Morgunblaðið - 13.08.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Hlé var í gær gert á leit björgunar-
manna að belgískum ferðamanni um
fertugt sem saknað er eftir að lítill
bátur sem hann er talinn hafa verið í
fannst á reki á Þingvallavatni síðast-
liðinn laugardag. Bakpoki mannsins
fannst í vatninu.
Leitin hófst á laugardag og var þá
gengið í nálæga sumarbústaði til að
spyrja fólk út í hugsanlegar manna-
ferðir á svæðinu eða hvort það
þekkti til bátsins. Um tíma var not-
ast við þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Íslenska lögreglan hefur verið í
samskiptum við fjölskyldu manns-
ins, en ekkert hefur heyrst frá hon-
um síðan á laugardag. Segir lög-
reglan „yfirgnæfandi líkur“ vera á
því að maðurinn hafi farið á báti sín-
um út á vatnið og fallið útbyrðis. Að-
stæður til siglinga á vatninu voru
erfiðar þennan dag og strekkings-
vindur á svæðinu. „Ekki er vitað
hvaðan hann lagði frá ströndu og því
leitarsvæðið stórt og erfitt. Búið er
að sigla um vatnið allt og ganga
fjörur meðfram því án árangurs,“
segir í tilkynningu frá lögreglu, en
kafarar úr sérsveit ríkislögreglu-
stjóra eru að kanna hugsanlega köf-
un og leit að inntaki við Steingríms-
stöð.
Ferðamað-
urinn enn
ófundinn
Féll að öllum lík-
indum úr báti sínum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Orkupakkamálið er viðkvæmt innan
Sjálfstæðisflokksins og flokksmenn
skiptast í fylkingar, að því er við-
mælandi í hverfafélagi flokksins í
Reykjavík sagði. Haft var samband
við formenn nokkurra hverfafélaga
og þeir spurðir um afstöðu til máls-
ins. Viðbrögð voru á báða bóga.
Unnið er að undirskriftasöfnun til
að knýja fram atkvæðagreiðslu á
meðal flokksbundinna sjálfstæðis-
manna um málið. Náist 5.000 undir-
skriftir þarf að sannreyna að þeir
sem skrifuðu undir séu flokksbundn-
ir. Þá er atkvæðagreiðsla eftir. Al-
þingi kemur saman 28. ágúst til að
afgreiða orkupakkann.
„Tíminn er knappur, það er ljóst,“
sagði Jón Kári Jónsson, formaður
hverfafélags sjálfstæðismanna í
Hlíða- og Holtahverfi og upphafs-
maður undirskriftasöfnunarinnar.
Hann sagði að efnt hefði verið til
hennar til að fá lýðræðislega niður-
stöðu um hvort flokksmenn kærðu
sig um orkupakkann eða ekki. Jón
sagði að undirskriftasöfnunin gengi
ágætlega en var ekki með tölur um
hve margir höfðu skrifað undir í
gær. Hann kvaðst vera andvígur
orkupakkanum og sagði marga vera
sömu skoðunar. Mikil reiði væri inn-
an flokksins vegna málsins.
Einar Sörli Einarsson, formaður
hverfafélagsins í Laugarnes- og
Túnahverfi, kvaðst vera andvígur
orkupakkanum. Hann sagði að þeir
sem hann þekktu og hefðu kynnt sér
málið væru almennt andvígir orku-
pakkanum. Pjetur Stefánsson, for-
maður hverfafélags Bakka- og
Stekkjahverfis, er andvígur orku-
pakkanum og kvaðst finna fyrir and-
stöðu við hann. „Ég held að það væri
farsælast að vísa þessu til EES-
nefndarinnar og slá þetta út af borð-
inu. Það er óþarfi að vera í stríði við
hálfa þjóðina,“ sagði Pjetur.
Sumir með og aðrir á móti
„Ég er alfarið á móti orkupakk-
anum,“ sagði Hafsteinn Númason,
formaður Sjálfstæðisfélags Kjalnes-
inga. Hann sagði að ekki hefði tekist
að funda í félaginu um málið und-
anfarið vegna sumarfría.
Júlíus Helgi Eyjólfsson, formaður
Félags sjálfstæðismanna í Grafar-
holti, sagðist ekki hafa tekið afstöðu í
orkupakkamálinu. „Fólk er á báðum
áttum, hvorki hörð afstaða með eða á
móti,“ sagði Júlíus.
„Ég er eindreginn stuðningsmað-
ur þriðja orkupakkans,“ sagði Jón
Kristinn Snæhólm, formaður hverfa-
félags sjálfstæðismanna í Nes- og
Melahverfi. Magnús Sigurbjörns-
son, formaður hverfafélagsins í
Miðbæ og Norðurmýri, kvaðst einn-
ig styðja orkupakkann.
