Morgunblaðið - 26.07.2019, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
Smáauglýsingar
Bækur
Á hjara veraldar eftir
Guðlaug Gíslason
Þetta er nú ein af 4 bókunum
hans Guðlaugs. Skjaldabjarnarvík
norður við Geirólfsgnúp, útvörður
Árneshrepps, er sögusviðið.
Vestfirska forlagið
jons@snerpa.is
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Volvo XC V70 til sölu
Volvo V70 station. Árg. 2000. Mjög
góður bíll. Vel viðhaldið. Smurbók frá
upphafi. Skoðaður 2020 án athuga-
semda. Sjálfskiptur og með dráttar-
krók. Fallegur bíll með góða aksturs-
eiginleika og þægileg leðursæti.
Upp. í síma 893 7719 og 698 7563
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og
tek að mér
ýmis verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Bókaveisla
50% afsláttur
af bókum hjá Þorvaldi
í Kolaportinu
Allt á að seljast
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Skólavegur 27, Vestmannaeyjar, fnr. 218-4594, þingl. eig. Ása Jenný
Kristínardóttir og Haraldur Ari Karlsson, gerðarbeiðandi Trygginga-
miðstöðin hf., miðvikudaginn 31. júlí nk. kl. 14:30.
Vallargata 12, Vestmannaeyjar, fnr. 218-4935, þingl. eig. Stór Smiður
ehf., gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, miðvikudaginn
31. júlí nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
23. júlí 2019
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Opið
hús kl. 13-15. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur
kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkom-
nir. s: 535 2700.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
boðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Kosning stendur yfir á
nafni á nýju æfingartækin. Komdu og taktu þátt, þitt atkvæði skiptir
máli. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir
velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Föstudaghópurinn hittist kl. 10. Boccia í
setustofu 2. hæðar kl. 10. Vöfflukaffi kl. 14.30. Hádegismatur frá kl.
11.30-12.30 alla daga vikunnar. Nánari upplýsingar í síma 411 9450.
Verið hjartanlega velkomin á Vitatorg.
Garðabæ Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 20 Félagsvist.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, bingó kl. 13.30, síðegiskaffi kl.
14.30. Uppl. í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, spilað í króknum kl.13.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Elskulegur ömmudrengur er
horfinn á braut, ungur maður í
blóma lífsins sem fór allt of fljótt.
Til Sumarlands í fjarska ertu farinn
vinur minn,
á bjartri sumarnóttu slokknar
andardráttur þinn
og eftir sitja ástvinir sem elskuðu þig
heitt,
sorgmæddir og máttvana og geta engu
breytt.
Þú kynntist snemma sorginni er pabbi
þinn féll frá,
varst jú bara sex ára og skildir ekki þá
hvað lífið getur stundum verið
ósanngjarnt og grimmt,
á einu andartaki verður dagsljósið svo
dimmt.
En tíminn mildað missinn fékk og
æskan yndisleg,
mamma þín svo sterk og traust þig
leiddi þennan veg
með Palla stóra bróður skópuð ljúfar
minningar,
amma og afi varðveitt hafa allar
stundirnar.
Þó gatan hafi ekki alltaf verið bein og
breið,
alls kyns ljón á veginum sem teymdu
þig af leið,
lífsreynslan og átökin sem kröfðust alls
af þér,
leiddu þig á endanum á býsna góðan
stað.
Minningarnar hrannast upp í þreyttum
huga mér,
minningar um stundirnar sem áttum við
með þér,
minningar um góðan dreng sem var
mér afar kær,
minningin um Bragann minn mun lifa
hrein og tær.
Á sunnudögum birtist þú með
blómvönd handa mér
og bjórdós fyrir afa þinn þú alltaf tókst
með þér,
faðmlagið svo yndislega þétt og
kærleiksríkt,
tryggð við okkur gömlu hjónin engu
öðru líkt.
Minning þín er ljós í lífi okkar hér og nú,
að lifir þú á nýjum stað er okkar von og
trú,
með tregablöndnum söknuði og kær-
leika og ást,
ég kveð þig elsku Bragi minn, við seinna
munum sjást.
Takk fyrir að vera þú. Afi send-
ir ljós og kærleik.
Þín amma,
Pálhildur S.
Guðmundsdóttir.
Magnús Bragi
Magnússon
✝ Magnús BragiMagnússon
fæddist í Reykjavík
2. nóvember 1975.
Hann lést á heimili
sínu 12. júlí 2019.
Foreldrar hans
eru Erla Lóa Jóns-
dóttir, f. 29. júni
1952, og Magnús
Kr. Indriðason, f. 1.
október 1948, d.
27. maí 1981.
Systkini hans eru Anna
Björk, Páll Ingi og Jónas Atli.
