Morgunblaðið - 13.08.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Bamix töfrasproti
Verð 35.900 kr.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég vann dragkeppnina 2014 og
ákvað að fara sem áhorfandi í ár og
vera meira áberandi og líta betur út
en keppendur. Það tókst með
moggakjól og hatti,“ segir Gloria
Hole dragdrottning sem mætti á
keppnina í kjól með hatt sem hún
gerði úr 80-100 Morgunblöðum.
„Ég valdi Morgunblaðið því
drottningar ganga ekki í fríblöðum.
Hugmynd að kjól úr dagblaði kvikn-
aði fyrir nokkru en mig langaði að
vera í stórum kjól með stóran hatt;
einhverju sem væri nýtt og frumlegt
svo það færi ekki fram hjá neinum
þegar ég væri mætt á svæðið,“ segir
Gloria, sem vildi ekki hafa kjólinn of
þungan og datt í hug að nota dagblöð
í hann. Hún bjóst ekki við að kjóllinn
yrði eins þungur og raun bar vitni né
að hatturinn tæki á sig vind, sem olli
smá vandræðum.
„Ég bjó til undirkjól og rúllaði
upp blaðsíðunum sem Mogunblaðið
lét mér í té og heftaði hverja einustu
síðu í hann. Það skal enginn segja að
drottningar geti ekki verið umhverf-
isvænar og endurnýtt, það er ef það
dregur ekki úr glæsileikanum,“ seg-
ir Gloria, sem telur að mestur tíminn
hafi farið í hönnun. Eftir að henni
lauk tók það Gloriu 18 til 20 klukku-
stundir yfir sex daga tímabil að
sauma kjólinn.
Rauðvínsslettur á kjólnum
„Ég náði að draga að mér athygl-
ina í keppninni. Það var mikið að
gera í myndatökum og margir sem
vildu fá mynd af sér með mér. Ég
get því miður ekki notað kjólinn aft-
ur þar sem það eru rauðvínsslettur á
honum hér og þar, því Gloria Hole er
þekkt fyrir að vera djammdrottn-
ingin á Íslandi og algjört partíljón,“
segir Gloria og bætir við að mogga-
kjóllinn sé ekki flóknasti kjóll sem
hún hafi gert. Það hafi verið karni-
valkjóllinn sem gerður var úr fjöðr-
um og steinum. Gloria segist ekki
hafa verið hrædd um að kviknaði í
moggakjólnum á djamminu en hefði
það gerst hefði hún fengið óskipta
athygli og verið heitust þann daginn!
Gloria tekur þátt í dragkeppnum
erlendis og kemur fram í klúbbum
og á skemmtunum. Hún segist mæta
þar sem hún geti til stuðnings góð-
um málefnum og gefa til baka það
sem hún hafi fengið.
„Það sést ekki á sviðinu, þar sem
ég læt allt flakka, að inn við beinið er
ég ágæt,“ segir Gloria, sem ætlar að
vera mjög áberandi og flottust á
Kiki-pallinum í gleðigöngunni.
Morgunblaðsdrottn-
ingin vekur athygli
Gloria Hole stal
senunni í drag-
keppni 80-100
blöð fóru í kjólinn
Læsileg Gloria Hole glæsileg í kjól sem hún gerði úr Morgunblaðinu.
Höfundur Gloriu Hole er Hjálmar Forni Sveinbjörnsson
Poulsen, sem segist hafa fallið fyrir dragi mjög ungur
og ákveðið að gera það að atvinnu. Hann hafi kynnst
dragi í gleðigöngum og í kvikmyndum.
,,Fólk upplifir drag á misjafnan hátt. Mér gefur það
mikið egóbúst. Mér finnst hrikalega skemmtilegt og
æðislegt að geta starfað eingöngu við þetta, bæði hér
heima og erlendis,“ segir hann.
Hjálmar, sem tekur þátt í Hinsegin dögum í Reykjavík
í gervi Gloriu Hole, er ánægður með lengri hátíðahöld
en vanalega í tilefni þess að gleðigangan í Reykjavík er
20 ára og 50 ár eru frá Stonewall-uppreisninni í New
York sem var kveikjan að öðrum gleðigöngum. Hjálmar segir að mikið sé
um skemmtilega fræðsluviðburði á Hinsegin dögum og aðra skemmtun.
„Á Hinsegin dögum komum við saman til að þakka fyrir. Bæði þeim sem á
undan okkur hafa farið í baráttunni og samfélaginu sem tekið hefur okk-
ur ótrúlega vel. Hinsegin dagar eru uppskerudagar okkar og eins konar
árshátíð,“ segir Hjálmar.
„Okkar uppskerudagar“
TEKUR ÞÁTT Í HINSEGIN DÖGUM Í REYKJAVÍK
Hjálmar Forni
Sveinbjörnsson
Poulsen
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Framkvæmdum við byggingu tíu
íbúða fjölbýlishúss við Sléttuveg í Vík
í Mýrdal er nú að ljúka og fyrstu íbú-
arnir flytja inn um komandi mánaða-
mót. Þetta er önnur blokkin af þrem-
ur sem Sigurður Elías
Guðmundsson, veitingamaður og
hótelstjóri, lætur reisa, en íbúðirnar
þar eru leigðar út bæði til ferða-
manna um skemmri tíma en eru einn-
ig í langtímaleigu til fólks sem býr og
starfar á svæðinu.
