Morgunblaðið - 26.07.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.07.2019, Qupperneq 22
30 ára Agnes er fædd í Reykjavík og uppalin í Grundarfirði. Þar býr hún nú. Agnes er í fæðingarorlofi sem stendur en er þroska- þjálfi á leikskólanum Sólvöllum. Agnes er menntaður þroskaþjálfi frá Háskóla Ís- lands frá árinu 2016. Börn: Sæbjörn Logi Tómasson, f. 2015, og óskírðir tvíburar sem hljóta nöfn í dag. Eiginmaður: Tómas Logi Hallgrímsson flutningabílstjóri, f. 1986 í Stykkishólmi. Þau eiga 5 ára brúðkaupsafmæli í dag. Foreldrar: Hjónin Kristbjörn Rafnsson sjómaður, f. 1959, og Guðrún Pálsdóttir húsmóðir, f. 1963, d. 2015. Þau bjuggu í Grundarfirði. Agnes Ýr Bergmannía Kristbjörnsdóttir Svæðisráði um málefni fatlaðra á Suðurlandi, og hefur setið í ráðgef- andi nefndum á vegum ráðuneytis og landlæknis. Helga sat í stjórn heil- brigðisnefndar Sjálfstæðisflokksins, var í miðstjórn flokksins og var vara- þingmaður í Suðurkjördæmi 2003- 2007. Helga hefur um árabil verið varamaður í vísindasiðanefnd og hún situr í stjórn Háskólafélags Suður- lands og hefur verið ritari frá stofn- un þess félags sem hefur það að markmiði að „auka búsetugæði og styrkja efnahag á Suðurlandi með uppbyggingu þekkingarsamfélags“. Um helstu áhugamál segir Helga að til að starfa í áratugi í heilbrigð- isþjónustu í einmenningshéraði, stöðugt með bakvaktasímann í vas- anum, þurfi mikinn áhuga á þeim viðfangsefnum sem sinna þarf. Eins og sjá má á ferlinum beinist áhugi Helgu að samfélagsmálum í víðum skilningi. Flestir dagar ársins hefjast á sundspretti og hún hefur mikið yndi af göngum og útiveru. Eitt af mörgu góðu sem Sigurgeir hefur fært henni er að hennar sögn áhugi á skógrækt, yndisstundir við þá iðju eru „magn- aðar“. „Samhent stækkandi fjöl- meðal annars gegnt formennsku í fé- lags- og barnaverndarnefnd, setið í atvinnumálanefnd, byggingarnefnd dvalar-og hjúkrunarheimilis, Hér- aðsnefnd V-Skaftafellssýslu og Al- mannavarnanefnd Mýrdalshrepps. Hún var í hreppsnefnd Mýrdals- hrepps á árunum 1994-2002, vara- oddviti fyrra kjörtímabilið og oddviti það síðara. Helga sat um árabil í stjórn Fjölbrautaskóla Suðurlands, H elga Þorbergsdóttir er fædd 26. júlí 1959 á Landspítalanum. Hún flaug vikugömul með Birni Pálssyni flugstjóra á Katalínuflugbáti til Ísa- fjarðar og síðan um Óshlíð heim til Bolungarvíkur. Ólst þar upp við opið haf, í faðmi vestfirskra fjalla og stór- fjölskyldu, þar til fjölskyldan flutti í Kópavog þegar Helga var á þrett- ánda ári. Bernskuárin fyrir vestan einkenndust af frjálsræði, athafna- semi og gleði. Bolungarvík var sjáv- arþorp með öflugt atvinnulíf sem byggði á útgerð og fiskvinnslu og börnin urðu snemma virkir þátttak- endur í samfélaginu. Það voru við- brigði að flytja úr vestfirsku sjávar- plássi í fjölmennið í Kópavogi en Helga undi sér þar vel og þroskafer- ill unglingsáranna var litaður af virkni og vináttu. Helga lauk prófi í hjúkrunar- fræðum frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1981 og fór í sérskipulagt nám í sömu fræðum í HÍ 1995. Hún lauk námi í heilsuhagfræði við endur- menntunardeild Háskóla Íslands 1991 og námi í starfstengdri heil- brigðis- og lífsiðfræði á meistarastigi við HÍ 2003-2007. Þá hefur hún sótt námskeið og námsstefnur tengd hjúkrun, stjórnun, opinberri stjórn- sýslu og siðfræði. Helga hefur kenn- araréttindi í skyndihjálp og EMT- Agráðu í sjúkraflutningum. Helga hóf starfsferil sinn sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu- deild Landakots. Síðan lá leiðin norður yfir heiðar og starfaði Helga þar á geðdeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Árið 1985 réðu Helga og Sigurgeir eiginmaður hennar sig til starfa á Heilsugæslustöðina í Vík í Mýrdal og hefur þar verið þeirra helsti starfs- og lífsvettvangur síðan. Auk þess að gegna starfi hjúkrunarstjóra í Vík er Helga sjúkraflutningamaður við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þá er hún ásamt Sigurgeiri skógar- bóndi í Helludal í Bláskógabyggð. Helga hefur í gegnum tíðina tekið virkan þátt í fjölbreyttum sam- félagsstörfum. Hún hefur setið í mörgum nefndum Mýrdalshrepps, skylda og samvera með fólkinu mínu er það besta sem ég veit,“ segir Helga. Fjölskylda Eiginmaður Helgu er sem segir Sigurgeir Már Jensson, læknir og skógarbóndi, f. 7. október 1953. Hann er sonur hjónanna Jens Jóns- sonar málarameistara, f. 29. sept- ember 1927, d. 10. júlí 2012, og Mar- grétar Óskarsdóttur matráðs, f. 26. maí 1933, d. 2. febrúar 2015. