Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Page 28
FRÆGIR Tónlistarmaðurinn Kanye West hefur í hyggju að byggja hús fyrir heim- ilislausa. Þetta kemur fram í nýju viðtali West við tímaritið Forbes. Engar myndir hafa birst af prótótýpum húsa tónlistar- mannsins en í viðtalinu segir West frá því að hann hafi sótt ákveðinn innblástur í form húsanna á eyðimerkurplánetunni Tatooine, heimili Luke og Anakin Skywalker í Star Wars- seríunum. Star Wars-þema fyrir heimilislausa AFP Skartgripir og fylgihlutir hafa nokkrum sinnum átt þátt í söguþráðum þekktra kvikmynda. Þrátt fyrir að listinn sé ekki tæmandi er ekki úr vegi að rifja upp nokkra af eftirminnilegustu skartgripum kvikmyndasögunnar. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Skartgripirnir í Gentlemen prefer blondes Kvikmyndin Gentlemen Prefer Blondes frá árinu 1953 er sögð hafa haft hvað mest áhrif á skartgripatískuna en þar á eftir fylgir kvikmyndin Breakfast at Tiffany’s. Til að mynda var ekki algengt, fyrir tíma kvik- myndarinnar, að trúlofunarhringar skörtuðu demanti, sem nú til dags er mjög algengt. Í einu frægsta atriði kvikmyndarinnar, þar sem Marilyn Monroe syngur lagið Diamonds Are a Girl’s Best Friend, ber hún þó- nokkur demantshálsmen. Eitt af þeim menum kallast The Moon of Baroda sem er 24,04 karata, perulaga, gulur demantur. Demanturinn tilheyrði konungsfjölskyldunni Gaekwad Maharajas á Indlandi í um 500 ár. Demanturinn hefur meðal annars verið í eigu Maríu Teresu af Aust- urríki og Meyer Rosenbaum, forseta Meyer Jewelry Company. Dem- anturinn var seldur á uppboði árið 2018 á 1,3 milljónir bandaríkjadala. Rolex-úr James Bond Þrátt fyrir að einn smekk- vísasti maður kvikmyndasög- unnar, James Bond, hafi gengið með nokkrar tegundir armbandsúra í kvikmyndunum um 007, eru Rolex-úr njósnarans eflaust þau eftirmminnilegustu. Bond bar Rolex í fyrstu kvikmyndunum eða frá kvikmyndinni Dr. No, frá árinu 1962, að The Man With The Golden Gun, frá árinu 1974, þar að auki er Rolex það úr sem nefnt er í bókunum eftir Ian Fleming. Leikarinn Sean Connery bar Rolex Submarinern í kvikmynd- inni Dr. No, vatnshelt úr, sem hent- aði njósnaranum eflaust vel. Perlufesti Audrey Hepburn í Break- fast at Tiffany’s Perlufestin sem Audrey Hepburn ber í upphafssenu kvikmyndarinnar Breakfast at Tiff- any‘s, frá árinu 1961, er hönnun franska skartgripahönnuð- arins Roger Scemama. Scemama vann mikið með há- tískuhúsum á borð við Givenchy, Dior og Yves Saint Laur- ent. Kjóllinn sem leikkonan klæðist, og er líklega frægasti „litli svarti kjóll“ kvikmyndasögunnar, er hannaður af Hubert de Gi- venchy. Fellur perlu- hálsmenið full- komlega að hálsmáli kjólsins að aftan- verðu og vekur frek- ari athygli á vönd- uðu sniði kjólsins. Þess má geta að Hepburn bar enga skartgripi frá Tiff- any‘s & co. í kvik- myndinni sem dreg- ur nafn sitt af því fræga hönnunarhúsi. Skartgripir stjarnanna 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019 LESBÓK TÓNLIST Í tilefni af 50 ára afmæli lagsins Space Od- dity eftir David Bowie, hefur Mattel útbúið Barbie- dúkku eftir skrautlegu hliðarsjálfi tónlistarmannsins, Ziggy Stardust. Barbie-dúkkan er klædd í þröngan glansandi „geimbúning“, í rauðum, háum stígvélum, með stjörnulaga silfureyrnalokka, svartlakkaðar negl- ur, dökkrautt hár greitt aftur og gylltan hring málaðan á ennið í stíl Ziggy Stardust. Klæðnaðurinn er nákvæm eftirmynd þess sem David Bowie klæddist á tónleikum árið 1973 þar sem hann kom fram sem Ziggy Stardust. Lagið Space Oddity kom út árið 1969 en Bowie kynnti Ziggy Stardust til sögunnar 1972 með plötunni The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders From Mars. Ziggy Stardust barbie Að sjálfsögðu er Barbie Bowie aðdáandi. Kanye West stefnir á að byggja heimili í anda Star Wars.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.