Morgunblaðið - 13.08.2019, Side 10
S J Á L F S T Æ Ð I S F L O K K U R I N N
Á réttri leið
Fundaröð þingflokks
sjálfstæðismanna
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins efnir á næstu dögum til
fundaraðar með kjósendum í kjölfar feykivel heppnaðrar
hringferðar fyrr á árinu. Að þessu sinni munu þingmenn fara
vítt og breitt um landið í smærri hópum og ræða við fólk um
það sem efst er á baugi á landsvísu og heima í héraði.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Akranes
Golfskálinn
13. ágúst, kl. 12:00
Ísafjörður
Edinborgarhús
13. ágúst, kl. 20:00
Blönduós
Eyvindarstofa
14. ágúst, kl. 17:30
Sauðárkrókur
Ljósheimar í Skagafirði
14. ágúst, kl. 20:00
Reyðarfjörður
Safnaðarheimilið
14. ágúst, kl. 20:00
Egilsstaðir
Hótel Valaskjálf
15. ágúst, kl. 12:00
Húsavík
Hlynur
15. ágúst, kl. 17:00
Grundarfjörður
Samkomuhúsið
5. ágúst, kl. 12:00
Akureyri
Kaupangur
15. ágúst, kl. 20:00
Höfn
Nýheimar
15. ágúst, kl. 12:00
Hella
Menningarsalurinn
15. ágúst, kl. 18:00
Reykjanesbær
Duus-hús
17. ágúst, kl. 11:00
Hafnarfjörður
Norðurbakki 1a
17. ágúst, kl. 10:30
Selfoss
Tryggvaskáli
17. ágúst, kl. 10:30
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ed Sheeran var ánægður með allt í
heimsókn sinni hingað, bæði tón-
leikana og allt annað. Hann var með-
vitaður um miðasöluna, hversu stórt
hlutfall af þjóðinni kom og sá hann.
Þetta er vinalegasti maður sem ég
hef hitt,“ segir Ísleifur B. Þórhalls-
son, tónleikahaldari hjá Senu Live.
Um fimmtíu þúsund gestir sóttu
tvenna tónleika tónlistarmannsins
Eds Sheerans á Laugardalsvelli um
helgina. Tónleikarnir þóttu heppnast
vel þótt langar raðir hafi myndast
við að komast inn á tónleikasvæðið á
fyrri tónleikunum á laugardagskvöld.
Þetta eru stærstu tónleikar sem
haldnir hafa verið á Íslandi og Ísleif-
ur telur aðspurður ólíklegt að þetta
verði nokkurn tímann leikið eftir.
„Það verður erfitt að toppa þetta.
Ég held að við séum komin að enda-
mörkunum með hvað hægt er að
gera á Íslandi. Jafnvel þótt við fengj-
um eitthvert risanafn aftur, hvort
sem það er Rolling Stones, U2 eða
eitthvað þvíumlíkt, finnst mér ólík-
legt það verði hægt aftur að fara í
aukatónleika.“
Fleiri stór verkefni skoðuð
Ekki er þó þar með sagt að að-
sóknarmetið fyrir fjölda á einum
stökum tónleikum verði ekki slegið
því Ísleifur og hans fólk telja að
Laugardalsvöllur rúmi enn fleiri en
þá 30 þúsund gesti sem voru á fyrri
tónleikunum.
„Völlurinn virkar mjög vel, það er
hægt að halda svona tónleika þarna
vandræðalaust. Auðvitað tók þetta á
en í raun má segja að við höfum
ráðið vel við þetta. Vandamálið með
röðina á laugardeginum var öm-
urlegt en það náðist að leysa það og
röðin var kláruð um hálfníu, hálf-
tíma áður en Ed Sheeran steig á
svið. Það sýndi að kerfið okkar var
of seinvirkt en það var lagað og þá
gekk þetta betur. Endurbætt raða-
kerfi var notað á sunnudeginum og
gekk það svo vel að í raun mynd-
aðist aldrei nein röð allt kvöldið.
Allt annað gekk vel, gestir voru til
fyrirmyndar og við lærum af þessu.
Okkur sýnist reyndar að það sé
hægt að koma fleirum fyrir á vell-
inum vandræðalaust. Við eigum eft-
ir að skoða það betur með lögreglu
og sérfræðingum en við teljum að
það sé hægt að selja nokkur þúsund
miða í viðbót. Það munar mikið um
fjögur til fimm þúsund miða og ef
við erum komin með 35 þúsund
manna leikvang er ýmislegt mögu-
legt.“
Ed Sheeran-tónleikarnir voru
unnir í samstarfi við AEG, næst-
stærsta tónleikahaldara í heimi. Ís-
leifur segir að fulltrúar fyrir-
tækisins hafi verið hæstánægðir
með samstarfið og þeir hafi sam-
mælst um að huga að fleiri stórum
verkefnum í framtíðinni.
