Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 37

Morgunblaðið - 23.07.2019, Síða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2019 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir ökuskírteinið, passann, ferilskrána o.fl. Góð passamynd skiptir máli Engar tímapantanir Skjót og hröð þjónusta Ofurhetjumyndin Avengers: End- game í leikstjórn Anthony og Joe Russo, sem frumsýnd var í apríl á þessu ári, varð um helgina sölu- hæsta kvikmynd sögunnar. Fyrir í toppsætinu var kvikmyndin Avatar í leikstjórn James Cameron sem frumsýnd var 2009. Í frétt á vef BBC kemur fram að heildarmiða- sölutekjur Avatar á heimsvísu hafi verið 2,787 milljarðar bandaríkja- dala, meðan talan fyrir Avengers: Endgame er 2,790 milljarðar dala. Í þriðja sæti listans er Titanic frá 1997 með 2,187 milljarða. Næstu myndir á topp-tíu listanum eru Star Wars: The Force Awakens (2015) með 2,068 milljarða, Avengers: Infinity War (2018) með 2,048 millj- arða, Jurassic World (2015) með 1,671 milljarð, Marvel’s The Aven- gers (2012) með 1,518 milljarða, Fu- rious 7 (2015) með 1,516, Avengers: Age of Ultron (2015) með 1,405 milljarða og Black Panther (2018) með 1,346. Disney keypti Marvel Studios 2009 og bætti nýverið Fox við sig, sem á réttin á Avatar. Það þýðir að Disney-veldið á sjö af tíu söluhæstu myndum sögunnar. Avengers: End- game er fjórða myndin í hinni geysivinsælu Avengers-seríu. Hún er jafnframt 22. myndin úr smiðju Marvel Studios um ofurhetjur Mar- vel-veldisins, en fyrst í flokknum var Iron Man sem frumsýnd var 2008. Flestar myndirnar eiga það sameiginlegt að svokallaðir Infinity Stones eða Óendanleikasteinar gegna lykilhlutverki í framvind- unni. Hugsi Robert Downey Jr. í hlutverki sínu sem Iron Man í Avengers: Endgame. Avengers slær miðasölumet Avatar Átta listamenn hafa óskað eftir því að stjórnendur Whitney-listasafns- ins í New York fjarlægi verk þeirra af yfirstandandi tvíæringi safnsins. Ástæðuna segja þeir viðbragðsleysi stjórnenda safnsins eftir að kallað var eftir því að Warren B. Kanders segði sig úr stjórn safnsins, en Kanders á fyrirtækið Safariland sem selur hernaðargögn til átaka- svæða, þar á meðal táragas sem notað hefur verið á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkós. Í frétt The New York Times kemur fram að tímaritið Artforum hafi á föstudag birt bréf frá Korak- rit Arunanondchai, Meriem Benn- ani, Nicole Eisenman og Nicholas Galanin til stjórnenda safnsins þar sem fram kemur að þau hafi reiðst þegar þau hafi fyrst heyrt af tengslum safnsins við fyrirtækið Safariland, en öll verið á lokametr- unum við vinnu verka sinna og því ákveðið að taka þátt í opnum tvíær- ingsins. „Viðbragðsleysi safnsins á sama tíma og þrýstingur eykst frá lista- fólki og baráttufólki þýðir að það er orðið óverjandi fyrir okkur að taka þátt í sýningunni,“ skrifa fjórmenn- ingarnir. Á laugardag tilkynntu Eddie Arroyo, Agustina Woodgate, Christine Sun Kim og Forensic Architecture að þau vildu heldur ekki lengur taka þátt í sýningunni samvisku sinnar vegna. Alls tóku 75 listamenn þátt í tvíæringnum í ár, sem stendur til 22. september. Sam- kvæmt frétt The New York Times neitar Kanders að tjá sig um málið. Í yfirlýsingu sem Adam D. Wein- berg, safnstjóri Whitney-listasafns- ins, sendi frá sér segir að safnið virði skoðun listafólksins og tján- ingarfrelsi. „Þótt ákvörðun þeirra hryggi okkur virðum við hana auð- vitað að fullu.