Morgunblaðið - 26.07.2019, Page 25
Á HLÍÐARENDA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslandsmeistarar karla í knatt-
spyrnu í Val geta enn gert sér vonir
um að komast í 3. umferð Evrópu-
deildarinnar eftir 1:1 jafntefli gegn
Ludogorets frá Búlgaríu á Hlíðar-
enda í gærkvöldi. Þótt gestirnir hafi
verið meira með boltann, og átt mun
fleiri sóknarlotur, þá voru það samt
sem áður Valsmenn sem voru yfir í
80 mínútur í leiknum.
Vegna framgöngu sinnar á undan-
förnum árum þótti Ludogorets
miklu líklegra til að komast áfram
en Íslandsmeistararnir. Frá árinu
2013 hefur Ludogorets tvívegis ver-
ið í riðlakeppni Meistaradeild-
arinnar og þrívegis í riðlakeppni
Evrópudeildarinnar. Ókunnar slóðir
fyrir íslensk knattspyrnulið.
Hugarfarið var líklega ekki gott í
herbúðum Lodogorets fyrir þessa
viðureign. Þjálfari liðsins sagði í
samtali við mbl.is daginn fyrir leik
að slæmt væri fyrir liðið að spila á
vellinum á Hlíðarenda þar sem ekki
væri um grasvöll að ræða. Einhvern
veginn fékk maður á tilfinninguna að
gestirnir væru ekki endilega rétt
stilltir og væri það þá ekki í fyrsta
skipti sem erlend knattspyrnulið
vanmeta þau íslensku.
Þegar þannig ber undir eiga ís-
lensku liðin að nýta sér það og það
gerðu Valsmenn þegar þeir náðu
forystunni strax á 11. mínútu. Jöfn-
unarmark Anicet Abel kom hins
vegar ekki fyrr en í uppbótartíma.
Valsmenn voru skynsamir í sinni
nálgun og varkárir. Ludogorets var
mun meira með boltann og sótti tals-
vert án þess þó að splundra Vals-
vörninni. Þeir fengu þó talsvert af
sæmilegum marktækifærum. Þrír af
reyndustu mönnum Vals voru fyrir
utan byrjunarliðið að þessu sinni.
Hannes Þór Halldórsson var tæpur
vegna meiðsla og ekki í hópnum. Þá
voru þeir Bjarni Ólafur Eiríksson og
fyrirliðinn Haukur Páll Sigurðsson á
bekknum en Bjarni lék síðustu tutt-
ugu mínúturnar. Kom þetta ekki að
sök hjá Val og þeir luma á fleiri öfl-
ugum leikmönnnum fyrir seinni leik-
inn sem Ludogorets sá lítið til að
þessu sinni. Kristinn Freyr Sigurðs-
son og Sigurður Egill Lárusson voru
til að mynda einnig á bekknum.
Anton Ari Einarsson komst mjög
vel frá leiknum í markinu en hann
tjáði Morgunblaðinu að hann hefði
fengið að vita þegar hann mætti í
leik að hann ætti að spila. Miðvörð-
urinn Sebastian Hedlund kom nokk-
uð vel út á miðjunni en það útspil var
nokkuð áhugavert hjá Val. Ljóst er
að Valsmenn þurfa að eiga sinn
besta dag ytra til að komast áfram
en möguleikinn er alla vega fyrir
hendi.
Valur var yfir í 80 mínútur
Lið úr riðlakeppnum Meistaradeildar og Evrópudeildar slapp með 1:1 jafntefli
á Hlíðarenda Jöfnunarmark Ludogorets kom ekki fyrr en í uppbótartíma
Morgunblaðið/Hari
Hlíðarendi Anton Nedyalkov og Kristinn Ingi Halldórsson með augun á boltanum í leik Vals og Ludogorets.
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019
Þegar þessi bakvörður er
lesinn er höfundur hans kominn
norður til Ólafsfjarðar og andar
þar að sér norðlenska sjávarloft-
inu sem fátt jafnast á við.