Vinna við frágang eftir tónleikana
hófst um leið og Ed Sheeran gekk
af sviðinu á sunnudagskvöld. Eins
og fram kom í fjölmiðlum í aðdrag-
anda þeirra var mikið magn af bún-
aði flutt hingað til lands og því í
mörg horn að líta.
Mikil vinna við frágang
„Það voru hundrað manns til-
búnir á köntunum þegar hann fór af
sviðinu og byrjuðu að skrúfa allt í
sundur. Þeir unnu til fjögur aðfara-
nótt mánudags og svo mætti annar
hópur klukkan átta í gærmorgun,“
segir Ísleifur. Frágangur var langt
kominn þegar Morgunblaðið ræddi
við Ísleif í gær en klárast ekki end-
anlega fyrr en í dag. „Það er mikil
vinna við að taka sviðið niður og
ganga frá gólfinu. Það var mikið
gert til að tryggja að grasið á vell-
inum yrði í góðu lagi enda er leikur
á vellinum um næstu helgi.“
Listamaðurinn naut dvalar sinnar
hér á landi vel. Hann dvaldi í húsi
fyrir utan bæinn með foreldrum
sínum og stórum hluta fjölskyld-
unnar. Ísleifur kveðst ekki hafa
upplýsingar um ferðir hans hér á
landi, þær hafi Sheeran skipulagt
sjálfur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frágangur Unnið var að því að taka niður sviðið af tónleikum Eds Sheerans
í gær og rífa upp gólfið. Tónleikaferð Sheerans lýkur í Ipswich í lok ágúst.
Telja að völlurinn rúmi 35 þúsund manns
Mikil ánægja með tónleika Eds Sheerans þrátt fyrir raðir Vilji til að halda fleiri stórtónleika hér
Baksviðs Frá vinstri eru Simon Jones frá AEG, Ísleifur B. Þórhallsson, Ed
Sheeran, Jón Diðrik Jónsson, Hrannar Hafsteinsson og Ísak Bjarnason.
Jóhann Skúlason er þrefaldur
heimsmeistari eftir heimsmeist-
aramót íslenska hestsins sem lauk í
Berlín um helgina. Hann vann til
gullverðlauna í tölti, fjórgangi og
fjórgangsgreinum á Finnboga frá
Minni-Reykjum. Jóhann hefur unnið
alls 19 gullverðlaun á heimsmeist-
aramótum.
Íslenska landsliðið vann sex gull-
verðlaun í fullorðinsflokki, ein í ung-
mennaflokki og fjögur kynbótahross
stóðu efst í sínum aldursflokki. Auk
verðlaunanna 11 hlaut íslenska liðið
liðsskjöldinn fyrir bestan árangur
liðs á mótinu, sem landsliðseinvald-
urinn Sigurbjörn Bárðarson tók við
fyrir hönd Íslands. Þetta kom fram á
mbl.is í gær auk þess sem Teitur
Árnason vann gæðingaskeið á Dyn-
fara frá Steinnesi með einkunnina
8,66, Konráð Valur Sveinsson var
með besta tímann í 100 metra skeiði
á Losta frá Ekru sem fór á tímanum
7,35 sekúndum og Guðmundur
Björgvinsson á Glúmi frá Þórodds-
stöðum fór 250 metra skeiðið á 21,8
sekúndum. Benjamín Sandur Ing-
ólfsson á Messu frá Káragerði var
bestur ungmenna í gæðingaskeiði
með einkunnina 7,71.
Íslenska liðið vann tvenn silfur-
verðlaun og þrenn bronsverðlaun.
Ásdís Ósk Elvarsdóttir í ungmenna-
flokki varð önnur í tölti á Koltinnu
frá Varmalæk og önnur í saman-
lögðum fjórgangsgreinum. Hún
deildi 3. til 5. sæti í fjórgangi með
Hákoni Dan Ólafssyni á Stirni frá
Skriðu og Dananum Kristine B.
Jörgensen. Bergþór Eggertsson á
Besta frá Upphafi fékk brons-
verðlaun í gæðingaskeiði full-
orðinna. Mjallhvít frá Þverholtum,
Spaði frá Barkarstöðum, Eyrún Ýr
frá Hásæti og Elja frá Sauðholti
urðu öll efstu kynbótahross í sínum
flokki. thorunn@mbl.is
Sigursæll Jóhann Skúlason á Finnboga frá Minni-Reykjum varð þrefaldur
heimsmeistari á HM íslenska hestsins sem fram fór í Berlín 4. til 11. ágúst.
Þrefaldur heims-
meistari og 11 gull
Íslendingar hlutu liðsskjöldinn á
heimsmeistaramóti íslenska hestsins