Morgunblaðið - 26.07.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 26.07.2019, Síða 19
sagt að enginn færi yfir í þessu veðri en Bjössi hlustaði nú ekki á það. Lét sko ekki „smá snjó“ stoppa sig, heldur settist upp í Löduna og bjargaði þessu. Hon- um leiddist heldur ekki að fá að brasa á bílnum og á sama tíma ná að hræða úr mér líftóruna á leið- inni yfir heiðina. Nú er hann horfinn frá okkur langt fyrir aldur fram, þessi góði maður, og eigum við eftir að sakna húmors hans og hláturs. Elsku Inga Magga mín, við sendum þér og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Minningin um einstaklega traustan mann mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Sigríður Rósa Valgeirs- dóttir og fjölskylda. Nú á miðju sumri þegar Skaga- fjörðurinn skartar sínu fegursta og miðnætursólin læðist yfir fjörð- inn, þá kvaddi vinur okkar Sigur- björn Skarphéðinsson þetta líf eft- ir snarpa og erfiða viðureign við illvígan sjúkdóm. Bjössi eins og hann var alltaf kallaður og Inga Magga kona hans byggðu sér hús við Brennihlíð 4, beint á móti okk- ar húsi, og áttum við þarna ynd- islega nágranna í fjóra áratugi. Bjössi var einstakt ljúfmenni sem gaman var að ræða við og oft þeg- ar við hittumst voru málin, sem efst voru á baugi í það og það skiptið, rædd og lausnir fundnar að okkar mati. Stundum var sest upp í jeppana og brunað fram á fjöll eða vélsleðarnir teknir fram og farið upp í Trölla eða eitthvað annað í góðra vina hópi. Bjössi var mikill fjölskyldumaður og átti samhentan barnahóp sem hann var mjög stoltur af og veittu þau honum mikinn stuðning nú á þess- um síðustu vikum. Ungur að árum fékk Bjössi sér traktorsgröfu sem hann gerði út og var það hans að- alstarf alla tíð. Hann var gröfu- maður af guðs náð; sama hvaða verkefni voru lögð fyrir hann, öll voru þau leyst með sóma. Seinna fjölgaði vélunum og átti hann flest tæki, sem þurfti til að vinna smærri verk og var hann mjög eft- irsóttur í vinnu. Hann var fljótur að lesa í verkefnin og vann þau af nákvæmni og frágangur var hans sérgrein. Það varla sást að hróflað hefði verið við jarðveginum þegar frágangi lauk, enda Bjössi sér- stakt snyrtimenni sem sást best á vélunum hans, þær voru alltaf eins og nýjar. Oft lágu leiðir okkar saman í vinnu; hann á gröfu og ég á vörubíl við margvísleg verkefni. Mörg þeirra voru krefjandi, en Bjössi hafði svör við hinum ýmsu uppákomum og allt hafðist þetta að lokum. Það er gott að vinna með svona mönnum. Nú er sólin hans vinar okkar gengin til viðar allt of snemma, en enginn ræður sínum næturstað. Hann var einn hlekkur í skagfirsku lífskeðjunni og sá hlekkur verður vandfundinn aftur. Við kveðjum Bjössa vin okk- ar með virðingu og þökk fyrir allt og allt, vináttuna, samstarfið og alla skemmtilegu samveruna í gegnum árin, og biðjum góðan Guð að leiða hann inn í sumarland- ið. Á kveðjustund er þungt um tungutak og tilfinning vill ráða hugans ferðum. Því kærum vini er sárt að sjá á bak og sættir bjóða Drottins vilja og gjörðum. En Guðs er líka gleði og ævintýr og góð hver stund er minningarnar geyma. Farðu vel, þér fylgir hugur hlýr á ferð um ljóssins stig, og þagnarheima. (Sigurður Hansen) Elsku Inga Magga, Guðbjörg, Efemía, Jón Geir og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum, en minning- in um yndislegan mann mun lifa með okkur. Sigurbjörg (Sibba) og Jón (Nonni). MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 ✝ Ásdís ÍshólmÓlafsdóttir fæddist á Selfossi 