Við sundlaugina á Ólafs-
firði eru uppi stór skilti með
blaðaúrklippum og frásögnum
frá gullaldarskeiði Leifturs í
knattspyrnu frá því seint á síð-
ustu öld. Það er alltaf gaman að
renna yfir afrekin hjá félaginu og
vel hægt að ímynda sér hvað
þetta gerði mikið fyrir bæj-
arfélagið.
Ég hef einmitt haft mjög
gaman af því í gegnum tíðina að
skoða fótboltavelli á minni stöð-
um á landinu. Þar eru vallar-
stæðin oft ansi lagleg með tign-
arlegri fjallasýn allt í kring.
Ólafsfjarðarvöllur er einmitt einn
af þeim.
Það er líka gaman að sjá þá
uppbyggingu sem víða er í gangi
í minni bæjum. Ber nú hæst nýj-
an gervigrasvöll á Dalvík sem
tekinn verður í notkun um
helgina. Hann uppfyllir ströng-
ustu kröfur, er upphitaður með
vökvunarbúnaði og verður upp-
lýstur. Þá er sérstaklega gaman
að því að yngri flokkar félagsins
fá heiðurinn af því að spila fyrstu
leikina á nýja vellinum á morgun.
Það er vonandi að fleiri bæj-
arfélög geti ráðist í svipaðar
framkvæmdir á næstu árum. Ég
er spenntur að heyra hvernig
reynsla Dalvíkinga verður af nýja
vellinum. Þar gæti næsti Atli Við-
ar Björnsson farið að stíga sín
fyrstu skref í átt að Íslands-
meistaratitlum.
Það má samt heldur ekki
gleyma að gera gömlu völlunum
hátt undir höfði. Það væri til
dæmis gaman að sjá Dúddavöll á
Kópaskeri aftur í blóma. Þar var
gaman að stoppa sem gutti og
æfa aukaspyrnurnar.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Inkasso-deild kvenna
FH – ÍA...................................................... 3:1
Birta Georgsdóttir 34., Helena Ósk Hálf-
dánardóttir 62., Selma Dögg Björgvins-
dóttir 70. – Bryndís Rún Þórólfsdóttir 55.
Grindavík – Augnablik ........................... 1:1
Helga Guðrún Kristinsdóttir 53. – Berg-
þóra Sól Ásmundsdóttir 72.
Staðan:
FH 10 8 1 1 27:11 25
Þróttur R. 10 8 0 2 38:9 24
Tindastóll 9 6 0 3 27:19 18
Afturelding 10 5 1 4 13:13 16
Augnablik 10 4 1 5 9:11 13
Haukar 9 4 0 5 13:9 12
Grindavík 10 3 3 4 14:17 12
ÍA 10 3 2 5 10:12 11
Fjölnir 10 3 2 5 15:21 11
ÍR 10 0 0 10 3:47 0
3. deild karla
Kórdrengir – Vængir Júpíters................ 4:2
Skallagrímur – Augnablik ....................... 1:2
Staðan:
Kórdrengir 14 11 2 1 39:17 35
KF 13 9 2 2 31:14 29
Vængir Júpiters 14 9 1 4 28:20 28
KV 13 8 2 3 26:17 26
Reynir S. 13 5 5 3 23:22 20
Einherji 13 5 4 4 19:15 19
Álftanes 13 4 3 6 22:22 15
Sindri 13 4 3 6 28:31 15
Augnablik 14 3 4 7 18:26 13
Höttur/Huginn 13 2 5 6 17:22 11
KH 13 2 1 10 16:37 7
Skallagrímur 14 2 0 12 15:39 6
Bandaríkin
Portland Thorns – Houston Dash.......... 5:0
Dagný Brynjarsdóttir var varamaður
hjá Portland og kom ekki við sögu.
Staðan: Portland Thorns 26, North Car-
olina Courage 22, Washington Spirit 21,
Chicago Red Stars 20, Reign 20, Utah Ro-
yals 18, Houston Dash 16, Orlando Pride
11, Sky Blue 8.
