Morgunblaðið - 13.08.2019, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.08.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Kína gagnrýndu í gær mótmæli ungra lýðræðissinna í Hong Kong og sögðu að fram hefðu komið merki um að þau tengdust „hryðjuverkastarfsemi“. Harðorðar yfirlýsingar kínversku ráðamann- anna um mótmælin kyntu undir vangaveltum um að þeir kynnu að beita vopnuðum lögreglusveitum frá meginlandinu til að kveða niður mótmælin í sjálfstjórnarhéraðinu. Öllu flugi til og frá alþjóðaflug- vellinum í Hong Kong var aflýst í gær þegar þúsundir ungmenna fóru þangað til að mótmæla ofbeldi lög- reglunnar. Daginn áður höfðu verið birtar myndir af lögreglumönnum sem beittu táragasi, börðu fólk með kylfum og skutu gúmmíkúlum eða baunapokum á mótmælendur af stuttu færi. Lögreglumennirnir skutu m.a. táragashylkjum inn í lestarstöðvar og á mannmargar verslunargötur til að reyna að dreifa mótmælendum. Ungmennin svör- uðu með því að kasta múrsteinum og bensínsprengjum á lögreglumenn, sprauta á þá vatni með slöngum og úða á þá með slökkvitækjum. „Auga fyrir auga“ Óeinkennisklæddir lögreglumenn voru einnig sagðir hafa verið sendir á göturnar til að handtaka mótmæl- endur. Hermt er að lögreglumenn- irnir hafi verið í svörtum bolum, eins og margir mótmælendanna, til að laumast að þeim og koma þeim í opna skjöldu. Yfirvöld í Hong Kong sögðu að 45 manns hefðu særst í átökunum, þar af tveir alvarlega. Á meðal þeirra var kona sem særðist á andliti og augum og hermt var að hún hefði misst sjónina eftir að lögreglan hefði skotið baunapoka á hana. Myndir sem teknar voru af konunni liggja með blóðugt andlitið á götunni vöktu mikla athygli á samfélagsmiðlum og margir mótmælendanna héldu á myndum af konunni og spjöldum með áletruninni „auga fyrir auga“. Mannréttindahreyfingar gagn- rýndu ofbeldi lögreglunnar og rúm- lega 200 læknar, hjúkrunarfræðing- ar, bráðaliðar og lyfjafræðingar eins af stærstu sjúkrahúsum Hong Kong fóru í verkfall til að taka þátt í mót- mælunum. Margir þeirra voru með sáraumbúðir á auga. „Við erum svo reið,“ sagði 31 árs hjúkrunarfræð- ingur á meðal mótmælendanna. „Lögreglan á að vernda okkur, ekki að valda fólki varanlegum skaða.“ „Fyrstu merkin um hryðjuverkastarfsemi“ Talsmaður kínverskrar stofnunar sem fer með málefni Hong Kong lýsti yfir stuðningi við aðgerðir lög- reglunnar. „Róttækir mótmælendur í Hong Kong hafa hvað eftir annað beitt mjög hættulegum tólum til að ráðast á lögreglumenn, sem er mjög alvarlegur glæpur og sýnir einnig að fyrstu merkin um hryðjuverkastarf- semi eru að koma fram,“ sagði tals- maðurinn. Hann bætti við að refsa þyrfti mótmælendum fyrir árásirn- ar „án nokkurrar miskunnar“. Hann sagði ekkert um hvort stjórnvöld í Peking hygðust grípa til aðgerða vegna mótmælanna og áréttaði að kínverska stjórnin styddi lögregl- una og dómsyfirvöld í Hong Kong í tilraunum þeirra til að framfylgja lögunum og refsa lögbrjótum eins fljótt og hægt væri. Ríkisfjölmiðlar í Kína virtust gefa til kynna að ráðamennirnir í Peking væru tilbúnir að beita herþjálfuðum lögreglusveitum ef þörf krefði til að binda enda á mótmælin í Hong Kong. Dagblað alþýðunnar og fleiri málgögn kínversku stjórnarinnar birtu í gær myndskeið á samfélags- miðlum þar sem brynvarðir liðs- flutningabílar sáust koma til borg- arinnar Shenzhen sem liggur að Hong Kong. Dagblað alþýðunnar tók fram að eitt af hlutverkum vopn- aðra sveita lögreglunnar væri að binda enda á „óeirðir, upplausnar- ástand, alvarlega glæpastarfsemi, hryðjuverkaárásir og aðrar ógnir við þjóðaröryggi“. Vilja vernda frelsið og sjálfstjórnarréttindi Þetta er tíunda helgin í röð sem lýðræðissinnar hafa efnt til götu- mótmæla í Hong Kong. Mótmælin hófust í júní vegna lagafrumvarps sem hefði heimilað að meintir glæpamenn yrðu framseldir til meginlands