Morgunblaðið - 23.07.2019, Qupperneq 36
VIÐTAL
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Mikil tónlistarveisla er fram undan í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þar
sem vikulegir sumartónleikar eru
haldnir alla þriðjudaga fram til 20.
ágúst kl. 20.30. Tvennir tónleikar
hafa þegar farið fram á safninu en
þeir þriðju, sem bera yfirskriftina
„Hrifning og höfnun“, fara fram í
kvöld. „Þetta er svona tónlist sem
maður yljar sér við. Í verkum
Brahms, Schuberts og Schumanns
finnur maður hvatann að því að vera
klassískur tónlistarmaður,“ segir
Hlíf Bente Sigurjónsdóttir fiðluleik-
ari um þriðju tónleikana.
Sumartónleikarnir eru alls sjö
talsins og eru ákaflega fjölbreyttir að
sögn Hlífar sem segist hafa viljað
helga sumarið sögunni, en hún er
listrænn stjórnandi tónleikanna og
jafnframt dóttir Sigurjóns Ólafs-
sonar myndhöggvara og ekkju hans
Birgittu Spur.
Eftirspurn eftir plássi mikil
Hlíf segir að mikil eftirspurn sé
eftir að fá að spila á sumartónleik-
unum og viðurkennir að erfitt geti
verið að velja tónlistarmenn úr þeim
umsóknum sem berast enda dag-
setningarnar í boði fáar.
„Ég hef oft sagt að við ættum bara
að hafa tónleika allt árið,“ segir Hlíf
og hlær.
Hún segist gleðjast yfir því hve
margir séu orðnir eins konar fasta-
gestir á sumartónleikunum og geri
sér ferð á tónleika á hverju sumri.
Hlíf viðurkennir að það geti verið
erfitt að vera klassískur tónlistar-
maður á Íslandi og ekki sé sjálfsagt
að góð mæting sé á klassíska tónlist-
arviðburði. Segir hún að einn aðal-
tilgangurinn með tónleikunum sé að
búa til tækifæri fyrir vel menntað
tónlistarfólk til að koma fram.
„Það eru bara fimmtíu prósent
vinnunnar að koma fram í æfinga-
herberginu. Hin fimmtíu prósentin
eru á sviði og það eru bara fáir mögu-
leikar til að halda tónleika á Íslandi
nema þú sért tilbúinn til að gefa vinn-
una þína endalaust,“ segir hún. „Nú
man ég tímana tvenna og að mínu
mati er klassíska tónlistin orðin að
jaðargrein. Það er eiginlega komið á
ábyrgð hvers og eins að ná sér í og
hlýða á klassíska tónlist. Aðgengi að
annarri tegund tónlistar er svo miklu
auðveldara í opinberu miðlunum
okkar,“ segir Hlíf.
Kynntist tónlistinni í kjallara
„Við þurfum að horfast í augu við
að þeir sem sækja tónleika á Íslandi
eru eldra fólk. Þetta er fólkið sem
ólst upp við að hlusta á klassíska tón-
list í útvarpinu. Við sækjum í það
sem við ölumst upp við að hlusta á og
ef börnin hafa ekki aðgengi að klass-
ískri tónlist þá verða ekki lengur
hvítir kollar sem koma eftir 30 ár.“
Hlíf spilar sjálf á fjórðu tónleik-
unum í sumartónleikaröðinni sem
haldnir verða þriðjudaginn 30. júlí en
þar verða flutt verk eftir tónskáldið
Viktor Urbancic sem sjaldan eða
aldrei hafa heyrst á Íslandi. Hlíf seg-
ist hafa kynnst tónlist Viktors þegar
hún vann að þætti um Björn Ólafsson
konsertmeistara fyrir Ríkisútvarpið í
tilefni af aldarafmæli hans 2017.
„Þá komst ég í kjallara útvarpsins
og náði að hlusta á allt sem Björn
hafði hljóðritað. Þetta var eins og að
fara aftur í tímann.
Flúði vegna gyðingahaturs
Ég var komin þarna á fyrstu ár
uppbyggingar klassískrar tónlistar
hér á landi,“ segir Hlíf sem kveðst
þar hafa rekist á upptökur með tón-
list Viktors.
Hún segir Viktor hafa verið flótta-
mann í seinni heimsstyrjöldinni
vegna þess að kona hans var gyð-
ingur en hann flutti til Íslands 1938
og vann ómetanlegt starf í uppbygg-
ingu tónlistarlífs á landinu.
„Við erum stundum svo upptekin
af því að vinna morgundaginn og
verða fræg að við gleymum svolítið
að hlúa að þeim sem voru og lögðu
grunninn að því hvar við erum í dag.
Þess vegna vildi ég nota tækifærið á
þessum vettvangi, fyrst ég fæ að
stjórna, til að koma tónlistinni hans á
framfæri,“ segir Hlíf.
