Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019 Sem fyrr segir hvarf heill mánuður úr lífi Jóns Gunnars og þótt hann muni ekkert úr þessu lífi segist hann hafa lifað ævintýralegu draum- lífi í heilan mánuð. „Ég man mjög skýra drauma. Það var svo skrítið að í þennan mánuð lifði ég bara alveg öðru lífi. Ég var milljarðamæringur á snekkju og lifði þotulífi. Sigldi um Ítalíu eins og kóng- ur og fór í kvöldmat til Pavarotti heitins. Þeg- ar ég fór í land keyrði ég um á Ferrari og fór í flottustu partíin. Elsti bróðir minn var orðinn geysivinsæl hinsegin poppstjarna og á leiðinni að taka þátt í Eurovision. Þetta var ofboðs- lega sterk upplifun og alveg eins og þetta væri allt að gerast í alvöru,“ segir hann og brosir. Tveggja nótta grátur Því miður hvarf þessi fallega draumsýn um leið og Jón Gunnar opnaði augun. Kaldur raunveruleikinn blasti við; hann lá á gjör- gæslu í Reykjavík og fann sér til skelfingar að neðri hluti líkamans var tilfinningalaus. „Þeg- ar ég vaknaði var mér kippt aftur í veru- leikann og var hálfsvekktur því hitt lífið var bara alveg brillíant,“ segir hann brosandi. „Þegar ég vaknaði var ég auðvitað deyfður og ringlaður en svo rann það upp fyrir mér þegar ég reyndi að hreyfa mig hvað hafði gerst. Svo var ég orðinn ofboðslega rýr því það rýrnuðu allir vöðvar og í byrjun gat ég varla haldið á tannbursta. Þá fékk ég sjokk; þarna var ég kominn í ástand sem maður þekkir ekki. Ég varð skíthræddur og var lengi að átta mig á þessu,“ segir Jón Gunnar, en hann var aðeins 32 ára gamall þegar slysið varð. „Bergur Þorri bróðir minn notar líka hjóla- stól eftir slys á Akureyri sem hann lenti í mjög ungur. Hann er í dag formaður Sjálfs- bjargar. Hann vissi auðvitað strax í hverju ég væri lentur og reyndi að stappa í mig stálinu. Að ég ætti eftir að ná aftur krafti í efri hluta líkamans og ég ætti að einblína á það. Hann er ofboðslega duglegur og ég dáist að honum. Ég hef miðað mig við hann; hvað hann er að gera. Hann er giftur maður með tvö börn og virkur í atvinnulífinu. Hann hélt áfram að lifa lífinu sínu og ég var búinn að sjá hvernig hann tók á þessu. Ég sá að þetta var hægt. Lífið var alls ekki búið,“ segir Jón Gunnar. Hann átti þó erfiða tíma fyrir höndum. „Það kom auðvitað að því að ég þurfti að kyngja þessu og ég grét mikið þarna eina nóttina á gjörgæslunni. Svo grét ég ekki yfir þessu aftur fyrr en ég var kominn á Grensás því það var þá orðið svo raunverulegt; þegar maður var kominn á stað þar sem erfið end- urhæfing beið manns. Þá gerði ég þetta upp eina nóttina og grét yfir örlögum mínum og síðan ekki söguna meir. Ég hef ekki grátið síðan út af þessu, ekki eitt tár. Ég tók þá stefnu og hélt henni,“ segir hann. Endurhæfingin var löng og ströng og marg- ir kvillar sem geta fylgt lömun. „Ég var mjög lengi að byrja endurhæf- inguna því meltingin var öll í vitleysu; hún fór bara ekkert í gang. Mamma hjálpaði mér mjög mikið með það; hún var þá í námi á þess- um tíma fyrir sunnan þannig að hún færði mér góðan mat á hverju kvöldi en sjúkra- húsmaturinn er ekkert heillandi. Ég er „gour- met“-karl og sem kokkur hef ég kynnst elda- mennsku á háu plani. Mamma kom og dekraði við strákinn sinn; hún er frábær kokkur og var það hennar vegna sem ég leiddist út í kokkamennskuna á sínum tíma.“ Með tímanum og vegna úrvalsfæðis móður hans komst meltingin loks í lag, en á Grensási lá Jón Gunnar frá nóvember 2007 fram í maí 2008. Skilningur en ekki vorkunn Fyrir slysið hafði Jón Gunnar unnið sem leið- sögumaður og fór víða um land með ferða- menn. „Ég lifði og hrærðist í þessari ferða- mennsku, en á annan hátt en ég geri í dag auðvitað. Þegar ég kom út af Grensási fór ég norður í heimahagana og fékk að vera á Krist- nesi. Þá gat ég horft yfir ána og yfir sveitina mína. Svo fékk ég að fara heim í foreldrahús en var á dagdeild á Kristnesi í þjálfun en var svo útskrifaður í júní, júlí 2008.