„Húsnæðisskorturinn hér í Vík
hefur verið mikill. Það var ástand
sem þurfti að bregðast við, einfald-
lega svo samfélagið virkaði sem
skyldi,“ segir Sigurður Elías í samtali
við Morgunblaðið. Í fjölbýlishúsinu
sem reist var í fyrra eru fimmtán
íbúðir á bilinu 30 til 88 fermetrar –
þar af fimm sem leigðar eru út til
ferðamanna. Í hinum tíu býr svo fólk
sem margt starfar við ferðaþjón-
ustuna á staðnum, þjónustu og fleiri
greinar.
Byggingarkostnaður við húsið sem
nú er verið að reisa verður um 230
milljónir kr. Af tíu íbúðum í því fara
sjö í ferðamannaleigu en þrjár verða í
fastri leigu til langs tíma. Sú verður
einnig raunin um þær tólf sem verða í
húsinu sem tilbúið verður að ári.
„Leiguverð hér í Vík í Mýrdal
stendur í dag nánast á pari við Sel-
foss; 55 fermetra íbúð verður leigð út
á 120 þúsund krónur á mánuði. Verð-
ið er að hækka því byggingarkostn-
aður er að aukast. Allt slíkt fer beint
út í verðlagið,“ segir Elías, sem rekur
hótel í Vík, veitingastaði, söluskála og
ýmsa aðra starfsemi.
Mikið er byggt í Vík um þessar
mundir. Þar eru nú sjö einbýlis- og
parhús í smíðum og fleira er á teikni-
borðinu.
Byggir þrjú fjöl-
býlishús í Vík
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík Verið er að leggja lokahönd á byggingu húss sem er númer tvö í röðinni.
Tíu íbúðir tilbúnar í septemberbyrjun
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Kjaraviðræður fjölmargra viðsemj-
enda sem eru með lausa kjarasamn-
inga eru að komast á fullan skrið
þessa dagana. Sjö kjaradeilur eru á
borði Ríkissáttasemjara sem vísað
hefur verið til sáttameðferðar, m.a.
mál flugfreyja, flugmanna, flug-
virkja og flugumferðarstjóra og eru
boðaðir sáttafundir í dag og næstu
daga.
Mikil fundahöld fara fram í hús-
næði Ríkissáttasemjara vegna
kjaraviðræðna þótt þær séu ekki
komnar á borð sáttasemjara skv.
upplýsingum embættisins. Viðræð-
ur félaga opinberra starfsmanna og
ríkisins, Reykjavíkurborgar og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
eru komnar í gang eftir sumarhléið.
Skv. upplýsingum frá BSRB eru
viðræðurnar að komast á skrið aftur
eftir hlé. Samninganefnd BSRB hef-
ur fundað með viðsemjendum, sem
og samninganefndir einstakra aðild-
arfélaga. Eru viðræðurnar sagðar
fara vel af stað. Í endurskoðuðum
viðræðuáætlunum frá því fyrr í
sumar er að því stefnt í flestum til-
vikum að samningum skuli lokið fyr-
ir 15. september. Gert er ráð fyrir
tveimur fundum BSRB-félaga með
samninganefnd ríkisins í vikunni.
Lítið hefur þokast
Svipaða sögu er að segja af kjara-
viðræðum háskólamenntaðra í
BHM. Félag íslenskra nátttúru-
fræðinga (FÍN) er í samstarfi með
sjö öðrum aðildarfélögum BHM
vegna viðræðna við ríkið og á sá
hópur fund með samninganefnd rík-
isins í dag skv. upplýsingum Marí-
önnu H. Helgadóttur, formanns
FÍN. Samninganefnd FÍN á fund
með samninganefnd Reykjavíkur-
borgar á fimmtudaginn og mögu-
lega verður fundur með samninga-
nefnd Sambands íslenskra
sveitarfélaga síðar í þessari viku, að
sögn hennar. Hún segir að vinnu-
planið fram að 15. september nk.
hafi ekki verið endanlega sett niður
milli aðila, en verði líklega ljóst í
þessari viku. „Kröfugerðir félag-
anna liggja fyrir og voru þær kynnt-
ar viðsemjendum snemma í vor, en
það hefur lítið þokast í viðræðum í
sjálfu sér. Áherslur okkar frá því í
vor hafa ekkert breyst. Við gerum
kröfu um að menntun sé metin til
launa og að lágmarkslaun starfs
m.v. BS/BA-próf verði ekki lægri en
500.000 kr. fyrir utan persónu-
bundna þætti. Krónutöluhækkanir
eins og voru í boði á almennum
markaði koma ekki til greina,“ segir
hún.
Kjaraviðræður komast á skrið
Mikil fundahöld eru fyrirhuguð næstu daga og vikur í húsakynnum Ríkissáttasemjara