1:0 Lasse Petry 11.
1:1 Anicet Abel 90.
I Gul spjöldEiður Aron, Orri, Pedersen og
Ívar (Val), Cicinho, Abel og Terziev
(Ludogorets)
Valur: (4-3-3) Mark: Anton Ari Ein-
arsson. Vörn: Birkir Már Sævarsson,
Orri Sigurður Ómarsson, Eiður Aron
Sigurbjörnsson, Ívar Örn Jónsson.
Miðja: Sebastian Hedlund, Einar Karl
VALUR – LUDOGORETS 1:1
Ingvarsson (Kristinn Freyr Sigurðs-
son 66), Lasse Petry. Sókn: Kristinn
Ingi Halldórsson (Bjarni Ólafur Ei-
ríksson 71), Patrick Pedersen (Birnir
Snær Ingason 87), Kaj Leo i Bartals-
stovu.
Ludogorets: (4-3-3) Mark: Iliev.
Vörn: Cicinho (Lukoki 88), Terziev,
Forster, Nedyalkov. Miðja: Badji
(Swierczok 70), Góralski, Abel.
Sókn: Intima, Keserü, Tchibota
(Wanderson 61).
Dómari: Georgios Kominis, Grikk-
landi. Áhorfendur: 802.
„Ég neitaði fyrst.
Ég hafði ekki
áhuga á að vera
einn af þeim leik-
mönnum sem
hætta við að
hætta. Mér hefur
þótt það frekar
hallærislegt í
gegnum tíðina
þegar menn eru
að því. Áður en ég
vissi var ég orðinn týpan sem ég var
búinn að gera grín að allan minn fer-
il. Það er erfitt að kyngja því og ég
er lítill í mér fyrir blaðamannafund
sem ég þarf að fara á,“ sagði Hlynur
Bæringsson, landsliðsfyrirliði í
körfuknattleik til margra ára, um þá
ákvörðun sína að gefa kost á sér í
landsliðið á ný fyrir forkeppni EM í
næsta mánuði.
„Þeir töluðu við mig nokkrir í röð;
Haukur, Baldur Ragnars, Finnur og
svo Craig. Ég hélt fyrst þeir væru að
djóka, en svo endaði ég á að segja já.
Stór hluti af þessu var að það vantar
Kristófer, Sigga og svo Hauk líka,“
sagði Hlynur, en Kristófer Acox,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson og
Haukur Helgi Pálsson eru ekki með
í verkefninu. Viðtalið í heild er að
finna á mbl.is/sport/korfubolti.
johanningi@mbl.is
Hallærislegt
að hætta
við að hætta
Hlynur
Bæringsson
FH-ingar komust á ný á topp 1.
deildar kvenna í knattspyrnu í gær-
kvöld með því að sigra ÍA 3:1 á
heimavelli sínum í Kaplakrika.
Birta Georgsdóttir kom FH yfir
og staðan var 1:0 í hálfleik. Bryndís
Rún Þórólfsdóttir jafnaði fyrir ÍA
en FH svaraði með mörkum frá
Helenu Ósk Hálfdánardóttur og
Selmu Dögg Björgvinsdóttur og
tryggði sér sigurinn.
ÍA tapaði fjórða leiknum í röð og
er komið í mikla fallhættu eftir
ágæta byrjun í deildinni í vor.
Grindavík og Augnablik skildu
jöfn, 1:1. Helga Guðrún Krist-
insdóttir kom Grindavík yfir
snemma í seinni hálfleik en Berg-
þóra Sól Ásmundsdóttir jafnaði fyr-
ir Augnablik. Bæði lið eru rétt fyrir
ofan fallsæti deildarinnar.
Skoraði Helena Ósk Hálfdánardóttir með boltann í leiknum við ÍA en hún skoraði eitt af mörkum FH í leiknum.
FH-konur endurheimtu toppsætið
Morgunblaðið/Hari