Morgunblaðið - 13.08.2019, Side 25

Morgunblaðið - 13.08.2019, Side 25
Í SARAJEVÓ Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Það er gríðarlega heitt í Bosníu og reiknað með allt að 35 stiga hita þeg- ar Breiðablik mætir heimaliði Saraj- evó rétt utan við borgina í lokaleik sínum í undanriðli Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu í dag. Í húfi er farseðillinn í 32 liða úrslit keppn- innar, en bæði lið hafa unnið hina tvo leiki sína í riðlinum. „Þetta verður erfiðasti leikurinn, það er alveg klárt,“ sagði Sonný Lára Þráinsdóttir, markvörður og fyrirliði Breiðabliks, þegar blaðamaður Morgunblaðsins settist niður með henni á hóteli liðsins í gær sem stað- sett er í fjalllendi ofan Sarajevó. Leikmenn og fylgdarlið voru þá flest- ir að skýla sér fyrir sólinni áður en haldið var á æfingu síðdegis. Þrátt fyrir að dvelja dágóðan spöl frá æfinga- og keppnisvöllunum sem notaðir eru völdu mótshaldarar að hafa liðin frekar á hóteli uppi í fjöll- unum en í miðri Sarajevóborg þar sem hitinn er enn meiri. Í fyrstu tveimur leikjunum fór hitinn yfir 30 stigin en leikmenn sögðust hafa fund- ið mikinn mun milli leikja og verið greinilega farnir að venjast því að spila við þær aðstæður þótt erfitt væri. Það ætti að koma að góðum notum í dag þar sem allt er undir, hvort sem horft er á fjárhagslegu hliðina fyrir Breiðablik eða þá von að íslensk lið komist ofar í styrk- leikaröðun keppninnar og sleppi von- andi við þessa undanriðla í framtíð- inni. „Við erum spenntar, þetta verður alvöruleikur. Við ætlum okkur sigur, að vinna riðilinn og fara áfram en við verðum að vera alveg 100% stemmd- ar,“ sagði Sonný Lára og sagði það engu skipta þótt Blikum dugi jafn- tefli til þess að vinna riðilinn. Stefnan sé ekki sett á neitt annað en sigur í leiknum sem hefst klukkan 17 að staðartíma, 15 að íslenskum tíma, áð- ur en haldið verður heim á leið strax á morgun. Gott að komast í burtu sem lið Breiðablik vann ASA Tel Aviv frá Ísrael í fyrsta leik, 4:1, en Sarajevó vann leik þeirra 1:0. Sarajevó vann Dragon frá Norður-Makedóníu 5:0 í fyrsta leik sínum en Breiðablik gerði töluvert betur og vann Dragon-liðið 11:0 í skrautlegum leik eins og þegar hefur verið komið inn á hér í blaðinu og á mbl.is. Vegna betri markatölu dugar Blikum jafntefli, en búast má við að Sarajevó sé svipað að styrk eða aðeins sterkara en Ísraelarnir. Möguleikar Blika eiga því að vera ansi góðir. „Það er engin pressa. Við bara spilum okkar leik og þá á allt að ganga vel. Nú er bara að klára þetta verkefni og fara svo heim og klára hitt með stæl,“ sagði Sonný Lára og vísar til Íslandsmótsins þar sem Blik- ar eru í harðri baráttu um Íslands- meistaratitilinn við Val. Hún telur að þessi ferð til Bosníu muni gefa liðinu mikið þegar heim verður komið. „Já klárlega. Það er alltaf gott að fara í burtu saman sem lið og ætti að þjappa okkur saman. Það er fínt að komast í burtu og gefa Íslands- mótinu smápásu. Það skemmtilega við þetta líka er að maður veit oft ekkert hvað farið er út í. Þetta hefur verið bæði fróðlegt og skemmtilegt,“ sagði Sonný Lára Þráinsdóttir við Morgunblaðið í Bosníu. Hitinn nær hámarki þegar allt er undir hjá Blikum í Bosníu  Mikið í húfi í lokaleik Breiðabliks í undanriðli Meistaradeildarinnar í dag Ljósmynd/Ingibjörg Auður Bosnía Byrjunarlið Breiðabliks sem burstaði Dragon frá Norður-Makedóníu, 11:0, í Sarajevó á laugardag. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2019 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan GÆÐA BAKKAMATUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins, bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskaran matreiðslu. Hádegismatur d MisMUnAndi RéTTiR AllA dAGA viKUnnAR EldUM EinniG fyRiR MöTUnEyTi Að labba inn á íþróttavöll getur haft ótrúlegustu áhrif á dagfarsprúða menn. Menn sem eru hinir rólegustu og kurteis- ustu geta hagað sér eins og hálf- gerðir villimenn á íþróttavell- inum. Ég er ekki að gagnrýna slíka íþróttamenn, alls ekki. Keppn- isskapið verður til þess að þeir ná enn lengra en þeir annars myndu gera. Knattspyrnumaðurinn Luis Suárez er til í að gera allt til að vinna og stundum fer hann langt yfir strikið. Væri hann ekki með þessa skapgerð á vellinum, væri hann hins vegar ekki eins góður. Diego Costa er annað dæmi. Eins og Suárez fer hann stund- um langt yfir strikið, en hann væri ekki eins góður og hann er, væri brjálað keppnisskapið ekki til staðar. Þeir sem þekkja þá vel segja þá afar rólega og hlédræga utan vallar. Pétur Viðarsson, fótbolta- maður hjá FH, er annað dæmi. Hann dansar á línunni í leikjum; kvartar mikið við dómara og læt- ur sóknarmenn andstæðinganna stundum finna vel fyrir því, bæði með tæklingum og kjafti. Hann fékk beint rautt spjald fyrir að kalla dómara „fokking þroska- heftan“ fyrr í sumar. Ég hef tekið viðtöl við Pétur eftir leiki, þar sem hann er ein- staklega kurteis og almennileg- ur. Hann umturnast í skapinu þegar á völlinn er komið og það gerir hann að betri leikmanni en hann annars væri. Þótt það komi augnablik þar sem mér finnst þessir íþrótta- menn fara yfir strikið, get ég ekki annað en dáðst að þeim á sama tíma. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Ísland mætir Japan í 16-liða úrslit- um heimsmeistaramóts U19 ára landsliða karla í handbolta í Norð- ur-Makedóníu. Íslenska liðið lék lokaleik sinn í D-riðlinum í gær og varð að sætta sig við 22:26-tap fyrir Þýskalandi. Ísland vann Serbíu, Brasilíu og Túnis í riðlinum en tap- aði fyrir Þýskalandi og Portúgal og hafnaði því í þriðja sæti. Haukur Þrastarson lék ekki með íslenska liðinu í gær og í hans fjar- veru var sterkt lið Þýskalands betra. Dagur Gautason skoraði fjögur mörk fyrir íslenska liðið og þeir Goði Ingvar Sveinsson, Tumi Steinn Rúnarsson og Einar Örn Sindrason skoruðu allir þrjú mörk. Svavar Sigmundsson varði átta skot í markinu og var með 38 pró- sent markvörslu. Japan sýnd veiði en ekki gefin Japan tapaði fyrir Danmörku í fyrsta leik sínum á mótinu en vann svo Barein, Japan, Nígeríu og heimamenn í Norður-Makedóníu og náði með því öðru sæti C-riðils. Jap- anar voru heppnari en Íslendingar með riðil, en þrátt fyrir það er ljóst að um uppgang er að ræða í jap- önskum handbolta. Japan hafnaði í áttunda sæti í Georgíu fyrir tveim- ur árum á meðan Ísland endaði í tí- unda sæti á sama móti. Einhverjir gætu fagnað því að Ísland mætir Japan, en ekki einhverri af sterkari þjóðum Evrópu, en það er ljóst að japanska liðið verður ekki auðvelt viðureignar. Japan skoraði 30 mörk að meðaltali í leik í riðla- keppninni á meðan Ísland skoraði 25. Japan fékk hinsvegar á sig tveimur mörkum meira í leik að meðaltali en Ísland. Tap gegn Þjóðverj- um og Japanir bíða Ljósmynd/IHF Fjögur Dagur Gautason var marka- hæstur hjá Íslandi með fjögur mörk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.