Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Blaðsíða 4
INNLENT 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019 Líf hins tæplega 17 ára Kvenna-skólanema snýst mikið til umfrisbígolf og var hann á leið til Keflavíkur að sækja Bandaríkja- meistarann Nate Sexton þegar blaðamaður náði tali af honum. Sex- ton ætlar að halda mót um helgina og ætlar Blær svo með honum til Finnlands að keppa á sterkasta móti ársins í Evrópu, European Open. Blær Örn Ásgeirsson hefur náð afar góðum árangri í sinni íþrótt síð- ustu ár en hann keppir víða í opnum flokkum þar sem eldri og reyndari keppendur spila. Í fyrra gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í opna breska meistaramótinu og er ríkjandi Spanish Open meistari. Hann keppir í Evrópumótaröð í sumar og er sem stendur í öðru sæti. „Ég byrjaði að keppa árið 2016, fyrst í barnaflokkum og B-flokkum og stóð mig ágætlega en þegar ég fór að keppa með þeim bestu í meist- araflokki varð ég fljótt betri. Öll mótin sem ég tek þátt í á þessu ári eru opin mót og keppi ég þá við full- orðið fólk. Ég er oft með þeim yngstu,“ segir Blær sem segist þó ekki beint geta kallað sig atvinnu- mann í greininni ennþá. „Ég hef verið að vinna pening þegar ég sigra á mótum en ég er ekki beint að lifa á þessu. En ég er búinn að fá eitthvert klink,“ segir hann en þess má geta að Blær er á styrk frá helsta frisbígolfframleið- anda heims, Innova. „Þeir skaffa mér allan búnað og föt og svo fæ ég bónus ef ég vinn mót.“ Æfir út í garði Blær æfir allt árið en segir minni tíma hafi gefist í vetur til æfinga þar sem hann hafi byrjað í menntaskóla síðasta haust. „Það hefur verið smá vesen eftir að ég byrjaði í menntaskóla því skóladagurinn er miklu lengri en áð- ur og miklu meira að gera. En ég er með körfu úti í garði og fer oft út í garð að æfa púttin, eða stutta spilið sem er mjög mikilvægt að æfa. Svo reyni ég að spila eins mikið og ég get um helgar,“ segir Blær. Hann útskýrir fyrir blaðamanni frisbígolf. „Þetta er svipað golfi en í staðinn fyrir holur, kúlur og kylfur ertu með höndina þína, frisbídiska og körfur. Það eru nánast sömu reglur og í golfi; að koma disknum frá teig ofan í körfu í eins fáum köst- um og þú getur,“ segir hann. „Þeir allra bestu kasta disknum hátt í tvö hundruð metra, lengra en margir halda. Ég hef kastað í kringum 160 metra á jafnsléttu.“ Tvöfaldur meistari Frisbígolfíþróttin nýtur vaxandi vin- sælda víða um heim að sögn Blæs. „Ef við skoðum Ísland þá eru vellir alls staðar á landinu og það er nán- ast alltaf fólk að spila á þeim. Það eru þrettán vellir á höfuðborgar- svæðinu, fimm eða sex á Akureyri og sextíu í allt á landinu öllu. Það er frekar mikið miðað við að það eru enn margir hér sem vita ekki hvað þetta er,“ segir Blær og útskýrir að ekki þurfi eins mikið landsvæði und- ir frisbígolfvöll og hefðbundinn golf- völl og mun minna viðhald fylgir þar sem ekki þarf að slá. Blær vann sem fyrr segir opna breska meistaramótið árið 2018. „Ég fór fyrst á það í hittifyrra og var að vinna mótið allt þar til á seinustu holunni og endaði á að tapa með einu stigi. Það var ekki alveg nógu gott þannig að ég þurfti að fara aftur í fyrra og þá náði ég að vinna mótið. Sem var mjög fínt,“ segir hann hóg- vær. Þess má geta að um 90 manns kepptu á mótinu. Blær hefur einnig keppt tvisvar á opna spænska meistaramótinu. „Í fyrra skiptið gekk mér mjög illa en það er erfitt að labba völlinn sem er þarna í fjallshlíð. Ég fór aftur núna í febrúar og þá náði ég að spila miklu betur og vann mótið.“ Stefnir yfir þúsund stig Í frisbígolfi eru gefin stig líkt og for- gjöf í golfi. Sem stendur er Blær með 990 stig en stefnir á að ná þús- und stigum á árinu. „Maður fær stig eftir því hversu vel maður spilar. Besti spilari heims er með 1057 stig; það er hæsta sem nokkur maður hef- ur fengið. Ég vil komast yfir þúsund á þessu ári,“ segir Blær sem notar allan sinn tíma í frisbígolf, bæði í æf- ingar og kennslu. „Ég er að vinna við að kenna krökkum frisbígolf og vinn líka við að snyrta frisbígolfvelli en svo er ég mjög mikið erlendis að keppa. Ég er að fara mikið á næstunni. Ég er að fara eftir nokkra daga í tveggja vikna ferð til Finnlands og Eistlands og svo tvær Bandaríkjaferðir seinna á árinu,“ segir hann en í einni ferð- inni tekur Blær þátt í heimsmeist- aramóti í fyrsta sinn. Blær veit fátt skemmtilegra en frisbígolf. „Það er gaman að keppa og ferðast mikið og þegar maður nær góðu kasti er geggjað að horfa á eftir disknum fljúga.“ Ólíkt mörgum öðrum íþróttum er hægt að keppa í frisbígolfi langt fram eftir aldri. „Ég get keppt á meðan líkaminn leyfir. Sem ætti að vera ansi lengi.“ Hinn sextán ára Blær Örn Ásgeirsson keppir víða um heim í frisbígolfi og hefur náð einstökum árangri í íþróttinni. Frisbígolfarinn Blær Örn Ásgeirsson úr Frisbígolffélagi Reykjavíkur er á ferð og flugi um heiminn að keppa í sinni íþrótt. Hann hefur unnið bæði opna breska og opna spænska meistaramótið og stefnir á sitt fyrsta heimsmeistaramót í ágúst. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Geggjað að horfa á eftir disknum Blær vann opna spænska meistaramótið og hellir úr flösku að Spánverja sið. ’Það er gaman aðkeppa og ferðast mikiðog þegar maður nær góðukasti er geggjað að horfa á eftir disknum fljúga. Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.