Kína. Mótmælendurnir telja að kínversk stjórnvöld gætu notfært sér frumvarpið til að þagga niður í lýðræðissinnum í Hong Kong og andófsmönnum sem hafa flúið þangað frá meginlandinu. Stjórn sjálfstjórnarhéraðsins ákvað að fresta afgreiðslu frumvarpsins en mótmælendurnir vilja að hún dragi það til baka. Þeir krefjast einnig óháðrar rannsóknar á ofbeldi lög- reglunnar og sakaruppgjafar til handa þeim sem hafa verið hand- teknir fyrir mótmælin. Mótmælend- urnir saka ennfremur stjórn sjálf- stjórnarhéraðsins, sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Peking, um að hafa skert réttindi sem íbúar Hong Kong eiga að njóta samkvæmt samkomulagi Kínverja og Breta um að breska nýlendan fyrrverandi verði kínverskt sjálfstjórnarhérað með markaðshagkerfi að minnsta kosti til ársins 2047. Markmiðið með mótmælunum er því ekki aðeins að koma í veg fyrir framsalsfrumvarpið heldur einnig að standa vörð um réttindi íbúanna á borð við málfrelsi og fundafrelsi. „Ástandið er alltaf að verða hættu- legra en ef við höldum ekki götu- mótmælunum áfram verður framtíð okkar skelfilegri og við missum frelsi okkar,“ hafði fréttaveitan AFP eftir 22 ára gamalli konu á meðal mótmælendanna. Margir mótmælendanna eru á aldrinum 17-22 ára og óttast að Hong Kong missi sjálfstjórnarrétt- indi sín þegar samkomulagið fellur úr gildi eftir tæp 28 ár. Lýst sem hryðjuverkastarfsemi  Harðorðar yfirlýsingar ráðamanna í Kína um mótmæli í Hong Kong kynda undir vangaveltum um að þeir kunni að beita valdi til að kveða þau niður  Ofbeldi lögreglu gegn lýðræðissinnum gagnrýnt AFP „Auga fyrir auga“ Ungur lýðræðissinni mótmælir táragasárásum lögregl- unnar á lestarstöðvar í sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong um helgina. Ofbeldi mótmælt Mótmælandi sakar lögregluna um manndráp. Á meðal fjölförnustu flugvallanna » Alþjóðaflugvöllurinn í Hong Kong er á meðal fjölförnustu flugvalla í heiminum. » Í fyrra voru rúmlega 428.000 flugferðir farnar um völlinn með alls um 75 milljónir farþega og rúmlega fimm millj- ónir tonna af farmi. Flogið er þaðan til um 220 áfangastaða. » Þúsundir farþega fóru af flugvellinum í gær vegna orð- róms um lögreglan væri að undirbúa árás á mótmælendur til að koma í veg fyrir frekari raskanir á flugi. 21 árs Norðmaður var í gær úr- skurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hefði myrt stjúp- systur sína og ætlað að fremja hryðjuverk í mosku. Maðurinn var handtekinn eftir að hann hleypti af byssu í mosku í Bær- um, nálægt Ósló, á laugardag, vopn- aður að minnsta kosti tveimur byssum. Aðeins þrír menn voru í moskunni og einn þeirra, 65 ára múslími, yfirbugaði árásarmanninn. Nokkrum klukkustundum eftir árás- ina fannst lík sautján ára stjúpsystur árásarmannsins. Norskir fjölmiðlar segja að hún hafi fæðst í Kína og sambýliskona föður árásarmannsins hafi ættleitt hana. Maðurinn var með glóðaraugu og sár og marbletti á andliti, hálsi og höndum, líklega eftir átökin þegar hann var yfirbugaður. Hann glotti þegar hann kom í réttarsalinn áður en dómstóll í Ósló úrskurðaði hann í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Fyrstu tvær vikurnar verður hann í einangrun. Lögmaður hans sagði hann neita sök. Norska öryggislögreglan PST sagði að hún hefði fengið ábendingu um árásarmanninn fyrir um ári en ekki aðhafst neitt í málinu þar sem ábendingin hefði verið mjög óljós og ekki þótt benda til þess að hann væri að undirbúa hryðjuverk. Lögreglan sagði að maðurinn að- hylltist þjóðernisöfgar og hneigðist til útlendingahaturs. Hann hefði ver- ið með GoPro-myndavél á hjálmi og notað hana til að taka myndir af árásinni. Í gæsluvarðhald fyrir morð og árás  Talinn hafa ætlað að fremja hryðjuverk AFP Í gæsluvarðhald Norski árásar- maðurinn fyrir rétti í Ósló í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.