Morgunblaðið - 13.08.2019, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir Kristrún
í síma 862 0382
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera í
Innri Njarðvík
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Áskógum 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin handavinnustofa kl. 9-12.
Leikfimi með Hönnu hefst þriðjudaginn 3. sept. kl. 9. Opið hús t.d. spil
kl. 13-15. Brids kl. 12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30.
Handavinnuhópur kl. 12-15.30. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipútt-
völl. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á
könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Brids og kanasta kl. 13.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.13.30.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Tölvu- og snjallsímakennsla kl. 13. Opin
handverksstofa virka daga. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegis-
matur kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar, kaffi kl. 14.30-15:30 alla virka
daga. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Verið velkomin á Vitatorg.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl. 14.45.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9-11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, eftirmið-
dagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Opnunartími lengist í dag í Borgum; opið virka daga frá kl.
8 til 16, allir hjartanlega velkomnir. Kaffi á könnunni, hádegisverður kl.
11.30 og kaffiveitingar kl. 14.30. Njótið vel, opið hús á morgun 14.
ágúst frá kl. 13, allir hjartanlega velkomnir.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl. 11, kaffihúsaferð kl. 14. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Ath. pútt og karlakaffi fellur niður í dag.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Bókhald
NP Þjónusta
Sé um að annast
bókhaldslausnir o.þ.h.
Hafið samband í síma
831-8682.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Gisting við flugvöll ...
Lítið og kósí sumarhús við lítinn
flugvöll á kjarri vöxnu landi á suðurl.
2 nætur eða fl.
Uppl. jks@visir.is
S. 8986033 ✝ Hlíf BorghildurAxelsdóttir
fæddist í Reykjavík
5. október 1945.
Hún lést á heimili
sínu, Hlíðahjalla 69,
Kópavogi, 1. ágúst
2019.
Foreldrar henn-
ar voru Oddný Lára
Emilía Pétursdóttir
hjúkrunarfræðing-
ur, f. 3. nóvember
1912, d. 27. september 1989, og
Axel Sveinsson yfirverkfræð-
ingur hafnamála, f. 3. apríl 1896,
d. 12. ágúst 1957.
Systkini Hlífar voru 1) Hulda
Sveinsson, f. 6. janúar 1920, d.
19. ágúst 2012, 2) Sólveig Axels-
dóttir, f. 23. desember 1933, d. 2.
janúar 2003, 3) Halla Mjöll Hall-
13. janúar 2013, Pétur Axel, f. 2.
september 2016, og Jósef Axel, f.
1. desember 2018.
Seinna barn Hlífar er Guð-
mundur Bragason, f. 12. febrúar
1979. Faðir hans er Bragi Guð-
mundsson, f. 23. janúar 1948.
Guðmundur er kvæntur Jóhönnu
Gísladóttur, f. 27. júní 1983. Börn
þeirra eru a) Emilía Dagbjört, f.
8. janúar 2007, b) Karólína Sæ-
unn, f. 12. desember 2008, og c)
Gísli Hrafnkell, f. 12. mars 2013.
Hlíf ólst upp á Kársnesbraut í
Kópavogi. Hún í gekk Kópavogs-
skóla og lauk gagnfræðaprófi
frá Lindargötuskóla. Hún starf-
aði lengst af sem bankastarfs-
maður. Hlíf sinnti öll sín fullorð-
insár félags- og
sjálfsboðastörfum, þar á meðal
fyrir Rauða krossinn, starfs-
mannafélag Íslandsbanka, Sam-
fylkinguna, Kvenfélag Lang-
holtssóknar og í starfi eldri
borgara Langholtskirkju.
Útför Hlífar fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 13. ágúst
2019, klukkan 15.
grímsdóttir, f. 15.
júní 1941, 4) Bjarni
Magnús Axelsson, f.
18. mars 1947, og 5)
Hallgrímur Axels-
son, f. 15. júlí 1948.
Fyrra barn Hlíf-
ar er Axel Pétur
Axelsson, f. 17.
mars 1963. Faðir
hans er Gylfi Har-
aldur Magnússon, f.
28. mars 1941.
