Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Side 15
Þó að Morgan hafi eflaust þónokkuð til síns máls þá virðist
sama gagnrýni ekki hafa átt við önnur lið á mótinu. Leikmenn
annarra liða virðast hafa sloppið við slíka gagnrýni að mestu, þó
þær fagni að sjálfsögðu mörkum sínum líka, sem bendir til þess
að hluti gagnrýnarinnar á þær bandarísku sé tilkominn vegna
yfirburða þeirra eða einfaldlega andlegarar þreytu áhangenda
á velgengni stórveldisins vestan við Atlantshafið.
„Ógeðslega“ góð í fótbolta
Áðurnefnd Rapinoe hefur líklega verið hvað mest í sviðsljósinu
af leikmönnum heimsmeistaramótsins. Hún var markahæst á
mótinu, valin besti leikmaður mótsins og valin maður úrslita-
leiksins gegn Hollandi.
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, deildi
raunum sínum af því að spila gegn Rapinoe með Morgun-
blaðinu í liðinni viku. „Ég lenti einu sinni í því að þurfa að spila
bakvörð á móti henni og það var hægara sagt en gert þar sem
hún er jafnvíg á báða fætur. Ég endaði á að spila 90 mínútur á
móti henni en ég hélt satt best að segja að mér yrði skipt af velli
eftir tuttugu mínútur. Hún er ógeðslega góð í fótbolta og mér
fannst hún góð fyrir en eftir að ég spilaði á móti henni áttaði ég
mig fyrst á því hversu góður knattspyrnumaður hún er í raun
og veru,“ sagði Dagný meðal annars.
Rapinoe hefur ekki látið sér nægja að heilla knattspyrnuunn-
endur með knattspyrnuhæfileikum sínum. Hún tók stóran þátt
í að skipuleggja undibúin fagnaðarlæti liðsins og gaf lítið fyrir
þá sem gagrýnt hafa liðið fyrir of mikinn æsing á því sviði. Meg-
an, sem sjálf er samkynhneigð, hefur einnig tjáð sig um réttindi
samkynhneigðra. „Þú vinnur ekki titla án samkynhneigðra leik-
manna í liðinu þínu, það hefur aldrei verið gert áður, aldrei! Það
er vísindaleg staðreynd,“ sagði Rapinoe eftir sigur á Frökkum í
átta liða úrslitum.
Fer ekki í „fjandans“ Hvíta húsið
Þá hefur Rapinoe átt í útistöðum við Donald Trump Banda-
ríkjaforseta og sagðist, þegar keppni á mótinu var um það bil
hálfnuð, ekki ætla í „fjandans Hvíta húsið“ yrði liðinu boðið
þangað þegar og ef það ynni heimsmeistaratitilinn. Trump, sem
svaraði á Twitter eins og honum einum er lagið, sagði Rapinoe
eiga að einbeita sér að því að vinna áður en hún afþakkaði boð
frá sér. Hann hélt áfram og bauð liðinu, óháð úrslitunum á
mótinu, að koma í Hvíta húsið. „Megan ætti ekki að sýna land-
inu, Hvíta húsinu eða þjóðfánanum vanvirðingu. Sérstaklega í
ljósi þessi hversu mikið hefur verið gert fyrir hana og liðið.
Vertu stolt af fánanum,“ sagði hann ennfremur.
Að liðið muni þiggja boð forsetans verður að teljast ólíklegt
en mörg meistaralið í Bandaríkjunum, til að mynda körfubolta-
liðið Golden State Warriors, hafa ekki þegið slíkt boð eftir að
Trump tók við forsetaembættinu.
Ójafnrétti innan knattspyrnuhreyfingarinnar
Það sem hefur þó verið á flestra vörum er launamisrétti
innan knattspyrnuhreyfingarinnar og hafa leikmenn
bandaríska liðsins, einkum Rapinoe, nýtt sviðs-
ljósið til að vekja athygli á því máli.