Útför Magnúsar Braga fer
fram frá Fossvogskapellu í dag,
26. júlí 2019, klukkan 13.
Hann Bragi vin-
ur/frændi/uppeldis-
bróðir minn hefur
yfirgefið okkur allt-
of snemma.
Ég man nú ekki
hvenær við hittumst
fyrst, ætli það sé
ekki bara nokkrum
dögum eftir að hann
fæddist, það eru
bara tveir og hálfur
mánuður á milli okk-
ar í aldri og bjuggu foreldrar
okkar í sama stigagangi þegar við
komum í heiminn. Við vorum allt-
af nánir, hittumst mikið í gegnum
árin. Við höfum brallað ýmislegt
yfir ævina saman og höfðum
ýmsar áætlanir um að gera
margt saman, sem verður ekki úr
héðan í frá því miður. En það er
skrítið að hugsa til þess að geta
ekki tekið upp símann og hringt í
hann og mælt okkur mót.
Vertu sæll, elsku vinur, og
hvíldu í friði. Ég á ávallt eftir að
sakna þín.
Öllum þeim sem elskuðu og
þótti vænt um hann Braga okkar,
votta ég samúð mína.
Að lokum vil ég birta kvæði
sem Björn Þorsteinsson, mágur
feðra okkar, birti í minningar-
grein um Magnús, föður Magn-
úsar Braga, eftir Tómas Guð-
mundsson. Megi svo allir góðir
vættir fylgja honum yfir landa-
mærin:
Í dimmum skugga af löngu liðnum vetri
mitt ljóð til þín var árum saman grafið.
Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafið
hugljúfur, glæstur, öllum drengjum
betri.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn
þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi
lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast
ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki –
Axel Friðgeirsson.
Elskuleg móðursystir mín
Margrét Hannesdóttir, eða
Magga eins og hún var ætíð köll-
uð, lést 6. júlí, 97 ára gömul. Hún
hafði þá verið ekkja í 23 ár. Við
þessi tímamót langar mig að
minnast Möggu og eiginmanns
hennar Baldurs sem var kallaður
Balli. Hvert tækifæri var notað til
að heimsækja stóran frændgarð í
Keflavík og þá mátti ekki gleyma
Möggu og Balla.
Þau hjónin voru ætíð mjög
samhent og bjuggu sér fallegt
heimili, lengst af á Sunnubraut 17
í Keflavík. Heimilið var glæsilegt
og búið fínum húsgögnum sem
Balli hafði smíðað af miklu list-
fengi.
Ungur missti ég föður minn
vart orðinn tíu ára gamall seint á
sjötta áratugnum, en í þá daga
voru börn tekin úr aðstæðum,
hvorki var um áfallahjálp né önn-
ur úrræði að ræða til að með-
höndla sorgina. Þá bauð Magga
systur sinni að hafa mig um tíma.
Það var gott að vera hjá Möggu,
Balla og fjölskyldu á þessum tíma.
Balli hafði ótrúlega náttúru-
gáfu, hann var dverghagur á allt.
Ónýtt píanó sem komst í hendurn-
ar á honum varð eins og nýtt, og
var ekki bara falleg mubla heldur
nýttist frumburði þeirra Þóri á
tónlistarbraut hans. Balli var þús-
undþjalasmiður. Hann var með
verkstæði þar sem hann gerði upp
bifreiðar og urðu þær eins og nýj-
ar eftir meðhöndlun hans.
Skorið var af netum heima í bíl-
skúr þegar hann gerði út m/b
Hilmi.
Verkaskipting hjónanna var
hefðbundin og Magga frænka var
heimavinnandi í fullu starfi enda
var fjölskyldan stór og mikið um
gestakomur. Amma bjó hjá þeim
Margrét
Hannesdóttir og
Baldur Júlíusson
✝ Margrét Guð-rún Sigríður
Hannesdóttir fædd-
ist 27. desember
1921. Hún lést 6.
júlí 2019.
Útför Margrétar
fór fram 12. júlí
2019.
Baldur Júlíusson
fæddist 15. sept-
ember 1919. Hann
lést 2. nóvember
1996. Útför hans fór fram 8.
nóvember 1996.
um langt skeið og því fylgdu enn
fleiri gestakomur en ella. Magga
og Balli voru í eðli sínu gestrisin
og höfðu endalaust pláss fyrir
alla. Heimilinu var stjórnað af
miklum myndarskap. Magga var
ekki bara áberandi falleg kona,
hún hafði virðulegt yfirbragð og
var vönd að virðingu sinni. Heim-
ilisstörfin voru fleiri í þá daga og
aðrar kröfur gerðar til húsfreyj-
unnar en í dag. Mikið af fatnaði
var heimasaumað, matur og kaffi
með reglulegu millibili og hús-
freyjan sífellt til staðar til að taka
á móti fólki með umhyggju og
veitingum. Nýtísku heimilistæki
voru þó til á heimilinu eins og
sjálfvirk þvottavél og þurrkari
sem ekki var algengt á heimilum á
þessum tíma.
