Morgunblaðið - 26.07.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Hitabylgjan sem nú gengur yfir Vest-
ur-Evrópu mun ná til Íslands með
óbeinum hætti að sögn Einars Svein-
björnssonar, veðurfræðings á Veður-
vaktinni.
„Fyrri spár gerðu ráð fyrir að
heita loftið stefndi til norðvesturs og
inn í Ísafjörð en nú er því spáð að það
stefni frekar á Grænland og angi af
því nái hér inn á Norðurland,“ segir
Einar og bætir því við að spá veður-
vefsins Bliku geri ráð fyrir 21 stigs
hita í Mývatnssveit og 20 stigum á
sunnudaginn á Akureyri. Bylgjan
mun einnig valda strekkingi um
helgina á Suður- og Suðvesturlandi.
Einar segir óvenjulegt að hita-
bylgja sem þessi nái til Íslands en
bylgjan sem gekk yfir fyrr í sumar
hafði lítil sem engin áhrif hérlendis.
„Það er dálítið sérstakt að sjá
svona hlýtt loft streyma hérna fyrir
norðan. Yfirleitt er það þannig að það
kemur hlýtt loft sunnan úr höfum og
það nær ekki í land. Þetta er óvenju-
legt í alla staði, kannski ekki að loft
fari þessa slóð en að það sé svona
hlýtt.“
Hitabylgjan mun væntanlega
valda frekari bráðnun Grænlandsjök-
uls. „Svo fer þetta nær Grænlandi og
veldur væntanlega mikilli bráðnun á
jöklinum þar í einhverja daga,“ segir
Einar.
Hitamet hafa víða fallið á megin-
landi Evrópu í þessari viku. Einar
segir að líklegt sé að hitamet falli í
dag í borginni Björgvin í Vestur-
Noregi.
Hitabylgjan yljar norðan-
verðu Íslandi um helgina
Morgunblaðið/Ómar
Sól Sundlaugin á Akureyri er
vænlegur áfangastaður um helgina.
Óvenjulegt að
hún nái alla leið
Listafólk Skapandi sumarstörf í Kópavogi sýndu
uppskeruna af erfiði sínu á veglegri lokahátíð í
Molanum, ungmennahúsi, í gær.
Að þessu sinni var uppskeran afar fjölbreytt
en unnið var að 17 ólíkum verkefnum í sumar.
Meðal annars mátti sjá brúður taka völdin, gam-
alt heimildarmyndaform endurvakið, tónlistar-
gjörninga, myndlistarsýningar og margt fleira
sem upprennandi listafólk skapaði.
Morgunblaðið/Hari
Fjölbreytt menningaruppskera í Molanum
Lokahátíð Skapandi sumarstarfa í Kópavogi 2019
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er heldur heitt hérna núna,“
sagði Ágúst Ásgeirsson blaðamaður
í gærkvöld. Hann býr í Rennes á
Bretagneskaga í Frakklandi.
Franska veðurstofan tilkynnti í gær-
kvöld að hitabylgjan sem gengið hef-
ur yfir muni réna á laugardag. Þá er
spáð 21-23 stiga hita en í gær fór hit-
inn í 42,6 stig í París sem er nýtt met.
Í Lille, nyrst í Frakklandi, fór hitinn
yfir 41 stig. Þá féll hitamet í Þýska-
landi þegar mældist 41,5 stiga hiti og
einnig í Hollandi í 40,7 stiga hita.
Hitabylgjan náði til Stóra-Bretlands
þar sem nýtt júlíhitamet var sett þar
sem hitinn mældist 38,1 stig.
Ágúst stundar mikið hjólreiðar.
Hann hafði ekki stigið á hjólið síðan
á sunnudag. „Ég þori ekki út að hjóla
eins og þetta er
núna. Maður
heldur sig bara
innandyra og tek-
ur það rólega.
Það eru fáir á ferli
úti við. Það eru
sumarfrí og skól-
arnir lokaðir.
Börnin eru ann-
aðhvort heima
eða lokuð inni í
sumarbúðum!“
Ágúst sagði að þegar hann vakn-
aði um sjöleytið í gærmorgun hefði
verið kominn 25 stiga hiti. Hitinn
steig og var kominn í 33 stig um há-
degið. Áfram hlýnaði og náði hitinn
39 stigum í Rennes eftir því sem
Ágúst komst næst. Íbúðarhús þar
sem hann býr eru almennt ekki loft-
kæld, en fólk notar viftur og laus
kælitæki sem blása köldum vatnsúða
út í loftið til kælingar.
Hitabylgjan og afleiðingar hennar
voru efst á baugi í öllum fréttatímum
í Frakklandi í gær. Ekki höfðu orðið
mörg dauðsföll ólíkt því sem gerðist í
ágúst 2003 þegar talið var að rekja
mætti ótímabær andlát 13-15 þús-
und manns til hitabylgju sem þá
geisaði. Margir sem þá létust voru
aldraðir eða með undirliggjandi
sjúkdóma og dóu af ofþornun og öðr-
um orsökum. Ágúst sagði að þá hefði
fólk verið illa búið undir ofurhitann
en því væri öðruvísi farið núna.
„Strax í sumarbyrjun voru búðirn-
ar orðnar fullar af viftum og ýmsum
kælitækjum. Nóg er líka til af vatni.
Þetta er ekki vandamál eins og það
var,“ sagði Ágúst. „Það hafa verið
miklar viðvaranir og lýst yfir allt að
rauðu hættustigi vegna hitans.“
Hitabylgjan hefur m.a. valdið því
að járnbrautarlestir verða að slá
verulega af hraðanum vegna áhrifa
hitans á teinana. Starfsmenn margra
fyrirtækja hafa fengið að fara heim
úr vinnunni fyrr á daginn en ella svo
að þeir þurfi ekki að þjást í hita-
svækjunni inni í borgunum.
„Heldur heitt“ og fáir á ferli
Ágúst
Ásgeirsson
AFP
París Fólk kældi sig í Trocadero-gosbrunnunum í París í gær. Þá var slegið
nýtt hitamet þegar hitabylgjan lagðist yfir höfuðborg Frakklands.
Mörg hitamet féllu á meginlandi Evrópu í gær Íslendingur hélt sig innandyra og tók það rólega
Töluverður halla-
rekstur er á
Landspítalanum
á yfirstandandi
ári samkvæmt
heimildum
mbl.is. Umfang
hallans fæst þó
ekki staðfest,
umfram það að
hann sé „umtals-
verður“ og að
unnið sé að leiðum til þess að mæta
hallanum í samstarfi við heilbrigð-
isráðuneytið. Hallarekstur spítalans
var 1,4 milljarðar króna á síðasta
ári eða um 2% miðað við tekjur,
sem voru 70,8 milljarðar árið 2018
„Hallinn er umtalsverður og eitt-
hvað umfram spár, en við erum að
vinna að tillögum og útfærslu
þeirra út af hallarekstri með
heilbrigðisráðuneytinu,“ sagði Guð-
laug Rakel Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri flæðisviðs og stað-
gengill forstjóra Landspítalans, í
samtali við mbl.is í gær. Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
sagðist ekki geta upplýst um um-
fang hallareksturs spítalans en
sagðist vita til þess að samskipti
væru milli ráðuneytisins og spít-
alans. Þá vísar hún til almennra
vinnureglna ráðuneytisins.
Töluverður
hallarekstur
á Landspítala
Spítali Halli er
á rekstrinum.