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Helgu eru 1) Harpa Elín Haraldsdóttir, f. 28. janúar 1980, með BA í mannfræði, MA í al- þjóðastjórnmálum, verkefnastjóri hjá Nisum Chile. Maki hennar er Pablo Carcamo verkfræðingur, son- ur þeirra er a) León Ingi f. 2015, þau eru búsett í Chile. Faðir Hörpu er Haraldur Ingi Haraldsson, f. 7. nóv- ember 1955, myndlistarmaður, bú- settur á Akureyri. 2) Þorbergur Atli Sigurgeirsson, f. 16. júlí 1983, líf- eindafræðingur að ljúka námi í klín- ískri bíómekaník. Kona hans er Svanlaug Árnadóttir, f. 21. apríl 1981, óperusöngkona á síðasta ári í læknanámi. Þau eru búsett í Dan- Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarstjóri, sjúkraflutningamaður og skógarbóndi – 60 ára Stórfjölskyldan Hjónin Helga Þorbergsdóttir og Sigurgeir Már Jensson ásamt afkomendum sínum. Dagarnir hefjast á sundspretti Útivist Helga á Hvannadalshnjúk. 22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS 60 ára Rósa er fædd í Vestmannaeyjum og hefur búið þar alla tíð. Rósa kláraði gagn- fræðanám og hefur síð- an starfað á leikskóla og í verslun. Hún starfar sem stuðningur inn í bekk í Grunnskóla Vestmannaeyja. Börn: Sæþór Orri, f. 1979, Silja Rós, f. 1987, Sara Dögg, f. 1990, og Sindri Freyr, f. 1994. Eiginmaður: Guðjón Hjörleifsson, fast- eignasali og fv. bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum, f. 1955 í Vestmannaeyjum. Foreldrar: Hjónin Guðjón Stefánsson húsasmíðameistari, f. 1936, og Erna Tóm- asdóttir, húsmóðir og ræstitæknir, f. 1937. Þau eru frá Vestmannaeyjum og búa þar. Rósa Elísabet Guðjónsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er rétti tíminn til að huga að eignum sem þú átt í félagi við aðra. Farðu þér hægt í peningamálum og einnig mál- efnum hjartans. 20. apríl - 20. maí  Naut Það yrði margt auðveldara ef þú leyfðir vinum og vandamönnum að hjálpa þér. Þú ert ekki að missa af lestinni þótt þú haldir það. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ættir að skella þér í leikfimi. Dagurinn í dag er líka hentugur fyrir fjár- festingar. Gefðu þér tíma til þess að hlaupa eftir óvæntum hugdettum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vandamál þín eru ekki mörg eins og er, svo reyndu að standast þá freistingu að ættleiða vandamál annarra. Þú hittir spennandi persónu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Draumar fylla kollinn. Líkaminn er eitthvað að kvarta, sinntu þér betur. Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt einhverjir brosi ekki við þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það kemur alltaf að skuldadögum í lokin svo þú skalt varast að reisa þér hurð- arás um öxl. Aukin menntun borgar sig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Réttu fram vinarhönd, en reyndu ekki að stjórna öðrum. Leystu frá skjóðunni og þá finnurðu hvað það breytir miklu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú getur hlakkað til langs tímabils gleðskapar og rómantíkur sem fram undan er. Hikaðu ekki við að leita ráða hjá sérfræðingum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Stundum getur reynst erfitt að taka ákvörðun þótt mikið magn upplýsinga liggi fyrir. Ekki reyna að fá einhvern sem er harðákveðinn til að skipta um skoðun. 22. des. - 19. janúar Steingeit Auðveldasta leiðin til að komast klakklaust gegnum daginn er að gera ekki svona miklar kröfur til annarra. Reyndu að tala við ástvini þína til að leysa deilumál í sátt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gagnrýni á að vera mild. Taktu svo ekki meira að þér en þú getur afgreitt með góðu móti á tilsettum tíma. Reyndu að sjá það góða í fólki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Lykilatriði er að þú gæðir samskipti við fólk húmor og sjarma svo þeir sem eru þér ekki sammála geti ekki móðgast. 30 ára Ingibjörg varð þrítug í gær. Hún er fædd og uppalin í Selja- hverfinu í Reykjavík en býr á Háaleitisbraut núna. Ingibjörg útskrif- aðist úr Verzlunarskóla Íslands 2009 og er tannlæknir frá Háskóla Íslands frá 2017. Ingibjörg er í fæðingarorlofi sem stendur en er annars tannlæknir í Mjóddinni. Maki: Ingibjörg er trúlofuð Gunnari Mar- teinssyni tölvunarfræðingi, f. 1983. Hann er úr Reykjavík. Börn: Tinni Brynjar, f. 2016, og Rökkvi Sveinn, f. 2019. Sonur Gunnars er Mar- teinn Daði, f. 2009. Foreldrar: Hjónin Sveinn Ásgeirsson tannlæknir, f. 1964 í Norðfirði, og Hólm- fríður Brynjólfsdóttir tannlæknir, f. 1964 í Reykjavík. Þau búa í Reykjavík. Vegna mistaka var höfð mynd af alnöfnu Ingi- bjargar í stað myndar af henni sjálfri, þegar sagt var frá afmæli hennar í blaðinu í gær. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þeim mis- tökum og óskar henni enn og aftur til hamingju með daginn. Ingibjörg Lára Sveinsdóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.