því að fá að spila í safninu Viktor Urbancic 36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 íslenska og erlenda tónlist eftir m.a. Britten, Garcia-Lorca, Þorkel Sigurbjörnsson og Ólöfu Arnalds. Á lokatónleikum sumarsins sem haldnir eru 20. ágúst fllytja Sólveig Sigurðardóttir sópran og Gerrit Schuil píanisti aríur og sönglög eft- ir m.a. Hugo Wolf, Richard Strauss og Mozart, sem fjalla um gleði og sorgir ástarinnar. Tónlistarveisla fram undan SUMARTÓNLEIKADAGSKRÁ LISTASAFNS SIGURJÓNS 2019 Hildigunnur Einarsdóttir mezzó- sópran, Oddur Arnþór Jónsson barítón og Guðrún Dalía Salómons- dóttir píanisti flytja í kvöld söngva og dúetta eftir Brahms, Schubert og Schumann. Þriðjudaginn 30. júlí flytja Kristín Einarsdóttir mezzósópran, Ágúst Ólafsson barítón, Hlíf Sigurjóns- dóttir á fiðlu og Hólmfríður Sigurð- ardóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanistar verk eftir Viktor Urbancic ásamt afkomendum Viktors, Mich- ael Kneihs á píanó, Milenu Dörfler á fiðlu og Simon Dörfler á selló. Þann 6. ágúst flytja Ísak Rík- harðsson á fiðlu, Martina Zimmerli á selló og Þóra Kristín Gunnarsd- óttir á píanó tónlist frá stríðs- árunum, svo sem eftir Claude De- bussy, Francis Poulenc og Dmitríj Shostakovitsj. Verkin verða römm- uð inn af textum og bréfum tón- skáldanna sem lesin verða af Finni Ingimundarsyni. Hinn 13. ágúst flytja Hlín Péturs- dóttir Behrens sópran og Ögmund- ur Þór Jóhannesson gítarleikari Ögmundur Þór og Hlín Behrens Hildigunnur, Oddur og Guðrún Dalía Ísak, Martina, Finnur og Þóra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.