Í mars síðastliðnum hófu 28 leikmenn sem
tekið hafa þátt í verkefnum liðsins mála-
ferli fyrir dómstólum í Bandaríkjunum
vegna kynjamisréttis. Lýstu
leikmennirnir í kæru sinni
„stofnanavæddu mis-
rétti“ sem þær segja
hafa viðgengist í
áraraðir. Ekki að-
eins væru laun leik-
manna ólík milli kynja
heldur væri einnig keppnis- og æf-
ingaaðstæðum, læknisþjónustu og
meira að segja ferðamáta ábótavant.
Milli karla- og kvennalandsliðs
þeirra bandarísku er erfitt að greina
nákvæmlega hvort misrétti eigi sér
stað í launagreiðslum. Greiðslurnar eru
ákvarðaðar af ólíkum samningum sem
leikmannasamtök karla annars vegar
og kvenna hins vegar hafa gert. Karl-
arnir fá til að mynda aðeins greitt ef
þeir spila leiki (eða verma varma-
mannabekk) liðsins á meðan stór
hluti launa kvennanna er föst
greiðsla, óháð leikjafölda og ár-
angri.
Nýlegur samningur leikmanna
kvennaliðsins færði þeim hærri
laun en áður og er nú svo komið að
konurnar fá að meðaltali hærri
laun en karlarnir. Hins vegar
spila karlarnir bæði færri leiki og
hafa ekki náð sama árangri inni á
knattspyrnuvellinum. Síðustu ár hef-
ur kvennaliðið auk þess aflað meiri
tekna en karlaliðið. Það sem er líklega
hvað mest aðkallandi varðandi ólík laun kynjanna eru bón-
usgreiðslur leikmanna. Leikmenn karlaliðsins fá til að mynda
mun hærri greiðslur fyrir að komast á heimsmeistaramót.
Ekki sanngjart
Launamismunurinn endurspeglar þann mikla mun sem er á
fjármagni í kvenna- og karlaknattspyrnu. Verðlaunafé heims-
meistaramótsins í ár var 30 milljónir dollara, tvöfalt meira en
fyrir fjórum árum. Til samanburðar var verðlaunafé á heims-
meistaramótinu í knattspyrnu karla í fyrra 400 milljónir doll-
ara, rúmlega 13 sinnum meira. Gianni Infantino, forseti FIFA,
hefur lofað að tvöfalda verðlaunafé kvennanna fyrir næsta
heimsmeistaramót, árið 2023. Á sama tíma mun verðlaunafé
karlanna hækka um 40 milljónir.
„Það er alls ekki sanngjarnt. Við ættum að tvöfalda það
strax, og nota síðan þá tölu til að tvöfalda eða fjórfalda það
næst. Þetta er það sem ég á við þegar ég segi að okkur finnist
við ekki njóta virðingar. Ef þið berið jafnmikla umhyggju fyrir
leiknum, hvar sem er, hvers vegna leyfið þið þá þessu bili að
breikka? Ég er ekki að segja að verðlaunaféð hjá okkur ætti að
fara beint í 450 milljónir núna eða næst. Ég veit að af ýmsum
ástæðum er karlaknattspyrnan komin fjárhagslega lengra en
kvennaknattspyrnan,“ sagði Rapinoe á blaðamannafundi dag-
inn fyrir úrslitaleikinn um síðustu helgi.
Óvirðingin óásættanleg
Rapinoe er auk þess ósátt við þá óvirðingu sem kvennaknatt-
spyrnan fær frá samtökum eins og FIFA. Úrslitaleikurinn um
liðna helgi fór til að mynda fram á sama degi og úrslitaleikir
álfukeppna Suður-Ameríku annars vegar og Mið- og Norður-
Ameríku hins vegar, báðir í karlaknattspyrnu. „Þetta er hræði-
legt plan fyrir alla. Fyrir þá sem vinna við fótboltann eða spila
fótbolta er hræðileg hugmynd á allan hátt að setja þessa þrjá
úrslitaleiki alla á sama daginn,“ sagði Rapinoe á áðurnefndum
blaðamannafundi. „Ég tel að við njótum ekki sömu virðingar og
karlarnir hjá FIFA.“
Þrátt fyrir þetta hafa vinsældir kvennknattspyrnu aukist
mikið síðustu árin. Bæði mæta fleiri á leiki sem og er sjónvarps-
áhorf meira en áður. Grundvöllur ætti því að vera fyrir því að
auka verðlaunafé og þar með launagreiðslur leikmanna.
