Morgunblaðið - 13.08.2019, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. Á G Ú S T 2 0 1 9
Stofnað 1913 188. tölublað 107. árgangur
MORGUNBLAÐS-
DROTTNINGIN
VEKUR ATHYGLI
SIGRAÐI Í
STANGARSTÖKKI
Í SKOPJE
TÓNLEIKAR ED
SHEERAN SLÓGU Í
GEGN Í LAUGARDAL
HULDA ÞORSTEINSDÓTTIR 27 TIL Í ENN MEIRA 10, 29SENUÞJÓFUR Í DRAGKEPPNI 4
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, stakk sér til sunds í
gærkvöldi með Marglyttunum svonefndu, en það er hópur
kvenna sem ætla að synda boðsund yfir Ermarsund í sept-
ember og safna styrkjum og áheitum sem renna til Bláa hers-
ins, umhverfisverndarsamtaka sem leggja áherslu á baráttu
við plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum, hvatningu
og vitundarvakningu. Forsetinn synti stutta vegalengd á móti
Marglyttunum frá Bessastaðanesi og aftur í land. Konurnar
lögðu af stað frá Ægisíðu og syntu yfir Skerjafjörðinn og á
Bessastaðanes. Þeim fylgdu tveir kajakar og bátur frá björg-
unarsveitinni Ársæli.
Marglytturnar eru alls sex. Í hópnum eru Birna Bragadótt-
ir, Sigrún Þ. Geirsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir, Sigurlaug
María Jónsdóttir, Halldóra Gyða Matthíasdóttir og Þórey Vil-
hjálmsdóttir. Sem fyrr sagði stefna þær á að ná yfir Ermar-
sundið í sameiningu, en markmiðið með sundferðinni er að
vekja athygli á áhrifum plastmengunar á lífríki sjávar og mik-
ilvægi þess að vernda auðlindir hafsins. Ástand sjávar þar
mun vera mjög slæmt, en Ermarsundið hefur verið kallað
„Mount Everest sjósundfólks“. Leiðin er um 34 kílómetrar,
milli borganna Dover í Englandi og Calais í Frakklandi. Flest-
ir synda þó lengra þegar upp er staðið, jafnvel tvöfalt lengra,
vegna strauma. Áætlaður sundtími er 16-18 klukkstundir og
syndir hver og ein kvennanna eina klukkustund í einu.
Forsetinn stakk sér til sunds með „Marglyttum“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
því líður, jafnvel þótt ekki náist tilskil-
inn fjöldi, þá finnst mér núna vera
komin sú staða að menn hljóti að vilja
stoppa og hlusta, en ekki loka aug-
unum og böðlast áfram,“ segir Elliði
sem veltir fyrir sér „flokkslegum
hagsmunum“ í þessu samhengi. „Ég
hef trú á því að forystan sjái málið
þessum sömu augum og láti ekki
reyna á þetta. Afstaða mín í þessu
máli er hvergi til marks um að ég
treysti ekki forystunni. Ástæðan fyrir
því að ég hef ekki skrifað undir er trú
mín á því að menn staldri við og
bregðist við stöðunni,“ segir Elliði
sem telur málið bera það með sér að
enginn tali fyrir því af einlægni. „Ég
leyfi mér að efast um að einn einasti
þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefði
flutt þetta mál ef ekki væri fyrir til-
Guðni Einarsson
Jón Birgir Eiríksson
Viðhorf formanna fulltrúaráða og
hverfafélaga í Sjálfstæðisflokknum er
á báða bóga með tilliti til þriðja orku-
pakkans. Forysta flokksins ræðir
stjórnmálaviðhorfið á u.þ.b. fimmtán
fundum með samflokksmönnum sín-
um á næstunni. Ætla má að orku-
pakkann beri helst á góma.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölf-
usi, er þeirrar skoðunar að best sé að
þingflokkur og forysta staldri við og
vísi málinu t.a.m. til sameiginlegu
EES-nefndarinnar. Hann hefur ekki
tekið þátt í undirskriftasöfnun sem nú
fer fram þar sem það er lagt til.
„Það þarf ofboðslega margar und-
irskriftir til að þetta náist. Hvað sem
skipun EES. Það sýnir hvers eðlis
málið er.“
Ólafur Hafsteinn Jónsson, formað-
ur fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í
Árborg, segir skiptar skoðanir á mál-
inu þar „eins og annars staðar“. „Ég
get svo sem ekki tjáð mig hvort það sé
meira eða minna um annað eða hitt
hér,“ segir hann. „Þetta snertir Ár-
nessýslu mikið vegna þess að stór
hluti orku landsins er framleiddur
hér.“ Fundað verður með sjálfstæð-
ismönnum í Árborg á laugardag, en
Ólafur Hafsteinn kveðst sjálfur ekki
hafa myndað sér skoðun.
Hilmar Gunnlaugsson, formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðismanna á
Fljótsdalshéraði, kveðst ekki vera í
stöðu til að tala fyrir alla sjálfstæð-
ismenn þar. „En ég hef kynnt mér
þetta mál vel og tel að menn séu bein-
línis að fara rangt með það hvað felst í
þessum pakka. Eftir að hafa menntað
mig sérstaklega á þessu sviði tel ég
mig hafa ákveðna þekkingu á því og
hef þess vegna myndað mér skoðun á
málinu. Ekki á grundvelli pólitíkur,“
segir Hilmar, en hann er með meist-
aragráðu í orkulögfræði. „Það virðist
mest talað um hættuna á sæstreng.
Það er ekkert sem breytist við heim-
ild manna til að leggja sæstreng við
þriðja orkupakkann nema að ef þessir
varnaglar verða að veruleika, verði
þriðji orkupakkinn samþykktur, þá
verður það erfiðara,“ segir hann, en
fundað verður um stjórnmálaviðhorf-
ið á Fljótsdalshéraði á fimmtudag.
Skipa sér í tvær fylkingar
Enginn sjálfstæðismaður talar af einlægni fyrir orkupakka þrjú, segir Elliði
MSkiptar skoðanir… »6