Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.08.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 13. UMFERÐ Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Það má segja að loks að eftir 13 um- ferðir hafi í fyrsta sinn dregið til tíð- inda í toppbaráttu úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max- deildarinnar. Í fyrsta sinn eru Breiðablik og Valur ekki jöfn að stig- um í titilkapphlaupi sínu og Valur kominn fetinu framar. Breiðablik gerði markalaust jafn- tefli við Þór/KA, en hafði áður unnið 11 leiki og aðeins gert jafntefli við Val. Það sama var uppi á teningnum á Hlíðarenda, en Valur gekk á lagið í þetta sinn með því að bursta botnlið HK/Víkings 7:0 og hefur nú tveggja stiga forskot á toppnum. Heimaleikur Blika við Val í næst- síðustu umferð deildarinnar er hins vegar enn úrslitaleikur um titilinn. Það eina sem er breytt er að Blikar mega ekki misstíga sig aftur, annars skipta þessu töpuðu tvö stig ekki máli í stóra samhenginu. Örlögin eru enn í eigin höndum og hvorugt liðið þarf að treysta á önnur úrslit. Fari hins vegar svo að Valur mis- stígi sig einnig og að lokum ráðist titillinn á markatölu er Hlíðar- endaliðið í sérflokki. Valur hefur skorað 51 mark og er með 43 mörk í plús gegn 31 marki í plús hjá Breiða- bliki, sem hefur skorað 43 mörk. Auk þess á Valur þrjá markahæstu leik- menn deildarinnar. Elín Metta Jen- sen hefur skorað 13 og þær Hlín Eiríksdóttir og Margrét Lára Viðars- dóttir hafa báðar skorað 12. Þær þrjár hafa samtals skorað mun meira en átta lið deildarinnar, en þriðja markahæsta liðið er Þór/KA með 24 mörk. Hlutirnir fljótir að breytast Á meðan eru hlutirnir fljótir að breytast í fallbaráttunni. KR var í fallsæti fyrir umferðina en skellti ÍBV 4:2 í Eyjum og komst upp í sjötta sætið. Keflavík er nú í fallsæti eftir tap fyrir Selfossi, sem komst upp í þriðja sætið á kostnað Þórs/KA, og þá er Stjarnan einnig í mikilli hættu eftir tap fyrir Fylki. Árbæingar eru komn- ir í góða stöðu í fimmta sætinu með fjórum sigrum í röð og eru níu stigum frá fallsæti þegar 15 stig eru eftir í pottinum. Á meðan eru KR og Stjarnan með 13 stig, ÍBV hefur 12, Keflavík 10 og HK/Víkingur er neðst með 7 stig. Innbyrðis viðureignir þessara liða eiga því eftir að vega þungt og líklega ráða úrslitum þegar yfir lýkur. Því er ekki úr vegi að skoða síðustu fimm leiki liðanna, í réttri röð:  KR á eftir að mæta Breiðabliki, Keflavík, Þór/KA, Selfossi og Stjörn- unni.  Stjarnan á eftir að mæta ÍBV, Breiðabliki, Keflavík, Þór/KA og KR.  ÍBV á eftir að mæta Stjörnunni, HK/Víkingi, Val, Fylki og Selfossi.  Keflavík á eftir að mæta Þór/KA, KR, Stjörnunni, HK/Víkingi og Val.  HK/Víkingur á eftir að mæta Fylki, ÍBV, Breiðabliki, Keflavík og Þór/KA. Af þessu má sjá að ekkert af lið- unum í fallabaráttunni á eftir að mæta bæði Breiðabliki og Val, en öll eiga annað þeirra eftir. Keflavík og Stjarnan eiga eftir að mæta þremur liðum sem eru með þeim í baráttunni en hin þrjú eiga eftir að mæta tveimur. Af þessu mætti ráða að Stjarnan og Keflavík væru í bestu stöðunni með að geta treyst á eigin frammistöðu gegn hinum liðunum í kringum sig. Á meðan gætu HK/Víkingur, ÍBV og KR hins vegar þurft að treysta meira á úrslit annarra leikja í fallbaráttunni. Frábær gegn meisturunum Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, markvörður Þórs/KA, er besti leik- maður 13. umferðar að mati Morgun- blaðsins. Hún fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í markalausu jafn- tefli við Breiðablik þar sem hún „lok- aði á skot af ýmsu tagi, greip fyrir- gjafir og föst leikatriði eins og herforingi,“ eins og Edda Garðars- dóttir skrifaði í umfjöllun sinni í blað- ið eftir leikinn. Bryndís Lára er 28 ára gömul og gekk til liðs við Þór/KA haustið 2016 og varð Íslandsmeistari með liðinu 2017. Eftir það tímabil ákvað hún að leggja markmannshanska á hilluna og sneri sér að frjálsum íþróttum. Hún sneri hins vegar til baka í bolt- ann síðast sumar, lék sex leiki með Þór/KA og sjö leiki með sínu gamla liði ÍBV, en hefur nú leikið 11 deildar- leiki með Þór/KA í ár. Hún á alls að baki 136 leiki með Þór/KA, ÍBV og Breiðabliki í efstu deild. Skoraði tvö og lagði upp eitt Fylkiskonan Ída Marín Hermannsdóttir er besti ungi leik- maður umferðarinnar að mati Morg- unblaðsins. Hún skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3:1-sigri Fylkis gegn Stjörnunni, sem var fjórði sigur liðs- ins í röð. Ída Marín varð 17 ára fyrir slétt- um mánuði og spilaði fyrsta leik sinn í efstu deild 14 ára sumarið 2016, en alls á hún að baki 21 leik í deildinni. Hún var í stóru hlutverki í 1. deild- inni í fyrra þegar Fylkir komst upp í efstu deild eftir eins árs fjarveru og hefur fest sig vel í sessi í sumar með sjö mörk í 13 leikjum. Þá á Ída Marín að baki 17 leiki með yngri landsliðum Ísland en hún á ekki langt að sækja hæfileikana, þar sem foreldrar hennar, Hermann Hreiðarsson og Ragna Lóa Stefánsdóttir, voru bæði í landsliðinu um árabil. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Cloé Lacasse, ÍBV 15 Elín Metta Jensen, Val 15 Sveindís Jane Jónsdóttir, Kefl avík 14 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 13 Natasha Anasi, Kefl avík 13 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 12 Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 10 Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 10 Hlín Eiríksdóttir, Val 10 Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 9 Berglind Rós Ágústsdóttir, Fylki 9 Dóra María Lárusdóttir, Val 9 Fanndís Friðriksdóttir, Val 9 Hallbera Guðný Gísladóttir, Val 9 Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 9 Lára Kristín Pedersen, Þór/KA 9 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Breiðabliki 8 Anna María Friðgeirsdóttir, Selfossi 7 Ásdís Karen Halldórsdóttir, KR 7 Elín Metta Jensen, Val 13 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 12 Hlín Eiríksdóttir, Val 12 Cloé Lacasse, ÍBV 11 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 11 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 11 Markahæstar Valur 79 Breiðablik 77 Kefl avík 60 Fylkir 57 ÍBV 57 KR 51 Selfoss 51 Þór/KA 51 Stjarnan 47 HK/Víkingur 41 Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 13. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019 Lið: Birta Guðlaugsdóttir, Stjörnunni 7 Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, Þór/KA 7 Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Fylki 7 Emma Kelly, ÍBV 7 Stephany Mayor, Þór/KA 7 3-4-3 Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir Þór/KA Ída Marín Hermannsdóttir Fylki Elín Metta Jensen Val Lára Kristín Pedersen Þór/KA Dóra María Lárusdóttir Val Margrét Lára Viðarsdóttir Val Katrín Ómarsdóttir KR Brynja Valgeirsdóttir Selfossi Berglind Rós Ágústsdóttir Fylki Guðmunda Brynja Óladóttir KR Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir Selfossi 3 4 4 33 3 6 6 2 Feilspor sem breytir engu  Breiðablik missteig sig en hefur örlögin þó enn í eigin höndum líkt og Valur  Fallbarátta milli fimm liða er á sama tíma galopin þegar fimm leikir eru eftir Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Best Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir á flugi út úr marki Þórs/KA. Morgunblaðið/Eggert Ung Ída Marín Hermannsdóttir var frábær með Fylki gegn Stjörnunni. Pepsi Max-deild karla Fylkir – Grindavík.................................... 2:1 Staðan: KR 16 11 3 2 35:20 36 Breiðablik 16 9 2 5 31:19 29 FH 16 7 4 5 22:23 25 HK 16 7 3 6 23:18 24 Stjarnan 16 6 6 4 26:24 24 Valur 16 7 2 7 28:24 23 ÍA 16 6 4 6 21:19 22 Fylkir 16 6 4 6 25:27 22 Víkingur R. 16 4 7 5 25:26 19 KA 16 6 1 9 23:28 19 Grindavík 16 3 8 5 13:18 17 ÍBV 16 1 2 13 12:38 5 Danmörk SönderjyskE – AGF................................. 0:0  Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik- inn með SönderjyskE en Frederik Schram sat á bekknum.  Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 68 mínúturnar með AGF. Staðan: København 5 5 0 0 11:4 15 Midtjylland 5 5 0 0 7:1 15 Brøndby 5 3 1 1 11:6 10 OB 5 3 0 2 10:7 9 SønderjyskE 5 2 2 1 7:4 8 AaB 5 2 1 2 8:5 7 Nordsjælland 5 2 1 2 9:7 7 Hobro 5 1 3 1 7:8 6 Horsens 5 2 0 3 5:8 6 Lyngby 5 2 0 3 5:10 6 Randers 5 1 2 2 8:8 5 AGF 5 0 2 3 3:6 2 Esbjerg 5 0 1 4 1:9 1 Silkeborg 5 0 1 4 5:14 1 Noregur Lilleström – Mjöndalen........................... 3:2  Arnór Smárason lék fyrstu 89 mínúturn- ar með Lilleström og skoraði eitt mark og lagði upp annað. Staðan: Molde 17 11 3 3 39:16 36 Bodø/Glimt 16 11 2 3 38:25 35 Odd 17 10 3 4 25:19 33 Brann 17 8 5 4 22:16 29 Rosenborg 17 8 4 5 26:21 28 Vålerenga 16 7 4 5 31:22 25 Kristiansund 16 6 5 5 19:17 23 Haugesund 17 5 6 6 25:20 21 Lillestrøm 17 6 3 8 22:28 21 Viking 16 5 4 7 21:27 19 Ranheim 17 5 3 9 18:29 18 Mjøndalen 17 3 8 6 24:29 17 Tromsø 17 5 2 10 19:35 17 Stabæk 16 4 4 8 15:22 16 Sarpsborg 16 2 8 6 17:22 14 Strømsgodset 17 3 4 10 19:32 13 Rússland Rostov – Krilia Sovetov .......................... 1:0  Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með Rostov en Björn Bergmann Sigurðarson var á bekknum. Pólland Lechia Gdansk – Jagiellonia .................. 1:1  Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Jagiellonia. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.