Fyrrverandi sambýliskona Axels
Péturs er Hólmfríður Ásgeirs-
dóttir, f. 16. apríl 1964. Sonur
þeirra er Bjarni, f. 24. ágúst
1984. Þau slitu samvistum.
Axel Pétur er kvæntur Tigist
Wolde Werdofa, f. 9. maí 1985.
Börn þeirra eru: David Axel, f. 2.
apríl 2011, Oddný Lára Emilía, f.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Það er mjög óraunverulegt að
amma mín sé dáin. Hún var hjá
okkur í heimsókn hér fyrir norð-
an í júní og þá var hún mjög
hress, kenndi okkur öllum að
spila kínverska skák og sagði
okkur fullt af sögum af pabba
þegar hann var lítill.
Það er mjög margt sem við
barnabörnin eigum eftir að sakna
þess að gera með ömmu. Hún fór
til dæmis alltaf með okkur í
berjamó, skreytti með okkur
jólatréð, bjó til möndlugraut og
aspassúpu á jólunum, fór með
okkur í leikhús og á tónleika og
bara alls konar. Hún sagði eig-
inlega alltaf já þegar við spurðum
hana um eitthvað. Og ef við vor-
um lasin og pabbi og mamma að
vinna þá passaði amma Hlíf okk-
ur alltaf. Þá horfðum við á Múm-
ínálfana og borðuðum ís. Mér leið
alltaf vel heima hjá ömmu, þar
var rólegt og gott að slaka á.
Ég vona að Guð hafi tekið vel á
móti ömmu minni þegar hún dó
og að henni líði vel. Ég á eftir að
sakna hennar mjög mikið og
hugsa til hennar út lífið. Hvíldu í
friði amma mín.
Þín
Emilía Dagbjört.
Á einhverju fegursta síðsumri
á landinu okkar á þessari öld
kvaddi elsku mágkona mín jarð-
vistina eldsnöggt og öllum henn-
ar nánustu að óvörum.
Þetta var svo sem í hennar
anda þegar að er gáð. Yfirleitt
var ekki á henni neitt hik þegar
leysa þurfti viðfangsefni daglegs
lífs. Hún gekk jafnan til verks af
eljusemi og áhuga með kjark og
hjálpsemi að leiðarljósi. Mikið
hefði ég samt viljað að hægt hefði
verið að taka brottför hennar til
baka og við öll sem elskuðum
hana hefðum fengið að njóta nær-
veru hennar, vináttu og elsku-
semi enn um stund.
Örlögin verða ekki umflúin. Á
einu andartaki verða skil á milli
lífs og dauða. Kvöldið fyrir ferða-
lag hennar til eilífðarinnar var
hún í góðu yfirlæti hjá okkur
hjónum, mér og Hallgrími litla
bróður sem hún unni mjög. Við
nutum hefðbundins sumarkvölds.
Grilluðum og spiluðum kínverska
skák og „scrabble“ en hún elskaði
að spila sér til dægrastyttingar
og var afar góð spilamanneskja.
Kvaddi okkur sæl og glöð. Þessi
kvöldstund verður sem dýrmæt-
ur demantur í minningabankan-
um.
Við hjónin eignuðumst
skemmtibát árið 2005. Flest sum-
ur síðan þá hefur hún verið með í
för og kölluðum við hana skip-
sjómfrúna okkar. Ferðirnar á
hafinu voru mislangar. Stundum
var bara siglt um sundin blá í ná-
grenni borgarinnar eða langur
tími var tekinn í að sigla kringum
landið. Eftirminnilegasta ferðin
okkar var sigling til Færeyja í af-
ar slæmu veðri. Hafði hún ein-
staka ánægju af og við báðar að
segja frá þeirri ferð og krydduð-
um gjarnan frásögnina eins og
vera ber.
Það eru margir sem sakna
hennar. Svo mikil félagsvera var
hún og tengdist mörgum hópum.
Má þar einkum nefna sauma-
klúbbinn hennar, fyrrverandi
samstarfsfólk úr Íslandsbanka
og gönguhópinn „Áfram nú“ sem
við hjónin höfum einnig verið
þátttakendur í.
