Morgunblaðið - 31.07.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur fundið
fleiri en eitt ólöglegt efni í megrunar-
drykkjum sem eru í sölu hér á landi. Efni í
megrunardrykkjum er að finna á lista Lyfja-
stofnunar og eru þau þar merkt með „B“ en
slík efni eru óheimil í matvælum.
Þetta staðfestir Dóra S. Gunnarsdóttir,
forstöðumaður sviðs neytendaverndar hjá
Matvælastofnun. „Heilbrigðiseftirlitið skoð-
aði umræddar megrunarvörur og sá að inni-
haldsefni í þeim væru í B-flokki. Matvæli
mega ekki innihalda efni í B-flokki,“ segir
hún. MAST varaði í gær við neyslu á kaffi og
kakói frá Valentus sem söluaðilar kalla
gjarnan töfra- eða undrakaffi. Drykkirnir
innihalda amfetamínskylda efnið Beta-
Phenylethylamin. Drykkirnir sem MAST
nefndi eru Valentus SlimROAST Optimum-
kaffi og Prevail SlimROAST-kakó.
„Engin töfralausn“
Heiðrún Finnsdóttir, einka- og crossfit-
þjálfari, segir að sala megrunardrykkjanna
sem innihalda ólögleg efni sé pýramídas-
vindl.
„Töfralausn hljómar ótrúlega vel og fólk
stekkur á vagninn og fer að prófa þetta
blessaða kaffi. Og allt í einu er það orku-
meira, það er hressara, því líður betur, það
hefur minni matarlyst og kílóin fara að fjúka
af, það er ekki bara þetta amfetamínskylda
efni í þessu heldur líka fullt af „tea extract“
og koffíni sem er svo hægðalosandi. Það er
bæði með minni matarlyst og aukna orku út
af örvandi efni og það er að missa fullt af
bjúg og vatni og hefur meiri hægðir.
Þetta er ekki töfralausn – þetta minnir á
það sem við sáum í Bandaríkjunum í kring-
um árið 1970 þegar konur voru settar á am-
fetamínkúr,“ segir Heiðrún.
Söluaðilar standa margir hverjir í fastri
trú um að megrunardrykkirnir séu skaðlaus-
ir og rúmlega það: „Þarna er meðal annars
verið að veiða inn miðaldra konur [sem sölu-
aðila] og ég hef það eftir sölumanni að kaffið
lækni krabbamein og lagi hjarta- og æða-
sjúkdóma. Það sem sölumenn segja um vör-
una er hættulegt,“ sagði hún.
Heiðrún segir sölumenn einungis vísa til
tengla frá framleiðendum þar sem talað er
um ágæti varanna.
MAST greindi frá því í gær að heilbrigð-
iseftirlit sveitarfélaga muni fylgja málinu eft-
ir í samráði við MAST, hvað varðar dreifing-
araðila hérlendis.
Samkvæmt. 11. gr matvælalaga nr. 93/
1995 mega matvæli ekki innihalda lyf eða
lyfjavirk efni. Þeir sem stunda dreifingu á
matvælum teljast vera matvælafyrirtæki og
eru starfsleyfisskyldir hjá viðkomandi heil-
brigðiseftirliti. Þá er öll dreifing matvæla
starfsleyfisskyld, þ.m.t. innflutningur, sam-
kvæmt 9. gr. laga um matvæli. Í tilkynningu
frá Matvælastofnun, sem birtist á vef stofn-
unarinnar í gær, segir:
„Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga gefur
út starfsleyfi fyrir dreifingu og innflutningi
fæðubótarefna. Mikilvægt er að hafa í huga
að öll ábyrgð á matvælum hvílir á herðum
framleiðenda, innflutningsaðila og dreifing-
araðila.“
Fleiri ólögleg efni í „töfrakaffinu“
Heilbrigðiseftirlitið fann efni í megrunardrykkjum, sem eru á B-lista Lyfjastofnunar MAST hef-
ur varað við neyslu á kaffi og kakói frá Valentus Einkaþjálfari segir að salan sé pýramídasvindl
Ljósmynd/Matvælastofnun
Efni MAST hefur varað við þessum vörum.