7. október 1968. Hún lést 19. júlí 2019 á líknardeild Land- spítalans. Foreldrar henn- ar eru Ólafur Ís- hólm Jónsson, f. 1. ágúst 1939, og Katrín Erla Gunn- laugsdóttir, f. 8. júní 1946. Systur Ásdísar eru: Auður, f. 11. maí 1967, maður hennar er Guðlaugur Stefánsson, f. 14. október 1965, börn þeirra eru Aníta, f. 6. mars 1987, og Stefán Ragnar, f. 19. mars 1991; Dagný Björk, f. 25. júlí 1973, maður hennar er Gunnar Bragi Þorsteinsson, f. 21. október 1971, börn þeirra eru Þorsteinn Freyr, f. 8. ágúst 2001, Birkir Óli, f. 29. maí 2006, og Erla Margrét, f. 29. maí 2006; Elfa Íshólm, f. 28. júní 1976, maður hennar er Halldór Halldórsson, f. 19. nóvember 1971, synir þeirra eru Elfar Ísak, f. 2. apríl 2002, og Jón Reynir, f. 11. desember 2009; Harpa Íshólm, f. 7. júlí 1987, maður hennar er Gissur Kolbeinsson, f. 13. desember 1986, dætur þeirra eru Freyja Mjöll, f. 26. nóvember 2009, og Birta Sif, f. 23. ágúst 2014. Eftirlifandi eig- inmaður Ásdísar er Ólafur Gunnar Pétursson, f. 4. mars 1967, en hún giftist honum 8. júlí 1995. Börn Ásdísar og Ólafs eru: 1) Andrea Katrín, f. 17. mars 1994. 2) Ólafur Íshólm, f. 8. maí 1995. 3) Andri Snær, f. 25. desember 2000. Fyrir átti Ólafur dótturina Auði Sólrúnu, f. 14. apríl 1986, sambýlismaður henn- ar er Magnús Níels Sigurðsson, f. 14. maí 1987. Ásdís starfaði hjá ÁTVR mest- an hluta starfsferils síns, síðustu ár sem launafulltrúi. Útför hennar fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 26. júlí 2019, klukkan 13. Elsku Ásdís mín. Fallega og góða systir mín með stóra hjartað. Náttúrubarnið. Allt mitt líf hefur þú verið mér við hlið, alltaf til staðar, alltaf hlý og góð. Til þín gat ég alltaf leitað. Fyrst sem litla systirin sem leit svo upp til þín, skvísunnar með ljósu lokkana. Seinna sem vinkona og jafnstóra systirin (fyrir utan sentimetrann sem þú áttir aukalega). Við gátum talað um allt og ekki neitt. Ólíkar en samt líkar. Þegar mér leið sem verst var svo gott að tala við þig, jafnvel þótt þú værir á sama tíma að glíma við þín erfiðu veikindi. Þú skildir mig og hvattir mig áfram. Tíminn sem við fengum saman var alltof stuttur. Við áttum eftir að gera svo ótalmargt saman en sem betur fer höfum við gert ótal- margt saman. Minningarnar eru svo dýrmætar og í sorginni og tómarúminu er huggun að geta leitað í minningabankann. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að verða samferða þér í mín 43 ár. En það er svo sárt að þurfa að kveðja þig, elsku Ás- dís. Hæstur Drottinn himnum á, heyr þá bæn og virtu, lofaðu mér að leggja frá landi í sólarbirtu. (Ólína Jónasdóttir) Elska þig. Þín Elfa. Elsku fallega og ljúfa Ásdís mín, það er svo sárt að kveðja þig. Ég og mín fjölskylda eigum svo ótal margar fallegar minningar um þig og tímann okkar saman; tímann sem átti að verða svo miklu lengri, við áttum eftir að gera svo margt. Minningarnar ylja og kalla fram bros og hlátur. Við erum búin að skoða margar kostulegar myndir og við brosum í gegnum tárin. Þessar síðustu vikur og dagar sem við fengum saman eru mér svo dýrmæt. Þú varst svo mikið veik og kvalin, en alltaf varstu meðvituð um allt og með allt á hreinu, fylgdist vel með öllu og skaust inn alls kyns gullkornum sem komu sér misvel fyrir okkur sem sátum hjá þér. Við spjölluð- um um heima og geima, þú borð- aðir kökur og kruðerí sem ég kom með og við fórum út í sólina sem skein svo skært og fallega. Frið- urinn úti var engu líkur og dag- arnir sem við áttum saman