Morgunblaðið - 13.08.2019, Side 12

Morgunblaðið - 13.08.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í 13. ágúst 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.22 122.8 122.51 Sterlingspund 147.84 148.56 148.2 Kanadadalur 92.37 92.91 92.64 Dönsk króna 18.344 18.452 18.398 Norsk króna 13.717 13.797 13.757 Sænsk króna 12.772 12.846 12.809 Svissn. franki 125.63 126.33 125.98 Japanskt jen 1.1543 1.1611 1.1577 SDR 168.13 169.13 168.63 Evra 136.92 137.68 137.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.3967 Hrávöruverð Gull 1503.5 ($/únsa) Ál 1745.5 ($/tonn) LME Hráolía 57.74 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Breska pundið náði sínu lægsta gildi gagnvart evru í 10 ár í gærmorg- un. Í frétt Tele- graph kemur fram að ástæðan sé sú að breska hug- veitan Institute for Government komst að þeirri niður- stöðu að „mjög ólíklegt“ væri að Bretar yfirgæfu Evr- ópusambandið með samningi. Mun þetta hafa haft áhrif á fjárfesta, sér í lagi í Asíu. Gengi pundsins hefur ítrekað gefið verulega eftir síðastliðnar tvær vikur í ljósi óvissu sem fylgir Brexit. Lægsta gengi pundsins gagnvart evru nam í gærdag 1,0724 evrum sam- kvæmt gögnum Bloomberg. Síðar um daginn tók pundið aftur á móti kipp upp á við eftir að markaðir voru opnaðir í Bretlandi. Seinni part dags hafði pundið styrkst um 0,4% gagnvart evru. Miklar sveiflur á pundinu vegna Brexit Pund Boris John- son ætlar úr ESB. STUTT BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Óvíst er um framtíðarfjármögnun verktakafyrirtækisins Munck á Ís- landi ehf., áður LNS Saga, og því leikur vafi á því hvort fyrirtækið sé áfram rekstrarhæft. Frá lokum síðasta rekstrarárs hefur danskt móðurfélag þess, Munck Gruppen A/S, stutt við fjárhag félagsins með lánveitingum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársreikn- ingi félagsins fyrir tímabilið 1. október 2017 til 30. september 2018. Stefán Sigurðsson, deildarstjóri sjó- og jarðvinnuverkefna Munck á Íslandi, segir ekkert launungarmál að rekstur félagsins hafi ekki gengið sem skyldi. Þá staðfestir hann að fyrirtækið muni á næstu mánuðum draga saman seglin. „Við erum ekki að bjóða í nein ný verkefni og erum að draga úr um- fangi starfseminnar. Það er of snemmt að segja til um hvað verð- ur, en við munum setjast niður í byrjun næsta árs eða á næstu mánuðum og ákveða hvort við munum bjóða í verk að nýju,“ seg- ir Stefán. Tapað um 3,7 milljörðum króna Eins og fram kom í frétt Morg- unblaðsins fyrr á þessu ári skilaði Munck Gruppen A/S tapi í fyrsta skipti í 30 ára rekstrarsögu sinni í fyrra. Rekja má stóran hluta taps- ins til starfseminnar hér á landi, en tap á fyrrgreindu tímabili nam 2,4 milljörðum króna. Samtals nemur uppsafnað tap félagsins frá því að Munck Gruppen A/S tók yf- ir reksturinn í ársbyrjun 2017 um 3,7 milljörðum króna. Meðal verk- efna sem kostað hafa félagið hundruð milljóna króna er bygging fjögurra hæða sjúkrahótels Nýja Landspítalans, uppbygging hjúkr- unarheimils við Sólvang í Hafn- arfirði og framkvæmdir við Þeista- reykjavirkjun. „Það er ekkert launungarmál eins og ársreikning- urinn sýnir að taprekstur er á fé- laginu. Það hafa gamlir draugar verið að elta okkur, en reksturinn er þó í betra horfi nú en hann var yfir þetta tímabil,“ segir Stefán. Reksturinn gengur betur Hagnaður var af starfsemi Munck í Danmörku á framan- greindu tímabili. Tap á Íslandi og niðurfærsla eigna ollu því hins vegar að tap var á rekstri sam- steypunnar. Sé miðað við sama tímabil árin áður jókst tap fyrir- tækisins hér á landi um rúman milljarð króna. Að sögn Stefáns hefur betur gengið það sem af er núverandi rekstrarári en á sama tíma í fyrra. Aðspurður segist hann þó ekki geta fullyrt um hugsanlega rekstr- arafkomu fyrirtækisins á tíma- bilinu. „Miðað við verkin sem ég hef séð sjálfur gengur mjög vel. Það er ágætis fjárstreymi og miklu meiri stöðugleiki en á tímabilinu sem um ræðir,“ segir Stefán. Draga verulega úr umfangi starfseminnar hér á landi Morgunblaðið/Hari Framkvæmdir Munck á Íslandi sá um byggingu sjúkrahótels Nýja Landspítalans á síðasta ári. Mikill taprekstur » Eigið fé Munck á Íslandi var neikvætt um 381 milljón króna í lok september árið 2018. » Árið 2017 hafði eigið fé fé- lagsins verið jákvætt um 768 milljónir króna. » Samtals námu tekjur félags- ins á síðasta rekstrarári nær 7,4 milljörðum króna.  Óvíst um rekstrarhæfi Munck á Íslandi  Styðja við fjárhaginn með lánum „Ef þetta tekst erum við að vonast til að ná traffíkinni um jólin,“ segir Pálmar Harðarson, eigandi og fram- kvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Þingvangs. Vísar hann í máli sínu til nýbyggingarinnar við Klapparstíg þar sem Skelfiskmarkaðurinn var áður til húsa. Að hans sögn hafa við- ræður við nokkra aðila runnið út í sandinn. Vonir standa þó til að geng- ið verði frá samningum við nýjan rekstraraðila á næstunni, en að- spurður segist Pálmar ekki vilja gefa upp um hvern ræðir. „Þessir aðilar sem áður voru í við- ræðum eru dottnir út. Við erum núna í viðræðum við aðila sem lítið er hægt að segja um áður en eitthvað verður úr því,“ segir Pálmar og bætir við að lögð sé áhersla á að fá inn vana rekstraraðila. Þar skipti ekki öllu hvort viðkomandi hafi áður staðið í veitingarekstri. „Hann er ekki með veitingastaði í rekstri en er hins veg- ar með rekstur sem tengist þessu að- eins. Við höfum viljað fá inn rekstr- armenn sem ætla sér að vera á gólfinu,“ segir Pálmar. Mikið hefur verið lagt í innrétting- ar nýbyggingarinnar við Klappar- stíg og er kostnaður í tengslum við þær talsverður. Að sögn Pálmars mun nýr staður njóta góðs af því. „Ef af verður mun nýr aðili bjóða upp á ódýran mat í fallegu umhverfi,“ segir Pálmar. Nú er unnið að því hörðum höndum að láta opnun nýs staðar verða að veruleika. „Nýi aðilinn ætl- ar að vinna þetta rétt. Hann er í við- ræðum við tvo kokka og nokkra þjóna. Markmiðið er að setja saman góðan hóp fólks sem koma mun að rekstrinum,“ segir Pálmar. Morgunblaðið/Valgarður Húsnæðið Skelfiskmarkaðurinn var áður til húsa við Klapparstíg. Nýr veitingastaður opnaður fyrir jól  Boðið verði upp á ódýran mat í fal- legu umhverfi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.