Morgunblaðið - 26.07.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
UPPLIFÐU SUMARIÐ Í HLÍÐARFJALLI!
Skemmtilegar gönguleiðir
www.hlidarfjall.is
Sérfræðingur í hótelrekstri sem
ræddi við Morgunblaðið í trausti
nafnleyndar sagði áætlanir hafa
miðað við rúmlega 2,5 milljónir er-
lendra ferðamanna í ár og svo enn
fleiri á næsta ári. Þessar áætlanir
hafi verið hafðar til viðmiðunar við
fjárfestingar í hótelum áður en
hrikta tók í stoðum WOW air.
Taldi hann að tvö ár gætu liðið
þar til erlendir ferðamenn yrðu
orðnir fleiri en í fyrra en þeir voru
þá ríflega 2,3 milljónir.
Gæti munað um hálfri milljón
Munurinn á þessum áætlunum og
fjöldanum í ár gæti orðið um hálf
milljón ferðamanna, sé miðað við
rúmlega 2 milljónir ferðamanna í
ár. Arion banki birti í september sl.
spá um fjölgun ferðamanna. Hafði
þá verið mikil umræða um vanda
WOW air um sumarið. Samkvæmt
henni myndi erlendum gestum um
Keflavíkurflugvöll fjölga um 1,4% í
ár, um 2,4% árið 2020 og um 2,7%
árið 2021. Tóku greinendur bank-
ans fram að gert væri ráð fyrir
„mjög lítilli fjölgun ferðamanna á
næstu árum“. Kynntar voru nokkr-
ar sviðsmyndir en sú „svartsýna“
gerði ráð fyrir færri en 2 milljónum
erlendra ferðamanna í ár. Virðist
svartsýna spáin nú líklegust.
Búinn að ná jafnvægi 2020-21
Sérfræðingur á fjármálamarkaði
benti á að almennt hefðu grein-
endur gert ráð fyrir 3-5% fjölgun
ferðamanna á ári frá og með árinu
2017, einu mesta vaxtarári sög-
unnar í íslenskri ferðaþjónustu.
„Við erum ekki að fara að sjá
samdrátt í fjölda flugsæta mörg ár í
röð. Ef nýtt flugfélag kemur á
markaðinn gætum við aftur séð háa
prósentuaukningu á næsta ári,“
sagði sérfræðingurinn sem taldi
mögulegt að á næsta ári mundi nýtt
félag hafa bætt upp 60% af töp-
uðum flugsætum.
Yrðu um 2,5 milljónir í ár
Morgunblaðið/Eggert
Fjárfestingar tóku mið af spám um fjölgun ferðamanna
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Útlit er fyrir um 300 þúsund færri
brottfarir erlendra ferðamanna frá
Keflavíkurflugvelli í ár en í fyrra. Þá
miðað við að sami samdráttur verði á
síðari hluta ársins og þeim fyrri.
Brottfarirnar hafa verið notaðar
sem mælikvarði á fjölda erlendra
ferðamanna. Eru þá undanskildir er-
lendir ferðamenn sem lenda í Kefla-
vík en koma ekki inn í landið.
Samkvæmt tölum Isavia fóru 3,47
milljónir farþega um Keflavíkurflug-
völl á fyrri hluta ársins, borið saman
við 4,36 milljónir í fyrra. Það er
fækkun um 887 þúsund farþega milli
ára – 20,3% fækkun – sem samsvar-
ar tæplega fimm þúsund á dag.
Fall WOW meginskýringin
Það mildar höggið á ferðaþjón-
ustuna að flestir þeirra eru tengi-
farþegar sem koma ekki inn í landið.
Fækkun farþega skýrist fyrst og
fremst af gjaldþroti flugfélagsins
WOW air hinn 28. mars sl. Hafði
flugfélagið þá fækkað vélum og sagt
upp hundruðum starfsmanna í hag-
ræðingarskyni í desember.
Isavia gerði farþegaspá í nóvem-
ber 2017. Samkvæmt henni færu
10,38 milljónir farþega um Kefla-
víkurflugvöll árið 2018. Spáin var
endurskoðuð í maí 2018 og þá gert
ráð fyrir 10,07 milljónum farþega.
Raunin er hins vegar að 9,8 milljónir
farþega fóru um flugvöllinn.
Verði fækkun flugfarþega á vell-
inum í ár jafn mikil og á fyrri hluta
ársins, eða 20,3%, munu rúmar 7,8
milljónir farþega fara um völlinn,
eða um tveimur milljónum færri en í
fyrra. Þrátt fyrir þann samdrátt yrði
árið 2019 það þriðja stærsta í sög-
unni, næst á eftir 2017 og 2018.
Isavia birti í júní uppfærða
farþegaspá fyrir 2019. Þar er gert
ráð fyrir 7,3 milljónum ferðamanna í
ár. Þá spáði Isavia 1.927 þúsund er-
lendum farþegum í ár, sem yrði
fækkun um um 388 þúsund milli ára.
Það er meiri samdráttur en áætlað
er í þessari samantekt.
12,4% fækkun milli ára
Fyrstu sex mánuði ársins voru
tæplega 900 þúsund brottfarir er-
lendra ferðamanna frá Keflavíkur-
flugvelli, borið saman við 1,027 millj-
ónir sömu mánuði í fyrra. Það eru
tæplega 128 þúsund færi brottfarir
en fyrri hluta árs í fyrra.
