Morgunblaðið - 13.08.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019
„Það er óhætt að segja að við
stöndum í stórræðum nú í ágúst,
og við þökkum af heilum hug öll-
um þeim óteljandi einstaklingum
og fyrirtækjum sem leggja okkur
lið. Með hverju ári sem líður
verður okkur betur ljóst hve
mikilvægt er að skapa gleðistund-
ir á Grænlandi. Og aldrei skulum
við gleyma því að Íslendingar eru
heppnasta þjóð í heimi þegar
kemur að nágrönnum,“ segir
Hrafn Jökulsson, forseti
Hróksins.
Nú stendur yfir mikil skák- og
sirkushátíð í Kullorsuaq, sem er
450 bær á samnefndri eyju við
vesturströnd Grænlands. Kullor-
suaq, sem er á 74. breiddargráðu,
er eitt afskekktasta þorp Græn-
lands, og er þetta annað árið í
röð sem Hrókurinn heldur hátíð
þar í samvinnu við heimamenn.
Hátíðin stendur fram á föstu-
dag, en fulltrúar Hróksins þar
eru Hrafn, sem kennir skák, og
sirkuslistamennirnir Axel Diego
og Roberto Magro, sem verða
með sýningar og sirkusskóla. Að
aflokinni hátíðinni í Kullorsuaq
verður boðið upp á fjöltefli og
sirkussýningu í Upernavik, sem
er liðlega 1.000 manna bær.
Þetta er fimmta ferð Hróksins
til Grænlands á þessu ári, en fé-
lagið hefur unnið að „landnámi
skáklistar og vináttu“ síðan 2003
eins og Hrafn orðar það.
Samtímis því sem Hrafn, Axel
og Roberto verða á vesturströnd-
inni munu Máni Hrafnsson og
Joey Chan slá upp Polar Pelagic-
hátíð í Tasiilaq, höfuðstað
Austur-Grænlands, sem helguð er
minningu Gerdu Vilholm. Að
sögn Hrafns var hún máttarstólpi
mannlífsins í Tasiilaq.
,„Við minnumst einstakrar
konu,“ segir Hrafn. „Gerda rak
einu bókabúðina í Tasiilaq, sem
hún kallaði Háskóla alheimsins.
Þar var griðastaður barnanna í
Tasiilaq, og þangað komu þau til
að tefla og njóta lífsins. Gerda
var heiðursfélagi í Hróknum og
hennar er sárt saknað. En við
minnumst hennar best með því að
skapa gleðistundir fyrir börnin í
bænum.“
Kennsla Máni Hrafnsson stjórnar hátíðarhöldum í Tasiilaq, höfuðstað Austur-Grænlands.
Hátíðir í þremur bæjum á Grænlandi
Hrókurinn með skák- og sirkushátíð í einu afskekktasta þorpi landsins
Hátíð Sirkuslistamennirnir Axel
Diego og Roberto Magro skemmta.
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
VELKOMIN Á NÝJU VEFSÍÐUNA OKKAR
Uppgötvaðu vörurnar okkar og kosti þess að versla á netinu
Síðustu daga
rnir
Aðeins 7 verð
1.000.-
2.000.-
3.000.-
4.000.-
5.000.-
6.000.-
7.000.-
Algjört
verðhrun
á útsöluvörum
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Slökkviliðsmenn í Fjallabyggð stóðu
í gær í ströngu við að dæla vatni sem
flætt hafði inn í hús á Siglufirði.
Tvær aurskriður féllu í vestan-
verðum Eyjafirði í fyrrinótt og í gær
féllu aurskriður úr Jörundarfelli í
Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu.
Í gær mældist uppsöfnuð sólar-
hringsúrkoma á Siglufirði 130 milli-
metrar.
„Við höfum getað haldið þessu í
algjöru lágmarki,“ segir Ámundi
Gunnarsson, slökkviliðsstjóri í
Fjallabyggð, í samtali við mbl.is í
gærkvöld, en útköll voru fjölmörg og
var m.a. óskað eftir aðstoð dælubíls
að sunnan. Þá hafa hreinsibílar frá
Akureyri aðstoðað við að dæla vatni
úr húsum í bænum.
Ámundi segir ástandið minna á
vatnsveðrið sem gekk yfir í ágúst
fyrir fjórum árum þegar mikið tjón
varð í bænum þegar Hvanneyrará
flæddi yfir bakka sína og ræsi höfðu
ekki undan og aurborið vatn barst
um götur bæjarins.
„Þetta er svipað eins og það var
2015 þegar allt fór í steik. Þetta er
kannski meiri úrkoma en hún nær
yfir lengra tímabil,“ segir hann.
Kristín Sigurjónsdóttir, frétta-
stjóri Trölla.is, segir íbúa mjög
ósátta við ástandið þar sem lagna-
kerfi í bænum hafi nýverið verið
endurnýjað með það í huga að koma
í veg fyrir viðlíka ástand.
Hús fóru
á flot
Slökkviliðsmenn
stóðu í ströngu
Trölli.is
Siglufjörður Vatn flæddi upp úr
niðurföllum og klósettum í bænum.