“ Hætt Nicole Eisenman hefur óskað eftir því að verkið Procession verði ekki lengur til sýnis á tvíæringi Whitney 2019. Sjö aðrir listamenn hafa einnig dregið sig úr sýningunni. Draga sig úr sýningu í mótmælaskyni Morgunblaðið/Einar Falur Á annað hundrað manns mættu á tón- leika Jónasar Sigurðssonar í Fjarðar- borg á Borgarfirði eystra á sunnudag. Um var að ræða fyrstu tónleikana í fjög- urra kvölda tónleikaröð sem lýkur ann- að kvöld. Ein plata tónlistarmannsins er flutt með hljómsveit á hverju kvöldi, en sveitina skipa Ómar Guðjónsson, Arnar Þór Gíslason, Guðni Finnsson og Tómas Jónsson. „Það vakti mikla lukku þegar Jónas óskaði eftir óskalögum frá fylgj- endum sínum á Facebook rétt fyrir tón- leika og tillögur streymdu inn meðan á tónleikum stóð. Í lok tónleikanna voru svo nokkur þeirra spiluð ásamt óskalög- um sem komu frá tónleikagestum úr sal,“ segir í tilkynningu frá skipuleggj- endum. „Það er einhver göldrótt stemn- ing sem myndast á tónleikum hér á Borgarfirði eystra og virkilega ánægju- legt að sjá hversu margir ætla að vera með okkur hérna öll kvöldin,“ sagði Jón- as eftir tónleikana. Aukalögin valin á Facebook Ljósmynd/Hafþór Snjólfur Helgason Innlifun Jónas Sig. ásamt félögum sínum á sviðinu í Fjarðarborg. Natalie Portman tekur við hlutverki Þórs í væntanlegri Marvel-mynd sem nefnist Thor: Love and Thund- er eða Þór: Ást og þruma. Þetta var tilkynnt á kynningarfundi sem Mar- vel stóð fyrir á teiknimynda- hátíðinni Comic-Con International í San Diego um helgina. Sem fyrr fer Chris Hemsworth með hlutverk þrumuguðsins og Tessa Thompson leikur valkyrjuna. Leikstjórn verð- ur í höndum Taika Waititi sem einnig leikstýrði Þór: Ragnarökum sem frumsýnd var 2017. Á fundinum útskýrði Waititi að myndin, sem er sú fjórða um Þór, byggðist á teiknimyndabók frá 2014 eftir Jason Aaron þar sem Þór missir máttinn og Jane Foster (sem Portman lék í fyrstu myndinni um Þór frá 2011) yfirtekur máttinn og töfra Mjölnis. Ekki fengust frekari upplýsingar um söguþráðinn, en Waititi upplýsti þó að Jane Foster fengi nafnið Máttuga Þór í mynd- inni, sem verður frumsýnd í nóv- ember 2021. Ekki kom á fundinum fram hvort Tom Hiddleston, sem farið hefur með hlutverk Loka í fyrri myndunum, yrði með í þeirri næstu. Nýverið var upplýst að Hiddleston myndi leika titilhlut- verkið í nýrri sjónvarpsþáttaröð úr smiðju Marvel sem nefnist Loki. Á fundinum kynnti Kevin Feige, yfirmaður Marvel Studios, nokkurn fjölda nýrra Marvel-kvikmynda sem eru í vinnslu, við mikinn fögnuð við- staddra. Þannig kom fram að í vinnslu er ný mynd um Blade vampírubana. Mahershala Ali tekur þar við hlutverkinu af Wesley Snip- es. Kynnt var til sögunnar kvik- myndin The Eternals eða Eilífing- arnir þar sem Angelina Jolie og Salma Hayek eru í aðalhlutverkum. „Við höfum lesið handritið og vitum hvaða verkefni bíður okkar. Við er- um okkur meðvituð um að við þurf- um að leggja afar hart að okkur ykkar vegna,“ sagði Jolie við aðdá- endur í salnum. Eilífingar eru mátt- ugar verur sem líkjast manneskjum en búa yfir sérstökum mætti. Myndin verður frumsýnd í nóv- ember 2020. Upplýst var að Marvel ynni nú að sinni fyrstu ofurhetjumynd þar sem Bandaríkjamaður af asískum upp- runa verður í aðalhlutverki. Kan- adíski leikarinn Simu Liu mun fara með hlutverk kungfú-meistarans Shang-Chi, sem fyrst birtist í teiknimyndasögu fyrir um hálfri öld. Myndin verður frumsýnd í febrúar 2021. Natasha Romanoff í túlkun Scar- lett Johansson snýr aftur í nýrri kvikmynd um Svörtu ekkjuna. „Ég fæ að túlka fleiri fleti á Natöshu og hlakka til að sýna aðdáendum gall- ana hennar,“ sagði Johansson, en tökur hafa nú staðið í 30 daga. Með- al annarra mynda sem kynntar voru á fundinum er framhaldið á ævin- týrum Doctor Strange. „Við náðum ekki að minnast á framhaldsmynd- irnar Black Panther 2, Guardian of the Galaxies 3, Captain Marvel 2 og Fantastic 4,“ sagði Feige og tók fram að einnig stæði til að gera framhaldsmynd um svonefnda Mut- ants eða hina stökkbreyttu. Hamar Natalie Portman og Tessa Thompson. Persóna Portman mun í væntanlegri mynd taka yfir mátt hamars þrumuguðsins. Tekur við mætti Þórs  Forstjóri Marvel Studios kynnti tíu væntanlegar ofur- hetjukvikmyndir á teiknimyndahátíðinni í San Diego AFP Gleði Rachel Weisz og Scarlett Johansson leyndu ekki gleði sinni. Weisz leikur í nýrri mynd um Eilífinga og Johansson snýr aftur sem Svarta ekkjan. Traust Angelina Jolie tilkynnti aðdáendum að hún myndi leggja hart að sér sem Eilífingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.