Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 14
B andaríkin eiga besta kvennalandslið heims í knatt- spyrnu. Það var endanlega staðfest á sunnudag fyr- ir viku þegar liðið vann lið Hollands nokkuð örugg- lega með tveimur mörkum gegn engu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Liðið hefur nú unnið tólf leiki í röð á heimsmeistaramóti, allt frá því að það gerði jafntefli við Svíþjóð fyrir fjórum árum. Síðan þá hefur liðið unnið alla sína leiki í venjulegum leiktíma; met og einstakt afrek. Yfir- burðir liðsins eru því óumdeilanlegir. Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, leikur í bandarísku atvinnumannadeildinni og er liðsfélagi fjögurra leikmanna úr bandaríska landsliðinu. Hún ræddi árangur liðs- ins á heimsmeistaramótinu við Morgunblaðið í liðinni viku og sagði líkamlegt ástand leikmanna skipta sköpum. „Allir leik- menn liðsins eru góðir á boltann og leikmenn liðsins eru í frá- bæru líkamlegu standi en þú verður að vera í toppformi ef þú ætlar að spila í bandarísku atvinnumannadeildinni. Gæði leik- manna liðsins leika vissulega stórt hlutverk en þegar allt kemur til alls þá er liðið einfaldlega í betra standi en önnur lið,“ sagði Dagný. Bandaríska liðið hefur nú unnið jafn marga heimsmeistara- titla, fjóra, og öll önnur landslið til samans. Auk þess hefur liðið náð einu af efstu þremur sætunum á hverju einasta heims- meistaramóti. Ekki nóg með það heldur hefur liðið unnið fjóra af þeim sex ólympíutitlum sem keppt hefur verið um í knatt- spyrnu kvenna. Rétt er að taka fram að engin aldurstakmörk eru sett á kvenkyns knattspyrnumenn á Ólympíuleikunum, ólíkt keppni karla þar sem aðeins 3 leikmenn mega vera yfir 23 ára aldri. Margar komust fyrir í hverju liði Margir hljóta þó að spyrja sig af hverju sigursælasta lið kvennaknattspyrnusögunnar skuli verða til hjá þjóð sem, samanborið við aðrar þjóðir, hefur lítinn áhuga á knattspyrnu og lætur sig varða meira íþrótt- ir sem hún hefur fundið sjálf upp á, eins og hafna- bolta og ruðning. Árið 1972 voru sett lög í Bandaríkjunum sem bönnuðu ríkisstyrktum mennta- og háskólum að mismuna á grunvelli kyns. Íþróttaiðkun Banda- ríkjamanna fer að mestu leyti fram í skólum á yngri árum og þess vegna þurfti að bjóða upp á fleiri íþróttir fyrir stelpur og ungar konur. Knattspyrna var sér- staklega aðlaðandi fyrir skólastjórnendur þar sem margar stúlkur gátu rúmast í hverju liði. Í kjölfar þessa og sigra bandaríska kvennalandsliðsins á fyrsta heimsmeistaramótinu 1991 og átta árum síðar, árið 1999, uxu vinsældir knattspyrnu gífurlega. Leikmenn eins og Mia Hamm nutu mikilla vinsælda og margar stúlkur vildu verða knattspyrnumenn. Svo margar að fjöldi stúlkna sem stunda knattspyrnu í menntaskóla hefur farið úr 700 árið 1971 í 376.000 árið 2014. En Bandaríkjamenn geta líka „þakkað“ kúgun kvennaknatt- spyrnu í öðrum löndum fyrir yfirburði sína. Til að mynda var konum bannað að leika knattspyrnu í Englandi til 1971, Þýska- landi til 1970 og Brasílíu til 1980. Knattspyrna er kvennaíþrótt í Bandaríkunum en karlaíþrótt alls staðar annars staðar, hefur Business Insider eftir sérfræðingi í knattspyrnu við Háskólann í Wisconsin-La Crosse, Eileen Narcotta-Welp. Þótt yfirburðir bandaríska liðisins séu aug- ljósir, bæði í sögu- og nútímalegu sam- hengi, og leikmenn annarra liða hafi ausið liðið lofi þá hefur það verið á milli tann- anna á fólki af fleiri ástæðum. Maður í manns stað Eftir 13-0 sigur gegn Taílandi í riðlakeppn- inni á heims- meist- ara- mótinu í ár voru leikmenn liðsins gagn- rýndir af gárungum og netverj- um fyrir að fagna mörkum sínum of mikið. Því næst var þjálf- arinn, Jill Ellis, gagnrýnd fyrir að hvíla of marga leik- menn liðsins gegn Síle, eins og sigurinn væri þegar í höfn. Lét varnar- maðurinn Ali Krieger hafa eftir sér eftir leik- inn, sem liðið vann að sjálf- sögðu, að liðið byggi yf- ir besta liði heims og því næst- besta. Dagný Brynj- arsdóttir sagði Bandaríkin einmitt með mjög breiðan hóp. „Þeir leikmenn sem koma inn á til dæmis eru alls ekkert lakari en þeir sem byrja leikina. Það eru ekki mörg landslið sem geta hrein- lega skipt út öllu byrjunarliðinu hjá sér og eru með jafn góða leikmenn á bekknum ef svo má segja,“ sagði Dagný. Breidd bandaríska liðsins kom bersýni- lega í ljós þegar Megan Rapinoe, helsti markaskorari liðsins og einn fyrirliða þess, meiddist og gat ekki leikið gegn Eng- landi í undanúrslit- unum. Christen Press kom þá inn í byrjunarliðið eftir að hafa vermt vara- mannabekkinn í upphafi allra leikja mótsins að leiknum gegn Síle undanskildum. Hún skoraði eftir 10 mínútna leik og skilaði mikilvægu hlutverki innan liðs- ins. Gripið um pung sér Þegar komið var í út- sláttarkeppnina var kastljósinu enn frekar beint að leikmönnum og fögn- um þeirra. Sjónvarpsmanninum umdeilda, Piers Morgan, þótti Megan Rapinoe ganga of langt í fangnaðarlátunum eftir mark sitt gegn Frakklandi í átta liða úrslitum þegar hún stillti sér upp og lyfti höndum. „Fröken Rapinoe elskar sjálfa sig svo sannarlega,“ sagði Morgan á Twitter-síðu sinni. Alex Morgan reitti einnig marga til reiði með fagni sínu gegn Englandi í undanúrslitum þegar hún þóttist drekka te. Síðarnefnd Morgan fór mikinn í fjölmiðlum vegna gagn- rýninnar og sagði hana endurspegla misræmi í væntingum til kynjanna. Hún sagði konur þurfa að fagna en vera um leið lágstemmdar og halda aftur af sér. „Þú sérð karlmenn, á stórmótum um allan heim, grípa um punginn á sér eða hvað það er sem þeir gera,“ sagði Morgan. Megan Rapinoe var hrókur alls fagnaðar á heimsmeist- aramótinu. Hér fagnar hún marki í úrslitaleiknum. Njóta ekki sömu virðingar og karlarnir Bandaríska landsliðið kom, sá og sigraði á heimsmeistara- mótinu í knattspyrnu kvenna sem lauk um síðustu helgi. Leikmenn liðsins héldu ekki aftur af sér innan vallar né utan á mótinu og vöktu athygli á því ójafnrétti kynjanna sem við- gengst á öllum stigum knattspyrnuhreyfingarinnar. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019 KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.