Hlíf starfaði í banka frá unga
aldri og raunar næstum alla sína
starfsæfi, lengst af í Íslands-
banka. Þegar hún var um sextugt
ákveður bankinn að segja upp
starfsfólki í eldri kantinum til að
yngja upp ásýnd bankans. Þetta
var fyrir hrun. Ekki gat hún
hugsað sér að setjast í helgan
stein á þessum tímamótum. Hún
hóf störf á sambýlum fyrir fatl-
aða og vann þar fram yfir sjö-
tugsaldur.
Síðustu árin hefur Hlíf unnið
sjálfboðastörf fyrir Langholts-
kirkju og var komin í stjórn kven-
félags kirkjunnar. Jafnframt tók
hún þátt í félagsstarfi aldraðra í
Kópavogi.
Við Hallgrímur kveðjum elsku
Hlíbbu okkar með miklum sökn-
uði. Við eigum ógrynni af yndis-
legum minningum sem munu
gleðja okkur í framtíðinni. Við
vottum þeim sem allra næst
henni standa, sonunum Gumma
og Axel Pétri og fjölskyldum
þeirra sem og öllum öðrum sem
tengdust henni fjölskyldu- og
vináttuböndum okkar dýpstu
samúð. Blessuð sé minning henn-
ar.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Hún Hlíf góða vinkona mín
hefur lokið lífsgöngu sinni. Ekki
datt mér í hug þegar hún hringdi
til mín fyrir nokkrum dögum og
ætlaði að koma í kaffisopa að
þetta yrðu okkar síðustu sam-
skipti.Ég var á leiðinni til Akur-
eyrar svo að ég sagðist hóa í hana
þegar ég kæmi suður. Ég sagði
henni líka að ég myndi skoða
prestssetrið á Laugalandi í Eyja-
firði þar sem tengdadóttir henn-
ar tók við prestsembætti í vor.
Ég skoðaði Laugaland og reyndi
án afláts að hringja til hennar
þaðan en fékk ekkert svar, eðli-
lega ekki.
Leiðir okkar Hlífar lágu í upp-
hafi saman þar sem við báðar
störfuðum í Íslandsbanka. En
vinskapur okkar hófst þegar við
komum saman í gönguhópinn
okkar góða. Þar bundumst við
góðum vináttuböndum. Hlíf var
góður og traustur vinur. Við eig-
um margar góðar og skemmtileg-
ar minningar því margt hefur á
dagana drifið í yfir tuttugu ár.
Við gerðum ýmislegt saman.
Fórum á tónleika, í leikhús og
kannski bara bæjarferð. Hlíf var
alltaf tilbúin ef ég hringdi og
stakk upp á einhverju. Saman
tókum við þátt í starfi Samfylk-
ingarinnar og alltaf var hún tilbú-
in að hjálpa til ef matur eða kaffi
voru á fundum.
Ekki lét hún sig vanta þegar
tengdadóttir hennar tók við
prestsembætti við Langholts-
kirkju fyrir nokkrum árum. Hún
var öflugur liðsmaður þar og var
búið kjósa hana í stjórn Kven-
félagsins. Já þær voru fljótar að
sjá hvað hún var traust og góð.
Ég hugsa líka til barna-
barnanna hennar. Hún var mjög
góð amma og átti hún gott og
ríkulegt samfélag með þeim.
Ég sakna hennar mikið.
Ég sendi fjölskyldu hennar
innilegar samúðarkveðjur. Ég
geri orð sonarsonar hennar að
mínum sem sagði á FB: Ég vona
að Guð taki vel á móti henni.
Blessuð sé minning hennar.
Guðrún Helga Jónsdóttir.
Kveðja frá félögum
í gönguhópnum Áfram nú
í Kópavogi
Nú er aldarfjórðungur liðinn
síðan hópur fólks í Kópavogi
ákvað að ganga saman, njóta
samveru og efla hreysti. Þar var
samankomið fólk sem þekktist
lítið og jafnvel ekki neitt. Þarna
hófst vegferð sem enn stendur.
