Morgunblaðið - 31.07.2019, Page 11
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Kaupmenn á Laugavegi sem
Morgunblaðið ræddi við segja að oft
á dag keyri fólk á móti umferð á
Laugaveginum eftir að aksturs-
stefnu þar var breytt.
Akstursstefnu á hluta Laugavegar
var breytt í byrjun maí. Ökumönnum
sem aka upp Klapparstíg er nú beint
til vinstri, upp Laugaveginn, en ekki
til hægri eins og vaninn var áður og
hafði verið í tæp 100 ár. Umferðinni
er því hleypt í öfuga átt upp Lauga-
veginn frá Klapparstíg að Frakka-
stíg.
Sólveig Grétarsdóttir, eigandi
Verslunar Guðsteins Eyjólfssonar,
segist sjá fólk keyra í öfuga átt á
milli Klapparstígs og Frakkastígs
oft á hverjum degi.
„Fólk er að mætast þarna og þetta
er eiginlega orðið tvístefna í dag að
mörgu leyti.“
Brynjólfur Björnsson, eigandi
verslunarinnar Brynju, tekur undir
með Sólveigu. „Ég sé þetta nokkrum
sinnum á dag. Svo að þetta er bara
upp og niður hérna.“
Eldra fólk treystir sér ekki
Sólveig segir breytinguna hafa
áhrif á verslun.
„Fólk eiginlega veigrar sér við því
að koma í miðbæinn. Sérstaklega
finn ég fyrir því á meðal eldri við-
skiptavina sem geta ekki tekist á við
þennan rugling og segjast ekki
treysta sér til að keyra þarna og
senda frekar einhvern fyrir sig.
Verslunin hefur dalað eftir að þeir
sneru þessu við. Allir sem koma inn í
búðina kvarta undan þessu.“
Brynjólfur segir að breytingin
valdi ekki einungis þeim sem aki um
Laugaveginn óþægindum.
„Þegar þú kemur upp fyrir
Frakkastíginn koma allt í einu bílar
á móti þér og svo snýrðu þér við og
labbar niður Laugaveginn og þá
koma líka bílar á móti þér. Nú er allt-
af talað um öryggi gangandi vegfar-
enda en það hefur aldrei verið neitt
vandamál hérna á Laugaveginum.
Bílar keyra rólega niður götuna og
hér hefur verið róleg og þægileg um-
ferð.“
Sólveig segir að með breytingunni
hafi verið áætlað að leysa úr vanda-
málum sem aldrei voru til.
„Þetta átti að leysa einhvern um-
ferðarhnút sem átti víst að myndast
þarna fyrir framan hjá mér en þar
var aldrei neinn umferðarhnútur.
Það er frekar núna í hina áttina þar
sem vandamálin eru, þar sem þrír
bílar koma að Frakkastígnum, sem
er mjög þröngur.“
Hvorki Sólveig né Brynjólfur
höfðu orðið vitni að óhöppum vegna
þessa. Þau segja þó bæði að fólk
virðist ekki vera búið að venjast
breytingunum. „Í 100 ár hefur verið
keyrt niður Laugaveginn svo að
þetta er bara fáránlegt. Fólk venst
ekkert svona vitleysu, með þessu er
verið að snúa öllu á hvolf og ég veit
ekki til hvers,“ segir Brynjólfur.
Algengt að fólk aki
vitlaust á Laugavegi
Verslunareigendur sjá fólk aka á móti umferð oft á dag
Morgunblaðið/Hari
Akstursstefna Laugavegur milli Klapparstígs og Frakkastígs.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Tillaga að framkvæmdum á
Rjúpnahæð í Kópavogi, sem gerir
m.a. ráð fyrir opnu svæði næst
Austurkór 2-12, var kynnt í skipu-
lagsráði bæjarins í gær og mun
vinna að verkinu hefjast síðsum-
ars eða snemma í haust. Þetta
staðfestir Birgir Hlynur Sigurðs-
son, skipulagsstjóri Kópavogs.
