Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019 LÍFSSTÍLL Ég fékk þau skilaboð í gær aðsíðasti kerfillinn væri fall-inn,“ segir Jón Páll Hreins- son, bæjarstjóri Bolungarvíkur, en íbúar bæjarfélagsins hafa staðið að áralöngu átaki til að vinna bug á þessu ágenga illgresi. Facebook-hópurinn Kerfilinn burt úr Bolungarvík var stofnaður fyrir sjö árum af áhugasömum bæj- arbúum, en hópurinn hefur vaxið með hverju árinu og orðið að sam- félagslegu átaki. „Þar sem kerf- illinn er ágeng teg- und gerir hann gróðurfarið eins- leitt, sem er ekki eftirsóknarvert fyrir okkur sem búum í Bolungar- vík,“ segir Jón Páll. „Þetta er sjálfs- prottið átak sem hefur hlaðið utan á sig. Þetta hófst þegar fólk byrjaði að birta „fyrir og eftir“ myndir af görðum og skurðum sem voru fullir af kerfli, svo tveimur tímum seinna var enginn kerfill eftir,“ segir Jón Páll. „Þetta varð eiginlega „viral“, ef maður getur notað orðið „viral“ í þúsund manna samfélagi.“ Hefur brotið niður múra Jón Páll segir mikla samheldni ríkja í bæjarfélaginu. „Þetta er að mörgu leyti mjög skemmtileg stemmning því allir múrar hafa brotnað niður. Stundum er einhver ekki heima eða hefur ekki tök á að hreinsa garðinn sinn sjálfur, þá fer fólk bara inn í garð- inn, tekur kerfilinn, setur hann fyrir utan, birtir mynd af dauðri kerfils- hrúgu á netinu og það er tekið dag- inn eftir,“ segir Jón Páll. „Á Fa- cebook-hópnum sér maður svo myndir þar sem sést í rassinn á ein- hverjum sem er að rífa upp kerfil í einhverjum garði sem hann á ekki. Þetta er bara þannig verkefni.“ Bæjarráð Bolungarvíkur tók átakið svo alvarlega að í byrjun mánaðar var bæjarráðsfundur hald- inn í kerfilsbeði. „Í geggjuðu veðri var farið upp í kerfilsbreiðu og á meðan menn ræddu bæjarmálin réðumst við á kerfilinn og rifum hann upp með höndunum,“ segir Jón Páll. Grísir í lykilhlutverki Bolvíkingum hefur nú tekist að gera kerfilinn útlægan úr bænum, en gylturnar Gná og Glóð voru fengnar til að aðstoða íbúa við verkefnið. „Þær eru miklar fjölmiðlastjörn- ur í Bolungarvík, mest deildu mynd- ir á samfélagsmiðlum í Bolungarvík eru af þeim. Ég held ég hafi aldrei keyrt framhjá gerðinu þeirra án þess að sjá einhvern í heimsókn,“ segir Jón Páll. „Það sem er frábært við þetta verkefni er að allur kerfillinn er far- inn. Það hefur aldrei gerst áður,“ segir Jón Páll. „Þótt ég sé bæjar- stjóri er aðkoma mín að þessu bara sem íbúi. Fólkið í bænum er búið að vera ótrúlega duglegt, og þessi hóp- ur, íbúarnir, sveitarfélagið og Gná og Glóð eru loksins búin að klára síðasta kerfilinn. Ég er stoltur af þeim íbúum sem hófu þetta átak í Bolungarvík og ég er stoltur af samfélaginu sem sýnir hvað það er hægt að gera þegar fólk stendur saman.“ Jón Páll segir að bærinn sé í spennufalli, enda hafi verkefnið spil- að stóran sess í bæjarlífinu. „Hvað gerir maður þegar HM er búið og Eurovision er búið? Þetta er kannski svipað.“Grísirnir Gná (til vinstri) og Glóð (til hægri) spiluðu lykilhlutverk í átakinu. Ljósmynd/Helgi Hjálmtýsson Ljósmynd/Jón Páll Hreinsson Ljósmynd/Helgi Hjálmtýsson Síðasti kerfill- inn fallinn Íbúar Bolungarvíkur hafa tekið höndum saman og rifið upp hvern einasta kerfil í bænum. Bæjar- stjóri segir samkennd hafa aukist við átakið. Pétur Magnússon petur@mbl.is Jón Páll Hreinsson Íbúar hafa unnið hörðum höndum að því að rífa upp illgresið. vansvottuð etra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Ný kynslóð málningarefna ONE SUPER TECH S b u Byggir á nanótækni - sjálfhreinsandi u Fyrir við, bárujárn og innbrenndar klæðningar u Þekur ótrúlega vel u Endist margfalt á við önnur málningarkerfi Veldu betri málningu Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.