Morgunblaðið - 26.07.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
Druslugangan fer fram á morgun og stóðu
því druslur í ströngu við að undirbúa göng-
una á Loft hosteli í gærkvöldi.
Gangan hefst á morgun við Hallgríms-
kirkju klukkan 14.00 og endar á Austurvelli,
þar sem ávörp og tónlistaratriði verða flutt
almenningi.
Á Loft hosteli voru skilti útbúin og varn-
ingur til sölu, auk þess sem Sigrún Braga-
dóttir hannyrðapönkari var með vinnustofu í
hannyrðapönki.
„Hannyrðapönk er lausleg þýðing á enska
orðinu „craftivism“. Hannyrðapönk er ekki
nýtt af nálinni.
„Hannyrðapönk er það þegar handverk er
notað sem hreyfiafl, aktívismi, til að knýja
fram breytingar í heiminum, til að stuðla að
betri heimi,“ sagði Sigrún. Hún segir að
skiltagerð sé ákveðið hannyrðapönk þar sem
verið er að vekja fólk til umhugsunar.
Gangan fer nú fram í Reykjavík níunda ár-
ið í röð, en hún fór fyrst fram hér á landi
hinn 23. júlí árið 2011. Fyrsta druslugangan
var farin örstuttu áður, í Toronto í Kanada.
Aðdragandi mótmælanna voru ummæli lög-
reglumanns nokkurs þar í landi sem lagði til
að konur forðuðust að klæða sig eins og
„druslur“.
Druslugangan hefur það að markmiði að
sýna þolendum kynferðisofbeldis samstöðu
auk þess að boða lok nauðgunarmenningar.
Morgunblaðið/Hari
Undirbúningur Skilti fyrir gönguna voru útbúin á Loft hosteli í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi.
Undirbúningur Druslugöngunnar í fullum gangi
Bókin Drungi eftir Ragnar Jónasson
er tilnefnd sem besta glæpasaga árs-
ins í Bretlandi en verðlaunin verða
veitt í haust. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá útgefandanum Bjarti
og Veröld.
Útgáfuhluti Amazon-samsteyp-
unnar og Capital Crime glæpa-
sagnahátíðin í London standa að
verðlaununum, en alls eru fimm
glæpasögur tilnefndar. Hinar eru
Cruel Acts eftir Jane Casey, The
Sentence is Death eftir Anthony
Horowitz, Metropolis eftir Philipp
Kerr sem lést í fyrra og In the House
of Lies eftir Ian Rankin en bók hans
hefur setið vikum saman á metsölu-
lista Sunday Times. Bók Ragnars er
sú eina af þeim sem tilnefndar eru
sem er þýdd.
Þess má geta að bók Ragnars,
Snjóblinda, er á lista Blackwell’s
bókabúðakeðjunnar bresku yfir
hundrað bestu glæpasögur sem
komið hafa út.
Tilnefndur
fyrir Drunga
Í hópi bestu glæpa-
sagna Bretlands
Á tímabilinu janúar til júní í ár skoð-
aði Vinnueftirlitið 123 krana en skoð-
aði 171 krana á sama tímabili í fyrra,
að því er fram kemur á vef Vinnueft-
irlitsins. Ef fyrri helmingur ársins
gefur vísbendingu um framhaldið
mun svokölluð kranavísitala Vinnu-
eftirlitsins því líklega vera nokkuð
lægri í lok árs en hún var í fyrra.
Byggist kranavísitalan á skoðunum
byggingarkrana og hefur þótt ágætis
mælikvarði á umfang framkvæmda
hér á landi.
Í byrjun desember var sagt frá því
að kranavísitalan stæði jöfn tölunni
frá því 2007, 364, en á endanum tók
2018 fram úr hinu fræga fram-
kvæmdaári og endaði í 385 krönum
skoðuðum.
Hausttalningin verði áhugaverð
Bæði á vorin og haustin fram-
kvæma Samtök iðnaðarins talningu á
íbúðum í byggingu og segir Ingólfur
Bender, aðalhagfræðingur SI, að vor-
talningin í ár hafi leitt í ljós að enn
væri vöxtur í geiranum en farið væri
að hægjast á vextinum og lítils háttar
fækkun mátti þá greina í fjölda íbúða
á fyrstu stigum í talningunni síðasta
haust. Segir hann að áhugavert verði
að sjá hvað komi fram í hausttalning-
unni í ár, þá sér í lagi vegna þeirra
breytinga sem hafa verið í efnahags-
lífinu undanfarna mánuði.
„Síðast hafði íbúðum í byggingu
fjölgað nokkuð frá því síðastliðið
haust, en það er auðvitað orðið svolít-
ið gömul talning í ljósi þess hvað mik-
ið hefur gerst í efnahagslífinu undan-
farna mánuði. Það verður bara að
bíða niðurstaðna úr hausttalningunni
og sjá hvort við greinum einhvern við-
snúning í íbúðabyggingunum. Það
voru ákveðnar vísbendingar í talning-
unni í vor eins og að íbúðum á fyrstu
stigum var að fækka aðeins, en það
var ekki kominn neinn samdráttur í
apríl þegar á heildina var litið,“ segir
Ingólfur og segir að SI framkvæmi
ekki aðrar talningar á milli vor- og
hausttalninga. „Það verður spennandi
að sjá þessar tölur í haust, sér í lagi
vegna þess sem er að gerast í efna-
hagslífinu,“ segir hann. Nefnir hann
sem dæmi samdrátt í ferðaþjónustu,
og segir: „Það hefur þá áhrif á íbúða-
markaðinn með ýmsum hætti. Má þar
nefna að íbúðir hafa verið notaðar
sem gistirými fyrir erlenda ferða-
menn. Þá hefur krónan gefið aðeins
eftir frá því að hún var hæst sem eyk-
ur þá byggingarkostnað. teitur-
@mbl.is
Kranavísitalan
líklega lægri í ár
Hægist á vexti í nýbyggingum íbúða