Samkvæmt honum er gert ráð
fyrir að svæðið verði að mestu
leyti skóggrassvæði og verður
haldið í villtan gróður sem er
þegar til staðar á svæðinu.
Lúpínu verður útrýmt
Að auki verður reynt að endur-
skapa sambærilega náttúru með
lagningu lyngþakna, með því að
koma fyrir grjóti og villtum
gróðri. Inn á milli er gert ráð fyr-
ir rjóðrum og stígum með slegn-
um grasflötum.
Framkvæmdir verða auk þess á
norðurhluta Rjúpnahæðar þar
sem gert er ráð fyrir að núver-
andi skógarsvæði verði haldið
óröskuðu en lúpínu verði þar út-
rýmt. Lokið verður við frágang
við leiksvæði, sem reist var árið
2016, með uppsetningu stakrar
körfu og setstalla og verða tré
gróðursett umhverfis það.
Samkvæmt upplýsingum frá
Birgi verða grasflatir á svæðinu
milli leiksvæðisins og
skógræktarsvæðisins en við hluta
stíganna, sem þegar hafa verið
gerðir á svæðinu, eiga að koma
stakstæð tré með runnagróðri
undir.
Hugsanlega lokið á næsta ári
Stefán Loftur Stefánsson, deild-
arstjóri framkvæmdadeildar í
Kópavogi, segir í samtali ekki
geta staðfest hvenær verkinu
verði lokið.
„Ég hugsa að þessu svæði verði
lokið á næsta ári en við erum
náttúrulega bundin þeim fjárveit-
ingum sem við fáum í þessi verk-
efni,“ segir hann.
Rjúpnahæð Vinna hefst von bráðar en svæðið verður líklega tilbúið 2020.
Opið svæði á
Rjúpnahæð
Vinna að verkinu hefst von bráðar
22 hestar sem keppa munu á heims-
meistaramóti íslenska hestsins í
Berlín í næstu viku eru komnir á
leiðarenda, en flogið var með þá út
sl. sunnudag. Kristinn Skúlason, for-
maður landsliðsnefndar Lands-
sambands hestamanna, segir að
aldrei hafi verið sendir jafn sterkir
hestar til keppni enda hafi þeir verið
valdir að afloknum þremur mótum
og einu Íslandsmóti.
Helmingur knapanna fór með
hestunum út, en til stóð að hinn
helmingur þeirra færi í nótt.
Fyrstu æfingar hefjast á morgun
og halda áfram fram að keppni.
Keppnin hefst síðan með fjórgangi 6.
ágúst og keppt verður alla daga til
11. ágúst. „Það er reiknað með 15
þúsund manns og ég býst við að um
tvö þúsund Íslendingar verði á
svæðinu. Þetta hefur verið á bilinu
10-15 þúsund manns, en ég held að
það verði fleiri núna þar sem mótið
er haldið í Berlín,“ segir Kristinn.
Hann segir hug í hópnum. „Við ætl-
um okkur stóra hluti. Það er bara
þannig,“ segir hann. jbe@mbl.is
Undirbúningur Hestarnir eru komnir á leiðarenda eftir flugið.
Hafa aldrei sent
sterkari hesta á HM
Reiknað með um 2.000 Íslendingum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki sektað einn einasta bílstjóra
fyrir akstur á móti umferð á Laugavegi síðan akstursstefnunni var breytt
að því er Guðbrandur Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðar-
deild, best veit.
„Ég hef ekki heyrt að þetta hafi verið vandamál nema fyrsta daginn
þegar þetta var sett upp. Þá voru kaupmenn eitthvað að tilkynna að ein-
hverjir væru að ruglast þarna á merkingum.“
Aðspurður segir hann engan aðlögunartíma vera vegna breytingar-
innar. „Um leið og merkingar koma upp ber fólki að fylgja þeim. Ef það
væri aðlögunartími þá myndi það skapa hættu ef fólk væri að keyra hvað
á móti öðru.“
Enginn sektaður enn
LÖGREGLAN HEFUR EKKI HEYRT AF MÁLINU
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR