Morgunblaðið - 26.07.2019, Side 24

Morgunblaðið - 26.07.2019, Side 24
EVRÓPUDEILD Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Stjarnan er nánast úr leik í Evrópu- deildinni í fótbolta eftir 0:4-tap fyrir Espanyol í fyrri leik liðanna í undan- keppninni í Barcelona í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var markalaus eftir fullkomna varnarframmistöðu Stjörnumanna. Liðsmenn Espanyol sköpuðu sér varla færi allan hálfleik- inn og miðverðir Stjörnunnar stóðu sig óaðfinnanlega. Stjarnan lokaði öllum svæðum og gerði góðu liði Espanyol erfitt fyrir. Heimamenn tóku þá upp á því að reyna hverja fyrirgjöfina á fætur annarri, sem varnarlína Stjörnunnar átti ekki í neinum vandræðum með að ráða við. Miðverðirnir með hausverk Í seinni hálfleik var allt annað upp á teningnum og um leið og Facundo Ferreyra skallaði boltann í netið af stuttu færi á 48. mínútu var ljóst í hvað stefndi. Hann var aftur á ferð- inni á 56. mínútu og níu mínútum síðar var félagi hans í sókninni, Borja Iglesias, búinn að skora tvö mörk og gera út um möguleika Stjörnunnar. Gæði leikmanna Esp- anyol voru einfaldlega of mikil. Liðið endaði í sjöunda sæti í spænsku 1. deildinni á síðustu leiktíð og vann lið á borð við Atlético Madríd 3:0 á sama velli. Um mjög gott lið er að ræða og Stjörnumenn mættu ofjör- lum sínum. Það er búið að vera mikið álag á leikmönnum Stjörnunnar og þeir virtust mjög þreyttir eftir fyrri hálfleikinn, þar sem liðið hljóp gríð- arlega mikið. Brynjar Gauti Guðjónsson og Martin Rauschenberg voru sér- staklega sterkir í fyrri hálfleik og kæmi ekki á óvart að þeir yrðu með hausverk í tvo daga eftir öll skalla- einvígin sem þeir unnu. Haraldur Björnsson var vel á verði í markinu og Alex Þór Hauksson og Eyjólfur Héðinsson voru fínir á miðjunni. Hilmar Árni Halldórsson og Þor- steinn Már Ragnarsson áttu sín augnablik en Stjarnan ógnaði lítið í sóknarleik sínum. Heilt yfir var frammistaða Stjörnunnar þokkaleg, en andstæðingurinn var einfaldlega nokkuð mörgum númerum of sterk- ur. Þetta fer í reynslubankann hjá leikmönnum Stjörnunnar, sem nutu þess að spila á glæsilegum velli, við mjög gott lið og við bestu aðstæður. Svona tækifæri koma ekki oft hjá leikmönnum sem spila á Íslandi. Má ekki klikka í eina sekúndu „Þetta var alveg geggjað. Það kom mér á óvart hvað voru mikil læti í stuðningsmönnum. Það er erf- itt að lýsa þessu og það er ekki hægt að biðja um það betra,“ sagði Jóhann Laxdal, leikmaður Stjörnunnar, í samtali við Morgunblaðið eftir leik. „Það gekk vel að halda þeim niðri í fyrri hálfleik og þess vegna var það fúlt hvað þeir skoruðu snemma í seinni hálfleik. Það er hinsvegar ekkert djók að mæta þessu liði. Það má ekki klikka í eina sekúndu, því þeir nýta sér það,“ bætti hann við. Síðari leikur liðanna fer fram á Samsung-vellinum í Garðabæ næst- komandi fimmtudag. Stjarnan fer hinsvegar fyrst í Kórinn og mætir þar HK í Pepsi Max-deildinni á mánudag og verður áhugavert að sjá hvernig leikmönnum Stjörnunnar tekst að gíra sig upp í það verkefni. Níu mínútna Stjörnuhrap í Barcelona  Stjarnan í erfiðri stöðu eftir 0:4-tap í Barcelona  Öll mörkin í seinni hálfleik Morgunblaðið/Árni Sæberg Erfitt Stjörnumenn þurftu að verjast mestallan tímann í Barcelona í gær- kvöld en þeir fá Espanyol í heimsókn í Garðabæinn næsta fimmtudagskvöld. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 Inkasso-deild karla Njarðvík – Leiknir R ............................... 0:2 Sævar Atli Magnússon 15. (víti), 87. Afturelding – Keflavík............................ 1:0 Hafliði Sigurðarson 81. Víkingur Ó. – Þróttur R.......................... 0:0 Haukar – Fram ........................................ 