Sú fækkun samsvarar 12,4% sam-
drætti. Yfirfært á heildarfjölda
brottfara erlendra ferðamanna í
fyrra verða rúmlega 287 þúsund
færri brottfarir í ár en í fyrra. Ber þá
að hafa í huga að WOW air starfaði
nær allan fyrsta fjórðung ársins. Á
móti kemur aukið framboð annarra
flugfélaga og áform um ný flugfélög.
Útlit fyrir 300 þúsund
færri ferðamenn í ár
Miðað við fækkun flugfarþega í Keflavík á fyrri hluta árs
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
4
3
2
1
0
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Farþegaspá Isavia fyrir 2019 1.990.000 færri farþegar árið 2019 en í fyrra m.v. 20,3% samdrátt
frá 2018
290.000 færri brott-
farir miðað við 12,4% samdrátt
Heildarfjöldi farþega 2010-2018 og spá fyrir 2018 og 2019
Fjöldi farþega á Kefl avíkurfl ugvelli Brottfarir frá Kefl avíkurfl ugvelli
Milljónir farþega
Milljónir farþega
Heimild: Isavia
2,07
2,47 2,76
3,21
3,87
4,86
6,82
8,76
9,80
Spá Isavia frá nóv. 2017: 10,38
Spá Isavia frá maí 2018: 10,07
2015 2016 2017 2018 2019 2018 2019 2015 2016 2017 2018 2019
Á fyrri hluta árs 2015-2019 Janúar til júní 2018
og 2019, milljónir
Allt árið 2015-
2018 og áætlun
fyrir 2019 m.v.
12,4% samdrátt
frá 2018
2,01
2,70
3,77
4,36
3,47
1,26
1,77
2,20 2,32
2,03
12,4%
samdráttur frá
2018 eða 130.000
færri brottfarir
20,3%
samdráttur frá 2018Breyting
2015-2019: +72,7%
2017-2019: -8,0%
Spá Isavia frá
jan. 2019: 8,95
Spá Isavia frá
júní 2019: 7,24
1,03 0,90
7,81
Miðað
við
20,3%
sam-
drátt
frá
2018
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Dregið hefur úr umferð
um flugvöllinn á fyrri hluta ársins.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Að öllum líkindum mun ekki nást í
haust að fylla skarðið sem WOW Air
skildi eftir sig á flugmarkaði hér-
lendis þegar flugfélagið fór í þrot
fyrr á árinu, að sögn Guðna Sigurðs-
sonar, upplýsingafulltrúa Isavia.
„WOW Air flutti um það bil 35%
farþega um Keflavíkurflugvöll og
var næststærsti viðskiptavinur okk-
ar á vellinum. Það er því ljóst að
gjaldþrot WOW hefur haft áhrif á
reksturinn og skarð myndast á
markaðnum, sérstaklega hvað varð-
ar Ameríkuflug þar sem framboð
hefur minnkað töluvert,“ segir
Guðni.
Air Baltic flýgur allt árið
Einhver flugfélög hafa þó bætt við
sig flugferðum en flugfélagið Air
Baltic tilkynnti nýverið að það
myndi nú fljúga allt árið til Keflavík-
ur. Áður hefur félagið einungis flog-
ið yfir sumarið. Air Baltic býður upp
á flugferðir til Riga, höfuðborgar
Lettlands. Guðni segir það jákvæðar
fréttir þótt þær breytingar séu ekki
stórvægilegar.
„Fleiri flugfélög þjónusta
evrópska áfangastaði og þau hafa
sum hver aukið flugið. Það hefur þó
ekki verið það mikið að við höfum
séð ástæðu til að breyta farþegaspá
Isavia sem við birtum uppfærða í
byrjun júní,“ segir Guðni.
Í umræddri farþegaspá kom fram
að Isavia telji að erlendum farþeg-
um til Íslands muni fækka um 388
þúsund milli ára.
„Fluggeirinn er þannig geiri að
hann er skipulagður nokkuð langt
fram í tímann og því tekur tíma fyrir
flugfélög að bregðast við ef skarð
myndast í markaðnum. Við höfum
þegar séð að nokkur flugfélög hafa
aukið framboð sitt og höfum vænt-
ingar um að það muni halda áfram,“
segir Guðni.
Óvissa um MAX fram á haust
Spurður hvort Isavia vinni mark-
visst að því að fylla skarð WOW
segir Guðni: „Við erum alltaf í
miklum samskiptum við okkar við-
skiptavini og mögulega nýja við-
skiptavini. Á þeim vettvangi höfum
við kynnt Keflavíkurflugvöll og Ís-
land sem áfangastað með mjög góð-
um árangri undanfarin ár og höldum
því starfi áfram nú sem fyrr.“
Hvað óvissu vegna kyrrsetningar
Boeing 737 MAX 8-þotna Icelandair
varðar segir Guðni að hún muni lík-
lega ná inn í veturinn.
Morgunblaðið/Hari
WOW Vél ALC sem Isavia og ALC deildu lengi um en er nú flogin úr landi.
Tímafrekt að
bregðast við
skarði WOW Air
Aukið framboð félaga nægir ekki
Draga saman og þenja út
» Delta Airlines mun ekki
fljúga til Íslands í vetur en flug-
félagið hefur boðið upp á
áætlunarferðir til Íslands frá
árinu 2011.
» EasyJet hefur fækkað
ferðum sínum til Keflavíkur.
» Flugfélagið Jet2.com og
ferðaskrifstofan Jet2City-
Breaks hafa ákveðið að rúm-
lega tvöfalda ferðaáætlun sína
til Íslands næsta vetur.