Morgunblaðið - 13.08.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 13.08.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 Brexit flokkurinn vann mikinnsigur í kosningum til evr- ópuþings. Flokkurinn varð flokka stærstur í Bretlandi nokkurra vikna gamall og annar af tveimur stærstu flokkum EÞ í þingmönnum talið, ásamt Kristilegum í Þýskalandi.    Flokkurinn varhálfgerður einsmanns flokkur, pólitíska þrumu- skýsins Farage. Sá lætur flest flakka, oft hittinn, en slík- um getur orðið á.    Kjósendur Brexitflokksins eru taldir veikastir allra fyrir Buck- inghamættinni. Í nýlegri ræðu taldi Farage að bandarísk eiginkona Harrys prins hefði skafið af honum flest það sem gerði hann að vinsæl- ustu persónu ættarinnar.    Þetta hefði getað sloppið hjá Fa-rage og jafnvel gott betur, en versnaði þegar hann bætti í og dró Elísabetu heitna drottningarmóður inn í óvarlegt tal. Sú var vinsæl mjög með þegnunum og hélt því þar til hún lést og átti örstutt í 102 árin.    Farage sagði drottningarmóðurhafa daglega hesthúsað gin og tónik, reykt af þrótti og verið í yfir- þyngd og taldi þetta þrennt skýr- inguna á vinsældum hennar. Áróð- ursmenn heilbrigðs lífsstíls sem telja hann tryggingu þess að kom- ast sprækur yfir sjötugt urðu illir og brexitmenn töldu nærri dásemd sinni höggvið.    Hið pólitíska svell er miklu sleip-ara en Tjarnarsvellið. Elísabet drottningarmóðir Höggvið nærri helgidómi STAKSTEINAR Nigel Farage Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Gagnrýnivert er að þrengt skuli að innflutningi á kjöti í lagafrumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar landbún- aðarráðherra um breytingu á úthlut- un tollkvóta. Þetta er mat Félags at- vinnurekenda sem dregur í efa að hagur neytenda vænkist og sam- keppni eflist eins og eru sögð vera markmið frumvarpsins. Þar er gert ráð fyrir að hætt verði útgáfu kvóta á lægri tollum fyrir nauta-, alifugla- og svínakjöt á þeim tímum þegar inn- lend framleiðsla dugar ekki. Félag atvinnurekenda segir að síðustu árin hafi allstór hluti inn- flutnings á nauta-, svína- og alifugla- kjöti verið á opnum tollkvóta vegna þess að innlendir framleiðendur hafi ekki annað eftirspurn. Undantekn- ing sé að kjötvara sé flutt inn á full- um tollum. Jafnvel þótt tollkvótar fyrir búvörur frá ríkjum ESB fari stækkandi allt fram til ársins 2022 rúmi þeir ekki innflutning á þessum kjötvörum sem fram hefur farið und- anfarin ár. „FA telur að eðlileg vinnubrögð, og í samræmi við yfirlýst markmið frumvarpsdraganna, væru að gefnir yrðu út opnir tollkvótar á lægri toll- um allt árið eða mestan hluta árs fyr- ir þá skrokkhluta sem skortur hefur verið á undanfarin ár,“ segir í til- kynningu frá FA. sbs@mbl.is Tollkvótarnir verði opnir allt árið  FA segir innlenda framleiðendur ekki hafa annað eftirspurn eftir kjöti Morgunblaðið/Eggert Nautakjötið Herramannsmatur, að dómi flestra matgæðinga. Nokkrir útvaldir liðsmenn Snigl- anna, bifhjólasamtaka lýðveldisins, eru nú í hringferð um landið á raf- magnsbifhjólum til að vekja athygli á kostum þess samgöngumáta. Ferðin hófst á Seyðisfirði þangað sem hjólin komu með ferjunni Nor- rænu, en keyrt er rangsælis um landið á einni viku. Föruneytið kom til höfuðborgarinnar í gær og sat málþing sem haldið var í höfuð- stöðvum Orkuveitunnar. Þar deildu ökumenn reynslu sinni af hjólunum auk þess sem gestir gátu fengið að kynna sér gripina. Nú í gærkvöld var stefnan sett á Selfoss þar sem hjólin voru til sýnis. Ráðgert er að rafmagnaðri hring- ferð Sniglanna ljúki næstkomandi fimmtudag á Seyðisfirði þaðan sem hjólin verða því næst send úr landi. alexander@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Tækni Hjólin hafa vafalaust vakið athygli á ferð sinni um landið. Hringurinn tek- inn á raffákum  Vilja vekja athygli á vistvænni orku

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.