Morgunblaðið - 31.07.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 31.07.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019 Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi Wellington. AFP. | Strendur af- skekktrar eyjar sem áður var álitin ósnortin náttúruparadís hafa fyllst af plasti og öðru rusli sem berst þangað með hafstraumi og vís- indamenn segja að ekki sé hægt að bjarga henni nema hætt verði að fleygja rusli í hafið. Henderson-eyja er óbyggð hring- laga kóraleyja með sjávarlóni í miðjunni, næstum mitt á milli Nýja- Sjálands og Perú, með um 5.500 kílómetra langt haf í báðar áttir. Þótt eyjan sé mjög afskekkt hefur lega hennar í miðjum hringstraumi í Suður-Kyrrahafi orðið til þess að hún er á meðal þeirra staða í heim- inum þar sem plastmengunin er mest. Kom hvaðanæva „Við fundum rusl sem kom nánast hvaðanæva,“ sagði Jennifer Lavers, visteiturefnafræðingur í Ástralíu, sem stjórnaði leiðangri vísinda- manna og blaðamanna til eyjunnar í síðasta mánuði. „Við fundum flösk- ur og ílát, hvers konar veiðarfæri og þetta kom frá fjölmörgum löndum – Þýskalandi, Kanada, Bandaríkj- unum, Chile, Argentínu og Ekva- dor, svo nokkur séu nefnd. Við feng- um þau skilaboð að það er í raun á ábyrgð allra landa að vernda um- hverfið, jafnvel á þessum afskekktu og fjarlægu stöðum.“ Henderson-eyja er í miðju hring- straums í Suður-Kyrrahafi sem hef- ur verið lífríki hennar til fram- dráttar þar sem hann veldur því að næringarríkur sjór streymir að henni og sér miklum fjölda fugla sem verpa á eyjunni fyrir fæðu. Líf- ríkið á kóraleyjunni er svo fjöl- skrúðugt að hún var sett á heims- minjaskrá Menningarmála- stofnunar Sameinuðu þjóðanna árið 1988 vegna „náttúrufegurðar og auðugs og nánast óraskaðs gróður- fars“. Safnast fyrir í maga fiska og fugla Rúmum þremur áratugum síðar er hringstraumurinn orðinn að nokkurs konar færibandi rusls sem streymir linnulaust að eyjunni. Leiðangurinn undir stjórn Lavers leiddi í ljós að á austurströnd eyj- unnar eru að meðaltali um 700 plasthlutir á hvern fermetra. Verst er þó að helmingurinn af plastinu hefur brotnað upp í sjónum og orðið að ögnum sem sjást varla með berum augum, þannig að ógjörningur er að fjarlægja þær. Plastagnirnar komast í fæðukeðj- una og safnast fyrir í maga fiska, fugla og dýra sem lifa á eyjunni, meðal annars skjaldbaka. Enn fremur fundust hundruð smádýra sem höfðu fest í plastílátum og drepist. Að sögn breska dagblaðsins The Guardian er talið að um átján tonn af plasti hafi safnast fyrir á um 2,5 kílómetra langri sandströnd á eyj- unni og dag hvern berist þangað nokkur þúsund plasthlutir. Um 60% af ruslinu virðist tengjast fisk- veiðum þótt eyjan sé á þriðja stærsta hafverndarsvæði heims og fiskveiðar í atvinnuskyni séu bann- aðar þar. Taka þarf á rót vandans Lavers skipulagði tveggja vikna plasthreinsun á eyjunni og hópur hennar tíndi upp alls sex tonn af plastrusli á þeim tíma. Ruslið var þó ekki fjarlægt af eyjunni vegna þess að ekki var hægt að sigla skipi hóps- ins í öruggt lægi. Færa þurfti því ruslið af fjöruborðinu í von um að hægt yrði að fjarlægja það síðar. Vísindamaðurinn viðurkenndi að það hefði verið „niðurdrepandi“ eft- ir allt