„Ég treysti þingflokknum til að
taka þessa ákvörðun,“ sagði Inga
María Hlíðar Thorsteinson, formað-
ur hverfafélags sjálfstæðismanna í
Hóla- og Fellahverfi. Hún sagði að
málið hefði lítillega verið rætt innan
félagsins en félagsmenn ekki haft
hátt um sínar skoðanir þótt ekki
væri endilega eining um málið.
Leifur Skúlason Kaldal, formaður
hverfafélags sjálfstæðismanna í
Háaleitishverfi, sagði að stjórnin
ætti eftir að funda um orkupakka-
málið og því vildi hann ekki tjá af-
stöðu sína.
Skiptar skoðanir um orkupakkann
Formenn hverfafélaga sjálfstæðismanna á höfuðborgarsvæðinu með og á móti Tilgangur undir-
skriftasöfnunar að fá lýðræðislega niðurstöðu Ljóst að tíminn er knappur, segir forsvarsmaður
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjálfstæðismenn Orkupakkinn var
m.a. ræddur í Valhöll á laugardag.
Útför Baldvins Tryggvasonar, fyrrverandi sparisjóðsstjóra, var gerð frá Hall-
grímskirkju í gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Hans Guðberg Alfreðsson jarð-
söng, organisti var Magnús Ragnarsson, Þóra Einarsdóttir söng einsöng auk
kórsins Schola cantorum. Baldvin Ingvar Tryggvason lék á klarinett og Matt-
hildur Anna Gísladóttir á píanó. Líkmenn voru Tryggvi M. Baldvinsson, Svein-
björn I. Baldvinsson, Þorsteinn Pálsson, Arna Vala Sveinbjarnardóttir, Magnús
Jónsson, Finnur Sigurjón Sveinbjarnarson, Sveinbjörn Júlíus Tryggvason, Bald-
vin Kári Sveinbjörnsson, Einar Sv. Tryggvason og Baldvin Ingvar Tryggvason.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útför Baldvins Tryggvasonar
Birgir Sigurðsson, rit-
höfundur og leikskáld,
lést á Landspítalanum í
Fossvogi 9. ágúst sl., á
82. aldursári.
Birgir fæddist í
Reykjavík 28. ágúst
1937, sonur Sigurðar
Ingimars Helgasonar,
myndlistarmanns og
sjómanns, og Frið-
bjargar Jónsdóttur hús-
móður. Birgir ólst upp í
Reykjavík, lauk kenn-
araprófi frá KÍ 1961,
stundaði tónlistarnám
við Tónlistarskólann í Reykjavík í
fimm ár og söngnám í Amsterdam
1967. Birgir var blaðamaður á Tím-
anum 1961-64 og var kennari og
skólastjóri í nokkrum skólum þar til
hann sneri sér alfarið að ritstörfum
árið 1979. Eftir Birgi
liggur fjöldi ritverka;
leikrit, skáldsögur,
ljóð, þýðingar og fræði-
rit. Þekktasta leikrit
Birgis er án efa Dagur
vonar, sem frumsýnt
var 1987, tilnefnt til
bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 1989
og hefur verið sýnt víða
um heim. Fyrsta leik-
ritið, Pétur og Rúna,
vann 1. verðlaun í sam-
keppni Leikfélags
Reykjavíkur 1972 og
vakti mikla athygli. Meðal annarra
leikrita hans eru Skáld-Rósa, Sel-
urinn hefur mannsaugu, Grasm-
aðkur, Óskastjarnan og Dínamít.
Birgir var heiðursfélagi Leikfélags
Reykjavíkur en hann þýddi einnig
fjölmörg leikrit, m.a. Barn í garð-
inum, eftir Sam Shephard, Glerbrot,
eftir Arthur Miller, og Köttur á heitu
blikkþaki, eftir Tennessee Williams.
Þá þýddi hann tvær skáldsögur eftir
Doris Lessing, Grasið syngur og
Marta Quest.
Birgir var varaformaður Rithöf-
undasambands Íslands 1982-1986,
var forseti Bandalags íslenskra lista-
manna 1985-87 og átti m.a. sæti í
stjórn Listahátíðar og úthlutunar-
nefnd Kvikmyndasjóðs. Birgir var á
þessu ári gerður að heiðursfélaga
Rithöfundasambandsins.
Eftirlifandi eiginkona Birgis er
Elsa Vestmann Stefánsdóttir, mynd-
listarmaður og fv. sviðsstjóri hjá
RÚV. Stjúpbörn Birgis eru fjögur og
hann eignaðist þrjú börn með fv. eig-
inkonu sinni, Jóhönnu Steinþórs-
dóttur.
Andlát
Birgir Sigurðsson rithöfundur