Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2019, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2019
07.00 Strumparnir
07.25 Tindur
07.35 Heiða
08.00 Mæja býfluga
08.15 Víkingurinn Viggó
08.25 Blíða og Blær
08.50 Latibær
09.10 Skoppa og Skrítla á
póstkorti um Ísland
09.30 Tommi og Jenni
09.50 Ævintýri Tinna
10.10 Lukku láki
10.35 Ninja-skjaldbökurnar
11.00 Friends
11.20 Ellen
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Ellen’s Game of Games
14.25 Fósturbörn
14.50 I Feel Bad
15.15 Friends
15.45 Splitting Up Together
16.10 Seinfeld
16.30 Seinfeld
16.55 Masterchef USA
17.40 60 Minutes
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.05 Britain’s Got Talent
20.15 Britain’s Got Talent
20.40 GYM
21.05 Big Little Lies
22.00 Absentia
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Danshljómsveit Frið-
jóns Jóhannssonar
20.30 Eitt og annað: fra
Fjarðarbyggð
21.00 Nágrannar á norð-
urslóðum (e)
21.30 Eitt og annað (e)
endurt. allan sólarhr.
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
20.00 Ísland og umheimur
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta
21.00 Skrefinu lengra
21.30 Bankað upp á
endurt. allan sólarhr.
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Amazing Hotels: Life
Beyond the Lobby
18.25 George Clarke’s Old
House, New Home
19.15 Strúktúr
19.45 Speechless
20.10 Madam Secretary
21.00 The First
21.50 Jamestown
22.40 Kidding
23.10 SMILF
23.40 Escape at Dannemora
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Ljóðabókin syngur I.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta úr
Skinnastaða-
prestakalli.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Tengivagninn.
15.00 Grár köttur.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar evr-
ópskra útvarpsstöðva.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Blindfull á sólríkum
degi.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.28 Minnsti maður í heimi
07.29 Sara og Önd
07.36 Húrra fyrir Kela
07.59 Hæ Sámur
08.06 Söguhúsið
08.14 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.21 Hvolpasveitin
08.44 Alvinn og íkornarnir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.17 Sígildar teiknimyndir
09.24 Líló og Stitch
09.45 Reikningur
10.00 Skollaeyja
10.25 Hið sæta sumarlíf
10.55 Attenborough: Stórir
fuglar
11.45 Leitin að framúrskar-
andi vinkonu
12.40 Sumarævintýri Húna
13.05 Maður er nefndur
13.40 Pricebræður bjóða til
veislu
14.10 Sælkeraferðir Ricks
Stein – Kaupmanna-
höfn
15.10 Tónlistarsaga Evrópu
16.40 Útlendingur heima
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.30 Skollaeyja
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Íslendingar
20.45 Viktoría
21.35 Íslenskt bíósumar: Gull-
sandur
23.05 Brain on Fire
10 til 11 Þingvellir Páll Magnússon og Björt Ólafs-
dóttir stýra líflegum þjóðmálaþætti í beinni útsend-
ingu á K100 alla sunnudagsmorgna.
11 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar rifj-
ar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni viku,
spilar góða tónlist og spjallar við hlustendur.
14 til 17 100% Tónlistinn Siggi Gunnars fer yfir 40
vinsælustu lög landsins. Tónlistinn er unninn upp úr
gögnum frá Félagi hljómplötuframleiðanda og er eini
opinberi vinsældalisti landsins..
17 til 00 K100 tónlist
„Gengið af Göflunum“
er góðgerðarverkefni
sem sett var í gang fyrir
tveimur árum en þá
gengu slökkviliðsmenn
Slökkviliðs Akureyrar
Eyjafjarðarhringinn í
fullum herklæðum með
reykköfunarbúnað. Nú
ætla sex slökkviliðs-
menn af öllu landinu að
hlaupa 340 km boðhlaup um verslunarmannahelgina,
frá Slökkviliði Akureyrar yfir Sprengisand og enda í
húsakynnum Brunavarna Árnessýslu á Selfossi.
Slökkviliðsmaðurinn Hörður Halldórsson ræddi við Ís-
land vaknar um þetta risaverkefni en öll fjárframlög
renna óskipt til barnadeildar Sjúkrahússins á Ak-
ureyri. Viðtalið má nálgast á k100.is.
Gengið af Göflunum
Bandaríska tímaritið Mad Ma-gazine leggur í haust upplaupana. Blaðið kom fyrst út
árið 1952 og náði útbreiðsla þess há-
marki rúmum tuttugu árum síðar,
árið 1973, þegar áskrifendur voru
2,8 milljónir talsins. Blaðinu fylgdi
ferskur tónn og því var ekkert heil-
agt. 2017 var fjöldi áskrifenda hins
vegar kominn niður í 140 þúsund.
Áhrif blaðsins eru ómæld og mót-
aði það nokkrar kynslóðir grínista í
Bandaríkjunum og jafnvel víðar.
