Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 Hinn 29. júlí skrif- aði ég grein í blaðið með fyrirsögninni „Andskoti erum við eitthvað léleg“. Fár- ast ég þar yfir því skelfilega dýraníði, sem hreindýraveiðum fylgir og við látum viðgangast. Áki Ármann Jóns- son, formaður félags veiðimanna, Skotvíss, svarar þess- ari grein minni í blaðinu 2. ágúst. ÁÁ er að mestu stillilegur og hóflegur, sem er auðvitað gott, en efnislega hrökklast hann út af beinu brautinni – braut þess sem rétt er og satt – endurtekið og í verulegum mæli. Er það jafnt illt eða verra en hitt er gott. Frumbyggjar Ástralíu beittu vopni sem kallað er boomerang. Þeyttu menn því að óvinum til að valda þeim tjóni en vopnið bjó yfir sérstökum loftflæðislegum eig- inleikum og kom það til baka til þess sem kastaði. Stundum ekki í hendur, heldur beint í hnakka. Skaðaðist þá kastari sjálfur. Við skulum nú sjá hvernig fer fyrir formanni Skotvíss en hann var einmitt í slíkum vopnaleik. „Kálfar eru ekki 8 vikna við upp- haf veiða …,“ 1. ágúst, segir ÁÁ. Umsjónarmaður hreindýra, Skarphéðinn G. Þórisson hjá Nátt- úrustofu Austurlands, segir í minnispunktum til Umhverf- isstofnunar og umhverfisráðherra 22. marz 2018: „Kálfarnir eru 8-10 vikna gamlir er kúaveiðar hefjast í ágúst.“ Sjálfur segi ég í umræddri grein frá 29. júlí: „… og skiptir þá litlu máli þó að eftir standi 8-10 vikna móðurlaus og hjálparvana kálfur“. Hvað er hér rangt? Í minni grein fáraðist ég yfir því að „á fjórða tug hreindýra“, sem felld voru í fyrra, hefði haft gömul skotsár; verið skotinn áður en lifað af. Nákvæm tala er 33 dýr og fékk ég hana hjá umsjónarmanni hrein- dýra. Athugasemd ÁÁ við þessu er: „… særð dýr sem felld eru á veiði- tíma er dýravelferð en ekki dýr- aníð“. Skilur þetta einhver? Þrátt fyrir fullyrðingar veiði- manna um annað tókst þeim ekki að drepa þessi dýr þegar fyrst var skotið á þau og komust þau særð og limlest undan til þess eins að verða skotin aftur og þá loks drep- in. ÁÁ fullyrðir þetta því til sönn- unar að kálfar séu eldri en 10 vikna, þegar kúadráp hefst: „Árið 2005 var miðburður kúa á Vestur- Öræfum til dæmis 13. maí.“ Þetta er 14 ára gamalt dæmi frá einu veiði- svæði. Ég vil þá nefna þetta dæmi: Þegar Landsvirkjun vann að Kárahnjúkavirkjun var líf og hátterni hreindýra á svæðinu kannað. Eitt vorið var fylgzt með 508 kúm. Hinn 18. maí höfðu 139 kýr borið eða rétt um fjórðungur þeirra. Þrír fjórðu báru eftir 18. maí, væntanlega fram í júní. Allur málflutningur minn, hrein- dýrum og þeirra velferð til vernd- ar, hefur byggst á því að kálfar séu 8-10 vikna – yngstir um 8 vikna og elztir um 10 vikna – þeg- ar kúaveiðar hefjast. Stendur þessi framsetning óhögguð. ÁÁ segir svo þetta: „… á sínum tíma var það metið svo að 10 vikna kálfar væru orðnir sjálfbærir og því óþarfi að fella þá með kúnum. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars“. Hér skal allmargt nefnt sem bendir til annars. Ég fer aftur í minnispunkta Skarphéðins G. Þór- issonar, umsjónarmanns hrein- dýra, frá 22. marz 2018: A. „Margar kýr venja kálfinn undan sér strax á fengitíma (sem er í október; kálfur 4-5 mánaða).“ „Þrátt fyrir það haldast tengsl milli kálfs og móður fram á vor.“ B. Frá 8 til 16 vikna aldurs kálfs er næringarinnihald mjólkur kýr- innar nánast óbreytt. C. Það sama gildir um mjólk- urmagn; það tekur meira að segja hnykk upp á við við 17. viku kálfs. D. Það sama gildir um fitumagn mjólkur og próteininnihald. E. „Fullorðnir tarfar reka oft tarfkálfa úr hjörðinni á fengitíma en þeir finna síðan móður sína eft- ir fengitíma og halda áfram að sjúga.