á líkn- ardeildinni voru svo mildir og fallegir, alveg eins og þú. Þessar stundir tek ég með mér áfram út í lífið og ég stend við það sem ég lofaði þér. Eftir að þú kvaddir grétu himn- arnir með okkur en sólin var fljót að senda geislana sína í gegn. Þannig er það elsku stóra systir mín, fyrirmynd í svo mörgu og einn mesti nagli sem ég hef þekkt. Ég veit að það birtir upp á ný og nú eigum við fallegasta engilinn, engil sem passar upp á okkur og fylgir okkur í því sem við gerum. Hvíldu í friði. Þín systir, Dagný Björk. Þú varst okkur gleðigeisli, góða barn, um liðna tíð, eins og blóm á björtu vori, er brosti móti sólu hlíð. En vetur kom og voðinn kaldi vafði um okkur heljar mund sorgin skar og sárin blæddu að sjá þig líða að hinstu stund. (Guðrún Jóhannsdóttir) Í dag kveð ég Ásdísi mína kæru frænku, sem lést eftir harða bar- áttu við krabbamein. Ég hef þekkt Ásdísi frá því að ég man eftir mér, við erum systk- inadætur og fæddumst með viku millibili. Við ólumst upp í miklu nábýli með foreldrum og systkin- um. Aðeins þrjú hús voru á milli æskuheimila okkar og því oft hlaupið yfir til að leika. Það voru alltaf opnar dyr hvenær sem var bankað, hvort sem það var heima hjá mér eða á heimili Ásdísar. Þetta voru áhyggjulaus bernsku- ár enda hverfið fullt af börnum og var dögunum eytt í að vera úti að leika. Leikvöllurinn var Stekk- holtið og húsagarðarnir í kring. Ef við vorum inni að leika fórum við mjög oft í Ólalögguleik eða spil- uðum og áttum góða tíma saman. Við Ásdís vorum saman í bekk í 10 ár og fórum svo í FSu þar sem við útskrifuðumst saman og fór- um í útskriftarferð. Eftir það hittumst við ekki eins oft, hún fluttist til Reykjavíkur en ég bjó áfram á Selfossi, en sterki frænkustrengurinn slitnaði aldrei. Síðustu mánuði hittumst við oftar. Ásdís var bjartsýn og ætlaði að sigrast á meininu en henni var engin vægð sýnd. Það var ekki annað hægt en dást að því hversu hugrökk hetja hún var og hvað fjölskyldan hennar var samhent í þessu ósanngjarna stríði. Þau hjónin voru búin að kaupa sér hús á Selfossi og stóð til að flytja í það á árinu. Því miður náði Ásdís því ekki. Elsku fjölskylda, ykkar missir er mikill og sár. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Sigríður Erlingsdóttir. Elsku besta Ásdís mín. Þú varst mér svo góð og skemmtileg frænka. Þú varst mér góð fyrirmynd með því að vera alltaf svo góð við okkur í fjölskyldunni og varst svo dugleg að hreyfa þig. Ég á svo margar minningar um okkur saman en ég hefði viljað skapa fleiri minningar með þér. Mér fannst alltaf svo gaman að vera með þér, t.d. þegar við hjól- uðum Jaðarinn saman, fórum í útilegur, vorum inni í skála, í Kaupmannahöfn, þegar öll fjöl- skyldan hittist og svo margt fleira. Ég veit að þú munt vaka yfir mér og ég sakna þín. Ég elska þig endalaust. Þín frænka, Erla Margrét. Í dag kveðjum við einstakan samstarfsmann og dásamlega vin- konu. Ásdís á stóran sess í hjarta okkar sem höfum unnið með henni og skiptir þá ekki máli hvort samstarfið hafi varað í þau 26 ár sem hún vann hjá ÁTVR eða styttra, enda átti Ásdís einstak- lega gott með að ná til fólks með sinni hæglátu en ákveðnu fram- komu. Fyrirtæki sem fá að njóta starfskrafta fólks eins og Ásdís var, eru einstaklega heppin. Hún naut sinna verkefna, var alltaf tilbúin að leggja meira á sig fyrir fyrirtækið, tók alltaf þátt af heil- um hug í þeim verkefnum sem henni voru falin og var alveg sér- staklega samviskusöm og jákvæð í sinni