2:1 Sjálfsmark 31., Birgir Magnús Birgisson 60. – Sjálfsmark 27. Staðan: Fjölnir 13 9 2 2 29:12 29 Þór 13 8 2 3 23:13 26 Grótta 13 7 4 2 27:18 25 Leiknir R. 14 8 0 6 25:21 24 Víkingur Ó. 14 6 4 4 15:11 22 Fram 14 6 2 6 20:22 20 Keflavík 14 5 4 5 18:17 19 Þróttur R. 14 5 3 6 27:19 18 Haukar 14 3 5 6 19:26 14 Afturelding 14 4 1 9 17:29 13 Njarðvík 14 3 1 10 15:27 10 Magni 13 2 4 7 14:34 10 Markahæstir: Pétur Theódór Árnason, Gróttu .............. 10 Helgi Guðjónsson, Fram ............................ 9 Rafael Victor, Þrótti R................................ 8 Álvaro Montejo, Þór.................................... 7 Sævar Atli Magnússon, Leikni R .............. 7 2. deild karla Leiknir F. – ÍR.......................................... 3:1 Izaro Abella 16., 83., sjálfsmark 65. – Ágúst Freyr Hallsson 17. KFG – Víðir .............................................. 3:1 Pétur Árni Hauksson 54., Kristófer Kon- ráðsson 60., Tristan Freyr Ingólfsson 69. – Atli Freyr Ottesen 51. Staðan: Leiknir F. 13 7 4 2 25:14 25 Selfoss 12 7 2 3 29:13 23 Vestri 12 7 0 5 15:17 21 Víðir 13 6 1 6 20:18 19 Þróttur V. 12 5 4 3 18:17 19 Dalvík/Reynir 12 4 6 2 16:14 18 ÍR 13 5 3 5 19:18 18 Fjarðabyggð 12 5 2 5 19:17 17 Völsungur 12 5 2 5 13:16 17 KFG 13 5 0 8 23:28 15 Kári 12 3 2 7 23:29 11 Tindastóll 12 1 2 9 10:29 5 Evrópudeild UEFA 2. umferð, fyrri leikir: Lechia Gdansk – Bröndby ...................... 2:1  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Bröndby. Norrköping – Liepaja ............................. 2:0  Guðmundur Þórarinsson lék allan leik- inn með Norrköping en Alfons Sampsted var ekki í hópnum. AEK Larnaca – Levski Sofia.................. 3:0  Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Levski er frá keppni vegna meiðsla. Domzale – Malmö .................................... 2:2  Arnór Ingvi Traustason hjá Malmö er frá keppni vegna meiðsla. AZ Alkmaar – Häcken ............................ 0:0  Albert Guðmundsson lék fyrstu 58 mín- úturnar með AZ. Pyunik Jerevan – Jablonec...................... 2:1 Ventspils – Gzira United ......................... 4:0 Qabala – Dinamo Tbilisi........................... 0:2 Partizani Tirana – Sheriff........................ 0:1 Utrecht – Zrinjski Mostar....................... 1:1 Chikhura – Aberdeen............................... 1:1 Honvéd Búdapest – Uni.Craiova ............ 0:0 Alashkert – FCSB Búkarest................... 0:3 Arsenal Tula – Neftchi Bakú................... 0:1 Haugesund – Sturm Graz........................ 2:0 Flora Tallinn – Eintracht Frankfurt...... 1:2 Mlada Boleslav – Ordabasy..................... 1:1 Molde – Cucaricki Belgrad...................... 0:0 Shakhtyor Soligorsk – Esbjerg .............. 2:0 Yeni Malatyaspor – Olimpija Ljubljana. 2:2 Connah’s Quay – Partizan Belgrad ........ 0:1 Hapoel Beer Sheva – Kairat Almaty...... 2:0 Lokomotiv Plodiv – Spartak Trnava ...... 2:0 CSKA Sofia – Osijek ................................ 1:0 Féhervár – Vaduz..................................... 1:0 Piast Gliwice – Riga ................................. 3:2 Luzern – KÍ Klaksvík .............................. 1:0 Jeunesse Esch – Guimaraes.................... 0:1 Aris Thessaloniki – AEL Limassol ........ 0:0 Dunajska Streda – Atromitos ................. 1:2 Gent – Viitorul Constanta........................ 6:3 Buducnost Podgorica – Zorya Luhansk 1:3 Rangers – Progrés Niederkorn .............. 2:0 Strasbourg – Maccabi Haifa ................... 3:1 Wolves – Crusaders ................................. 2:0 Legia Varsjá – KuPS Kuopio .................. 1:0 Shamrock Rovers – Apollon Limassol ... 2:1 Torino – Debrecen.................................... 3:0 Espanyol – Stjarnan ................................ 4:0 Valur – Ludogorets .................................. 