“ F. „Samkvæmt Sjenneberg and Slagsvold hefur kálfur sem missir móður sína að vetri minni lífslíkur þar sem hann nýtur ekki mjólkur eða leiðsagnar hennar við beitina.“ G. Tafla um drykkjartíma kálfa, sem fylgir minnispunktunum, sýn- ir: – 8 vikna drekkur kálfur 8 sinn- um í hálfa mínútu í senn – 11 vikna 6 sinnum hálfa mín- útu, en þar sem sogkraftur og drykkjarorka hefur vaxið er mjólkurmagn svipað – 16 vikna drekkur kálfur enn 5 sinnum í hálfa mínútu en magnið helzt svipað. Í raun snýst ekki málið um það hvort kálfur sé 8 eða 10 vikna við móðurdráp. Hvort tveggja er allt of ungt. ÁÁ vill fara út í beitilandsum- ræðu. Hér eru 6-7.000 hreindýr á beit að sumri en 600.000 fjár og 80.000 hestar – margir villtir á há- lendinu. Hreindýr eru þannig um 1% grasbíta. Dettur einhverjum í hug í alvöru að beit hreindýra, jafnvel þó að stofn tvöfaldaðist eða þrefaldaðist, breytti hér miklu? ÁÁ vill nýta hungurdauða 200 hreindýra á Svalbarða til stuðn- ings því að hér verði að halda stofni í 6-7.000 dýrum. Svalbarði hefur miklu minna beitiland en Ísland og þar eru veð- urskilyrði miklu harðari en hér. Samt lifa þar 22.000 hreindýr og eru ekki nema nokkur hundruð dýr felld árlega. Hörmulegur hungurdauði dýr- anna 200, sem þó eru ekki nema 1% stofnsins, stafar af loftslags- breytingum og áhrifum þeirra. Í fyrrahaust voru óvenjumikil hlý- indi á Svalbarða, svo kom skyndi- lega mikið frost og mynduðust klakabrynjur yfir beitilandi sem gerði þessum hluta hópsins ókleift að komast í æti. Í Noregi má ekki byrja að drepa hreindýrakýr fyrr en 20. ágúst og þar sem kálfar fæðast nokkru fyrr í Noregi en hér – þar vorar fyrr – eru þeir því a.m.k. þriggja mánaða þegar dráp mæðra þeirra hefst. Elgskálfar fæðast á sama tíma í Svíþjóð; um miðjan maí. Elgs- veiðar hefjast þar þó ekki fyrr en 3. september þegar yngstu kálfar eru 3,5 mánaða. Dádýr eru líka náskyld hrein- dýrum. Í Svíþjóð fæðast kálfar þeirra líka um miðjan maí. Dá- dýrakýr má hins vegar ekki veiða þar fyrr en 1. október; þegar yngstu kálfar eru um 4,5 mánaða. Allir, sem eitthvað þekkja til spendýra, vita að það er mikill munur á burðum 2 mánaða og 3-4 mánaða ungviðis. Tekur ungviðið miklum framförum 3. og 4. mán- uðinn og styrkist til muna. Þetta virða frændur okkar, Norðmenn og Svíar enda gildir hjá þeim „jegeretikk“, veiðisið- fræði sem hér virðist óþekkt. Áki Ármann, hvernig væri að þið tækjuð frændur okkar á hinum löndunum á Norðurlöndum ykkur til fyrirmyndar? Áka Ármanni, formanni Skotvíss, svarað Eftir Ole Anton Bieltvedt »Hér eru 6-7.000 hreindýr á beit að sumri en 600.000 fjár og 80.000 hestar – margir villtir á hálendinu. Hreindýr eru þannig um 1% grasbíta. Ole Anton Bieltvedt Höfundur er stofnandi og formaður Jarðarvina. Það er sjálfsagt að bera í bakkafullan lækinn að bæta við enn einni greininni um orkupakkann. Ég get þó ekki varist þeirri hugsun að umræðan um hann sé orðin verulega afvegaleidd og komin út fyrir kjarna málsins. Í þess- um svokölluðu orku- pökkum er samsafn af tilskipunum ESB um orkumarkaðinn. Fyrsti orkupakkinn er frá 10. áratugnum og markar upphafið að því að brjóta upp markaðsráðandi einokun fyr- irtækja sem höfðu ráðið lögum og lofum á markaðnum. Annar pakkinn var samþykktur 2003. Með honum