Hópurinn hittist reglulega, í viku
hverri, að vetri, og fer saman í
lengri göngur að sumri, hér á
landi og í útlöndum. Á stundum
var siglt um firði og voga sem gaf
færi á að heimsækja staði sem
erfitt var að nálgast með öðrum
hætti. Göngur og hreyfing voru
meginmarkmið í fyrstu. Samver-
an þróaðist síðan yfir í trausta og
góða vináttu. Samskipti eru tíð og
hópurinn lætur sig varða líðan,
gleði og sorg félaganna.
Hlíf Axelsdóttir var göngu-
systir okkar. Það var hópnum
þungbært að fá fregnir af skyndi-
legu andláti hennar. Því miður
höfum við þurft að sjá á eftir
þremur félögum okkar og nú
þeim fjórða. Hlíf skilur eftir sig
skarð.
Hlíf var ljúfur félagi, glaðlynd
og vel að sér. Hún hafði skoðun á
ýmsum málum líðandi stundar og
gat verið ákveðin og rökföst,
einkum þegar mál lítilmagnans
bar á góma. En gamansemi og
skemmtileg umræða var þó aldr-
ei langt undan.
Hlíf átti ekki heimangengt í
allar gönguferðir okkar, svo sem
var um fleiri, en hún var þátttak-
andi í nokkrum minnisstæðum
ferðum. Sérstaklega má nefna
bátsferðir og göngur þar sem við
nutum góðs af því að félagar okk-
ar áttu skemmtibáta. Þar var Hlíf
í essinu sínu og titlaði sig gjarnan
skipsjómfrú.
Andlát Hlífar bar brátt að.
Ekkert okkar hafði boðið slíkt í
grun. Við vissum að fótamein
hafði hindrað göngu undanfarið
misseri en við bjuggumst við
bata. Félagar gönguhópsins ætla
í hjólaferð í útlöndum næsta sum-
ar og þar er innifalin sigling. Hlíf
hafði bókað sig í ferðina. Hún
mun örugglega vera með okkur í
anda og við hugsa hlýlega til
hennar.
Við vottum fjölskyldu Hlífar
dýpstu samúð og þökkum mætri
konu og góðum vini samfylgdina.
Látum þessar ljúfu ljóðlínur
Hannesar Péturssonar úr ljóði
hans Dveljum ekki heiðra minn-
ingu hennar.
Hjá upptökum fljótsins verður nóttin
kærkomin
þegar rökkvar í kyrrum tjörnum
heiðanna
og vindurinn kemur langan veg á fund
reyrsins
en við höfum skilið eftir kveðjur okkar
í öllum vörðum.
Fyrir hönd gönguhópsins
Áfram nú,
Eiríkur Páll Eiríksson
Guðmundur B.
Kristmundsson.
Það var mikið lán fyrir sjálf-
boðaliðana í starfi aldraðra í
Langholtskirkju þegar hún Hlín
Axelsdóttir kom í hópinn okkar.
Hún ætlaði að vísu aðeins að vera
með okkur í nokkrar vikur í af-
leysingum, en okkur til mikillar
gleði líkaði henni félagsskapur-
inn það vel að hún ákvað að vera
áfram.
Nú verður hennar sárt saknað.
Hlíf var ekki aðeins góður vinnu-
kraftur, hún var mjög greind
kona, með afbrigðum skemmti-
leg, hafði frábæran húmor og
sagði skemmtilega frá. Hlíf var
jákvæð og bóngóð, það var alltaf
gott að leita til hennar. Að sjálf-
sögðu urðu allir hennar kostir til
þess að aðrir hópar innan kirkj-
unnar vildu njóta þeirra og áður
en varði var hún komin í stjórn
Kvenfélags Langholtssóknar og
orðin messuþjónn í kirkjunni.
Það verður vandfyllt það skarð
sem Hlíf Axelsdóttir skilur eftir
sig.
Guðmundi syni hennar, Jó-
hönnu tengdadóttur og barna-
börnunum sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Fh. sjálfboðaliða í starfi aldr-
aðra í Langholtskirkju,
Helga Guðmundsdóttir
Sigríður Ásgeirsdóttir.
Hlíf Borghildur
Axelsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr.
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar