Morgunblaðið - 31.07.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 31.07.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Rösle þeytari Verð 3.490 kr. Baldvin Tryggvason, fyrrverandi sparisjóðs- stjóri SPRON, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ að kvöldi 29. júlí. Hann var fæddur 12. febrúar 1926 í Ólafsfirði, sonur Rósu Friðfinnsdóttur og Tryggva Marteins- sonar. Baldvin lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1948 og lög- fræðiprófi frá HÍ 1953. Hann vann ýmis lög- fræðistörf fyrir Sam- einaða verktaka 1954-1956. Frá 1956 til 1960 var hann framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Hann var forstjóri Al- menna bókafélagsins 1960-1976 þeg- ar hann var ráðinn sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Þeim starfa gegndi hann til 1996. Baldvin var áhuga- samur um stjórnmál og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var formaður Garðars í Ólafsfirði 1942-1948, í stjórn SUS 1949-1951 og 1957-1959, í stjórn Heimdallar 1956-1957 og formaður 1958- 1959. Hann var formaður skipulags- nefndar Sjálfstæðisflokksins 1970- 1977 og í miðstjórn flokksins á sama tíma. Hann var varaborgarfulltrúi flokksins í Reykjavík 1962-1966 og 1970-1974. Gegndi hann þá ýmsum störfum fyrir borgarstjórn, s.s. for- maður æskulýðsráðs 1962-1966, sat í fræðsluráði 1970-1974, og var for- maður í eitt ár. Þá sinnti hann fleiri opinberum trúnaðarstörfum, sat í menntamálaráði 1958-1978 og í stjórn LÍN 1961-1963. Hann sat í leikhúsráði LR frá 1963 til 1994 og var um skeið formaður fram- kvæmdanefndar Listahátíðar Reykjavíkur. Þá sat hann í orðu- nefnd 1988-1996. Hann hlaut ýmsar viðurkenningar, m.a. stórriddara- kross Fálkaorðunnar 1990 og var kjörinn heiðursfélagi LR 1993. Fyrri kona Baldvins, Júlía Sveinbjarnar- dóttir kennari, f. 1931, lést 1984. Börn þeirra eru Sveinbjörn Ingvar rithöfundur og Tryggvi Marteinn tónskáld. Eftirlifandi kona Baldvins er Halldóra J. Rafnar, f. 1947. Andlát Baldvin Tryggvason BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrstu atvinnurýmin í nýjum íbúða- turni á Höfðatorgi í Reykjavík hafa verið leigð út. Fyrstu íbúðirnar í byggingunni voru afhentar vikuna eftir að flugfélagið WOW air varð gjaldþrota í vor og skapaðist í kjölfarið umræða um offramboð af nýjum atvinnurýmum í miðborg Reykjavíkur. Út- leigan á Höfða- torgi bendir hins vegar til að þrátt fyrir bakslag sjái atvinnurekendur tækifæri í mið- borginni. Atvinnurýmin eru í eigu ÍÞÖKU fasteignafélags. Ólafur Ingi Ólafs- son, þjón- ustustjóri félagsins, segir rýmin tvö hafa verið leigð undir hárgreiðslu- stofu annars vegar og hönnunar- og arkitektastofu hins vegar. Áformað sé að taka þau í notkun í haust. Með því séu 540 fermetrar eftir af góðu húsnæði á jarðhæðinni. Spurður um eftirspurnina segist Ólafur Ingi telja að menn hafi viljað bíða og sjá. Nú sé mat margra að niðursveiflan verði skammvinn. Leggja ekki árar í bát „Ég held að menn horfi til þess að þetta er niðursveifla en ekki hrun. Menn verða að horfa til þess að lífið heldur áfram,“ segir Ólafur Ingi. Spurður um þróun leiguverðs við þessar aðstæður á markaði segir Ólafur Ingi það mjög misjafnt. „Leiguverð og leiguverð er ekki það sama. Það er enda ekki hægt að bera leiguverð í gömlu húsnæði sem hefur jafnvel enga loftræstingu sam- an við leiguverð í nýju húsnæði þar sem eru öll bestu þægindi í loftgæð- um, hljóðvist og aðgengi o.s.frv. Kostnaðurinn við húsnæðið er auð- vitað misjafn. Almennt hefur leigu- verð ekki fylgt stórauknum fasteigna- gjöldum sem borgin hefur innheimt af þessum leigurýmum og almennt af íbúum. Kostnaður sem fylgir rekstri svona húsnæðis hefur margfaldast á síðustu árum,“ segir Ólafur Ingi. Mikið framboð á stuttum tíma Á aðeins nokkrum misserum er fjöldi atvinnurýma að koma á markað í miðborg Reykjavíkur. Þau eiga það sameiginlegt að vera á jarðhæð í ný- byggingum og með íbúðir á efri hæð- um. Má þar nefna Hafnartorg, sem er komið í notkun, Austurhöfn, sem fer í notkun upp úr áramótum, Hverfis- götureitina tvo, sem eru að koma í notkun, og Brynjureit sem kemur til afhendingar með haustinu. Þessi aukning í framboði af at- vinnuhúsnæði í þessum gæðaflokki á svo skömmu tímabili er án fordæma í sögu miðbæjarins. Höfðatorgið á það sameiginlegt með Hafnartorgi og Austurhöfn að vera við enda Laugavegar og með bílakjallara. Reitirnir þrír stækka því verslunarsvæði miðborgarinnar. Ólafur Ingi segir vísbendingar um að tilfærsla sé að verða á fasteigna- markaðnum í miðborginni. „Menn virðast vera að fara með svona starfsemi af Laugavegi og Hverfisgötu og aðeins út fyrir svæðið. Það er mín skoðun. Ég hef ekki gert á því vísindalegar kannanir en upplifun okkar er að menn séu að flytja frá svæðinu þar sem er orðið erfitt um aðgengi og koma sér fyrir í „kantinum“ á miðborginni þar sem er betra aðgengi að bílastæðum og fyrir- tækjum. Það sem er öðruvísi á þess- um nýju reitum er að gert er ráð fyrir bílastæðum og bílakjöllurum og menn geta þá komist þokkalega í vinnuna á bílnum sínum. Þú gerir það ekki í miðbænum. Við vitum hvað það er orðið erfitt að fara niður á Laugaveg. Fyrirtækin ýtast smátt og smátt allt- af örlítið til hliðar, sérstaklega þau sem eru mannaflsfrek.