Hún bætir við að Viktor hafi til að
mynda verið fyrstur til að setja upp
stór kórverk á Íslandi með evrópskri
tónlist eins og eftir Bach. Að auki
segir Hlíf hann hafa verið frábært
tónskáld. Hún kveðst hafa heyrt upp-
töku af fiðlusónötu eftir Viktor í
kjallara RÚV en hafi síðar komist að
því að hann hefði samið aðra sónötu
árið 1934, árið eftir að Viktor og kona
hans flúðu frá Þýskalandi vegna gyð-
ingahaturs. Sú sónata verður frum-
flutt á Íslandi hinn 30. júlí en niðjar
Viktors koma sérstaklega til lands-
ins frá Austurríki til að spila á tón-
leikunum.
Aukatónleikar hugsanlegir
Hlíf segir að þegar séu miðar farn-
ir að seljast á tónleikana sem bera
yfirskriftina „Svipmynd af tónskáld-
inu Viktor Urbancic“ og hvetur fólk
sem hefur áhuga á þeim til að
hringja í safnið
og panta miða
sem fyrst. Sér-
stök kynning
verður á tón-
skáldinu kl. 16
hinn 28. júlí og
aukatónleikum
verður hugs-
anlega bætt við á
mánudeginum,
29. júlí.
Næstu tónleikar á dagskránni
bera yfirskriftina „Tónlist á stríðs-
tímum“ sem Hlíf segir að hafi passað
einstaklega vel á eftir fyrri tón-
leikum. Þar verða flutt verk eftir
Claude Debussy, Francis Poulenc og
Dmitríj Shostakovitsj sem eru
römmuð inn af textum og bréfum
tónskáldanna auk frétta líðandi
stundar.
„Þetta tengist þemanu um líf fólks
á stríðstímum og hvað við getum
gert,“ segir Hlíf og nefnir í því sam-
hengi börn á flótta.
Á næstu tónleikum, hinn 13. ágúst,
segir Hlíf að áhorfendur verði aftur
færðir í nútímann en þar verða með-
al annars flutt verk eftir Þuríði Jóns-
dóttur og Ólöfu Arnalds undir yfir-
skriftinni „Með sól í hjarta“.
Síðustu tónleikarnir bera yfir-
skriftina „Ég var sælust allra í bæn-
um“ og eru eins og eins konar auka-
lag segir Hlíf. Þar verða fluttar
klassískar aríur og sönglög sem
fjalla um gleði og sorgir ástarinnar.
Hægt er að kaupa miða á tón-
leikana í safninu eða símleiðis í síma
553-2906. Allar nánari upplýsingar
um tónleikana má finna á vefnum
lso.is.
Morgunblaðið/Hari
Fiðluleikari Hlíf Sigurjónsdóttir er listrænn stjórnandi Sumartónleika Listasafns Sigurjóns Ólafssonar.
Sumartónleikar helgaðir sögunni
Fiðlusónata eftir Viktor Urbancic frá 1934 frumflutt á Íslandi á Sumartónleikum Listasafns Sig-
urjóns Ólafssonar Hlíf Sigurjónsdóttir segir mikla eftirspurn vera eftir því að fá að spila í safninu
Viktor Urbancic
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019
íslenska og erlenda tónlist eftir
m.a. Britten, Garcia-Lorca, Þorkel
Sigurbjörnsson og Ólöfu Arnalds.
Á lokatónleikum sumarsins sem
haldnir eru 20. ágúst fllytja Sólveig
Sigurðardóttir sópran og Gerrit
Schuil píanisti aríur og sönglög eft-
ir m.a. Hugo Wolf, Richard Strauss
og Mozart, sem fjalla um gleði og
sorgir ástarinnar.
Tónlistarveisla fram undan
SUMARTÓNLEIKADAGSKRÁ LISTASAFNS SIGURJÓNS 2019
Hildigunnur Einarsdóttir mezzó-
sópran, Oddur Arnþór Jónsson
barítón og Guðrún Dalía Salómons-
dóttir píanisti flytja í kvöld söngva
og dúetta eftir Brahms, Schubert
og Schumann.
Þriðjudaginn 30. júlí flytja Kristín
Einarsdóttir mezzósópran, Ágúst
Ólafsson barítón, Hlíf Sigurjóns-
dóttir á fiðlu og Hólmfríður Sigurð-
ardóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir
píanistar verk eftir Viktor Urbancic
ásamt afkomendum Viktors, Mich-
ael Kneihs á píanó, Milenu Dörfler á
fiðlu og Simon Dörfler á selló.
Þann 6. ágúst flytja Ísak Rík-
harðsson á fiðlu, Martina Zimmerli
á selló og Þóra Kristín Gunnarsd-
óttir á píanó tónlist frá stríðs-
árunum, svo sem eftir Claude De-
bussy, Francis Poulenc og Dmitríj
Shostakovitsj. Verkin verða römm-
uð inn af textum og bréfum tón-
skáldanna sem lesin verða af Finni
Ingimundarsyni.
Hinn 13. ágúst flytja Hlín Péturs-
dóttir Behrens sópran og Ögmund-
ur Þór Jóhannesson gítarleikari
Ögmundur Þór og Hlín Behrens Hildigunnur, Oddur og Guðrún Dalía
Ísak, Martina, Finnur og Þóra