erfiðið að sjá plastrusl byrja að safnast fyrir á ströndinni sem hafði verið hreinsuð. Levars hyggst skipuleggja hreinsunarferðir til eyjunnar á næstu tveimur árum en segir að leiðangurinn hafi sýnt að vandinn verði ekki leystur til langframa með slíku hreinsunarátaki. „Þetta sýnir hversu mikilvægt er að taka á rót vandans,“ sagði hún og hvatti til þess að gengið yrði lengra í því að leggja hömlur á notkun einnota plasts. „Það er nú þegar svo mikið af plasti í höfunum að við verðum að gera allt sem við getum til að hindra að plastmengunin aukist.“ Ósnortin náttúruparadís í Kyrrahafi varð að ruslahaug  Er á meðal staðanna þar sem plastmengunin er mest  Kemst í fæðukeðjuna AFP Ruslið ógnar dýralífi Tvær grímusúlur ganga innan um rusl sem safnast hefur fyrir á strönd Henderson-eyju, mjög afskekktrar eyju í Suður-Kyrrahafi. Örplast hefur safnast fyrir í maga fiska og fugla og komist í fæðukeðjuna. Henderson-eyja er ímiðju hafstraums sem fer í hring umSuður-Kyrrahaf, suður eftir austurströnd Ástralíu og norður eftir strönd Suður-Ameríku Nýja- Sjáland Perú Chile Fídjieyjar Henderson- eyja Þótt eyjan sé mjög afskekkt er hún á meðal þeirra staða í heiminum þar sem plastmengunin er mest Kyrrahaf Ruslahaugur í miðju hringstraums Kort byggist á maps4news.com 1.000 km » Það er nú þegar svomikið af plasti í höf- unum að við verðum að gera allt sem við getum til að hindra að plast- mengunin aukist. Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, ræddi í gær í síma við for- sætisráðherra Írlands og hét því að landamæri þess að Norður-Írlandi yrðu opin og án sýnilegs tollaeftirlits eftir að Bretland gengi úr Evrópu- sambandinu 31. október. Johnson hét því einnig að virða skilmála Belfast-samningsins um frið á Norður-Írlandi og áréttaði andstöðu sína við umdeilt ákvæði í Brexit-samningi Theresu May við ESB sem á að hindra að komið verði á landamæraeftirliti milli Írlands og Norður-Írlands. Stuðningsmenn ákvæðisins segja að það sé nauðsyn- legt til að koma í veg fyrir að Brexit grafi undan samningnum sem náðist árið 1998 til að koma á friði á Norð- ur-Írlandi eftir átök sem kostuðu um 3.500 manns lífið. Andstæðingar samningsins segja hins vegar að ákvæðið geti orðið til þess að Bret- land þurfi að vera áfram í tolla- bandalagi ESB til frambúðar. Írski forsætisráðherrann Leo Varadkar áréttaði þá afstöðu Íra að ákvæðið væri nauðsynlegt og ekki kæmi til greina að verða við kröfu Johnsons um að breyta því. AFP Heimsókn Johnson heimsótti Wales í gær og skoðaði m.a. hænsnabú. Lofar opn- um landa- mærum  Johnson í deilu við forsætisráðherra Íra Lög sem veita um tveimur millj- ónum ungs fólks undanþágu frá tekjuskatti taka gildi í Póllandi á morgun og er markmiðið með þeim að stöðva straum ungra Pólverja til ann- arra landa Evr- ópska efnahagssvæðisins. Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Pól- lands, segir að 1,7 milljónir Pól- verja hafi flutt þaðan frá því að landið gekk í ESB fyrir 15 árum. „Þetta er mikill missir,“ sagði hann. „Þessu þarf að ljúka, unga fólkið þarf að vera áfram í Póllandi.“ PÓLLAND Ungt fólk undan- þegið tekjuskatti Mateusz Morawiecki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.