Morgunblaðið - 23.07.2019, Side 40
Kvartett saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar kemur fram á Kex Hos-
teli í kvöld kl. 20.30. Með Sigurði
leika Kjartan Valdemarsson á pí-
anó, Valdimar Olgeirsson á kontra-
bassa og Einar Scheving á tromm-
ur. Þeir flytja vel valda djass-
standarda frá ýmsum tímum, m.a.
lög eftir John Coltrane og Thelon-
ious Monk. Aðgangur er ókeypis.
Kvartett Sigurðar
Flosasonar á Kex
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 204. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Nýliðarnir í HK í Pepsi Max-deild
karla í knattspyrnu halda áfram að
koma á óvart í sumar. Í gær lagði
HK lið FH að velli 2:0 í Kópavogi. Í
sama bæjarfélagi mættust einnig
Breiðablik og Grindavík en þar varð
markalaust jafntefli. Blikar misstu
þar af tækifæri til að minnka for-
skot KR niður í fimm stig á toppi
deildarinnar. »34
HK hafði betur gegn
FH í Kópavoginum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Tilfinningin er mjög góð að vera
loksins búinn að skora aftur í deild-
arleik. Það var orðið ansi langt síð-
an ég skoraði og það gerðist síðast
á EM í Frakklandi þannig að það var
ákveðinn léttir að ná að koma
þessu til hliðar og nú er bara að
byggja ofan á þetta og halda áfram
á sömu braut,“ segir knatt-
spyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórs-
son, framherji
AIK í sænsku
úrvalsdeild-
inni, meðal
annars í sam-
tali við Morg-
unblaðið í
dag. »32
Ákveðinn léttir að
koma þessu til hliðar
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Nóg er um að vera á skíðasvæðunum
í sumar, þó að fáa hefði grunað það.
Skíðalyftur eru nýttar til fjallahjól-
reiða á sumrin og hefur það verið gert
í 10 ár að sögn Magne Kvam hjóla-
brautahönnuðar, sem hannaði hjóla-
brautirnar í Skálafelli. Hann segir
íþróttina, sem eitt sinn var álitin jað-
arsport, hafa vaxið í vinsældum.
„Fyrir þremur árum varð mikil
aukning á fjallahjólreiðum á Íslandi.
Ég hef hjólað mikið erlendis og skíða-
svæðin í Ölpunum hafa mörg hver
meira upp úr starfseminni á sumrin
en á veturna. Þessi íþrótt er þannig
að hún er ekki lengur bara fyrir
klikkaða „extreme sportista“,“ sagði
hann.
Hann bætir við að ákveðið hafi ver-
ið að smíða nýja hjólabraut í Skála-
felli þetta árið. Hún er byrjenda-
vænni og seinfarnari en þær brautir
sem eru nú þegar en skemmtileg og
krefjandi að hans sögn.
„Maður hefur séð fólk rúlla hérna
niður með börnin sín og allir sáttir,“
segir Magne en opið er jafnan í
Skálafelli á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum frá kl. 18-21.
Aðsókn í skíðalyftur hefur ekki
verið verri í Hlíðarfjalli í sumar en í
vetur. Þar er opið fimmtudaga til
sunnudaga og aðstaðan nýtt til fjalla-
hjólreiða, útsýnisferða og gönguferða.
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður Hlíðarfjalls á Akureyri,
segir að skíðalyfturnar þar hafi upp-
haflega verið opnar gangandi vegfar-
endum en síðan hafi fjallahjólreið-
arnar rutt sér til rúms í fjallinu:
„Við erum með lyftuna í gangi og
síðan koma bara Pétur og Palli með
sín reiðhjól, fara fjórar fimm ferðir og
síðan heim. Síðan kemur fjölskyldan
úr Kópavoginum, fer upp með lyft-
unni og niður aftur. Síðan koma Ak-
ureyringar með lyftunni og labba
hærra og fara síðan niður. Þetta er öll
flóran,“ segir hann.
Hlíðarfjall opnaði stólalyftuna
Fjarkann annað sumarið í röð í byrj-
un júlí. Opið er á fimmtudögum frá kl.
17-21, á föstudögum kl. 14-18, á laug-
ardögum 10-18 og 10-16 á sunnudög-
um. Viðtökur sumarið 2018 fóru fram
úr björtustu vonum að sögn umsjón-
armanna Hlíðarfjalls og er búist við
góðu sumri í ár.
Morgunblaðið/Hari
Skálafell Fjallahjólreiðakappi á fleygiferð niður af Skálafelli, eftir að hafa tekið lyftuna upp.
Fjallahjólaæði gerir
vart við sig á sumrin
Skíðalyftur í Skálafelli og Hlíðarfjalli nýttar til hjólreiða
Ljósmynd/Hlíðarfjall
Hlíðarfjall Fjarkinn er opinn í
sumar, annað árið í röð.
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!