Auknar vinsældir þýða einnig aukin tækifæri fyrir leikmenn,
þá sérstaklega leikmenn bandaríska liðsins sem eru mikið í
sviðsljósinu, að koma sjálfum sér á kortið. Þetta getur tryggt
þeim auknar auglýsingatekjur sem og að aukin sala á keppn-
istreyjum og öðrum varningi merktum viðkomandi leikmanni
getur skilað talsverðum tekjum. Fyrir stjörnur eins og Rapinoe
og Morgan geta tekjurnar skipt hundruðum þúsunda dollara á
ári. Til að nýta sér þetta hafa margir leikmenn stofnað fyrir-
tæki til að koma sér á framfæri.
Söluhæsta treyja sögunnar
Svo mikið hafa vinsældirnar aukist að treyja bandaríska liðsins
er nú sú söluhæsta á Nike.com á einu tímabili í sögunni. Þá eru
allar keppnistreyjur Nike taldar með, karla og kvenna.
Bandaríska liðið hefur því skákað liðum eins og Barce-
lona, franska landsliðinu, sem varð heimsmeistari karla
í fyrra, og fleiri stórum liðum. Næstum tveir þriðju
allra liða á heimsmeistaramótinu í ár klæddust treyj-
um frá Nike og fólk virðist vera með á nótunum því
Nike selur nú flesta íþróttabrjóstahaldara í Norður-
Ameríku í fyrsta sinn.
Rústaði lyfjaprófi
Fáir eiga stærri þátt í þessari þróun en Megan
Rapinoe en hún virðist njóta sín í sviðsljósinu,
er óhrædd við að láta skoðanir sínar í ljós
og heillar áhorfendur með húmor og
skemmtilegum persónuleika. Hún mætti
seint á blaðamannafund eftir úrslitaleik-
inn um síðustu helgi vegna lyfjaprófs og
þegar hún loks mætti á fundinn sagði hún
galvösk: „Hæ! Ég rústaði þessu lyfjaprófi
ef einhver hafði áhyggjur.“
Þjálfari bandaríska liðsins, Jill Ellis,
og liðsfélagar Rapinoe halda auk þess
varla vatni yfir henni. Christen Press,
sem kom inn í byrjunarlið liðsins fyrir
Rapinoe fyrir undanúrslitaleikinn, er ein
þeirra. „Það hefur verið stórkostlegt að
sjá hversu óhrædd hún er þegar komið
er á stærsta sviðið. Hún hörfar ekki, hún
verður ekki lítil í sér, heldur gerir hið
andstæða: Hún verður enn stærri.“
Þegar Infantino gekk inn á völlinn eftir
úrslitaleikinn og gerði sig líklegan til að
veita leikmönnum verðlaun sín byrjuðu
áhorfendur á Stade de Lyon í Frakklandi
að hrópa í kór. „Jöfn laun, jöfn laun,“
mátti heyra áhorfendur kalla. Nokkrum
mínútum síðar tók Rapinoe í höndina á
Infantino áður en hún tók á móti verð-
launum sínum. Infantino stakk þá upp á
því að þau ræddu saman. „Ég myndi gjarnan vilja
það,“ svaraði Megan Rapinoe.
Alex Morgan fagnaði marki
sínu gegn Englendingum í und-
anúrslitum á umdeildan hátt.
AFP
Haldin var skrúðganga fyrir
heimsmeistarana í New York á
dögunum þar sem leikmenn
brugðu á leik og fögnuðu með
stuðningsmönnum sínum.
14.7. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15