Það hafði áhrif á þættina Saturday
Night Live og höfunda þáttanna um
Simpson-fjölskylduna. Josh Wein-
stein, einn af höfundum Simpson-
þáttanna, þakkaði blaðinu fyrir að
hafa veitt mörgum kynslóðum grín-
ara innblástur og ekki síst fyrir alla
skemmtunina: „Það var augnablik í
barnæsku svo margra okkar sem þið
voruð frábærastir af öllu.“
Ekkert var blaðinu heilagt. Í því
var öllu tekið með fyrirvara, en þó
var það laust við illkvittni og mein-
fýsi. Í upphafi var spjótunum beint
að bandarískri poppmenningu og
vaxandi úthverfavæðingu Banda-
ríkjanna. Minnast margir þess að
blaðið hafi afhjúpað heim fullorðna
fólksins á unglingsárum þeirra.
Upphafsmenn blaðsins voru Willi-
am M. Gaines, eigandi lítillar
myndablaðaútgáfu, EC Comics, og
ritstjórinn Harvey Kurtzman. Árið
1956 tók Al Feldstein við
ritstjórnartaumunum og hélt um þá
á mesta velgengnisskeiði blaðsins
allt fram á níunda áratuginn.
Alfred E. Neuman var strákslegt
andlit blaðsins og prýddi forsíður
þess, galgopaleg teiknipersóna með
freknur og útstæð eyru og skelmis-
legt bros, sem í vantaði eina fram-
tönn. Donald Trump Bandaríkja-
forseti líkti Paul Buttigieg, einum
þeirra sem sækjast eftir að verða út-
nefndur forsetaefni demókrata, við
Neuman og bætti við: „Alfred E.
Neuman getur ekki orðið forseti
Bandaríkjanna.“ Buttigieg hváði og
sagðist viðurkenna að hann hefði
þurft að gúgla Neuman. Hefur þetta
verið haft til marks um hverfandi
vinsældir blaðsins.
Eftirminnilegir teiknarar
Blaðið var þekkt fyrir ýmsa fasta
þætti og frábæra teiknara. Einn
þeirra var Don Martin, sem í blaðinu
fékk reglulega útrás fyrir furðulegt
og einstakt skopskyn sitt og fór ekki
síst á kostum í myndrænni fram-
setningu hljóða.
Mort Drucker var teiknarinn á
bak við reglulegar skopstælingar á
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Á
þeim tímum sem bíómyndir voru
ekki sýndar í íslenskum kvikmynda-
húsum fyrr en þær voru orðnar
þriggja ára gamlar voru útdrætt-
irnir úr þeim í Mad Magazine iðu-
lega helsta heimild Íslendinga um
það markverðasta í kvikmyndaheim-
inum – og jafnvel eftirminnilegri en
myndirnar sjálfar.
Kalda stríðinu voru gerð skil í
myndaseríunni Spy vs. Spy um tvo
njósnara með langa gogga og háa
hatta, sem voru nákvæmlega eins að
öðru leyti en því að annar var hvít-
klæddur og hinn svartklæddur. Þeir
skiptust á að klekkja hvor á öðrum
og mættu síðan galvaskir og fíl-
hraustir í næstu viðureign. Höf-
undur þeirra var Antonio Prohías,
sem hafði skapað sér nafn með
ádeiluteikningum á Kúbu og flúði
þaðan til Bandaríkjanna árið 1960,
aðeins nokkrum dögum áður en
Fidel Castro tók síðustu frjálsu fjöl-
miðlana í landinu eignanámi.
Gerðu grín að meirimáttar
Al Jaffee teiknaði einna lengst í
blaðið og var þekktastur fyrir bak-
síðumyndir, sem voru eins konar
sjónhverfing. Þar var um að ræða
teikningu, sem varð að einhverju allt
öðru þegar síðan var brotin saman.
Var þetta svar við samanbrotnu fyr-
irsætumyndinni í blaðinu Playboy.
Jaffee er nú 98 ára. Hann sagði að
Mad hefði skorið sig úr vegna þess
að það hefði lagt í þá sem meira
máttu sín. „Við gerðum grín að
stofnunum, eins og auglýsinga-
bransanum – afvegaleiðandi auglýs-
ingum á borð við tóbaksfyrirtæki,
sem auglýstu að sígarettur væru
mýkjandi fyrir hálsinn,“ sagði hann.
Drew Friedman hefur teiknað í
blaðið frá 1994. Hann sagði að blaðið
hefði verið eins og biblía fyrir eftir-
stríðskynslóðirnar: „Þar fannstu
veruleikann í mínum huga.“
Síðasta tölublað Mad Magazine
kemur út í september. Upp frá því
mun Mad koma út einu sinni á ári í
árslok með úrvali efnis úr 67 ára
sögu blaðsins. Mad Magazine er í
eigu DC Comics, sem varð deild í
skemmtanafyrirtækinu Warner
Bros. skömmu fyrir aldamót. Nú er
DC í eigu samskiptafyrirtækisins
AT&T, sem í fyrra keypti Time
Warner. Blaðið hefur því verið í eigu
fyrirtækja á borð við þau sem
löngum hafa verið skotspónn þess.
Nokkrar forsíður frá mektarárum bandaríska grínblaðsins Mad Magazine.
Morgunblaðið/kbl
TÍMARITIÐ MAD MAGAZINE HÆTTIR
„Þar fannstu
veruleikann“