Frænka mín og jafnaldra,
Maja, kenndi mér þá list að vaska
upp. Ekki mátti nú kasta til hönd-
unum við það, heldur voru
ákveðnar reglur, allt var skolað
fyrst og síðan áhöldin tekin í
réttri röð. Oft var líf og fjör þegar
Balli eða Magga voru að segja
sögur eftir kvöldmatinn og fóru á
kostum. Ósjaldan kom þá galsi í
krakkana, en auk Þóris og Maju
áttu þau Júlíus, Baldur og Ómar.
Ógleymanlegt var þegar Þórir var
í fantastuði og fór í gervi, bræddi
kertavax á undirskál og bjó til
góm og tennur og fór með leik-
þátt. Mér er minnisstætt þegar
hann kom með málaða portrett-
mynd af mér. Þetta var vel gerð
mynd og ég hélt þá að hann yrði
listmálari.
Umfram allt leið mér vel allan
tímann og góður andi ríkti á heim-
ilinu.
Við sem nutum samvista þeirra
hjóna eigum margar fagrar minn-
ingar sem við geymum í hjörtum
okkar. Blessuð sé minning Möggu
og Balla.
Hannes H.
Elsku Atli. Það
er erfitt að hugsa
til þess að þú sért
farinn svo snemma
frá okkur, það er
svo erfitt að skilja og ennþá
erfiðara að koma hugsunum og
tilfinningum á blað.
Þrátt fyrir að sambandið
hafi verið mismikið okkar á
milli í gegnum tíðina varstu
samt sem áður svo stór hluti af
okkar tilveru. Frá því að vera
litlir krakkar að alast upp á
Suðureyri í öllum þeim ævin-
týrum sem því fylgja – í túttu-
byssustríðum, dorgandi á höfn-
inni, í útileikjum og fótbolta – í
að verða stjúpsystkini þegar
foreldrar okkar tóku saman,
giftu sig og eignuðust svo
Atli Örn
Snorrason
✝ Atli ÖrnSnorrason
fæddist 15. nóv-
ember 1985. Hann
lést 6. júlí 2019. Atli
Örn var jarðsung-
inn 20. júlí 2019.
Sturlu. Að alast
upp saman í skól-
anum, tónlistar-
skólanum og
íþróttum, vera
djammfélagar á
menntaskólaárun-
um, deila ýmsum
áhugamálum og
seinna í að styrkja
fjölskylduböndin í
afmælum og fjöl-
skylduboðum með
börnin okkar. Alltaf varst þú
svo skemmtilegur og spenn-
andi stóri bróðir en samt sem
áður alltaf jafn tillitssamur
þótt þú hafir fengið lítinn frið
fyrir okkur yngri stjúpsystr-
unum fyrstu árin. Það var líka
svo gaman að sjá hvað þið
bræðurnir og pabbi áttuð mikla
samleið í tónlistinni, sem var
eitt af helstu áhugamálum ykk-
ar allra.
Í minningunni ertu ennþá
svo skýr, sem íþrótta-Atli með
fótboltann límdan við fæturna,
seinna sem Atli rokk með síða
hárið í leðurjakka með gítarinn
þinn, og ennfremur sem þol-
inmóður og umburðarlyndur
pabbi með yndislegu fjölskyld-
unni þinni.
Þegar við hugsum til þín
munum við helst eftir þér sem
glaðlyndum, umburðarlyndum
og lífsglöðum, alltaf með bros á
vör og hláturinn þinn svo ljós-
lifandi – eiginlega þitt helsta
einkenni ásamt síða hárinu.
Veikindin tóku sinn toll af
þér og náðu fljótt yfirhöndinni,
en það situr svo eftir samtal
sem við áttum fyrir ári þar sem
þú talaðir um hvað það væri
skrítið að óháð því hvort þú
myndir sigra meinið myndirðu
mögulega aldrei aftur geta spil-
að fótbolta eða á gítarinn, þau
tvö áhugamál sem þú elskaðir
mest að sinna. Það högg vó svo
þungt og þetta var og er svo
erfitt að skilja.
Missirinn er mikill og við
söknum þín en vonum að þér
líði vel þar sem þú ert núna.
Takk fyrir samfylgdina, við
munum halda minningu þinni á
lofti.
Þínar stjúpsystur og litli
bróðir,
Adda, Hulda,
Kristey (Eyja)
og Sturla.
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”