Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2019 Í Vestmannaeyjum hefur þess verið gætt að greiða leið bæj- arbúa að menntun og reyna að byggja upp þekkingarforða heimamanna til að renna sem flest- um og styrkustum stoðum undir atvinnulífið. Þar leikur Þekkingar- setur Vestmannaeyja lykilhlutverk og tvinnar saman rannsóknir, ráð- gjöf til atvinnulífsins, nýsköpun, fjarkennslu og safnrekstur. Samtals deila hátt á fjórða tug fyrirtækja og stofnana eignarhaldi á Þekking- arsetrinu og sameina þar krafta sína. Páll Marvin Jónsson er fram- kvæmdastjóri Þekkingarsetursins, sem flutti í nýtt og glæsilegt hús- næði í ársbyrjun 2018: „Okkar meg- inverkefni er í raun að skapa þekk- ingarsamfélaginu samvinnuvettvang og leggja því til aðstöðu. Í dag erum við í opnu og skemmtilegu skrif- stofurými og bjóðum fyrsta flokks kennslu-, náms- og rannsóknar- aðstöðu. Aðstaðan er í dag nýtt af fimmtán fyrirtækjum og stofn- unum,“ útskýrir hann en auk þess að bjóða almenningi upp á fyrirlestra og veita atvinnulífi ýmsa ráðgjöf hefur Þekkingarsetrið umsjón með rekstri Sagnaheima, byggðasafns Vestmannaeyja. Raunfærnimat og styrkjaráðgjöf Það er Viska, fræðslu- og símennt- unarmiðstöð Vestmannaeyja, sem heldur utan um fjarnámið og náms- ráðgjöfina og tengir nemendur beint við fyrirlestrarsali háskólanna á meginlandinu svo að Vestmanna- eyingar geta lært nánast hvaða fag sem er. Þá býður Viska líka upp á stutt námskeið almenns eðlis og annast raunfærnimat fyrir þá sem vilja setjast aftur á skólabekk eftir að hafa verið á vinnumarkaði. Fyrirtækin á svæðinu og ýmsar rannsóknarstofnanir nota aðstöðuna til vöruþróunar og vinna þar að ým- iss konar rannsóknum. Nefnir Páll sem dæmi að aðstaða Þekkingarset- urs hafi nýst mjög vel við metnaðar- fullar rannsóknir á líffræði sjávar undan Suðurlandi og við rannsóknir á háhyrningum á svæðinu.. „Við er- um líka í nánu samstarfi við stofn- anir og atvinnuráðgjafa sem vinna innan Sóknaráætlunar Suðurlands og eigum því auðvelt með að koma á samtali eða samstarfi milli aðila hér og á Suðurlandi og á höfuðborgar- svæðinu,“ útskýrir Páll. „Við höfum líka liðsinnt atvinnulífinu við styrk- umsóknir og hjálpað fyrirtækjum að rata um styrkjakerfið svo þau geti nýtt sér það sem skyldi til að standa straum af kostnaði sínum við rann- sóknir og vöruþróun.“ Hátt í 300 próf á önn Gaman er að sjá hve vel Vestmanna- eyingar nýta sér þjónustu Þekking- arsetursins. Til að gefa hugmynd um aðsóknina nefnir Páll sem dæmi að í þessu u.þ.b. 4.200 manna bæj- arfélagi hafi nemendur þreytt þar hátt í 300 próf á háskólastigi, bara á síðustu önn. „Sumir nýta aðstöðuna þannig að þeir búa hér og stunda sitt nám í fjarnámi, en aðrir sækja tíma á höfuðborgarsvæðinu eða á Akureyri og koma svo hingað þegar kennslu er lokið, t.d. í kringum jól og áramót, til að geta verið með ást- vinum sínum en þreyta prófin hjá Þekkingarsetrinu.“ Tekur Páll það fram að nemendur sinni náminu greinilega af aga og metnaði og er lesaðstaða Þekking- arsetursins og Visku vel nýtt. Þar sitji fólk og grúski í kennslubókum og fræðiritum langt fram á nótt, og raunar hægt að lesa allan sólar- hringinn ef þess þarf. Fiskarnir flytja Sú breyting varð nýlega á starfsemi Þekkingarseturs Vestmannaeyja að fiskasafnið Sæheimar, sem stofn- unin hafði áður umsjón með, var lagt niður til að rýma fyrir Sea Life Trust sem hýsa mun bæði mjaldra og ýmis sjávardýr í nýrri aðstöðu á Ægisgötu 2. Varla hafa farið fram hjá les- endum fréttir um mjaldrana tvo sem nýlega ferðuðust til Íslands alla leið frá Kína. Munu mjaldrarnir lifa í Klettsvík, á sama stað og Keikó heitinn bjó, en hafa aðgang að sér- smíðaðri mjaldralaug. Gætu fleiri mjaldrar komið til landsins þegar fram í sækir og er í raun pláss fyrir allt að tólf mjaldra eins og aðstæður eru í dag. Þekkingarsetrið stýrir áfram byggðasafninu Sagnaheimum, en saman mynda sjávardýrasýning Sea Life Trust, byggðasafnið og eld- goss-sýningin Eldheimar þrenningu áhugaverðra sýninga fyrir ferða- menn sem leggja leið sína út í Vest- mannaeyjar. Páll segir hafa þurft að laga starfsemi Sagnaheima að því að fiskarnir og eldgosið fái oft mesta athygli og hafi því aukin áhersla verið lögð á að láta byggðasafnið hýsa staka viðburði, s.s. fyrirlestra og málþing, undir yfirskriftinni „Saga og súpa“. Hefur þessi breyt- ing gefist vel og aðsókn alla jafna mjög góð en safnið fær til sín áhugaverða fyrirlesara úr ýmsum áttum. Ekki gamlir munir í glerskápum Þá stendur sýning byggðasafnsins alveg fyrir sínu, en hún var tekin í gegn árið 2011 og ákveðið að fara aðra leið en á byggðasöfnum al- mennt: „Frekar en að hafa marga litla og gamla hluti inni í gler- skápum tökum við í staðinn fyrir einn og einn merkilegan grip og notum til að segja sögu Vest- mannaeyja,“ útskýrir Páll en þegar inn á safnið er komið blasa við vandlega skreyttir veggir með myndum, sýnishornum af gömlum blaðagreinum og fróðleiksmolum um merkisfólk og merkisviðburði. Þess var líka gætt að gera safnið áhugavert fyrir börn og unglinga og segir Páll það mikilvægt að byggða- söfn virki ekki fráhrindandi á unga fólkið enda markmiðið jú fyrst og fremst að miðla sögunni til komandi kynslóða. „Það gerir safnið spenn- andi að krakkarnir geta t.d. klætt sig í sjóræningjabúninga og farið í sjóræningjahelli. Framsetning safn- gripanna hefur líka glatt foreldra sem koma til mín og lýsa ánægju sinni með að þurfa ekki að hafa barnið undir eftirliti allan tímann af ótta við að það komi við forngrip sem ekki megi snerta.“ ai@mbl.is Fróðleikur fyrir heimamenn og gesti Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Páll Marvin segir fjarnámsþjónustuna vel nýtta af heimamönnum og voru þreytt um það bil 300 háskólapróf hjá Þekkingarsetrinu bara á síðustu önn. Vestmannaeyingar eru duglegir að stunda fjar- nám og fyrirtækin nýta sér aðstöðu Þekking- arseturs fyrir vöruþróun og rannsóknir. Sagnaheimar hafa úr óvenju miklum efnivið að moða enda saga Vestmannaeyja löng og viðburðarik. Mynd úr safni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.