var neytendum tryggður réttur til þess að velja frá hvaða framleiðanda þeir keyptu raforku eða gas. Þriðji orkupakkinn var afgreiddur frá Evr- ópuþinginu árið 2009 en með honum er frjáls samkeppni tryggð á innri markaði Evrópusambandsins með raforku og gas, þvert á landamæri aðildarríkjanna. Hér hafa bæði 1. og 2. orkupakkinn verið innleiddir með tilheyrandi uppskiptingu í sérleyfis- og samkeppnisþætti. Á fyrrihluta árs 2017 ákvað sam- eiginlega EES-nefndin að fella 3. orkupakkann inn í EES-samning- inn. Ríkin þrjú sem aðild eiga að EES-samningum, þ.e. Ísland, Nor- egur og Liechtenstein, gerðu stjórnskipulegan fyrirvara við ákvörðunina og mun hún því ekki öðlast gildi fyrr en öll þrjú ríkin hafa aflétt fyrirvaranum fyrir sitt leyti. Þjóðþing síðastnefndra tveggja ríkja hafa aflétt fyrirvaranum en það hef- ur Ísland ekki gert. Þar stendur hnífurinn í kúnni og hefur haft í för með sér maraþonumræðu á Alþingi. Þær tilskipanir ESB sem ganga inn í 3. orkupakkann eru yfirgrips- miklar og ekki sérlega aðgengilegar í lestri. Í mjög stuttu máli má þó segja að þær fjalla fyrst og fremst um afmörkun og aðskilnað þeirra þátta sem þjóna orkumarkaðnum. Kröfur eru um bókhalds- og rekstr- arlegan aðskilnað milli þátta og í sumum tilvikum eignarhaldslegan aðskilnað. Hert er á reglum um flutning raforku yfir landamæri og þær gerðar víðtækari. Sjálfstæði eft- irlitsstofnana er aukið og almennt skulu eftirlitsstofnanir einstakra landa sjá um að framfylgja reglum (Orkustofnun hér) komi til ágrein- ings. Þvert á landamæri hefur ACER (Agency for the Cooperation of Energy Regulators) úrskurð- arvald í þeim deilumálum og vald til að beita viðulögum og sektum. Inn- an EFTA-ríkjanna er það eftirlits- stofnun EFTA (ESA) sem fer með þessar valdheimildir en ekki ACER. En allur þessi málatilbúnaður hefur það fyrst og fremst að markmiði að koma á samkeppnis- og samhæfðum orkumarkaði með frjálsum flutningi á orku milli landa og tryggja kaup- endum örugga orku á réttlátu verði. Ísland er ekki tengt þessum markaði og litlar líkur á að svo verði í náinni framtíð. Orkupakki þrjú hefur ekkert með sæstreng að gera. ACER eða ESA hafa ekkert boðvald um ákvarðanir í því efni, alveg sama hversu löng og þvælin „ef og kannski“ umræðan verður um það. Í umræðum í Noregi tók Alberto Potoschning, forstjóri ACER, skýrt fram að stofnun hans hefði ekki ákvörðunarvald um sæstrengi. Hann segir að hún ákveði ekki inn- viðauppbyggingu eða taki ákvörðun um orkuframkvæmdir. Málið snúist um að löndin fari eftir sömu leikregl- unum á orkumarkaðnum. Einnig var vakin athygli á atriðum sem liggja utan við valdheimildir ESB og ACER, þar var nefnd uppbygging orkufyrirtækja og lagn- ing sæstrengja. Mik- ilvægasta hlutverk ACER er að túlka regluverkið og búa til vinnureglur sem öll löndin verði að fylgja. Hertar reglur um orku- flutning yfir landamæri og viðurlög gegn brot- um á þeim eru vænt- anlega tilkomnar að fenginni reynslu til þess að gera kerfið skil- virkara. Alveg frá upphafi EES- samningsins hefur rafmagn verið skilgreint sem hver önnur vara og fjórfrelsið nær því til þess. Sérstaða rafmagns umfram aðra vöru er sú að það verður að nota það nánast í sömu andrá og það er framleitt. Það verður ekki sett á lager. Stór uppi- stöðulón á bak við vatnsorkuver eru þó einskonar geymsla á raforku. Þau eru ómetanleg innan allra orkukerfa og í því felst meðal annars fram- úrskarandi staða