“ Þú segist hafa grátið aðeins tvær nætur. Þú hefur ekki lagst í sjálfsvorkunn? „Nei. Ég hef aldrei gert það og það gagnast mér ekki neitt. Það gagnast mér heldur ekki að fá vorkunn frá öðru fólki. Skilningur á aðstæðum; það er það sem hjálp- ar. Bætt aðgengi, hjálpsemi, að bjóða mér í partí þó að það sé kannski einn stigi. Vor- kunnsemi gerir ekkert fyrir mig. Ég er held- ur aldrei á netinu að skoða það sem er að ger- ast í lækningum í mænuskaða, ég eyði ekki tíma í það. Ef það finnst lækning kemur það á forsíðum blaða. Það er til nokkuð sem heitir mænuskaðatúrismi og það er fullt af fólki sem lifir á fólki sem er örvæntingarfullt að leita að lækningu. Ég kem ekki nálægt þessu; þetta kostar allt milljónir og gerir sáralítið gagn.“ Á fjórhjóli yfir hálendið Jón Gunnar bjó um stund í foreldrahúsum og þurfti að hugsa framtíð sína upp á nýtt. Hann flutti suður aftur og dag einn þegar hann sat á kaffihúsi rakst hann á auglýsingu frá 66°N þar sem boðinn var styrkur til góðra verka. „Þeir buðu peningaupphæð, fatnað og búnað. Mín hugmynd var að fara á fjórhjóli yfir há- lendið til þess að skoða aðgengi í skálum fyrir fatlaða. Þetta verkefni var svo valið og úr varð ofboðslega skemmtileg ævintýraferð sem var farin í júlí 2009. Ég tók út aðgengið á þremur, fjórum stöðum á hálendinu og sótti í kjölfarið um styrk til þess að laga það sem betur mátti fara. Styrkurinn dugði til að bæta það sem þurfti,“ segir Jón Gunnar, sem hélt ótrauður áfram og fékk inni hjá Hugmynda- húsi háskólanna til að þróa hugmyndir sínar. „Þá stofnaði ég fyrirtækið Iceland Unlimi- ted og var í byrjun einn í því. Bróðir minn Kristján kom svo inn í það og kærastan mín Alicja, í dag unnusta,“ segir hann, en hún heitir fullu nafni Alicja Wiktoria Stokłosa og er jarðvarmatæknifræðingur frá Póllandi. „Við byggðum þetta upp og vorum í þrjú ár Við veiðina notar Jón Gunnar fjórhjól og segir bændur mjög skilningsríka og leyfa honum að ferðast þannig um landið til þess að hann geti veitt. Hann vekur gjarnan eftirtekt hjá túristum. Kamilla Björg unir sér vel í fanginu á pabba sínum. „Ég horfi björtum augum til framtíðar og hlakka til að sjá stelpuna mína vaxa úr grasi. Ég nýt þess að vera pabbi og ætla að standa mig vel í því. Hún er sjáaldur augna minna,“ segir Jón Gunnar. „Við hittumst á þorrablóti á Akureyri. Þorrablótið var fjölmennt og var mér vísað til sætis við hliðina á Jóni Gunnari. Svo gerðist eitthvað sem erfitt er að út- skýra,“ segir unnusta Jóns Gunnars, Alicja Wiktoria Stokłosa. „Þetta var eins konar ást við fyrstu sýn; einhver neisti sem kviknaði strax,“ segir hún og hlær. Hún segir hjólastólinn ekki hafa fælt sig frá þessum myndarlega Íslendingi. „Lengi kvölds tók ég ekkert eftir stólnum,“ segir hún. Nú hafa þau verið saman í átta ár og Alicja segir að þau láti ekki lömun Jóns Gunnars koma í veg fyrir að njóta lífsins. „Við reynum að lifa eðlilegu lífi og við reynum að gera það sama og önnur pör gera. Auðvitað eru hindranir; við getum ekki farið í fjallgöngur til dæmis, en þá reynum við að einblína á aðra hluti sem við getum gert saman. Við getum veitt saman og ferðast um heiminn.“ Alicja segir Jón Gunnar vera jákvæðan og ákveðinn einstakling. „Þegar hann ákveður að gera eitthvað er það klárað. Við erum ekki alltaf sammála um allt en finnum alltaf milliveginn. Hann kann að hlusta. Hann er líka stundum mjög þrjóskur en það er jákvætt því það hjálp- ar honum við daglegar athafnir. Við sem getum notað tvo fætur gerum okkur ekki grein fyrir öllum þeim hindrunum sem verða á vegi hans,“ segir hún. Kemst langt á þrjóskunni Jón Gunnar og Alicja fóru til Toskana á Ítalíu fyrr í sumar og fóru þá meðal annars að skoða skakka turninn í Písa. VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.