vinnu. Samstarfsfólk sem fær að njóta samveru fólks eins og Ásdís var er enn heppnara. Það var eitthvað sérstaklega gott við að vinna við hlið Ásdísar og fá tækifæri til þess að læra af henni. Hún var sönn fyrirmynd í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hvort sem það voru verkefni í vinnunni, allt það sem tengdist dásamlegu börnunum hennar, hjólreiðar og ekki síst hetjuleg barátta hennar og æðru- leysi gagnvart síðasta verkefni hennar í þessu lífi. Ásdís var einstaklega góð manneskja sem bar hag allra fyrir brjósti. Hún var vakin og sofin yf- ir börnunum sínum og því sem þau tóku sér fyrir hendur. Hún var endalaust stolt af þeim enda full ástæða til, þau eru öll alveg einstaklega vel heppnaðir einstak- lingar sem við höfum fengið að kynnast í gegnum leik og störf hjá ÁTVR. Það kom eins og þruma úr heið- skíru lofti þegar við heyrðum af því að Ásdís hefði greinst með krabbamein. Hvernig er það hægt að manneskja sem er heilbrigðið uppmálað, lifir eins hollustusam- legu lífi og hægt er, hreyfir sig og hugsar vel um heilsuna, greinist með slíkan sjúkdóm og nær ekki að sigrast á honum? Hún barðist hetjulega eins og hennar var von og vísa og tókst á við áföllin af miklu æðruleysi. Það verður tómlegt á mann- auðssviðinu, í umræðuhópum um íþróttir og úrslit helgarinnar, í hjólahópnum okkar, á viðburðum, já svo víða á vinnustaðnum okkar við fráfall Ásdísar. Við þökkum fyrir ómetanlegt samstarf, ómetanleg kynni og ómetanlegan vinskap í gegnum tíðina. Við vorum heppin að njóta þeirra forréttinda að þekkja elsku Ásdísi. Yndislegri fjölskyldu Ásdísar og vinum vottum við okkar inni- legustu samúð. F.h. samstarfsfélaga og vina hjá ÁTVR, Guðrún Símonardóttir. Að tilheyra hópi, eins og t.d. saumaklúbbi, sem hittist reglu- lega, deilir lífsreynslu og þar sem hver hvetur aðra til dáða er ómet- anlegt. Hvernig þessir hópar byggjast upp og verða til er mis- jafnt en yfirleitt er tilgangurinn að vera til staðar hver fyrir aðra. Í okkar „saumaklúbbi“ hefur ekki farið mikið fyrir hannyrðum en þeim mun meira fyrir spjalli um alla heima og geima, samkennd, hvatningu og kræsingum. Þessi hópur er svolítið héðan og þaðan, meðlimir hafa komið og farið og jafnvel komið aftur en tengingin hjá flestum er Hellu- þorp. Flestar kynntust Ásdísi á framhaldsskólaaldri í gegnum nám eða atvinnu, aðrar síðar. Í gegnum tíðina höfum við fylgst hver með annarri mennta sig, koma undir sig fótunum, eignast börn og standa í fasteignakaup- um. Við hittumst, hlógum og end- urnærðumst í félagsskap hver annarrar. Ásdís var svo stolt af börnunum og Óla sínum. Útivera, jeppaferðir og íþróttir voru sameiginleg áhugamál fjölskyldunnar og vissi Ásdís ekkert betra en að hjóla eða bralla eitthvað úti við. Svona dagsdaglega fór ekki mikið fyrir Ásdísi, hún var ljúf og góð og vildi öllum vel. En þegar kom að fjöl- skyldunni var hún ljónynja og vei þeim sem gerði á hlut fjölskyldu hennar. Þá skaut hún út klónum. Ein sagan sem fékk að fljóta í klúbbnum okkar var þegar ein- hver stal hjólinu hans Andra. Ás- dís var að koma úr sturtu og fékk þær fregnir að einhver hefði tekið hjólið rétt í þessu. Hún rauk út berfætt og hljóp niður götuna á eftir þjófinum og að sjálfsögðu fann hún hjólið þó að þjófurinn væri á bak og burt. Ásdís var töffari og það sást glöggt í veikindunum sem hún tókst á við í tæp tvö ár. Lífið er svo ósanngjarnt á köflum. Ásdís hugs- aði vel um heilsu sína og var í raun heilsuhraustust af okkur