“ Vildu ekki veitingarými Rekstri nokkurra veitingahúsa í miðborginni hefur verið hætt í kjölfar gjaldþrots WOW air. Má þar nefna Skelfiskmarkaðinn, Nostra og Ess- ensia. Samhliða minni eftirspurn hækkaði launakostnaður í greininni. Ólafur Ingi segir aðspurður að ÍÞAKA hefði getað leigt út öll rýmin í Bríetartúni 9-11 undir veit- ingarekstur, svo mikil hefði ásóknin verið. Félagið hafi hins vegar ekki viljað slíka starfsemi í Bríetartúni 9- 11, meðal annars vegna íbúða á efri hæðum. Við hlið Bríetartúns 9-11 er áformað að byggja um 100 íbúða fjöl- býlishús með atvinnurýmum á jarð- hæð. Sú uppbygging kallar á niðurrif fyrstu höfuðstöðva WOW. Ólafur Ingi segir aðspurður engar ákvarðanir hafa verið teknar um þær framkvæmdir. Verkefnið muni taka að minnsta kosti þrjú ár frá því ákvörðun um það er tekin. Fyrirtækin farin að leita út á jaðar miðborgarinnar  Fyrstu atvinnurýmin á Höfðatorgi leigð út  Há fasteignagjöld sliga fyrirtæki Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Við Höfðatorg ÍÞAKA fasteignafélag hefur leigt út fyrstu atvinnurýmin í Bríetartúni 9-11 í Reykjavík. Ólafur Ingi Ólafsson Dæmi eru um að velta gististaða í miðborg Reykja- víkur hafi dregist saman um tugi prósenta milli ára. Eigandi gististaðar, sem ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar, sagði besta mánuðinn hafa skil- að 2,2 milljónum króna í veltu í fyrrasumar. Nú hefði veltan hins vegar aðeins verið 1,35 milljónir þennan sama mánuð. Það er um 40% samdráttur milli ára. „Maður gerir lítið annað en að borga reikninga og standa skil af lánum þegar veltan minnkar svona mikið. Til dæmis eru fasteignagjöldin orðin mjög há. Það er orðið sáralítið eftir fyrir laun, hvað þá fjár- festingu,“ sagði maðurinn. Annar hóteleigandi sagði svipaða sögu. Veltan hefði dregist saman um tugi prósenta milli ára. „Menn gerðu þau mistök að keyra niður verðið eftir gjaldþrot WOW air. Það var óþarfi,“ sagði maðurinn sem taldi að verðlækkunin hefði reynst dýrkeypt. Vegna minni tekna og aukins kostn- aðar verði mun síður fýsilegt að hefja útleigu hótelíbúða. Tekjurnar dregist mikið saman ÚTLEIGA GISTIRÝMA Í MIÐBORGINNI Bráðabirgðaforsætisnefndin skipuð Steinunni Þóru Árnadóttur þing- manni Vinstri grænna og Haraldi Benediktssyni þingmanni Sjálf- stæðisflokksins fór á fundi sínum í gær yfir athugasemdir þær sem Klaustursþingmennirnir höfðu við ályktun siðanefndar um framgang þeirra kvöldið á Klaustri í nóv- ember. Forsætisnefnd fundar aftur á morgun um málið Nefndin hefur komist að nið- urstöðu um afstöðu sína í málinu, sem byggir á niðurstöðu siðanefnd- ar og athugasemdum frá hlutaðeig- andi, en niðurstaðan verður ekki kynnt fyrr en í fyrsta lagi á fimmtu- daginn. Þá fundar forsætisnefndin aftur og gengur frá „form- legheitum“ í málinu, að sögn Har- aldar. „Það er fyrst og fremst frágangur málsins sem er ókláraður,“ segir hann og vísar þar til eiginlegrar textagerðar sem er eftir að vinna. Þegar þeirri vinnu er lokið og skrif- leg niðurstaða forsætisnefndar er tilbúin sem skjal, verður hún send hlutaðeigandi þingmönnum og í kjölfarið birt opinberlega. snorrim@mbl.is Morgunblaðið/Hari Miðflokksmenn Voru á Klaustri. Niðurstaðan kynnt síðar í vikunni  Fundað var um Klaustursmál í gær Flugferðir til Vestmannaeyja verða tíðari og sætafjöldi meiri yfir versl- unarmannahelgina. Þetta segir Ás- geir Örn Þorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri flugfélagsins Ernis. „Þetta verður svipað og und- anfarin ár. Við verðum með fjölda ferða alla helgina. Stærsti dagurinn er á mánudaginn þegar við fljúgum alveg frá klukkan sjö um morg- uninn og fram á kvöld. Það eru tíðari ferðir á mánudeg- inum og svo stærri vélar. Það verð- ur svipaður ferðafjöldi föstudag, laugardag og sunnudag en meiri sætafjöldi.“ Fjölga flugferðum til Eyja um helgina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.