1:1 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA 1. deild karla, Inkasso-deildin: Vivaldi-völlur: Grótta – Þór...................... 18 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Sauðárkr.: Tindastóll – Haukar .......... 19.15 2. deild kvenna: Húsavík: Völsungur – Hamrarnir....... 19.15 GOLF Origo-Íslandsmót golfklúbba hefst í dag þar sem keppt er í 1. deild karla á Urr- iðavelli hjá GO og í 1. deild kvenna á Leir- dalsvelli hjá GKG. Í KVÖLD! 1:0 Facundo Ferreyra 49. 2:0 Facundo Ferreyra 56. 3:0 Borja Iglesias 59. 4:0 Borja Iglesias 68. I Gul spjöldEngin. Espanyol: (4-4-2) Mark: Diego Ló- pez. Vörn: Javi López, Lluís López, Naldo, Adriá Pedrosa (Dídac Vilá 73). Miðja: Óscar Melendo, Víctor Sánc- hez (Marc Roca 53), Sergi Darder, Esteban Granero (Wu Lei 53). Sókn: ESPANYOL – STJARNAN 4:0 Borja Iglesias, Facundo Ferreyra. Stjarnan: (5-4-1) Mark: Haraldur Björnsson. Vörn: Jóhann Laxdal, Brynjar Gauti Guðjónsson, Daníel Laxdal (Þorri Geir Rúnarsson 63), Martin Rauschenberg, Heiðar Æg- isson. Miðja: Þorsteinn Már Ragn- arsson, Alex Þór Hauksson (Sölvi Snær Guðbjargarson 81), Eyjólfur Héðinsson, Hilmar Árni Halldórsson. Sókn: Guðmundur Steinn Haf- steinsson (Guðjón Baldvinsson 46). Dómari: Alain Durieux, Lúxemborg. Áhorfendur: 19.122. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Afturelding náði sér í gærkvöld í dýrmæt stig í fallbaráttunni í 1. deild karla í knattspyrnu þegar liðið fékk Keflvíkinga í heimsókn á Varm- árvöll í Mosfellsbæ. Hafliði Sigurðarson skoraði sigur- mark Aftureldingar, 1:0, tíu mín- útum fyrir leikslok og nýliðarnir komust þar með úr fallsæti deild- arinnar en þetta var þeirra fyrsti sigur í sex leikjum. Afturelding er nú með 13 stig í 10. sæti deild- arinnar, þremur stigum fyrir ofan Njarðvík og Magna. Keflavík er áfram í 7. sæti með 19 stig og lítið hefur gengið hjá liðinu að undan- förnu en Keflvíkingar hafa aðeins unnið einn af síðustu sjö leikjum sín- um. Haukar komust líka fjær fallsæti með því að sigra Framara 2:1 á Ás- völlum. Langþráður sigur Hauk- anna en hann var sá fyrsti í fimm leikjum. Liðin skoruðu hvort sitt sjálfsmarkið á fyrsta hálftímanum en Birgir Magnús Birgisson skoraði sigurmark Hauka á 60. mínútu leiks- ins. Haukar eru þá komnir með 14 stig í 9. sætinu en Framarar töpuðu í fjórða sinn í síðustu fimm umferð- unum og eru áfram með 20 stig í sjötta sætinu. Þeir eru búnir að stimpla sig út úr toppbaráttunni, allavega í bili, eftir að hafa verið komnir í góða stöðu. Sævar skoraði tvö í Njarðvík Leiknir úr Reykjavík er kominn í baráttuna um úrvalsdeildarsæti eftir 2:0 sigur gegn Njarðvík á útivelli. Sævar Atli Magnússon skoraði úr vítaspyrnu á 15. mínútu og innsiglaði sigurinn með öðru marki rétt fyrir leikslok. Leiknismenn eru nú komnir í fjórða sætið eftir þrjá sigurleiki í röð með 24 stig, tveimur stigum á eftir Þór sem er í öðru sæti, en Njarðvík tapaði þriðja leik sínum í röð og er með 10 stig í ellefta og næstneðsta sæti. Í Ólafsvík gerðu Víkingar 0:0 jafn- tefli við Þrótt úr Reykjavík. Vík- ingar gerðu sitt annað jafntefli í röð og sigu þar með niður í 5. sæti með 22 stig en Þróttarar eru með 18 stig og áfram í 8. sætinu.  Í kvöld er sannkallaður stór- leikur í deildinni þegar nýliðar Gróttu taka á móti Þór á Seltjarn- arnesi klukkan 18. Liðin eru í öðru og þriðja sæti og Þórsarar stigi ofar. Grótta hefur komið gríðarlega á óvart og ekki tapað í síðustu níu leikjum sínum í deildinni. Dýrmæt stig í Mosfellsbæ  Afturelding úr fallsæti og Leiknir kominn í toppbaráttu 1. deildar Morgunblaðið/Hari Ásvellir Sean De Silva, Trínidadinn í liði Hauka, svífur framhjá liggjandi leikmönnum Fram í viðureign liðanna þar sem Haukar náðu sigri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.