Útför dr. Þorsteins Inga Sigfússonar, prófessors
og forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, var
gerð frá Hallgrímskirkju í gær að viðstöddu fjöl-
menni. Séra Bjarni Karlsson jarðsöng, organisti
var Tómas Guðni Eggertsson, kórinn Voces
Masculatorum söng. Ragnheiður Gröndal söng
einsöng, Guðmundur Pétursson lék á gítar og
Ari Bragi Kárason á trompet. Líkmenn voru
Dagrún Inga Þorsteinsdóttir, Þorkell Viktor
Þorsteinsson, Árni Sigfússon, Davíð Þór Þor-
steinsson, Hermann Kristjánsson, Sigríður Ingv-
arsdóttir, Þór Sigfússon og Gylfi Sigfússon.
Morgunblaðið/RAX
Útför dr. Þorsteins Inga Sigfússonar
1.818 eldingum
laust niður í
miklu þrumu-
veðri sem gekk
yfir landið í
fyrrakvöld og
gærnótt sam-
kvæmt mæl-
ingum Veður-
stofunnar, en
þrumuveðrið er það langmesta
frá því mælingar hófust árið
1998.
Veðrið stóð í sólarhring og var
fyrsta eldingin skráð kl. 6.46
þann 29. júlí og sú síðasta kl. 7.05
þann 30. Engar eldingar mældust
á Suður- og Vesturlandi og mest
var þrumuveðrið suður og suð-
austur af landinu.
Þórður Arason, eldinga-
sérfræðingur hjá Veðurstofunni,
sagði í samtali við mbl.is að að
jafnaði gerðist það um einu sinni
á ári að eldingafjöldi færi yfir
100 á sólarhring.
Skýring að baki þrumuveðrinu
í gær er hitaveður síðustu daga,
en sterkt lóðrétt hitauppstreymi
skapar skilyrði til eldinga. Ein-
hver möguleiki er á frekara
þrumuveðri næstu daga, en ekk-
ert í líkingu við það sem var í
nótt.
Þrumur og
eldingar
aldrei fleiri
1.818 eldingar á
einum sólarhring
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Skóla- og frístundaráð kom saman
til aukafundar í gær þar sem ráðið
sameinaðist um bókun til borg-
arráðs. Í bókuninni var lögð
áhersla á mikilvægi þess að bæta
húsakost í Norðlingaskóla til að
mæta auknum nemendafjölda, sem
aukast mun á komandi árum í
tengslum við uppbyggingu í hverf-
inu. Ráðið stendur heilshugar með
framkvæmdum við byggingu
gangs á Norðlingabraut, sem bæta
mun verulega nýtingu húsnæðis
sem þjónar í dag þremur árgöng-
um skólans. Ráðið benti á að brýnt
sé að taka ákvörðun um fram-
kvæmdina hið fyrsta og leggur
áherslu á að málið verði afgreitt á
næsta fundi borgarráðs.
Aukafundur skóla- og frístunda-
ráðs var boðaður að ósk fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í ljósi hús-
næðismála Norðlingaskóla og fjög-
urra grunnskóla í Reykjavík.
„Það var mjög jákvætt að ráðið
skyldi senda frá sér sameiginlega
bókun. Það er stutt í að skólahald
hefjist og því nauðsynlegt að húsa-
kostur Norðlingaskóla sé bættur,“
segir Marta Guðjónsdóttir, borg-
arfulltrúi sjálfstæðiflokksins, og
bætir við að nauðsynlegt sé fyrir
nemendur, foreldra, skólastjórn-
endur og aðra starfsmenn að fá
upplýsingar um stöðu mála.
Marta segir að ráðið hafi þakkað
fyrir ítarlega og góða kynningu á
helstu framkvæmdum á húsnæði
Fossvogsskóla, Breiðholtsskóla,
Seljaskóla og Hagaskóla. Ljóst sé
að unnið sé mikið og gott starf við
að bæta aðbúnað nemenda og
starfsfólks á viðkomandi stöðum
og að almennt viðhald skólahús-
næðis sé í traustum farvegi. Full
ástæða sé til að þakka skólastjórn-
endum, kennurum, öðru starfsfólki
skólanna, foreldrum og nemendum
auk starfsfólki skóla- og frístunda-
sviðs og umhverfis- og skipulags-
sviðs fyrir þeirra hlut í að bregð-
ast við þeim vanda sem upp hafi
komið og auðsýnda þolinmæði í
krefjandi stöðu.
Húsakostur verði bættur
Skóla- og frístundaráð fundaði um Norðlingaskóla
Sameiginleg hvatning meiri- og minnihluta til borgarráðs