okkar. Ef menn vilja gera mikið úr valdaframsali verður að leita lengra aftur en til OP3. Ætli ákvæðin um fjórfrelsið í EES-samningum séu ekki drýgst í þeim efnum og einnig ýmsir þættir í orkupökkum 1 og 2. Valdaframsalið hefur verið til umræðu meðal virtra lögfræðinga og sýnist sitt hverjum. Ég vil benda á nýlega og ágæta grein eftir Vilhjálm Bjarnason um þátttöku okkar í alþjóðlegum stofn- unum og sé ekki betur en að valda- framsalið sem fylgir OP3 sé óveru- legt miðað við það sem áður hefur verið látið óátalið. Aðeins nokkur orð um sæstreng. Hann er dýrt fyrirbæri og áhættu- samt bæði fjárhaglega og tæknilega. Milli Austfjarða og Skotlands eru um 1.000 km og mesta dýpi um 1.000 m. Fyrir einhverjum árum sá ég áætlun um 1.000 MW streng sem átti að kosta um 300 milljarða. Miðað við núverandi umræðu um mögu- legan framtíðar orkuskort er vænt- anlega lítil afgangsorka í kerfinu til útflutnings. Það þarf því að byggja virkjanir til þess að hafa eitthvert rafmagn að flytja og flutningslínur til þess að flytja það að streng- endanum. Alls er áætlað að samfara strengnum verði að koma til inn- viðakostnaður í flutningsmann- virkjum og virkjunum upp á 500 milljarða. Þannig að fjárfestingin í heild er þá komin í 800 milljarða. Þeir sem staðið hafa í undirbúningi virkjana og flutningsvirkja vita manna best að sú vinna er bæði flók- in og tafsöm og yfir marga þrösk- ulda að fara. Í allri umræðu um fyrri orkupakka hefur meginstefið verið að gjaldskrár fyrir dreifingu og flutning á raforku skuli endurspegla allan kostnað af rekstri viðkomandi kerfis þar með talinn fjármagns- kostnað. Millifærsla og/eða nið- urgreiðsla kostnaðar er talin skekkja samkeppnisstöðu og því nánast bönnuð. Stóra spurningin er því sú hvort sæstrengurinn getur orðið sjálfbær á þeim forsendum. Í allri þessari óttablöndnu umræðu um valdaframsalið og sæstrenginn við vont og yfirgangssamt Evr- ópuvald kann þó að leynast einhver ávinningur sé það skoðað af öfga- lausri yfirvegun. Eftir Svein Þórarinsson Sveinn Þórarinsson » Þær tilskipanir ESB sem ganga inn í 3. orkupakkann eru yf- irgripsmiklar og ekki sérlega aðgengilegar í lestri. Höfundur er verkfræðingur. Afvegaleidd umræða um þriðja orkupakkann Við höfum loftventla úr plasti í kaffipökkum sem við kaupum til daglegs brúks. Það skilur enginn venjuleg- ur maður. Flottar plastumbúðir kosta svo sennilega eins og helmingur af innihaldinu, enda lifum við í geggjuðu umbúðaþjóðfélagi. Þetta kalla þeir að þjóna neytandanum. Það verður að lofta um kaffið maður áð- ur en hellt er upp á. Í gamla daga var maður sendur út í búð eftir einum kaffipakka og exporti sem var í bréfpokum og þótti gott. En nú er öldin önnur. Plast á plast ofan. Svo er plastkaffipakkinn auðvitað settur í annan plastpoka. Sem kannski er settur í þriðja plast- pokann! Sorpið er eitt aðalvandamál flestra sveitarfélaga! Hvað annað? En fáum dettur í hug að minnka sorp- umfangið. En allir skulu læra að flokka og plokka. En að minnka þetta sorprugl. Það má ekki. Þetta er nátt- úrlega bilun. Við erum alltaf að glíma við afleiðingar af öllu mögulegu, en gleymum oftast að gá að hverjar or- sakirnar eru. Það verður auðvitað að loka plastverk- smiðjunum! Auðun vestfirski. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Plastpokar Lifum við í geggjuðu umbúðaþjóðfélagi? Það verður að loka plastverksmiðjunum! Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.