Morgunblaðið - 26.07.2019, Side 32

Morgunblaðið - 26.07.2019, Side 32
Hljómsveitin Geirfuglarnir spilar á hlöðuballi í Havarí á Karlsstöðum í kvöld, föstudagskvöld, kl. 21. Jafn- framt er um útgáfutónleika að ræða því von er á nýrri hljómplötu frá Geirfuglunum sem ber nafnið Snú- snú í gröfinni. Sveitina skipa Andri Geir Árnason á trommur, Freyr Eyj- ólfsson á mandólín, Halldór Gylfa- son söngvari, Ragnar Helgi Ólafsson á gítar, Stefán Már Magnússon á banjó, Þorkell Heiðarsson á harm- onikku og Hermann Vernharður Jósefsson á bassa. Geirfuglarnir í Havarí Sumartónleikaröðinni í Akureyrar- kirkju lýkur með tónleikum Skál- holtstríós á sunnudag kl. 17. Tríóið skipa Jón Bjarnason á orgel og trompetleikararnir Vilhjálmur Ingi Sigurðarson og Jóhann Stefánsson. Skálholtstríóið, eins og nafnið gef- ur til kynna, tengist Skálholti en þar hafa þeir félagar spilað mikið saman síðustu ár við ýmsar kirkju- athafnir. Á efnis- skránni eru verk eftir m.a. Bach, Vivaldi, Eugene Bozza, Sigfús Einarsson og Rodriguez Solana. Að- gangur er ókeyp- is. Skálholtstríó á Akureyri á sunnudag Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Fósturheimili á vegum Villikatta eru um það bil fjörutíu og 150 kisur sem hafa verið á vergangi bíða nú eftir framtíðarheimili. Nú eru sér- staklega margir villikettlingar í umsjá Villikatta að sögn Arndísar Bjargar Sigurgeirsdóttur, formanns og eins stofnenda Villikatta. Hún hefur sjálf boðið heimili sitt fram sem fósturheimili sex villikatta, þar af fjögurra kettlinga. „Þessir kettlingar eru úr Hafnar- firði og það var eldri kona sem lét vita af þeim. Hún hafði séð ketti á vergangi og hafði verið að gefa þeim í vetur en svo skyndilega sá hún þessa kettlinga, og lét vita,“ sagði Arndís. Kettlingarnir sem búa hjá Arndísi eru um 10 til 11 vikna gamlir en læðan Grása er 4 til 5 ára. Bjargað úr brunanum Grása lifði af bruna sem varð í Mosfellsbæ fyrir rúmu ári og tók Arndís hana að sér í framhaldi af því. Sambúð Grásu með kettling- unum er nokkuð erfið og er því Grása að flytja á annað fósturheimili á næstu dögum: „Hún er algjör kelirófa við aðrar kisur en hún nennir ekki að sinna kettlingum. Svo þegar hún er farin þá verða þeir alveg lausir við hana,“ sagði Arndís um sambúðina. Rót villikattavandans er mann- fólkið, að sögn Arndísar Bjargar Sigurgeirsdóttur. Eigendur séu ekki nægilega duglegir að gelda kettina sína. „Þegar fólk geldir kettina sína ekki og missir þá á einhvern hátt þá verða til svona litlir villingar. Og ef við náum þeim ekki inn þá heldur kettlingaframleiðslan áfram,“ segir hún og heldur áfram: „Það þarf að stöðva þetta en á mannúðlegan hátt. Hingað til hefur aðferðin verið sú sama og í gamla daga. Þá voru kettlingar og kettir skotnir á færi og því miður er það þannig enn þá á sumum stöðum á landsbyggðinni,“ sagði Arndís. Félagsmenn Villikatta tóku að sér 11 kettlinga af svæðinu og móður þeirra. Félagið er í leit að húsnæði til að koma til móts við annríkið. Í því samhengi eru kettlingar ávallt í forgangi: „Þetta er allt sjálfboðavinna og núna vantar okkur húsnæði, til þess að geta verið með allt á einum stað. Hins vegar verða alltaf fósturheimili því það þarf að annast þessa kett- linga. Þeir geta ekki verið í ein- hverju athvarfi. Það þarf að vera einhver eins og ég sem tekur þá upp og knúsar þá þótt þeir hvæsi á mig,“ segir hún. Annríkið getur aukist á sumrin og segir Arndís að kettir séu gjarnan skildir eftir eða látnir út úr húsi þeg- ar farið er í frí. „Fólk fer í frí og ákveður að kisa reddi sér bara sjálf. Það setur hana bara út og ef kisan er gæf þá leitar hún aðstoðar hjá einhverjum og fær mat en ef þetta er feimin kisa og húsbóndaholl, þá fer hún á vergang. Og ef hún er ógeld þá byrjar ballið,“ sagði Arndís. Arndís segir að villikettir verði alltaf til, jafnvel þótt skylt sé að gelda alla, því alltaf séu einhverjir sem gelda ekki sínar kisur. Villikettir um allt land í leit að framtíðarheimili  Um 75 til 80 litlir kettlingar á fósturheimilum Villikatta Morgunblaði/Arnþór Birkisson Blíða Hún er 10-11 vikna og ein af kettlingunum sem fundust í Hafnarfirði nýlega. Ljúf, góð og sallaróleg þegar inn fyrir peysuna var komið. Grása Henni var bjargað úr eldsvoða í Mosfellsbæ fyrir ári. Hún er 4-5 ára og besta skinn. Kettlingar eru þó ekki hennar uppáhaldsfélagsskapur. FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 207. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Valsmenn voru örskammt frá því að sigra búlgörsku meistarana Ludo- gorets í fyrri leik liðanna í undan- keppni Evópudeildarinnar í fótbolta á Hlíðarenda í gærkvöld. Þeir kom- ust yfir snemma leiks en Búlg- ararnir náðu að jafna metin í upp- bótartíma leiksins. Stjarnan tapaði 4:0 fyrir Espanyol í fyrri leik lið- anna í Barcelona. »24-25 Valsmenn örskammt frá sigri á Ludogorets ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.