öllum. Að hún skyldi fá þennan ömurlega sjúkdóm skömmu eftir að hafa hjólað hringinn í kringum landið í WOW cyclothon er einfaldlega ósanngjarnt! En Ásdís lét veik- indin ekki aftra sér frá því að lifa og njóta. Hún eyddi allri þeirri orku sem ekki fór í sjúkdóminn í að ferðast með fjölskyldunni bæði innanlands og utan og náði að skapa margar góðar minningar. Hún kom og hitti okkur vinkon- urnar ef sjúkdómurinn gaf færi á og það var gott að hitta hana og finna að hún gat ennþá spjallað og hlegið. Veikindin voru eins og rússíbani, það gekk vel og illa á víxl, stundum bjartsýni og svo komu slæmu fréttirnar rétt eftir að ákvörðun um að flytja á Selfoss var tekin og ekkert fékkst við ráð- ið. Við erum ekki ennþá búnar að meðtaka það að Ásdís sé farin, sorg og reiði takast á í hjarta okk- ar og það verður erfitt og skrítið að hittast án hennar. En minning hennar mun lifa með okkur og eitt erum við sammála um og það er að reyna eftir bestu getu að til- einka okkur hugsunarhátt Ásdís- ar; að lifa og njóta á meðan tími er til, að lifa lífinu núna. Guð styrki ykkur í sorginni elsku Óli, Andrea Katrín, Óli Ís- hólm, Andri Snær og Auður Sól- rún, þetta eru erfiðir tímar en við vonum að þið finnið styrk í öllum góðu minningunum. Þorbjörg, Guðlaug (Gulla) Y., Guðlaug (Gulla) K., Þórunn, Þóranna, Hugrún og Guðrún. Ásdís Íshólm Ólafsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Ásdís. Takk fyrir að hekla fyrir mig dúkkuteppið, þú varst alltaf svo góð við mig. Kær kveðja, Birta Sif. Elsku Ásdís. Þú varst alltaf svo góð við mig og það var alltaf svo gaman að hitta þig. Ég sakna þín mjög mikið. Freyja Mjöll. Elsku Ásdís. Það var alltaf gaman að fara í pöss- un eða í heimsókn til þín. Það eiga allir góðar, fyndn- ar eða skemmtilegar minn- ingar um og með þér. Það eiga allir myndir af þér og með þér. Maður gat alltaf leitað til þín. Þú varst alltaf svo blíð og góð. Ég elska þig. Jón Reynir. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himninum á er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Elskuleg vinkona er horfin á braut en ég kynntist Lísu því mið- ur ekki fyrr en á efri árum. Við eyddum báðar okkar ævistarfi hvor á sínu landshorninu og kynntumst ekki fyrr en við vorum búnar að skila því. Við náðum strax svo vel saman, á hverju hausti keyptum við fjóra miða í bæði leikhúsin en stundum var einu sinni ekki nóg og fórum við til dæmis þrisvar sinnum á Ellý og fannst okkur það ekkert of oft. Jóhanna Elísabet Pálsdóttir ✝ Jóhanna El-ísabet Páls- dóttir, alltaf kölluð Lísa, fæddist 27. janúar 1935. Hún andaðist á Land- spítalanum 22. júní 2019. Útförin fór fram í kyrrþey. Svo voru það allir tón- leikarnir sem við fór- um á og einu sinni á tvenna sama daginn, en toppurinn var í sumarbúðum kirkj- unnar á Löngumýri. Við vorum reyndar ekki ákjósanlegir her- bergisfélagar, þar sem Lísa var varla bú- in að snerta koddann þegar hún var sofnuð en þegar ég opnaði augun daginn eftir var hún kannski búin að lesa hálfa bók eða prjóna hálfa flík. Við settum þetta ekkert fyrir okkur heldur nutum dvalarinnar til fulls og mikið sakna ég elsku vinkonu minnar. Við höfum gengið götu saman glaðst og hryggst um lífsins svið. Oft var hlegið, oft var gaman alltaf sást þú bjarta hlið. Þér við viljum þakkir senda þinni er lokið strangri þraut. Þegar gangan er á enda upp til himna liggur braut. (GJ) Hvíldu í friði, elsku vinkona. Vigdís.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.